Morgunblaðið - 19.05.1971, Page 7
MORGUNBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 19. MAl 1971
7
Niður Skólavörðustíg
Enga götu borgarinnar
yfirskyggir turn Hallgrims í
jafnríkum mæli og Skóla-
vörðustíginin. Það er sama
hvort við göngum upp eftir
honum með þennan mikla
turn fyrir augunum, eða við
höfum hann að baki á leið
okkar niður í bæ — við finn
um óumOýjanlega nærveru
hans þar sem hann stendur,
grásteyptur og þögull innii í
grindum sínum. — En bráðum
fær hann mák Senn senda
mestu klukkur íslamds
htjóma sína dag hvern úr
þessu mikla musteri út yfir
borgina og minna a.m.k. alla
„Stór“-Reykvíkinga á skáld-
ið í Saurbæ, „sem svo vel
söng, að sólin skein í gegmum
dauðans göng.“ HaHgríms-
kirkja verður sjálfsagt eitt
dýrasta hús á Islandi og er
það vel, þvi að alit of mörg-
um peningum er vissulega
illa varið i þessu alksnægta
þjöðfélagi. En gatan upp að
þessu mesta guðshúsi þjöðar-
innar, Skólavörðustígurinn,
mun framvegis, eins og
hingað til, verða kennd við
vörðuna, sem piltarnir i Hóla
vallaskóla hlóðu þegar við lá
að þeir féllu úr hungri og
harðrétti.
Mikið er þessi stígur ekta
reykvisk gata, bæði í fortið
og nútíð. Það tæki mörg blöð
að segja sögu hans ofan frá
Leifi heppna niður á Lauga-
1 veg. Til að forðast málaleng-
ingar gætum við þess að
stanza ekki fyrr en niðri við
gatnamót Óðinsgötu. Á horn-
inu stendur ákaflega nett,
járnikliætt timiburhús. — Smá
kvistur á þaki. Sunnan við
það hlýiegur garður með
blómnm og runnum, en sitt
hvoru megin við þessa
fbrstofu vöxtulegt tré, sem
halda vörð um fegurð húss-
ins og friðhelgi heimdlisins.
Yfir þetta hlédræga hús
gnæfir hár steimveggur með
marglitri auglýsimgu með
sjál'fum KRON innan í sinum
eilífa hring. Litirnir eru farn-
ir að veðrast eins og von er
í okkar tíðu austanstormum
og slagveðrum, sem oft hafa
gnauðað um þennan veður-
næma gafl. Og það hefur
ekki verið hirt um að mála
hann á ný. KRON er fluttur
með sinar höfuðstöðvar í sína
milljónahöl] við Laugaveg —
Domus.
Handan götunnar stendur
eitt af þessum nýlegu pen-
imgahofum höfuðborgarinn-
ar með rúmgóðan glæsilegan
afgreiðsilusaQ um þvert hús á
götuhæð. Hann er til að veita
borgurunum hina „fullkomn-
ustu þjónustu" og gerir það
eflaust — öllum nema þeim
einurm, sem helzt þurfa —
þeim blönku.
Uppi er svo fógetinn, tiibú
inn að taka lögtak hjá þeim,
sem ekki standa í skilum. Svo
er ekki langt að fara tiJ að
koma lögbrjótum og svindlur
um þarngað, sem þeir eiga
heima. Þetta heitir „hagræð-
img í hönnuðu þjóðféla,gi.“
Þar sem bawkinn nú stend-
ur var fyrir eina tíð hús
Þorbjargar Ijósmóður Sveins
dóttur. Hún er okkar mesti
kvenskörungur siðan Berg-
þóra leið. 1 því litla húsi var
HER
ÁÐIJR
FYRRI
eitt af vígjum íslenzkrar
menningar í höfuðstaðnum
þar sem ungir gáfumenn
stunduðu nám og oddvitar í
frelsisbaráttunni réðu ráðum
sinum eggjaðir af skaphita
hinnar dáðríku konu. Og
Ólafia Jóhannsdóttir saumaði
bláhvíta fánann fyrir Einar
Ben.
Eitt sinn er Matthias kom
til Reykjavíkur austan frá
Odda borðaði hann árbít hjá
Þorbjörgu og Benedikt
Gröndal. Þau höfðu þá flutt
saman. Skyldi hún stýra húsi
hans. „Hef ég sjaldan skemmt
mér betur en þann klukku-
tíma,“ segir Matthías í Sögu-
köflum, „því að stofan lék á
þræðd af fjöri og andríki . . .
tók þó út yfir glaðværð
þeirra Þorbjargar og Grön-
dals.“ En ekki stóð sú sam-
búð lengi eins og Matthías
grunaði.
Bftir Þorbjörgu orti þjóð-
skáldið eitt af sínum ódauð-
legu lijóðum:
Gamla Island, bjóð nú brúði
rúm,
beztu sæng, því nú er komið
húm,
þinmar hálfu þau hin einu
laun
þiggur hún og gleymir
dagsins raun.
Hennar líf var heiður þinn
og lán,
hennar dauði vandi þinn og
smán,
hennar bölvun hlekkur um
þinn fót,
hennar blessun frelsi,
siðabót.
Já, margt getur komið upp
í hugainn þegar gengið er nið
ur þessa skemmtilegu götu
— Skóiavörðustíginn.
G. Br.
Blöð og tímarit
Afturelding, biað Hvítasunnu-
manna, er nýkomið út, og flytur
efni kristilegs eðlis. Á forsíðu
er mynd frá Þingvöl'lum, tekin
aif Karli Sæmundssyni. Af efni
þess má nefna: Grein um nýjan
forstöðumann safnaðarins, Einar
Gislason og konu hans Sigur-
linu Jóhannsdóttur. Minningar-
orð um Signý Eriksson trúboða.
Ársdvöl meðal frændþjóðar, eft
ir Daniel Jónsson. Á glötunar-
barmi eftir Billy Graham.
Ásmundur Eiriiksson skrifar
merkilega sögu merkilegs manns,
Fred Peiffer. Sáning og upp-
skera. Hvítasunnuvaknimgin eft
ir Lewi Petrus. Hún átti svarið,
eftir Jóhönnu Karlsdóttur.
Kristín Sæmunds yrkir minning
arljóð um Þórunni Gunnarsdótt-
ur. Enn um spiritista, 3. grein,
eftir Ásmund Eiríksson. Svar
Billys Graham. Hallgrímur Guð-
mannsson skrifar um einstæð
ustu persónu sögunnar. Ur djúp
inu ákalla ég þig. Flett upp í
dagbók eítir Erik Adólfsson.
Bréf frá Grænlandi. Tölvan
fEinn hinn týnda dag. Merkileg
grein í sambandi við geimferðar
vísindi. Það dæmalausa verður
deginum ljósara. Bibliuspurning
ar og Bæn fyrir þjóðinni. End-
urreist land og þjóð á heimleið,
um persnesku þjóðina. Þekktur
lögfræðingur unninn fyrir Krist.
Flóttakonan, sem kom heim.
Varð vellríkur með einum úr-
skurði. Ljóð eftir Ásmund
Eiríksson um Vigdísi Majasdótt
ur 'látna. Nokkur orð um bók
bókanna. Játning norsks fanga.
Islenzk kona í Noregi skrifar
bréf. Lítið pappírssnifsi verkar
til tvöfalds hjálpræðis. Sú var
tíðin, að Tage Erlander, fyxrv.
forsætisráðherra gekk á vakn-
ingasamkomur. Ritstjórar Aftur-
eldingar eru Ásmundur Eiríks-
son og Einar J. Gíslason. Ritið
er myndum prýtt. Prentað I
Borgarprenti.
FÓLK ATHUGIÐ BROTAMALMUR
■Tek að mér aukavinnu við smíðar. Uppl. í síma 42392. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91.
4RA—6 HERB. IBÚÐ eða einbýlishús, óskast til leigu. Uppl, í sima 22448. HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott ur sem kemor í dag, til'búinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Síðumúla 12, sími 31460.
2JA HERB. IBÚÐ VIL KAUPA
ó'skast til leigu I október n. k., helzt nálægt Möbænum. Tilb. sendist Mbl. merkt: „íbúð — 7661". notað mótatimbur 2,5x15,5 cm. Uppl. í síma 23439 og 38931 eftir kl. 7 á kvöldin.
3JA—5 HERB. IBÚÐ óskast til leigu. Þarf að vera laus fyrir 10. júní. Uppl. í síma 84118. HALF 12 BÚÐ til leigu, 30 fm plóss, ásamt bakherbergi. Tilboð sendist blaðinu fyrir kl. 4 á föstudag merkt: „Hálf 12 búð 7650",
3JA—6 HERB. IBÚÐ IBÚÐ ÓSKAST
óskast á leigu. Uppl. í síma 40788. til leigu í Hafnarfirði eða Garðahreppi. Uppl í síma 52463.
13 ara stúlka ÓSKUM EFTIR
óskar að gæta barns í sum- ar. Uppl. í síma 41222. að kaupa 3ja—4ra herb. ibúð í Kópavogi. Útb. 700—800 þús. Uppl. ! síma 42215.
TIL SÖLU 12—13 ARA STÚLKA
Volkswagen, árgerð '65. Ba- hama blár. Uppl. í síma 10155 eftir kl. 6. óskast til að Hta eftir börn- um. Uppl. i sima 84100.
V.W '68. 1300 mjög fallegur til sýnis og sölu í dag. Má greiðast á 3—4 árum ef um tryggingu er að ræða. Símar 19032 og 20070. ATVINNUREKENDUR Óska eftir kvöld- og/eða helgarvinnu, margt kemur td greina, hef bifreið til umráða. Svar sendist Mbl. fyrir 22. þ. m. merkt: „7559".
TIL SÖLU ATVINNA ÓSKAST
Nýleg 3ja herb. íbúð í Heima hverfi. Uppl. í síma 36462 eftir kl. 18.00. 16 ára stúlka óskar eftir at- vinnu. — Margt kemur til greina. Uppl. ! sima 20108.
PRENTVÉL EIMREIÐIN FRA BYRJUN
Til sölu góð cylinder prent- vél 38x51 cm. Til'b. merkt: „Hag'kvæmt 7666" sendlst Mbl. fyrir 23. maí. í skinnbandi til sölu. Tilboð merkt: „Bækur 7664" send- ist Mbl. fyrir laugardag.
NJARÐVlK — TIL SÖLU Vel með farið einbýlishús með bílskúr og ræktaðri eign arlóð. Hagst. greiðsluskilm. Fasteignasalan, Hafnarg. 27, Keflavík, sími 1420 — 1477. KEFLAVlK — TIL SÖLU Vel með farin 3ja herb. efri hæð við Hringbraut. Teppa- lögð. Sérinngangur. Fasteignasalan, Hafnarg. 27, Keflavik, simi 1420 — 1477.
UNG HJÓN með eitt barn vantar 2ja—3ja herb. ibúð. Uppl. í síma 81287 eftir kl. 5. BiLL Er kaupandi að Chevrolet bn pala '64-’66, beinsk, með vökvastýri, staðgr. Aðeins góður bítl kemur til greina. S. 7118, Borgarnesi eftir kl. 19 á kvöldin.
Land-Rover diesel
Til sölu góður Land-Rover 1966, diesel.
Upplýsingar í síma 32370 um hádegi og eftir kl. 7 á kvöldin.
Trillueigendur
Hver vill leigja 6—10 tonna bát til handfæraveiða í sumar.
Tilboð er greini leigukröfu og nafn leggist inn á afgij Mbl.
fyrir hádegi 25. maí, merkt: „Færi 7649 ".