Morgunblaðið - 18.05.1971, Síða 3
MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1971
3
OKKUR VANTAR MENNT-
AÐA ÞJALFARA
Rætt við Þorstein Hall-
grímsson körfuknattleiksmann
Allir þeir sem eitthvað fylgj-
ast með íþróttum, þekkja nafn
Þor.steins Hallgrímssonar. Hann
var án alls efa langbezti körfu-
knattleiksmaður Islands s.l. ára
tug, og nú þegar hann heldur
til vinnu erlendis, er hann enn
ökkar bezti körfuknattleiksmað
ur. Islenzkur körfuknattleik-
ur missir mikið þegar hann miss
ir Þorstein utan, þvi óneitanlega
verður það mikið skarð sem
hann skilur eftir sig hér heima
— skarð sem vandfyllt verður.
Einna hæst mun stjarna Þor-
steins hafa skinið 1964, þegar
Islendingar tóku þátt í Polar
Cup í Helsingfors. Þá töldu
finnsk blöð hann langbezta
mann mótsins, og einn af allra
beztu leikmönnum í Evrópu. Þá
var hann aðeins 22 ára að aldri.
Nú er Þorsteinn 28 ára, og kunn
ugir segja að hann hafi sjaldan
verið betri en nú. 1 tilefni þess
að Þorsteinn er i þann mund að
hverfa af landi brott, hafði Mbl.
tal af honum.
Hvenær hófst þú fyrst að
iðka körfultnattleik?
„Það mun hafa verið árið
1956, en þá var ég 13 ára. Það
var í Gagnfræðaskólanum við
Hringbraut, sem nú heitir raun-
ar Hagaskólinn. Árið eftir
gekk ég í fR, og lék það ár
með 3. fl. félagsins. Síðan lék
ég með 2. fl. félagsins næstu
þrjú ár. 1 2. fl. unnum við fs-
landsmótið öll þrjú árin, og
voru það minir fyrstu meistara-
titlar.
Það var mér mikið happ að
fá strax sem þjálfara Helga
Jóhannsson, mann sem kenndi
mér og félögum mínum undir-
stöðuatriði leiksins frá byrjun.
Að því hefi ég búið alla tið sið-
an. Annars hafa ávallt verið góð
ir þjálfarar hjá ÍR, fyrst Helgi,
og síðan Einar Ólafsson sem
þjálfar enn í dag með miklum
árangri."
Á þessum árum Iiafði
Þorsteinn nóg á sinni könnu.
Hann lék með 2.fl. og m.fl. ÍB,
og sama árið (þ.e. 1959) leikur
hann sinn fyrsta landsleik, að-
eins 16 ára gamall. Aðeins einn
leikmaður annar hefur svo ung-
ur leikið með íslenzka landslið-
inu í körfuknattleik, þ.e. Birgir
Birgis.
Hvar var þessi fyrsti lands-
ieikur, Þorsteinn?
„Hann fór fram í Kaupmanna-
höfn, og báru Danir þar naum-
lega sigur úr býtum, 41:38.
Tveim árum síðar unnu Danir
okkur svo aftur, en síðan þá
höfum við ávallt sigrað Dani,
alls sjö sinnum."
ytra. Með hvaða liði lékst þú
ytra?
„Þessi þrjú ár sem ég dvaldi
í Danmörku lék ég með Kaup-
mannahafnarliðinu Sisu. Við urð
um Danmerkurmeistarar fyrstu
tvö árin sem ég lék með þeim,
en þriðja árið urðum við i þriðja
sæti.
Er mikill munur á dönskum
og íslenzkum körfuknattleik?
„Það var ekki til skamms tíma,
en ég óttast að við séúrn að
dragast nokkuð aftur úr. Hér á
ég sérstaklega við varnarleik-
inn. Ég tel að Danir og Islend- •
ingar standi nokkuð jafnt í
körfuknattleiknum í dag, en þró
un síðustu ára er okkur örugg-
lega ekki. í hag gagnvart erki-
f jendunum Dönum.
Þorsteinn kemur síðan heim
1968, og síðan hefur ÍB-ingum
gengið ailt í haginn. Að öllum
öðrum ólöstuðum, er það Þor-
steinn sem á mestan heiður skil-
inn í sambandi við þessa miklu
velgéngni ÍB s.l. ár. — Hverjir
eru beztu menn sem þú liefur
leildð með, (Óskaliðið) ?
„Mitt „Óskalið" myndi lita
þannig út: Miðherji: Guðmund-
ur Þorsteinsson, framherjar:
Einar Matthíasson og Birgir
Jakobsson, bakverðir: Kolbeinn
Pálsson og Jón Sigurðsson."
Eftirminnilegustu mótherjar
og samherjar?
„Eftirminnilegasti mótherjinn
er tvímælalaust hinn frábæri
finnski leikmaður Pilkevaare,
skemmtilegasti samherjinn er
hins vegar án alls efa Helgi
Jóhannsson."
Halldór Guðbjörnsson
náði ágætum árangri.
Hverjir eru eftirminnilegustu
landsleikirnir ?
„Það eru tveir leikir sem mér
eru minnisstæðastir. Báðir eru
þeir gegn Dönum, sá fyrri 1964,
og hinn síðari 1966. Þessir leik-
ir voru báðir leikir í Polar Cup.
Leikinn í Helsingfors 1964, unn-
um við með 56:55, og leikinn
1966 sem leikinn var I Kaup-
mannahöfn unnum við með
68:67 eftir framlengdan leik.“
Þess skal getið liér til gam-
ans, að í leik Dana og íslend-
inga 1964, var það Þorsteinn
sem hreinlega vann leikinn við
Dani upp á eigin spýtur. Ljóst
er á blaðagreinum frá þessum
tíma, að án hans hefði íslenzka
liðið orðið að þola stórt tap.
Og hver er minnisstæðasti
leikurinn hér lieima frá þimmi
langa ferli?
„Það er tvímælalaust sið-
ari leikurinn gegn KR í íslands-
mótinu 1965. Þá töpuðum við IR-
ingar í fyrsta skipti fyrir KR,
og var þetta fyrsta ttip IR síð-
an 1960. Þetta gerði það að verk
um að aukaleik þurfti milli lið-
anna um titilinn, og þann leik
unnu KR-ingar, og urðu þar með
Islandsmeistarar i fyrsta sinn.“
Haustið 1965 heldur Þorsteinn
út til Danmerkur til náms, og
þar dvaldi hann næstu þrjú ár-
in. Hann sagði þó ekki skilið
við íþrótt sína á námsárunum
Og að lokum Þorsteinn. Hvað
er þér nú efst í huga þegar þú
hverfur af landi brott. Hver er
skoðun þín á islenzkum körfu-
knattleik, og hvert telur þú að
verði hlutskipti lians á næstu
árum?
„Það sem mér kemur fyrst í
hug, er hið mikla þjálfaravanda
mál sem þjakar nú körfuknatt-
leikinn á íslandi. Okkur vant-
ar nú tilfinnanlega menntaða
þjálfara sem vilja og geta tekið
að sér unglingaþjálfunina. Verði
þessum málum ekki kippt í lag
hið snarasta, þá kemur það okk-
ur illilega í koll innan fárra ára.
Það er t.d. ekki óalgengt, að
leikmenn sem komnir eru í I.
deild, kunni ekki undirstöðuatr-
iðin, sem þeir eiga að læra í
yngri flokkunum. Og 1 öðru lagi
er það hinn mikli dómaraskort-
ur sem hér ríður húsum. Þar er
atriði sem einnig verður að
kippa í lag. Annars er víst að
bera í bakkafullan lækinn að
fara að tala um dómaramálin. —
Nú er það svo, að auðveldara
er að benda á það sem aflaga
fer, en að lagfæra það og er þá
komið að gamla „fylgifisknum"
þ.e. fjárskortinum. Annars óska
ég íslenzkum körfuknattleik alls
hins bezta á komandi árum, og
vona að hann megi blómgast vel
um alla framtíð."
grk.
Ágætur árangur í fyrsta 20 km
hlaupinu hér á landi
Halldór Guðbjörnsson hljóp
17.068 metra á klukkustund
I GÆB fór í fyrsta sinn fram
keppni í 20 kílómetra hlaupi hér-
lendis. Voru keppendur í hlaup-
inu sex og luku allir keppni. Þá
var jafnframt mælt hvað kepp-
endurnir voru komnir langt er
klukkustund var liðin. Hefur
heldur ekki verið keppt í
klukkustundarhlaupi hérlendis,
en erlendis er sú grein töluvert
tíðkuð.
Sigurvegari í báðum keppnun-
um var Halldór Guðbjörnsson,
KR, og náði hann ágætum
árangri. 20 kílómetrana hljóp
hann á 1:10.01,6 klst., sem svar-
ar til um 35 mínútna á 10 km.
Á einni klukkustund hljóp hann
17.068 metra.
Annar í 20 km hlaupinu varð
Gunnar Snorrason, UMSK, og
náði hann einnig ágætum
árangri 1:11,56,4 klst. og má
geta þess að millitími hans á
10 km. mun vera heldur betri
en hann hefur bezt náð i 10 km
hlaupi.
Úrslit 20 km hlaupsins urðu
annars þessi: klst.
Halldór Guðbjörnss. KR 1:10,01,6
Gunnar Snorras. UMSK 1:11,56,4
Vidar Toreid Noregi 1:17,25,1
Steinþór Jóhannesson,
UMSK 1:19,53,7
Kristján Magnússon Á 1:22,00,8
Bjarki Bjarnason
UMSK 1:28,16,4
Klukkustundarhlaup:
metrar
Haildór Guðbjörnsson 17.068
Gunnar Snorrason 16.735
Vidar Toreid 15.389
Steinþór Jóhannesson 15.271
Kristján Magnússon 14.592
Bjarki Bjarnason 13.419
Þar sem þetta er i fyrsta
skipti sem keppni í þessum
greinum fer fram hérlendis,
eignast Halldór Guðbjörnsson
Islandsmetið í þeim, en Stein-
þór Jóhannesson drengja- og
unglingamet.
: \ : ■: :■
, :::; ■:;■.
-'í
Mýkt og tækni. — Sérkenni Þorsteins Hallgrímssonar koma
vel fram í þessari mynd, sem tekin var í leik Ármanns og IB
Akranes og
Keflavík unnu
— Hafnarfjörð og Breiðablik
í Litlu bikarkeppninni
TVEIR leikir fóru fram í Litlu
bikarkeppninni um helgina og
sigruðu þá Akurnesingar Hafn
firðinga með tveimur mörkum
gegn einu og Keflavík sigraði
Breiðablik úr Kópavogi með 5
mörkum gegn 1. Má ljóst vera,
eftir þessi úrslit, að baráttan
um bikarinn stendur milli Akur
nesinga og Keflvíkinga en bæði
liðin standa þar jafnt að vígi —
hafa tapað einu stigi.
Leikur Breiðabliks og Kefl-
víkinga, sem fram fór í Kópa-
vogi var nokkuð ój afn og sýndu
Keflvíkmgarnir ágætan leik. í
hálfleik höfðu þeir náð tveggja
marka forskoti og í síðari hálf-
leik skoruðu þeir þrjú mörk
gegn ■einu. Mörk Keflvíkinga
skoruðu þeir Magnús Torfason,
Friðrik Ragnarsson og Steinar
Jóhannsson.
Leikur Akurnesinga og Hafn-
firðinga var his.s vegar til muna
jafnari og hefði jafntefli ekkl
verið ósanngjörn úrslit. f fyrri
hálfleik skoruðu Akurnesingar
tvö mörk og voru þar að verki
þeir Hörður Jóhannsson og Jón
Gunnlaugsson. í síðari hálfleik
sóttu Hafnfirðingar án afláts,
sérstaklaga er leið að leikslok
um og tókst þá Jóhanni Larsen
að skora með fallegu skoti.
Staðan í keppninni er nú
þessi:
Akranes 3 2 1 0 8:2 3
Keflavík 3 2 1 0 8.3 5
Kópavogur 5 1 2 2 9:12 4
Hafnarfjörður 5 0 2 3 4:12 2