Morgunblaðið - 04.05.1971, Blaðsíða 18
y 18 MÓRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAl 1971
Guðni Eggertsson
frá Gerði - Minning
Faeddur 26. ágúst 1907
Dáinn 27. aprU 1971.
1 ÐAG er lagður til hinztu hvíld-
ar að Innra-Hólmskirkju Guðni
Eggertsson, fyrrverandi bóndi í
Gerði.
Guðni var fœddur að Stóru
Drageyri í Skorradal 26. ágúst
1907. Þaðan fluttist hann ungur
t
Móðir okkar,
Margrét Jónsdóttir,
Holtsgötu 18,
andaðist að Elli- og hjúkrun-
arheimilinu Grund 1. maí.
Guðjón Kristmannsson,
Gunnar Kristmannsson,
Ólafur Kristmansson.
t
Ingibjörg Jóhannsdóttir
frá Prestshúsum, Mýrdal,
lézt 1. maí að heimili sínu,
Selvogsgrunni 11.
Börn hinnar látnu.
t
Sonur minn,
Ingvar Ste'fánsson,
cand. mag.,
lézt í sjúkrahúsi í London
30. apríl.
Jórunn Jónsdóttir.
með foreldrum sínum, Unni Jóns-
dóttur og Eggerti Guðnasyni, að
Bráðræði í Innri Akraneshreppi,
þar sem hann ólst upp elztur sex
systkina. Eins og algengt var á
þessum árum fór hann snemma
að heiman og vann fyrir sér, að-
allega við sveitarstörf. Guðni
fluttist að Gerði í Innri Akranes-
hreppi 1929 og kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Indiönu Bjarna-
dóttur, og hófu þau búskap þar
ásamt foreldrum hennar.
Þeim varð tveggja barna auð-
ið, sem eru Sigurbjarni, tækni-
fræðingur, kvæntur og býr í
Danmörku og Sigríður, gift og
búsett í Reykjavík. Barnabörnin
eru fimm og voru þau yndi afa
síns og eftirlæti.
Guðni og Indíana hættu bú-
skap og fluttust til Reykjavíkur
1958.
Við, sem þessar línur ritum,
komum að Gerði ungir að árum
bæði móður- og föðurlausir, þar
t
Eiginmaður minn,
Guðmundur Ögmundsson,
Skipholti 30,
andaðist að Vífilsstöðum
3. mai.
Fyrir hönd barna og tengda-
barna,
Sólveig Jóhannesdóttir.
t
Bróðir okkar,
Sigurður Jónsson,
endurskoðandi,
lézt að heimili sínu, Týs-
götu 1, að kvöldi laugardags
1. maí.
Guðrún K. Jónsdóttir,
Vaigerður Jónsdóttir,
Magnús G. Jónsson.
t
Fósturfaðir okkar,
Ketill Þórðarson,
Mánagötu 3,
lézt 1. maí í Borgarspitalan-
um.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðlaug B. Sveinsdóttir,
Anna H. Sveinsdóttir.
t
Móðir mín og dóttir okkar,
Ragnheiður
Brynjólfsdóttir,
andaðist í Landspitalanum
20. apríl. Jarðarför hefur far-
ið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Þórólfur Tómasson,
Ásta B. Þorvarðsson,
Brynjólfur Þorvarðsson.
t
Eiginmaður minn,
JÓN BJÖRNSSON
frá Sólheimum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. maí
klukkan 3.
Fyrir hönd vandamanna,
Valgerður Eiríksdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og fósturfaðir,
PÁLL sigfús jónsson, m
fyrrverandi kaupmaður,
Rauðalæk 69,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 5. maí
klukkan 13.30.
Lovísa Þorláksdóttir,
Svavar Berg Pálsson,
Kolbrún Amgrímsdóttir,
Rögnvaldur Þór Þórðarson.
sem við ólumst upp við ást og
hlýju frá þér, konu þinni og
tengdaforeldrum. Við þökkum
þér af alhug fyrir alla hjálp á
erfiðu æskuskeiði. Kæri vinur,
þú varst góður félagi, skemmti-
legur, spaugsamur og hnyttinn
í orðum, enda vel hagmæltur
og hafðir gott vit á kveðákap,
og ortir mjög fögur tækifæris-
ljóð og stökur. Þú unnir sveit-
inr.i okkar og sýndir bezt hug
þinn í þessum Ijóðlínum:
Fagra Akraf jallið kæra,
flest sem geymir sporin mín,
kýs ég nú í litlu ljóði
leiða hugann upp til þín.
Fyrst í dalsins faðmi blíðum
fylltist sálin guðaró,
þá var tíðum tæpa gatan
tifuð, þó að væri mjó.
Hjartans þökk um ævi alla
áttu, kæra fjallið mitt,
fyrir okkar fornu kynni
fel ég drottni nafnið þitt.
Hinztu hvíld þar helzt ég vildi
hljóta eftir liðinn dag,
svo ég aftur á þeim slóðum
ætti fagurt sólarlag.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og útför eiginkonu minnar,
móður og ömmu,
Sigrúnar Eyjólfsdóttur,
Suðiirgötu 63, Hafnarfirði.
Snorri Ólafsson,
Halidór Snorrason,
Snorri Halldórsson.
Guðni var mjög söngelskur og
hafði mjög góða rödd. Hann var
einh af stofnendum kirkjukórs
Innra-Hólmssóknar.
Guðni var mjög verklaginn
maður og kunnu sveitungar hans
vel að meta það. Þeir leituðu oft
til hans og var hann alltaf boð-
inn og búinn til hjálpar. Það eru
margir, sem vildu segja „þökk
sé þér“.
Hann var fjárglöggur mjög og
hans mesta yndi voru hestar og
átti hann marga gæðinga um
dagana.
Þegar fundum okkar bar sam-
an eftir að hann fluttist til
Reykjavíkur, var alltaf efst
í huga hans sveitin okkar og
hvernig fólki vegnaði þar.
Guðni andaðist eftir stutta
sjúkdómslegu, en hafði átt við
vanheilsu að stríða undanfarin
ár, einmitt þegar bjartari og
hlýrri dagar voru á næsta leiti,
en vorið og sumarið kunni hann
manna bezt að meta.
Elsku Inda mín, við vottum
þér og börnunum innilega sam-
úð okkar.
Farðu vinur sæll um ljóssins
lönd
lif þar sæll ég þakka okkar
kynni,
vertu sæll þér veiti drottins
hönd
vemd og styrk í nýju
lífsvistinni.
Jón og Geir Gíslasynir.
„HVAR sem góðir menn fara,
þar eru guðs vegir.“
Á mildum og björtum vor-
morgni kvaddir þú, vinur, þá
veröld, er hafði verið heimkynni
þín í rösk 63 ár. Á svo löngum
degi er ekki að efa, að margt
hefur þú reynt, bæði blítt og
strítt. Hin síðari ár tók heilsu
þinni mjög að hraka, en aldrei
heyrðust frá þér æðruorð og
brosið og hjartahlýjan voru ætið
þau sömu.
Vagga þin stóð í einu blóm-
legasta héraði þessa lands, Borg-
arfirði. Heimkynnum Egils á
Borg og Snorra í Reykholti og
er því sizt að furða, þótt „stak-
an“ væri þér kær. Var þér tamt
að grípa til ljóðlistarinnar, bæði
í gleði og sorg, en slík náðar-
gjöf er aðeins fáum útvöldum
gefin.
Ég minnist þess, er fundum
okkar fyrst bar saman, Guðni
minn, að þú taldir að ég hlyti
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall
HULDU INGADÓTTUR,
Drápuhlíð 30.
Sérstaklega þökkum við Eimskipafélagi íslands og starfsfé-
lögum hennar þar.
Kristinn G. Þorsteinsson,
Kristinn Guðjón Kristinsson
og aðrir vandamenn.
t
Innilegar þakkir til vandamanna, vina starfsmanna Slökkvi-
stöðvarinnar í Reykjavík og allra þeirra, sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
ur okkar, tengdamóður og ömmu.
að vera a.m.k. hagyrðingur, ef
ekki stórskáld, þar sem uppruni
minn væri úr Þingeyjarsýslu og
tjóaði ekki á móti að mæla.
Barst tal okkar þvi fljótlega að
Ijóðagerð og minnist ég þess, að
þú þuldir upp heilu ljóðabálkana
eftir góðskáldin okkar og flutt-
ir með slíkri kynngi að ég hygg
það á fárra færi að lifa sig svo
inn í hugsjónir og drauma þess-
ar snillinga, hvort sem í hlut
eiga lærðir eða leikir. Við Þing-
eyingar höfum ekki talið okkur
neitt smáveldi á þessu sviði, en
ég játa það fúslega, vinur, að
ég fann ónotalega til vanmáttar
míns í þessu sambandi og
skammast ég mín ekki fyrir að
játa það.
Öll þín beztu starfsár stund-
aðir þú búskap í heimabyggð
þinni og þar mun hugur þinn
löngum hafa dvalizt, þótt leiðir
þínar lægju að lokum til höfuð-
borgarinnar, þar sem þú endaðir
þitt æviskeið. — Ég minnist þess
hve ásjóna þín Ijómaði, er þú
ræddir um góðhestana þina og í
augum þinum voru þeir vinir og
félagar, og okkur bæri að um-
gangast öll dýr, sem okkur væri
trúað fyrir, á þann hátt.
1 dag ert þú á ný kominn til
þinnar kæru heimabyggðar, þar
sem þú munt sjá bjarma fyrir
nýjum degi á leið þinni til ljóss-
ins.
Ég minnist ekki að hafa heyrt
þig hallmæla nokkrum manni,
allra sizt þeim, sem minna máttu
sin, og um hjálpsemi þína I garð
hinna smáu vita allir, sem til
þekkja. Þannig munu samferða-
mennirnir minnast þín.
Ég lýk svo þessum fátæklegu
orðum með því að votta konu
þinni, börnum ykkar og fjöl-
skyldum þeirra dýpstu samúð
mína og fjölskyldu minnar og
kveð þig, kæri mágur, með þeim
orðum, sem þér voru svo töm
á kveðjustundu. — Vertu bless-
aður, elskan mín, við sjáumst
bráðum aftur.
Steingr. Bencdiktsson.
„Dáinn, horfinn. Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfir.
En ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn."
J.II.
Svo kvað Jónas, er hann frétti
lát vinar síns Tómasar. Það fór
Hka þannig fyrir okkur hjón-
um, er við fréttum lát vinar
okkar Guðna Eggertssonar. Þó
kom það ekki með öllu á óvart;
hann var búinn að striða við
langvarandi heilsuleysi. Hann
andaðist á sjúkrahúsi hér í borg
snemma morguns þriðjudaginn
t
Innilegustu þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og út-
för eiginmanns, föður, sonar
og bróður,
Kristniundar Sverris
Kristmundssonar.
Sigríður Hjartardóttir
og börn,
Guðný Kjartansdóttir
og systkini hins látna.
JÓSEFINU CHARLOTTU ÓLSEN, Skeggjagötu 7. Þórður A. Jónsson, Hulda K. Þórðardóttir, Charlotta Ó. Þórðardóttir, Úlfar G. Jónsson, Svana 1. Þórðardóttir, Knútur Einarsson og barnabörn. t Kveðja frá eiginkonu, börnum og tengdabörnum til lækna og hjúkrunarkvenna á skurð-
læknadeild Borgarspítalans,
4. hæð. Einnig til Elli- og
+ hjúkrunarheimilisins Grund-
ar, 4. hæð.
1 Þökkum við hjartanlega alla
Þökkum af alhug öllum þeim sem vottuðu okkur samúð og umönnun og alúð við hinn
veglegar minningargjafir í tilefni af fráfalli eiginmanns míns og látna,
föður okkar.
JÓHANNESAR ARNAR JÓHANNESSONAR, Tómas Andreassen,
sem fórst með mb. Andra KE 5. svo og hinum mörgu, er vott-
Viljum við sérstaklega þakka útgerðarmönnum, skipstjóra uðu okkur samúð.
og skipsfélögum veglega minningargjöf, hlýhug og rausnar- Guð blessi ykkur öll.
skap við minningarathöfnina.
Biðjum við guð að blessa ykkur öll um a1la framtíð. Júlína Isfeld.
Sigriður Maria Jóhannesdóttir og börn.