Morgunblaðið - 11.05.1971, Page 1
28 SÍÐUR OG 4 SIÐUR IÞROTTIR
104. tbl. 58. árg.
ÞRIÐJIIDAGUR 11. MAÍ 1971
Prcntsmiðja Morgunblaðsins
Bættar horf ur
á opnun Súez
Kaíró, 10. maí — AP-NTB
SENDIHERRAR Bretlands,
Frakklands og Ítalíu voru kvadd-
ir í dag- í egypzka utanrikisráðu-
neytið, þar sem þeim var skýrt
frá viðræðum Joseph Sisco, að-
stoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, við egypzka ráðamenn
um helgina um opnun Súez-
skurðar. Sisco hefur látið í ljós
bjartsýni á friðarhorfur eftir við-
ræður sínar og William Rogers,
utanríkisráðherra, í Kaíró, en
egypzkir ráðamenn segja, að
sem fyrr sé ágreiningur með
Egyptum og Israelum.
Sisco sagði blaðamönnum, að
hann teldi að bilið á milli skoð-
ana Egypta og Israela hefði
mjókkað eftir ferð Rogers. Hann
KFUM-drengir j
á ferð [
j KFUM-drengir fóru á sunnu- /
I dag í skemmtisiglingu með 1
*Gullfossi. Hér halda þeir til i
fskips. Sjá ramma á bls. 2. t
Kjarnorku-
teikningar
horfnar
Vasterás, Svíþjóð, 9. maí
— NTB
TALSMENN sænska fyrirtækis-
ins ASEA-Atom í Vásterás
skýrðu frá því á sunnudag, að
teikningar af kjarnorkuofna-
smiðjum félagsins hefðu horfið
fyrir nokkru, og að óskað hefði
verið eftir þvi, að danskur verk-
fræðingur, sem vann hjá félag-
inu, yrði tekinn til yfirheyrslu
um málið.
Danski verkfræðingurinn er
staddur í Danmörku, og hefur
sagt i viðtali við sjónvarpið þar,
að hann hafi ekki hugmynd um
hvarf teikninganna. Hefur hann
verið yfirheyrður hjá sakamála-
deild dönsku' lögreglunnar.
Talsmaður ASEA segir að erf-
itt sé fyrir þann, sem teikning-
arnar tók, að koma þeim í verð,
því aðeins séu 10—12 smiðjur í
heiminum er smíði kjarnorku-
ofna.
Markið hækkar enn,
staða dollara óviss -
Frakkar draga sig út úr gjaldeyrissamvinnu
Frankfurt og Washington,
10. maí — AP-NTB
MIKIL eftirspurn var cftir
þýzkum mörkum er vestur-
þýzkir gjaldeyrismarkaðir
voru opnaðir í dag eftir að
gengi marksins var gefið
frjálst, og gengi dollarans
gagnvart markinu lækkaði
því mikið. Staða dollarans
virtist hins vegar batna er á
daginn leið og sagt er, að
nokkur tími muni líða þar til
ástandið komist í eðlilegt
horf. í London og París var
staða dollarans traust í dag,
en veik í Sviss, Austurríki og
Hollandi.
I París lýsti franski fjármála-
ráðherrann, Valery Giscard
d'Estaing, því yfir í kvöld, að
Frakkar myndu fyrst um sinn
ekki haida áfram þátttöku sinni í
því starfi, sem unnið er að, i því
skyni að koma á laggirnar gjald-
eyrisbandalagi Evrópu. Hins veg-
ar myndu Frakkar aftur taka
þátt í þessu undirbúningsstarfi
þegar aftur væri hafin opinber
gengisskráning á vestur-þýzka
markinu og hollenzkum gyllin-
um. Sagt er að þetta sé afleiðing
þess, að Vestur-Þjóðverjiim tókst
að fá Efnahagsbandalagið til að
fallast á að gengi marksins yrði
breytilegt.
Ýmisiegt benti til þess í dag, að
spákatipnienn færu nú gætilega
í sakirnar vegna þeirra sérstöku
ráðstafana, sem ríkisstjórnir ým-
issa Vestur-Evrópulanda hafa
gert um helgina, til þess að hefta
verðbólgu og dollaraflóð. Sú
ákvörðun Vestur-Þjóðverja að
gengi marksins verði breytilegt,
virðist hafa þau tilætluðu áhrif
að valda óvissu. Peningamarkað-
irnir hafa verið lokaðir siðan á
miðvikudag þar til í dag.
Framhald á bls. 27
kvaðst telja, að báðir aðilar
hefðu áhuga á bráðabirgðalausn.
Um viðræður sínar við Anwar
Sadat forseta sagði hann aðeins,
að þær hefðu verið gagnlegar.
Sisco kom til Kaíró fyrir hönd
Rogers til þess að skýra frá því,
sem kom fram i viðræðum banda
ríska utanríkisráðherrans við
ísraelska ráðamenn fyrir helg-
ina. Að sögn egypzka utanríkis-
ráðuneytisins hafa hugmyndir
ísraela verið teknar til gaum-
gæfilegrar athugunar.
í viðræðum Siscos í Kaíró hef-
ur einkum verið f jallað um skil-
yrði Egypta og Israela fyrir opn-
un Súez-skurðar, en opnun skurð-
arins var einn helzti tilgangur
ferðar Rogers. Egypzki hermáía-
ráðherrann, Mohammed Fawzi,
hershöfðingi, tók þátt í hluta við-
ræðna Siscos og Sadats, og bend-
ir það til þess að fjallað hafi
verið um þá kröfu Egypta, að
egypzkt herlið verði flutt á aust-
urbakka Súez-skurðar, ef skurð-
urinn verður opnaður og ísraelskt
herlið hörfi frá bakkanum. Isra-
elar hafa hafnað þessari kröfu,
en eftir viðræður við Rogers
virðast þeir geta fallizt á, að
egypzkum embættismönnum
verði leyft að starfa á austur-
bakkanum.
Rogers utanríkisráðherra sagðl
þegar hann kom til Washington
í nótt úr ferð sinni til Miðaustur-
landa, að hann væri bjartsýnni
en áður að takast mætti að ná
samkomulagi um opnun Súez-
Framhald á bls. 27
Batnandi horfur
— í samningum um aðild Breta að EBE
Barnard af
stað á ný
Hjartaflutningur undir-
búinn í Höfðaborg
Höfðaborg, S.-Afríku, 10. maí.
— AP.
CHRISTIAN Barnard prófes-
sor og sérfræðingur í lijarta-
flutningum er nú að undir-
búa sig undir að græða hjarta
í sjúkling í Höfðaborg. Verð-
ur þetta fyrsta lijartagræðsla
Barnards í tvö ár rúm.
Haít er etftir áreiðanlegum
heimiildum að saimstarfsmcnn
Bamards séu að búa 44 ára
byggingarverkamann, Dirk
van Zyl að nafni, undir að-
ígerðina. Verður þetita tíiundi
hjartaflu'tningurinn í Suður-
Afriku, og isá fimmti, sem
Bamard fram’kvæmir. Barn-
ard var sem kunnugt er fyrst
ur til að græða hjarta í sjúkl-
inig. Var það 21. desember
1967, og sjúklingurinn var
Louis Washkansiky, sem nú
er látinn.
Brúsisel, 10. maí, AP, NTB.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Efnahagsbandalagsríkjanna sex
sátu fund í Brússel í dag, og að
þeim fundi loknum var taliff að
vænlegar horfffi varffandi viff-
ræffur viff fulltrúa Bretlands um
affild aff bandalaginu. Evrópu-
málaráffherra Breta, Geoffrey
Rippon, er væntanlegur til
Brusel á morgun, þriðjudag, og
ræffir hann viff ráffherranefnd
bandalagsins á morgun og miff-
yikudag áffur en hann heldur til
ísiands til ráffherrafundar EFTA.
Á ráð'herraCundi EBE í dag
komu fram tilslakanir af hálfu
Frakka, sem taldar eru geta
auðveldað samninga um aðild
Breta að bandalaginu. Verða þæ-r
tilslakanir aðallega imnflutning
til Bretlands á sykri frá sam-
veldisríkjunum á Karabíska haf-
iinu. Hafa Frakkar nú fallizt á
að fresta ákvörðunum um syk-
urinmflutning Breta þar til eftir
að Bretland hefur fengið aðild
að Efnahagsbandalaginu. Þýðir
þetta það að Bretar fá sjálfir að
taka afstöðu til sykurinnflutn-
ingsins frá Vestur-Indíulöndun-
um þegar núgildandi samniingur
rennur út í árslak 1974.
Saimkvæmt saminmgnum skuld
binda Bretar sig til að kaupa ár-
lega 1.407.500 tonin af sykri frá
samvel disríkj unum. — Frakkar
liggja að jafnaði með birgðir af
sykri, sem þeir vilja gjarnan
losna við, og vildu þeir að Bret-
ar féllust á að takmarka imin-
ílutninginn frá samveldisrfkjuni-
um við 500—600 þúsund tonin á
ári.
Átti þessi takmörkun að koma
til framkvæmda ári eftir að Bret-
lanid fengi aðild að EBE. Bentu
fulltrúar Frakklands á að bæta
mætti samveldislöndunum tapið
með hækkuðu sykurverði. Nú
hafa Frakkar fallið frá þessari
’kröfu um takmörkun sykurimn-
flutningsins, að minnsta kosti í
bili.
Ekki voru frönsku fulltrúarn-
ir jafn eftirgefanlegir varðandi
smjörininflutning Breta frá Nýja
Sjálamdi. Vilja Frakkar að Bret-
ar fái fimim ára umþóttunartíma
til að skera niður smjörininflutn-
inginn, en fulltrúar hinrna aðild-
arríkjanma fimrn vilja að smjör-
in'nflutniingurinn verði miinnkiað-
ur n'iður í 50—70% af niúverandi
magni að fimm árum loknum.
Þótt nokkur ágreiningur hafi
rikt á fundi ráðherra EBE í dag
voru fundarmenn þó sammála um
að talsvert hefði miðað áfram í
samfcomulagsátt varðandi aðild
Bireta. Maurice Schumann, utan-
ríkisráðherra Frakklamds, ræddi
Franthald á bls. 2
Emil Vindsetmo.
N orðmaðurinn
Emil Vindsetmo ráðinn:
Skrif stof ust j óri
N or ður landar áðs
EMIL Vindsetnio, fyrrverandi rit-
ari forsætisráðherra Noregs, var
í dag ráðinn skrifstofustjóri
Norðurlandaráðs á fundi forseta
ráðsins í Osló. Hann tekur við
embættinu 1. júlí og hefur að-
setur í Stokkhólmi.
Að því er segir í frétt frá ís-
landsdeild Norðurlandaráðs lágu
fyrir fundinum tvær umsóknir
um starf skrifstofustjóra, frá
Bent A. Koch, rltstjóra og Emil
Vindsetmo. Þrír forsetar ráðsins
studdu umsókn Vindsetmos, en
tveir umsókn Kochs. Siðan var
Vindsetmo einróma ráðinn skrif-
stofustjóri. Ráðningin gildir til
fiimm áza. Það voru fulltrúar ís-
lainds og Dammerkur, sem studdu
Framhald á bls. 27