Morgunblaðið - 04.04.1971, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1971
Skrifsfofustúlka
óskast frá kiukkan 1—5,30. Ekki unnið á laugardögum.
Þarf að vera vön öllum venjulegum skrifstofustörfum.
Ef óvön, þá verzlunarskólapróf eða annað samsvarandí.
Upplýsingar klukkan 11—12 og 4—5. Ekki í síma.
Halldór Jónsson hf„
Hafnarstræti 18.
Skriistoiustúlkur óskust
Opinber stofnun óskar að ráða skrifstofustúlkur nú þegar
eða srðar ! vor eftir samkomulagi.
Verzlunarskólapróf eða hliðstæð menntun áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf
sendist Morgunblaðinu fyrir 10. þ. m., merkt:
„Skrifstofustarf A. B. 7 — 466”. *
Jörðin Hjallholt
í Kirkjuhvammshreppi, Vestur-Húnavatnssýslu, er til sölu og
laus til ábúðar næsta vor.
Ibúðarhús er steinsteypt, 90 fm, byggt árið 1965. Rafmagn er
frá samveitu. Fjárhús er fyrir 180 fjár og fjós fyrir 7 gripi.
Þurrheyshlaða er fyrir 300 hestburði og votheyshlaða fyrir 100
hestburði. Tún er 15 hektarar og ailmikið land framræst og
þurrkað til ræktunar. Möguleikar eru til hrognkelsaveiði o. fl.
Nánari upplýsingar hjá Jóni Eggertssyni, Hjallholti, sími um
Hvammstanga og í sima 50394.
Tilboð þurfa að berast fyrir 30. apríl næstkomandi.
PIERPONT-
FERMINGARÚR
Öll nýjustu
úrin
og úrval af öðr-
um þekktum
merkjum.
Úraviðgerðir
Vekj araklukkur, rafmagnsvekj araklukkur,
skeiðklukkur og skákklukkur til fermingargjafa.
Öskcsr úrsmiður
EINHAMAR SF.
hefur til sölu nokkrar þriggja og fjögurra herbergja fuligerðar
íbúðir með frágenginni lóð við Vesturberg í Breiðholti III.
Afhending snema á næsta ári.
Beðið verður eftir Húsnæðismálastjórnarláni 600.000,00.
Verð á þriggja herbergja ibúð 1.190.000,00 kr.
Verð á fjögra herbergja íbúð 1.440.000,00 kr.
Upplýsingar í skrífstofunni, Hverfísgötu 39 kl. 14—18, simí
25990 og i kvöldsíma 32871.
Reyk j a víkurbr éf
Frarnhald aí Ws. 17.
landi, að dómi þessara ungu
kommúnista, vegna aðildar okk-
ar að NATO.
Vietnam
Eins og kunnugt er, hafa
kommúnistar og ýmsir aðrir
vinstri menn lagt á það þunga
áherzlu, að Morgunblaðið
og Sjálfstæðisflokkurinn styðji
fjöldamorð í Víetnamstríðinu og
hér við blaðið vinni einungis
stríðsæsingamenn af verstu teg-
und. Ef einhver trúir þessu, er
honum auðvitað heimilt að gera
það, en sá sem þessu trúir, verð
ur ekki Iaeknaður á svipstundu,
því að hann vill trúa og neitar
að viðurkenna annað en trú
sína. Hitt er svo annað mál, að
Morgunblaðið virðist hafa sinnt
lítt þvi hlutverki sínu að skýra
fólki frá afstöðu sinni til Víet-
namstríðsins. T>ar virðist margt
hafa farið fyrir ofan garð og
neðan. En stefna blaðsins er
skýr og ótvíræð: Ríkisstjóm ís-
lands á að ná samkomulagi við
aðrar norrænar þjóðir um það,
að þær kref jist þess á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna að allur er
lendur her fari þegar úr öllum
sjálfstæðum löndum í Indókína.
Suður-Víetnamar hafa ekkert
leyfi til að gera innrás i Laos,
og þeir eiga ekki að vera í Cam-
bódiu. Bandaríkjamenn hafa
ekkert leyfi til að gera innrás í
Cambódiu, þó að þeir hafi auð-
vitað leyfi til að veita þéim lönd-
um hjálp, sem þess óska. Og
Norður-Víetnamar hafa ekkert
leyfi til að ráðast inn í Laos,
Cambodiu, eða Suður-Vietnam.
Eða — hvað mundu menn segj*,
ef ráðizt væri inn i Thailand?
Væri það „leyfi'legt?"
Þessi stefna, að allir erlendir
innrásarherir fari úr sjálfstæð-
um löndum er skýr og einföld,
og ef eftir henni væri farið,
væri nú betur ástatt í heiminum
en verið hefur, t.a.m. væri ekki
innrásarlið Rauðahersins í Ung-
verjalandi og Tékkóslóvakíu
Innrásir í sjálístæð lönd á ekki
að líða og nú má spyrja: vilja
kommúnistar og fylgifiskar
þeirra sameinast um þessa
stefnu, sem mundi leiða til frið-
samlegrar sambúðar í reynd
hvarvetna um heim? Eða vilja
þeir leyfa sumar innrásir — og
ekki aðrar. Það mun koma í ljós.
1 þingsályktunartillögu þeirra,
sem liggur fyrir Alþingi, er þess
krafizt að Bandariikin hætti
styrjaldaraðgerðum sínum í
Indókína og kalli heri sína heim.
Þessi tillaga gengur of skammt.
Hví er þess ekki krafizt að
Ástralíumenn o.fl. fari heim?
Það skyldi þó ekki vera, að
slíkt skipti ekki máli í áróðri
kommúnista?
Skrifið þér
fyrst undir
Enn ein er sú bók, sem nú
vekur mikla athygli, enda er höf
undur hennar heimskunn
ur stjórnarerindreki, W. Averell
Harriman. Rit hans nefnist
„America and Russia in a
Changing World“. Harriman
hefur verið sendur í marg-
ar mikilsverðar ferðir. Hann hef
ur fylgzt með atburðum betur
en flestir aðrir á okkar dögum,
tekið þátt í sumum, jafnvel haft
áhrif á aðra vegna þess trausts,
sem menn hafa jafnan borið til
hans. Til gamans má geta þess,
að hann hitti Krúséf 1963. „Krús-
éf sagði: „Þar sem við höfum
nú ákveðið að banna tilraunir
með kjarnorkuvopn, skulum við
undirskrifa nú og semja smá-
atriði (sáttmálans) seinna." Ég
afhenti honum bréf, sem ekkert
var skrifað á og sagði: „Gott.
Þér skrifið fyrst undir“.“
Þessi frásögn sýnír vel
kænsku kommúnistaleiðtoganna
og bandamanna þeirra. Salvador
de Madariaga segir meðal ánn-
ars í athyglisverðri grein, sem
birt er í Morgunblaðinu í dag:
„Deilumar um vopn til Suður-
Afríku eru dgemigerðar fyrir
það menntunarlega stjómleysi,
sem vinstri — öfgasinnaðir hug-
myndafræðíngar stjóma með að-
stoð góðviljaðra og nytsamía
sakleysingja. Vinstri öfgasinn
amir brezku, sem stjóma her-
ferðinni, eru nær allir heils hug
ar hlynntir auknum viðskiptuni
við Rússland og leppríki þess,
þótt stjómimar í þessum lönd- —
um séu enn vérri en í Suður-
Afríku.
Nyerere forseti, sem ásakaði
Heath um kynþáttahatur, líður
sjálfur viðbjóðslegt afbrigði kyn-
þáttamisréttis í Zansibar, þar
sem arabískar stúlkur eru nú
neyddar til að giftast svertingj-
um, sem þær kæra sig ekkert
um.
Enginn mótmælir þvi, að
brezkar, franskar og ítalskar
vélaverksmiðjur reisa risastórar
verksmiðjur fyrir þungaiðnað í
Sovétríkjunum og veita þeim
þar með þekkingu sína, sem er
hið sama og að veita hana her-
gagnaiðnaðinum
Það er m.a. þessu að þakka,
að Sovétríkin fara ekki hótinu’
betur með helminginn af Evrópu
en Suður-Afríka fer með sína
svörtu og lituðu. Það er satt að
segja margt, sem bendir til þess
að mestu kynþáttamisréttis-
postulamir, sem tóku þátt í sam
veldisráðstefnunni í Singapore,
hafi verið hópur Afriikumanín'a ...
.....illa meiddur eftir þetta
„vinnuslys" fór Dutsehke til
Englands til að ná heilsu og
gegna skyldu sinni sem komm-
únisti," heldur greinarhöfundur
áfram. „Stærsta brezka dagblað
ið úthlutaði honum hálfri siðu
og risastórri mynd, svo að hann
gæti svarað spumingum. Ekki er
að finna eitt einasta orð í svömn-
um, sem hefur sig einn milli-
metra yfir hin allra útslitnustu
vigorð kommúnista, og hann út-
skýrði ekki með einni einustu
setningu, hvers vegna hann
vildi stunda nám í Bretlandi, þar
sem ríkir stjórn, sem hann vill
kwma fyrior kattarnef, en ekiká í
Rússlandi, þar sem er stjóm sem
hann dáir augsýnilega mjög.
Hvers vegna allt þetta uppþot?
Brezka blaðið gat auðvitað ekki
úthlutað Þjóðverjanum unga
minna pláss en Nyerere forseta,
sem þakti hinn helming síðunn-
ar. En hin líklega ástæða, sem
var öskruð, skrifuð og likam-
lega gefin til kynna, var hin
hefðbundna gestrisni Breta
gagnvart ofsóttum menntamönn
um heimsins.
Það einasta „leiðinlega" við
þetta er, að Dutschke er alls
ekki ofsóttur í sínu eigin iandi,
sem lýtur nú sósíalistastjóm,
sem ekki er alveg óvinsamleg i
garð kommúnista.
Hin raunverulega ástæða er
heimssamband kommúnista og
áróðursvél þess. Þegar sósial-
isti, frjálslyndur maður eða
kristilegur demókrati eru ofsótt
ir, hefur heimurinn varla hug-
mynd um það. Þegar kommún-
isti er ofsóttur, eru rekin upp
öskur um heiminn þveran og
endilangan. Kommúnistamir
framleiða sjálfir hávaðann og
nytsömu sakieysingjamir eru
eins og magnarar."
Greinarhöfundur klykkir út
með því að benda á, að mesti
óvinur kommúnismans er vonin:
von fólksins f kommúnistalönd-
unirm, þrátt fyrir alít.
Þekkt ínnflutnings -og verzlunarfyrirtæki í Reykjavík
óskar að ráða.
aðalbókara
nú þegar.
Upplýsíngar (ekki í síma) veitir Atli Hauksson,
löggiltur endurskoðandí, Suðurlandsbraut 10, Reykjavík.
iimsm Roamer-úr
O F S.w I T Z E R L A N D
handa hverju
fermingarbarni
Georg V. Hannah úrsmiður
WfÍlÉSW^ . Kef/avík
Húsgagnaverzlun
Kaj Pind hf.
Crettisgötu 46 — Sími 22584
LONDON SÓFAR 2ja sæta. Úrval áklæða.