Morgunblaðið - 16.05.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAl 1971
síðustu árum að svolítil breyt-
ing hefur orðið á þessu fárán-
lega fyrirkomulagi, en ennþá
eru skólarnlr í uppbyggingu
sinni og innihaldi að miklu
leyti danskir, þar sem börn og
unglingar verða alin upp með
því aðaltakmarki að gerast góð
ir og gegnir danskir þegnar,
en ekki Færeyingar.
Svona mætti lengi telja, en
allt er þetta sagan um hvernig
farið er að þvi — vitandi vits
eða ekki, það kemur út á eitt
— að eyðileggja litla þjóð og
drepa i henni eðlilega þjóðern
istilfinningu, viðnámsþrótt og
traust á eigin mátt.
Að þessu höfum við lengi bú
ið -— og búum að miklu leyti
að þvi enn.
Þvi ber heldur ekki að leyna,
að Færeyingar eru yfirleitt
gætnir menn, sem vilja ekki
fara að neinu óðslega. Þeir
vilja sjá hvað setur og athuga
málin nákvæmlega, áður en
mikilvægar ákvarðanir verða
teknar
Og síðast en ekki sizt hafa
Færeyingar áhyggjur út af
þeirri skerðingu lífskjara,
sem — að margra áliti —
mundi leiða af skilnaði við
Danmörku og færeysku sjálf-
stæði. Eigin fjárlög Færeyja
eru nú liðlega 100 milljónir kr.,
en framlag Danmerkur — allt
innifalið — 69 millj. kr. Það
er þessi upphæð, sem sjálfstæði
mundi „kosta'*. Þannig er í
stuttu máli hugsanagangur
þeirra, sem eru á móti skilnaði.
Skilnaðarmenn hafa gegn
þessari staðhæfingu beitt þeim
röksemdum, að með sjálfstæð-
inu myindu Færeyingar fá tæki
í hendi, sem þeir hafa ekki sem
stendur, til þess að reka árang
ursríka fjárhags- og efnahags-
pólitík, og á þann hátt bæta
skaðann af því að missa þessar
69 milljónir — og vel það.
Auk þess hafa þeir bent á
aðra leið — eða leið jafnhliða
þessari. Hún er sú að fá aðstoð
annarra fyrst í stað — aðstoð,
sem svo færi smám saman
minnkandi þangað til hún hyrfi
að fullu.
Látum okkur þá reikna með
— ekki 69 — heldur 100 millj.
kr. á ári fyrst í stað. Þá myndu
þetta verða 5 kr. á hvern íbúa
í ríkjum Norðurlanda.
Þegar tekin eru mið af
Marshallaðstoð, aðstoðinni við
þróunarlöndin, þar á meðal að-
stoð Norðurlanda við þessi
lönd — iðnþróunarsjóð Islend
inga mætti líka nefna í þessu
sambandi — þegar á allt þetta
er litið — væri þessi hugsun,
að hin Norðurlöndin veittu
Færeyingum þess háttar að-
stoð, ekki óraunveruleg.
Að mínu áliti þyrftu Fær-
eyingar ekkert að skammast
sin fyrir að taka á móti slíkri
aðstoð, og sem Norðurlandabúi
myndi ég segja, að hún væri
sjálfsögð, já, beinlinis skylda.
Þessi lausn mála myndi gera
Færeyinga hamingjusamari og
Norðurlöndin öll rikari — með
því að fá þessa litlu þjóð í sinn
hóp til viðbótar við þær 5
frjálsu þjóðir, sem þegar eru
þar. Þar myndi blóðið renna til
skyldunnar.
En hvað sem þessu líður, þá
tel ég það enn sem áður aðal-
verkefnið, að sýna færeysku
þjóðinni fram á, að hún eigi sér
— kannski ekki einmitt glæsi-
lega — þá að minnsta kosti
sómasamlega fortíð, að sýna
henni fram á, hvernig hún hef
ur verið meðhöndluð gegnum
aldaraðir og hvernig hún enn
i dag verður meðhöndluð, að
sýna henni fram á þá mörgu
og miklu möguleika sem við
blasa, og síðast en ekki sízt, að
telja í hana kjark, sjálfstraust
og þor.
Það er von mín, já, ég er þess
fullviss, að þetta megi takast —
þrátt fyrir allt. En á þvi velt-
ur framtíð okkar, sem færeyskr
ar þjóðar, sem norrænnar þjóð-
ar og sem þjóðar — þótt litil
sé — á alþjóðavettvangi.
TIL HEIMA ER BEZT, Pósthólf 558, Akureyri
£g undirrit óska að gerast áskrifandi a'ð tímaritinu HEIMA ER liEZT.
□ Sendið mér blaðið írá síðustu áramótum. □ Sendið mér Bókaskrá HEB ókeypis.
Nafn
Heimili
— vegna þess að það er staðreynd að „Heima er bezt“ er eitt af lang útbreiddustu og vinsælustu
timaritum hérlendis, vegna þess að „Heima er bezt“ flytur þjóðlegt, fróðlegt og skemmtilegt efni
fyrir alla fjölskylduna og vegna þess að við efnisval er reynt að sneiða hjá þvi efni og áhrifum,
sem margir telja til lýta eðajafnvel skaða i islenzku þjóðlífi á vorum dögum, og ekki sizt vegna
þess að hverri áskrift að „Heima er bezt“ fylgja veruleg fjárhagsleg hlunnindi.
Og hvað kostar þá þetta útbreidda tímarit?
„Heima er bezt“ fæst ekki í lausasölu, það er eingöngu
fyrir áskrifendur, og verðið er ótrúlega lágt, aðeins
400 kr. árgangurinn. Fyrir þessa smávægilegu fjárupp-
hæð fáið þér sent heim að minnsta kosti 36 síðu hefti
í hverjum mánuði. Það er að segja 12 hefti á ári með
um það bil 500 stórum lesmálssíðum af þjóðlegu, fróð-
legu og skemmtilegu lesefni. Það er ódýrt, því „Heima
er bezt“ birtir aldrei neinar venjulegar verzlunaraug-
lýsingarl
Hverjir skrifa í „Heima er bezt“ og um hvað skrifa þeir?
Á síðum „Heima er bezt“ munuð þér finna ritgerðir,
frásagnir, ljóð, endurminningar, skáldsögur o. m. fl.
eftir marga þjóðkunna höfunda og fólk úr öllum stétt-
um þjóðfélagsins, lesefni sem er varanlegt að verðleik-
um, fróðlegt, skemmtilegt og umfram allt, þjóðlegt,
lesefni sem öll fjölskyldan mun hafa óblandna ánægju
af að lesa bæði núna og síðar meir. Þér munuð finna
framhaldssögur eftir kunna rithöfunda, já, stundum
uppgötvum við nýjan rithöfund, sem okkur finnst
ástæða til að kynna fyrir ykkur, og þá birtum við ef til
vill smásögu eða framhaldssögu eftir hann.
í hverju hefti munuð þér finna sérstakan þátt fyrir
yngri lesendurna, þátt með nýjustu íslenzku dægurlaga-
textunum og myndasögu. í hverju hefti er sérstök
myndskreytt grein um einhvern góðan íslending, sem
skarað hefir fram úr á einu eða öðru sviði, eða verið
athafnamaður eða kona í sínu byggðarlagi. Þegar hafa
á annað hundrað íslendingar verið kynntir á þennan
hátt i blaðinu.
Öll eru heftin ríkulega myndskreytt, og i mörgum
þeirra munuð þér finna spennandi verðlaunagetraunir
bæði fyrir yngri lesendurna og þá fullorðnu, með mörg-
um glæsilegum verðlaunum.
Leiðarar ritstjórans, Steindórs Steindórssonar frá Hlöð-
um, sem birtast í hverju blaði, hafa vakið þjóðar at-
hygli, en auk þess viðar ritstjórinn stöðugt að sér efni
úr öllum áttum, sem er líklegt til að verða áskrifendum
bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Og hvaða hlunnindi cru því samfara að gerast áskrifandi að
„Heima er bezt"?
í fyrsta lagi fá allir nýir áskrifendur að velja sér góða
bók algjörlega ókeypis, og þeir öðlast réttindi til að
taka þátt í hinum spennandi verðlaunagetraunum
„Heima er bezt“. Þar að auki fá þeir árlega senda stóra
og myndarlega, litprentaða bókaskrá með á þriðja
hundrað bókatitlum, sem þeim er heimilt að velja úr
og panta eftir því sem þá lystir á verði sem er um það
bil 30% lægra en bókhlöðuverð bókanna. Hér munuð
þér rekast á bækur um ótal efni, skáldsögur, smásögur,
endurminningar, handbækur, ljóðabækur, barnabækur
og margt fleira. Ennfremur standa yður til boða falleg-
ar bókahillur úr fínasta viði, en á mjög hagstæðu verði,
bókahillur sem myndu prýða heimili yðar og sem hægt
er að auka við í það endalausa, eftir því sem þörf kref-
ur og veggpláss leyfir.
„Heima er bezt" hcfur nú verið gefið út f 20 ár og á því láni að fagna að hafa að bakhjarli margar þúsundir
ánægðra áskrifenda, og fjöldi þeirra fer stöðugt vaxandi. Þér ættuð að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að
slást í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt fslenzkt timarit við vægu gjaldi, sem þér
fengjuð sent heim til yðar í hverjum mánuði. Útfyllið þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og
sendið hann til „Heima er bezt“, pósthólf 558, Akureyri, og þá mun nafn yðar umsvifalaust verða fært inn á
áskrifendaspaldskrána og yður mun verða sent blaðið mánaðarlega, en þá munið þér um leið öðlast rétt til að
njóta þeirra hlunninda sem eru því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“.
HEIMA ER BEZT
þjóðlegt heimilisrit fyrir nágranna yðar, og fyrir yður,
ER
B.P.