Morgunblaðið - 09.05.1971, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971
Nýkomið ur þurrkklefa
Oregon Pine, teak, ramin, beyki,
eik, hnota, Wenge og mahogny.
SÖCIN HF.
Sími 22184
mm
m FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Sjálfstæðisfélögin í Bolungavík
halda aimennan fund í Félagsheimilinu í Bolungarvík miðviku-
daginn 12. maí kl. 21.00.
Frummælendur: GEIR HALLGRÍMSSON, M -mm
varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og
ÁSBERG SIGURÐSSON,
- alþingismaður.
SELTJARNARNES
Sjálfstæðisfélag Seltirninga heldur umræðu- og spilakvöld í
Féiagsheimili Seltjarnarness, mánudagskvöldið 10. maí kl. 8.30.
FUNDAREFNI:
1. Matthías Á. Mathiesen, alþingis-
maður, fyrsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, talar um stjómmálaviðhorfið
og svarar síðan fyrirspurnum.
2. Félagsvist.
Góð kvöldverðlaun
Þriggja kvölda verðlaun.
Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga.
Egilsstaðir Egilsstaðir
Almennur kjósendafundur
verður haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum næstkomandi sunnu-
dagskvöld, 9. maí, og hefst hann klukkan 21.00.
Ræðumenn: lugólfur Jónsson, Sverrir Hermannsson og
Pétur Blöndal.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins.
Selfoss Árnessýsla
FÉLAGSMÁLANÁMSKEIÐ
Ungir Sjálfstæðismenn efna til félagsmálanámskeiðs 11., 12.,
18. og 19. maí n.k. í Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 1, Selfossi.
Dagskrá: Þriðjudag 11. maí kl. 20:30
um RÆÐUMENNSKU.
Leiðbeinandi Jón Atli Kristjánsson, deildarstjóri.
Miðvikudag 12. maí kl. 20:30
um FUNDARSKÖP OG FUNDARFORM.
Leiðbeinandi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stud. jur.
Þriðjudaginn 18. maí og miðvikudaginn 19. maí kl. 20:30
UMRÆÐUFUNDIR.
Samband ungra Félag ungra Sjálfstæðis-
Sjálfstæðismanna. mahna í Árnessslu.
Sjálfstæðiskvennafélögin
í Reykjaneskjördæmi
EDDA Kópavogi — SÓKN Keflavík — VORBOÐI Hafnarfinði
halda sameiginlegan fund í Sjálfstæðishúsinu Hafnarfirði
fimmtudaginn 13. maí kl. 8,30.
Fjórir efstu menn á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
I Reykjaneskjördæmi flytja ávörp og ræður og svara
fyrirspumum.
Sjálfstæðiskonur f Reykjaneskjördæmi eru hvattar til að
fjölmenna á fundinn.
Sjálfstæðiskvennafélögin
EDDA, SÓKN og VORBOÐI.
Samtök Sjálfstæðismanna —
Nes- og Melahverfi
SPILAKVÖLD
Félagsvist verður í Átthagasal Hótel Sögu, fímtudaginn
13. maí klukkan 20.30.
Glæsilegir vinningar. Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir.
STJÓRNIN.
Nýkjörin stjórn og varastjóm Meinatæknafélags íslands. F.v.: Guðbjörg Sveins-
dóttir, Vilborg Ólafsdóttir, Ragnhildur Kolka, Bergljót Halldórsdóttir, Ekísabet
Þorsteinsdóttir, Kristrún Ólafsdóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Ingvadóttur.
Meinatæknafélag íslands
MEINATÆKNAFÉLAG íslands
hélt aðalfund sinn 27. apríl sl.
Endurkjörin var formaður fé-
lagsins, Bergljót Halldórsdóttir;
varaformaður var kjörin Guð-
björg Sveinsdóttir. Aðrir í
stjórn félagsins voru kosnir
Ragnhildur Kolka ritari, Krist-
rún Ólafsdóttir, gjaldkeri og Vil
borg Ólafsdóttir. í varastjórn
Guðrún Ingvadóttir og Elísabet
Þorsteinsdóttir.
Félagsmenn eru 112, flestir í
fullu starfi. Meinatæknafélagið
hefur nú starfað í 4 ár. Félagið
er aðili að Norðurlandasamtök-
um meinatækna og Alþjóðasam-
tökum meinatækna. Félagsmenn
hafa mikinn hug á, að menntun
meinatækna verði endurskoðuð
og betur skipulögð, enda þótt
hún uppfylli nú þegar þær kröf
ur, sem Evrópuráðið hefur sett
fram um lágmarksmenntun
meinatækna í Evrópu.
Endurmat á starfi meina-
tækna hefur nýlega farið fram
af hálfu kjararáðs B.S.R.B., og
er nú beðið eftir endanlegri
niðurstöðu við samninganefnd
ríkisins skv. 19. gr. kjarasamn-
ings opinberra starfsmanna.
Félagið hefur nýlega gefið út
blað, „Blað meinatækna". Er
þar að finna ýmsan fróðleik,
bæði um menntun og starfssvið
meinatækna. Ritstjóri þess er
Björg Atladóttir.
(Fréttatilkynning).
Samstarf um
bindindisfræðslu
— rætt á norrænni ráðstefnu
í Hasselby-höll
FJÖBUTÍU kennarar, skóla-
stjórar, námsstjórar og fulltrú-
ar kennsiugagna sóttu ráðstefnu
um norrænt samstarf á sviði
bindindisfiræðslu, sem haldin
var í Hásselby-höll, Stokkhólmi,
dagana 2B. tii 28. febrúar síðast-
Kðinn.
Er þetta önnur ráðstefnan,
sem hin ungu, norrænu samtök
um bindindisfræðslu, NORDAN,
halda um þessi mál, en stofnað
var formliega til Nordan i Voks-
enásen vffí Osló í desember ár-
ið 1969.
Tveir þátttakendnr voru frá
Islandi, Sigurður Gunnarsson,
kennari við Kennaraskóla fs-
lands og Sigurður Pálsson, skrif
stofustjóri hjá Rikisútgáfu náms
bóka.
Sænska áfengisvamaráðið, Cen
tralförbundet för alkohol- och
narkotikauppiysning, hafði allan
veg og vanda af ráðstefnunni,
sem var ágætlega skipulögð og
framkvæmd. Ingvar Carlsson, fé-
lagsmálaráðherra Svíþjóðar,
setti ráðstefnuna með snjallri
Ég þakka öilum, sem minnt-
ust mín á níræðisafmælinu og
gerðu mér daginn ógleyman-
legan.
Guð blessi ykkur öll.
Jófríður Ásmundsdóttir,
Giinnlaugsstöðum.
ræðu, þar sem hann meðal ann-
ars vék að mikilvægi bindindis-
fræðslunnar í nútímaþjóðfélagi.
Ragnar Lund, formaður sænska
áfengisvarnaráðsins, flutti því
næst stutt ávarp og bauð alla vel
komna. Aðalviðfangsefni ráð-
stefnunnar var að fjalla um
stefnumið norræns samstarfsum
bindindisfræðslu og sér í lagi
samstarf um kennslubækur og
önnur kennslugögn á þvi sviði.
Einn fulltrúi frá hverju Iandi
flutti greinargerð um notkun
kennslugagna og ástand bind-
indisfræðslu almennt í heima-
landi sínu. Af Islands hálfu
flutti SLgurður Gunnarsson grein
argerð þessa.
Að lokinni hverri greinargerð
voru fyrirspumir og samræður
og loks sýning á margs konar
fræðslumyndum. Síðan var unn-
ið í hópum.
Ýmsar ályktanir voru gerðar
um aðalefni ráðstefnunnar.
Samþykkt var á ráðstefnunni
að næsta starfsráðstefna NORD-
AN skyldi fara fram á vormiss-
eri 1973 og fjalla um menntun
og framhaldsmenntun kennara,
sem hafa eiga með höndum
fræðslu um áfengi og eiturlyf.
Buðust fuUtrúar Finnlands og
Danmerkur til að athuga hvort
ráðstefnan gæti farið fram í
öðru hvoru þessara landa.
Tilkynning barst frá Noregi
um það, að fulltrúum frá ná-
grannalöndunum yrði boðið að
taka þátt í tveimur kennaranám
skeiðum sumarið 1971, þ.e. í
Austur-Noregi 25/6—2/7 og í
Alta 2/7—8/7. Námskeiðin eru
haldin af „Statens Edruskapsdir-
ektorat“ (Áfengisvarnaráði rók-
ísins).
Ráðstefnunni var slitið sunnu-
daginn 28. febrúar, síðdegis.
Voru allir þátttakendur sam-
mála um, að hún hefði tekizt
ágætlega, og að norrænt sam-
starf á þessu fræðslusviði væri
mjög mikilvægt
Túskildingsóperan
sýnd á Akureyri
Sjöunda verkið á þessu leikári
Akureyri, 7. mai.
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýnir Túskildingsóperuna, leik-
rit með söngvum eftir Berthold
Brecht í næstn viku. Leikstjóri
verður Magnús Jónsson sem í
fyrra setti á svið fyrir félagið
sjónleikinn „I>ið mimið hann
Jörund“. Magnús Pálsson er höf
undur leikmyndar. Þýðing ereft
ir Sigurð A. Magnússon og fl.
en tónlist hefur gert Kurt Weill.
Aðalfundur
Kaupfélags Kjalarnesþings verður haldinn þriðjudaginn
11. maí n.k. I Hlégarði kl. '9.00 e.h.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
STJÓRNIN.
Tónlistarstjóri verður Jón Hlöð-
ver Áskelsson.
Leikendur eru rúmlega 20 en
með helztu hlutverk fara Sig-
mundur Öm Arngrímsson, Am-
ar Jónsson, Þórhildur Þorleifs-
son, Þórhalla Þorsteinsdóttir,
Þráinn Karlsson, Sigurveig Jóns
dóttir og Guðlaug Hermannsdótt
ir.
Túskildingsóperan er fyrsta
Brecht-leikritið sem L.A. tc-e.-ur
tiil sýningar en Leikfélag Hftsa-
vikur sýndi Puntilla og Matta á
Akureyri árið 1969. Túskildings-
óperan sem var frumflutt í
Berlín 1928 er byggð á leikriti
eftir Bretann John Gay sem þá
var tveggja alda gamalt. Hún er
sjöunda leikritið sem L.A. flyt-
ur á þessu leikári. Æfingar hóf-
ust fyrir tveimur mánuðum, en
ekki samfellt, vegna sýninga á
öðrum viðfangsefnum L.A.
— S. P.