Morgunblaðið - 19.05.1971, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.05.1971, Qupperneq 1
32 SIÐ UR Egyptaland: — handteknir fyrir samsæri Forstöðumenn útvarpsins □ □ Q Sjá einnig- grein á bls. 10. Q □ □ Kaíró, 18. maí. —- AP-NTB. ANWAR SADAT, forseti Egypta lands tilkynnti i dag að skipuð hefði verið ný framkvaemda- stjórn Arabiska sósíalistasam- bandsins — en sambandið er eini stjórnmálaflokkurinn, sem starf- ar þar í landi. Fylgir þessi ákvörðun i kjölfar hreinsananna miklu innan ríkisstjórnarinnar að undanförnu, sem meðal ann- ars leiddu til handtöku sex ráð- herra og þriggja manna úr Reyna að ná tindi Everest í vikunni Kanmandu Nepal, 18. maí AP. BREZKU fj allgöngumennirnir) tveir, sem freista þess umj þessar mundir að komaist upp| á tind Mount Everest hafai reist sér búðir í 7.980 m hæð' og munu hafast þar við, unz veður batniar, en það hefur verið afleitt á þessum slóð- um síðustu daga. Þeir eiga eftir uim 650 rnetra á tindinn og hefur sá hjalli oftast reynzt sá erfiðasti. Mennirnir tveir Whillans og Haston munu hafa í hyggju að reyna að ná tindinum á fimmtu- dag eða föstudag. Taikist það ckki er talið eins líklegt að hætt verði við leiðangurinm í bili. Ymsir aðrir úr hópnum hafa reynt að komast upp í hinar nýju búðir þeirra Whillans og Hastons, en orðið frá að hverfa vegna stonmviðris og fannfergis. Upphaflega voru í hópnum 32 f' fjallgöngumenm, af 12 þjóð- ernum. Nú eru eftir 25, þar sem einm hefur iátizt, íjórir hafa hætt þátttöku og tveir til viðbótar hafa orðið að hætta vegna krankleika. stjórn flokksins fyrir meint samsæri um stjórnarbyltingu. Fjöldi annarra opinberra starfsmanna hefur verið hand- tekinn, þar á meðal þingmenn, miðstjórnarmenn sósíalistasam- bandsins, og nú siðast forráða- menn hjá hljóðvarpi og sjón- varpi. Dagblöð í Kaíró skýrðu frá handtöku útvarpsmannanna í dag og segja að þeir hafi átt aðild að samsærinu. Segja blöð- in að menn þessir hafi breytt dagskrá hljóðvarps og sjónvarps á fimmtudagskvöld i fyrri viku og í stað auglýstrar dagskrár látið leika þar þjóðlög og her- göngulög um leið og tilkynnt var að ráðherrarnir sex hefðu sagt af sér. Átti þetta að gefa til kynna að stjórn Sadats væri að falli komin og skapa glund- roða i landinu. Tókst sú tilraun andstæðinga Sadats ekki, en þess í stað voru ráðherrarnir sex handteknir og sakaðir um samsæri. Víðtækar rannsóknir eru nú Framhald á bls. 25. Mynd þessi var tekin á laugardag þegar Anwar Sadat forseti ávarpaði eg.vpzku þjóðina og skýrði henni frá breytingum á ríkisstjórninni. Var ávarpi forsetans útvarpað og sjónvarpað, og tók það hálfa aðra klukkustund. Mestu fjöldahandtökur — í sögu tyrkneska lýðveldisins Yfirvöld neita að verða við kröfum mannræningja Istanbul og Jerúsalem, 18. maí. — (AP-NTB). ★ SVEITIR úr tyrknesa hern- um og öryggislögreglunni leita nú mannræningjanna, sem í gær rændu aðalræðismanni tsraels í Istanbul. ★ Haft er eftir áreiðanlegum heimildum að hundruð vinstri sinnaðra stúdenta, prófessora, stjórnmálamanna og verkalýðs- leiðtoga hafi verið handteknir, og er hér um að ræða mestu Óku óvart inn 1 Kína Átta brezkum hermönnum sleppt eftir 10 klst. í Kína Hong Kong, 18. maí — AP. • Átta brezkir hermenn, sem voru að flytja matvæU tU landa mæravarða í Hong Kong, óku ó- vart yfir landamærin snemma i morgun og inn á kínverskt landsvæði. Voru Bretamir komn ír um 50—60 metra inn í Kína þegar kinveirskir hermenn lok- ttðu vegLnum fyrir aftan þá og meinuðu þeim að snúa við. • Tiu klukkustundum eftir að brezktt hermetnnirnir voru hand- teknir var skýrt frá því að þeim hefði verið sleppt úr haldi og að þeir hefðu fengið að halda heint tU Hong Kong. Nokkru áður en brezku her- mönnunum var sleppt tilkynntu yfirvöld í Hong Kong að þau hefðu sent yfirvöldum í Kina orðsendingu þar sem skýrt er frá atburðinum og beðizt afsök- unar á ferð brezku hermann- anna inn á kínverskt lands-væði. Þá segir í orðsendingunni að „yfirvöld í Hong Kong gera eng- ar frekari ráðstafanir að svo stöddu, og vona að hermennirn- ir og bifreiðar þeirra fái fljót- lega að hnúa heim til Hong Kong strax og kínversk yfirvöld hafa lokið rannsókn í málinu.“ Brezku hermennirnir óku í Land-Rover og fjögurra tonna Framhald á bls. 21. fjöldahandtökur í 47 ára sögtt tyrkneska lýðveldisins. ★ Ríkisstjórnir Tyrklands og ísraels sátu fundi í dag til að ræða mannránið. Á fundi ísra- elsku stjórnarinnar var gengið frá orðsendingu til tyrknesku stjórnarinnar þar sem henni er þakkað fyrir tilraunir tU að bjarga lífi aðalræðismannsins. Það voru vopnaðir menn úr svonefndum „Frelsisher tyrk- neskrar alþýðu", sem 1 gær rændu Ephraim Elrom aðalræð- ismanni frá heimili hans i Istan- bul. Hótuðu þeir að myrða aðal- ræðismanninn ef ekki yrði sleppt úr tyrkneskum fangelsum öllum byltingarsinnum fyrir fimmtudagskvöld. Stjórnarvöld- in neituðu að fallast á kröfur mannræningjanna, en hótuðu þess í stað að setja ný lög, sem fælu í sér dauðadóma yfir öll- um, er væru viðriðnir mannrán- ið. Einnig var tilkynnt að allir Hoenecker í Moskvu þeir, sem vitað væri að ættu aðild að Frelsishernum svo- nefnda, yrðu handteknir. Samkvæmt fyrirmælum yfir- valdanna var i dag útvarpað nöfnum 49 manna, sem ríkis- stjórnin skorar á að gefa sig fram tafarlaust við lögregluna. Sagði í útvarpstilkynningunni að gefi mennirnir sig ekki fram af sjálfsdáðum verði þeir sótt- ir heim og vopnum beitt, ef Fraimhald á bls. 21. Grænlandsflug SAS eykst í ÁRSSKÝRSLU skandinav- iska flugfélagsins SAS segir frá því að félagið hafi nú fimmta árið í röð tekið þátt í Grænlandsflugi, en í þvi fé- lagi á SAS 25%. Notaðar voru fimm Sikorsky S-61-N þyrlur og tvær vélar af gerð- inni DC-4. Umferðaraukning varð 20%, 31 þúsund farþeg- ar voru fluttir á vegum Græn landsflugs (26 þús. árið áð- ur), 78.000 kg af frakt (65 þús. árið áður) og 380 þús. 1 kíló af pósti (300 þús. kíió ár | ið áður). Öttast eyðingu fiskstofnsins — að óbreyttri stefnu EBE í fiskveiðimálum MoSkvu, 18. maí AP. ERICH Hoenecker, hinn nýi leiðtogi austur-þýzkra komimún- iista kom til Moskvu í dag til viðræðna við sovézka flokksfor- ingjanm, Leonid Brezhnev. Með í förimmi er Willi Stoph, forsæt- isráðherra og tveir meðlimir stjórnarráðsins þeir Horse Sund enmann og Kurt Hager. Þetta er fyrsta heirmsókn Hoeneckers til Moskvu, síðan hanm tók við starfi flokksleið- toga af Walter Ulbricht þanm 3. mai. London, 18. maí. — NTB BREZKUM blöðum verður tíð- rætt um áhrif aðildar Breta að EBE á efitahagslífið í landinu, og í dag leggja tvö blöð áherzlu á áhrif fiskveiðistefnu samtak- anna. Blaðið Daily Telegraph segir að núverandi stefna Efnahags- bandalagsins í fiskveiðimálum geti leitt til þess að fiskstofn- inn við strendur Bretlands, Nor- egs og Irlands gjöreyðist, ef þessi lönd verða aðilar að banda- laginu. í sama streng tekur blaðið Financial Times, sem segir að fiskstofninum við strendur þessara þriggja landa sé stefnt í hættu og að mikill fjöldi manna geti misst atvinnu sina ef fiskimálastefna EBE taki ekki miklum breytingum áður en löndin gerast aðilar. Daily Telegraph segir að aðild landanna þriggja hljóti að kreíj- ast stórbreytinga á stefnunni 1 fiskimálum, því þarna sé um þrjár miklar fiskveiðiþjóðir að ræða. Segir blaðið að sam- kvæmt rikjandi stefnu banda- lagsins i fiskveiðimálum eigi aðildarríkin að heimila öðrum aðildarríkjum fiskveiðar innan sinnar landhelgi, og geti sú stefna leitt til eyðingar fisk- stofnsins á fimm árum. í Financial Times er einnig bent á að í Noregi starfi 45 þús- und manns að fiskveiðum og fiskiðnaði, og að norska stjórn- in óttist að margir þeirra verði atvinnulausir og neyðist til að flytja búferlum, ef landið fær aðild að EBE. « <

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.