Morgunblaðið - 07.05.1971, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1971
3
Ferð forsetahjónanna:
Einstæð heimsókn til
Bjarkeyjar
Gamall draumur forseta íslands
rætist: „Mér verður þessi
dagur ógleymanlegur“
Stokkhólmi í gær.
Fré Freysteini Jóhannssyni.
GAMALL draumur forseta
ísdanids, herra Kristjáns Eild-
jámis, rættist í dag, þegar
G'ústoí Adolf Svíakonungur
bauð f orsetahj ónunum og
fylgdarliði þeirra til Bjark-
eyjar, sena geymir einar
merkilegustu fomleifar vík-
inigaaldarinnar, staðinn Birka,
siem talinn er elzti verziunar-
bær Norður-Evrópu, frá því
um 800. Það var greinilegt,
að forsetinn naut þessarar
ferðar, og þá ekki sáður gest-
gjafi hans, sem fyrir utan
konumgdóm sinn er þekktost-
ur fyrir fomleifafræði-
mennsiku.
í yndislegu veðri gengu
þjóðhöfðingj amir og fylgdar-
iið þeirra um eyjuna og haft
var á orði að sennilega hefði
aldrei áður í opinberri þjóð-
höfðingjaheimsókn átt sér
stað skemmtileigri atburður.
Til Bjarkeyjar, sem liggur um
háifrar annarrar stundar sigl-
ingu frá Stokkhólmi, var komið
laust eftir kl. 11 i morgun. Á
Bjarkeyju tók á móti gestun-
um Sven B. F. Jansson, forn-
minjavörður sænska ríkisins og
ávarpaði hann forsetahjónin á
islenzku.
Jansson, sem er þekktasti
rúnasérfræðingur heims, gengur
venjulega undir nafninu „Rúna-
Janni“ og var meðal annars um
skeið lektor á íslandi.
Ávarp Janssons hljóðaði svo:
„Herra forseti, virðulega for-
setafrú, heira konungur, virðu-
legu gestir. Ég býð yður hjart-
anlega velkomin til Bjarkeyjar.
Ég hef boðið marga tigna
gesti velkomna til Sviþjóðar, en
enginn er jafn velkominn og
þið, fulltrúar fslands, sem hefur
verið mitt annað föðurland og
ávallt tekið mér opnum örmum,
frá því ég steig fyrst fæti min-
um á íslenzka grund."
Síðari hluta tölu sinnar flutti
Jansson á sænsku og sagði þá
mcðal annars, að hann hefði
ekki staðizt þá freistinguað fagna
islenzku forsetahjónunum á máli
þeirra; þvi máli, sem líktist svo
sem bezt mætti vera, því máli,
sem talað var þegar Birka-stað-
ur blómstraði.
Porsetinn þakkaði Jansson töl
una með þessum orðum: „Þakka
þér íyrir falleg o.rð, þakka þér
hjartanlega."
1 röska þrjá tíma rölti fólk svo
um eyjuna í blíðskaparveðri Það
mátti bæði sjá og heyra, að hér
voru þjóðhöfðingjamir báðir á
sinium hjartans stað. Þeir spurðu
leiðsögumennina í þaula, slógu á
létta strengi og gerðu að gasmni
sínu; og gleði þeirra og ánægja
smitaði allt samferðarfólkið og
gerði þessa Bjarkeyj arferð að
„einstæðium atburði i sögu opim
berra heimsókna til Svíþjóðar".
Sem fyrr segir eru á Birka-stað
mestu fomminjar víkingaaldar-
innar og er hann ekki aðeins
merkilegur staður fyrir Svia, held
ur og fyrir öll Norðurlönd; t. d.
hafa fundizt ýmsar fornleitfar á
Islandi, sem rekja má til Aust-
ur-Skandinaviu, og að sögn for-
setans beinist hugurinn þá sterk-
lega til Birka-staðar. «
„Mig hefur alla tíð, frá þvi ég
fyrst fór að leggja stund á forn-
leifafræði, dreymt um að heim-
sækja Bjarkey," sagði forsetinn
að ferðinni lokinni, „og mér
verður þessi dagur ógleymanleg-
ur.“ Móttökum öðrum í Sviþjóð
lýsti forsetinn sem „eins og í
Framh. á bls. 14
STAKSTEINAR
Kommúnistar
og verkalýðs-
hreyfingin
Kommiinistar hafa jafnan
haldið því fram, að flokkur
þeirra væri hinn pólitiski armnr
verkalýðshreyfingarinnar. Verka
fólk og aðrir launþegar eigi þvi
að styðja kommúnistaflokkiiui
tU þess að fylgja eftir hinni fag-
Iegu baráttu á póUtískum vettr
vangi. En hvernig stenzt þessi
fullyrðing kommúnista, þegar Ut-
ið er tU þeirra manna, sem þeir
velja í efstu sæti framboðslista
sinna. Hafa þeir vaUð vcrka-
lýðsforingja tU þeirra trúnaðar-
starfa? Því fer fjarri. Engúnm
verkalýðsforingi skipar efsta
sæti á framboðslistum kommún-
ista. í Keykjavík er Magnús
Kjartansson, ritstjóri i efsta
sæti. Hann hefur aldrei nálægt
verkalýðsmálum komið. I efsta
sæti í Vesturlandskjördæmi er
Jónas Árnason, slagarahöfund-
ur. Hann hefur aldrei nálægt
verkalýðsmálum komið. I efsta
sæti á Usta þeirra á Vestfjörð-
um er Steingrímur Pálsson, sim-
stöðvarstjóri. Hann hefur aldre!
nálægt verkalýðsmáium komið.
1 efsta sæti á Usta þeirra á
Norðurlandi vestra er Kagnar
Arnaids, lögfræðingur. Haiui
hefur aldrei nálægt verkalýðs-
málum komið. í efsta sæti á Usta
þeirra á Norðurlandi eystra er
Stefán Jónsson, fréttamaður.
Hann hefur aldrei náiægt verka-
lýðsmálum komið. 1 efsta sæti
á Usta þeirra á Austurlandi er
Lúðvík Jósepsson, atyinnustjörn-
málamaður. Hann hefur aldrel
nálægt vérkalýðsmálum komið.
I efsta sæti á lista þeirra í Suð-
urlandskjördæmi er Garðar Sig-
urðsson, kennari. Hann hefur
aldrei nálægt verkalýðsmálum
komið. 1 efsta sæti á lista þeirra
í Keykjaneskjördæmi er Gils
Guðmundsson, forstjóri. Hann
hefur aldrei nálægt verkalýðs-
málum komið.
Á framboðslista kommúnista i
sætum, sem máli skipta, er að-
eins ein undantekning frá þeirrl
föstu reglu, að verkalýðsleiðtog-
um er ekki trúað fyrir alvöru-
sætum en það er Eðvarð Sigurðs
son, formaður Dagsbrúnar, sem
skipar 2. sæti á framboðslista
kommúnista i Reykjavík. I kosn-
ingunum 1967 skipaði Jón Snorri
Þorleifsson, formaður Trésmiða-
félags Reykjavíkur 3. sæti á
framboðslista kommúnista í
Reykjavík. Honum hefur nú
verið ýtt niður í 4. sæti.
Hvað um
forystuna?
Þá mætti spyrja, hvort verka-
lýðshreyfingin eigi ekid fuUtrúa
í forystuliði kommúnista en þvf
er ekki að heilsa. Förmaður
flokks þeirra er lögfræðingur að
menntun og kennari að atvinnu.
Hann hefur aldrei nálægt verka-
lýðsmálum komið. Formaður
þingflokks þeirra, Lúðvík Jóseps
son, er heldur ekki verkalýðsleið
togi. Eðvarði Sigurðssyni heíur
ekki verið triiað fyrir slíku starfl
sem formennsku þingflokksins.
En hvað þá um málgagn komm-
únista, Þjóðviljann? Hver eru
áhrif verkalýðsmannanna þar?
Engin. Enginn af ritstjórum Þjóð
viljans né næstráðendur ha.fa
starf í verkalýðshreyfingunni að
baki. Hvað um aðrar valdastofn-
anir flokks þeirra? Þar er sama
sagan. í Alþýðubandalagsfélagi
Reykjavíkur er verkalýðsmaður
ekki í forystu. Það er sama
hvert litið er. AUs staðar þar
sem máli. skiptir halda komm-
únistar verkalýðsleiðtogunum ut-
an dyra.
Þessi mynd er tekin á leiðinn i út í Bjarkey í gær. Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn og
forsetafrú Haiidóra Eidjárn eru tU vinstri á myndinni, þá Gu stav Adolf Svíakonungur og
iengst tU hægri Sven B. F. Jansson prófessor.
<4
/r
<
M