Morgunblaðið - 16.04.1971, Síða 10
A 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1971
! =
Barátta Bengala
Ein af fyrstu myndunum frá Dacca, sem hefur verið lokuð borg-. — Þúsundir heimila í verka-
mannahverfi borgarinnar eru rústir einar eftir árásir pakistanska hersins.
Ibúar Austur-Pakistans segja að þeir séu reiðubúnir að berjast
gegn vestur-pakistanska hernum unz yfir ljúki, þótt þeir séu
fátæklega búnir vopnum.
Vestur-pakistanska stjórnin birti nýlega þessa mynd af for-
ingja Bengala, Mujibur Rahman, fursta, þar sem hans er gætt
af lögreglumönnum á flugvellinum í Karachi.
Óbreyttir borgarar flýja frá Dacca, höfuðborg Austur-Pakistans, þar sem þeir misstu heimili
sín er herinn braut stuðningsmenn Mujiburs Rahmans fursta í borginni á bak aftur.
Éi
v::: •;%••;■":;:
Wmmí
Fjöldi hermanna hefur gengið í lið með uppreisnarmönnum í Austur-Pakistan, og þessi mynd
sýnir æfingu í herbúðum í bænum Chudangha.
Hungur sverfur nú að íbúum Austur-Pakistans og þúsundir
flóttamanna, sem komið hefur verið fyrir í búðum skammt frá
indversku landamærunum, eru hjálpar þurfi.