Morgunblaðið - 09.05.1971, Síða 10

Morgunblaðið - 09.05.1971, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971 Þurfum að koma upp smáiðnaði á Hólmavík — til þess að koma í veg fyrir frekari fólksfækkun — OKKUR vantar einhvern Einar Guðfinnsson eða Harald Böðvarsson til þess að fitja upp á smáiðnaði á Hólmavik. Séra Andrés Ólafsson. Naertækast væri að hugsa sér að iðnaður þessi stæði í sam- bandi við vinnslu sjávaraf- urða, t.d. mætti láta sér detta í hug niðursuðu af einhverju tagi. Á Hólmavík byggist allt atvinnulíf á sjónum. Rækju- veiðin skapar næga atvinnu fyrir allt vinnandi fólk á staðn um og í nágrenninu á með- an hún stendur yfir, en sið- ar kemur dauður tími fram í júnílok er bátarnir fara á handfæraveiðar. Þetta dauða tímabil þurfum við að brúa og eins er nauðsynlegt að skapa meira atvinnuöryggi á staðnum og hvort tveggja gæti fengizt með tilkomu nið ursuðu, eða annars iðnaðar. Ef til vill yrði þetta einnig til þess að stöðva þann fólks- flutning sem verið hefur frá Hólmavík sl. 2 ár. — Þannig fórust séra Andrési Ólafssyni fréttaritara Morgunblaðsins á Hölmavik orð í viðtali fyrir skömmu. Auk smáiðnaðar sagði séra Andrés að mikil nauðsyn væri á að fá eitt stórt skip til þess að leggja upp á Hólmavík yf- ir sumartímann, en þá vant- ar frystihúsin tvö á staðnum verkefni. — Um þessar mundir eru engar byggingar í smíðum á Hólmavík en fyrir dyrum er að hefja byggingu læknisbú- staðar og auk þess stendur til að byggja félagsheimili á staðnum. Verður hafizt handa við byggingu læknisbústaðar- ins í surnar. Læknir á Hólma- vík er Guðmundur Steinsson. Félagslíf almennt á Hólma- vik hefur verið heldur dauft, en þó starfa þar tvö félög, Lionsklúbbur og kvenfélag. Starfsemi beggja félagamna hefur verið blómleg og um þessar mundir eru konurnar í kvenfélaginu að beita sér fyrir að koma upp elliheim- ili á staðnum. Þær hafa þeg- ar safnað töluverðu fé með það fyrir augum að komast yfir húsnæði, og sagði Andrés að mjög mikill fengur yrði að því að koma upp elliheimili á staðnum þar sem nú þarf að senda gamalt fólk sem ekki býr á einkaheimilum, burt af staðnum. — Lionsklúbburinn hefur aftur á móti safnað fé til kaupa á tækjum i sjúkra skýli staðarins og fl. Því næst vék séra Andrés Ölafsson að skólamálum stað- arins. Á Hólmavik er barna- og unglingaskóli, en ef ungl- ingarnir vilja leita sér frek- ari menntunar þurfa þau að sækja burt í skóla. — Ég tel að það sé algjört lágmark að við getum veitt unglingunum okkar gagn- fræðamenntun heima, sagði Andrés. Það kostar ekki lít- ið fyrir okkur að senda burtu stóran hóp unglinga til þess ið láta þá ljúka gagnfræða- prófi. Á Hólmavík búa ekki nema um það bil 350 manns og við vorum að telja það saman nýlega hvað margir þeirra væru núna í mennta- skólum og Háskólanum. Voru það um 10 manns, sem er ekki svo lítið brot af heildinni og þar við bætast síðan allir þeir unglingar sem fara burt til þess að Ijúka gagnfræðaprófi. Ég vona að úr þessu rætist Framh. á bls. 21 Fréttir frá Hólmavfk Rætt við sr. Andrés Ólafs- son fréttaritara Morgunblaðsins Frá Hólmavík. sokka buxur Vogue sokkabuxur fegra fótleggi yðar. í Vogue sokkabuxur myndast engin hné. Þær falla þétt að, en gefa þó vel eftir. Silkimjúk áferðin og aðlögunar- hæfnin stafar af því, að garnið í þeim er teygjanlegra, fíngerðara og þéttprjónaðra en almennt gerist. Heildsöludreifing: JOHN LINDSAY. Sími 26400. HÁDEGISVERÐARFUNDUR verður haldinn þriðjudaginn 11. maí kl. 1*2 í Þjóðleikhúskjallaranum. Ræðumaður verður hr. Bjarni Bragi Jónsson forstjóri Efnahagsstofnunar- innar. Ræðuefni: Hvað er framundan í efnaliagsmálunum. JUNIOR CHAMBER I REYKJAVÍK PINGOUIN -GARN Classique Crylor 50 litir MULTI-PINGOUIN 30 litir Ný mynstur. Útsölustaðir: Verzl. HOF, Reykjavík, Hannyrðaveczlunin sf., Akranesi, Verzl. Jórunn Bachmann, Borgarnesi, Hannyrðabúðin, ísafirði. Verzl. Dyngja, Akureyri, Verzl. Anna Gunnlaugsdóttir, Vestmannaeyjum. Réttindi til hópierðooksturs Þann 1. júní 1971 falla úr gildi réttindi til hópferðaaksturs, útgefin á árinu 1970. Umsóknir um slík réttindi fyrir timabilið 1. júní 1971 til 31. maí 1972 skulu sendar til Umferðarmáladeildar pósts og síma, Um- ferðarmiðstöðinni í Reykjavik, fyrir 25. maí 1971. f umsókn skal tekið fram skrásetningarnúmer og farþegafjöldi þeirra bifreiða, sem sótt er um réttindi fyrir, svo og aldur þeirra. Einnig skal tekið fram hvort umsækjandi hyggst eingöngu nota bifreiðina til farþegaflutninga. Umferðarmáladeild pósts og síma, 5. maí 1971.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.