Morgunblaðið - 23.05.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1971
21
— Myndlist
Framhald af bls. 14.
unni til hamingju með árang-
urinn og hvet Reykvikinga
til að fjödmenna á sýningu
hennar, sem eins og fyrr var
sagt, lýkur nú um hélgina.
SÝNINGAR ERLENDIS
Mikii gróska hefur undan-
tfarið verið í sýningahaldi 5s-
lenzkra listamanna á erlendri
'grund og er rétt að Vikja
nokkrum orðum að þeim. Far-
andsýningin, „Fjórar kynslóð
ir“, er nú komin til Stokk-
hólms, var opnuð sl. sunnu-
dag í húsakynnum Thielska
Galleríisins og mun dvelja
þar til 6. júní. Sýningin hef-
ur gengið alivel og þá bezt
í Gautaborg, og verður fróð-
legt að vita, hvernig Stokk-
hólmsbúar taka sýningunni.
Ég mun annars vikja nánar
að Thieska Galleriinu í ann-
arri grein alveg á næstunni.
Þá mun SÚM-sýningunni í
Amsterdam lokið, en engar
fréttir hafa borizt af henni,
hvað sem það merkir. Félag-
ið „.íslenzk grafík", sýndi á
norrænni sýningu í Lundi
fyrir nokkru og gekk bæri-
lega. Einnig tók það þátt í
grafík-sýningu í Buenos
Aires í október sl. ár og hef-
ur ekkert frétzt af þeirri
sýningu fyrr en nú fyrir
nokkrum dögum að fregn
barst um, að Einar Hákonar-
son hafi verið einn 10 lista-
manna, sem heiðraðir voru
með gullmedalíu fyrir fram-
lag sitt. Hægfara frétta-
mennska það (!), en allavega
ánægjulegur heiður og hvatn
ing fyrir hinn unga lista-
mann, sem ástæða er til að
óska honum til hamingju með.
Er þetta i þriðja skipti sem
Einar hlýtur viðurkenningu á
alþjóðlegum sýningum.
Þá er komið að hinni mjög
umtöluðu Chartottenborgar-
sýningu. Frá henni höfum við
fengið greinargóðar fregnir,
og þannig á það að vera með
allar sýningar, á hvern veg
sem dómar ganga, því að
slæmir dómar geta haft mikla
þýðingu, ekki síður en lotf-
samlegir. Þeim leiðu háttum
íslenzkra listamanna að
stinga harðri gagnrýni und-
ir stól ber að segja stríð á
hendur. Umrædd sýning
fékk þá hörðustu dóma, sem
ég hefi lesið um íslenzka sýn
ingu erlendis og mjög sam-
hljóða. Ljóst virðist, að sýn-
ingin hafi ekki megnað að
fylla upp hina stóru og
þungu saJli Charlottenborgar,
enda enginn hægðarleik-
ur, og ber þeim, sem hlut
eiga að máli, að taka þvi með
reisn. Að kenna heimflutn-
ingi handritanna um orsök
þessara dóma er ofvaxið
mínum skilningi, og margt
hafa þau rit orðið að þola um
dagana, en þetta er of mikið
á þau lagt, þvi að hér er skot
ið framhjá marki. Ég minnist
þess að við gagnrýnendur
höfum orðið fyrir hörðum
skeytum fyrir gagnrýni okk-
ar á verkum sumra þeirra,
sem nú urðu harðast úti á
Charlottenborg, og höfum
jafnvel hlotið broslegan, póli
tis'kan stimpii fyrir. En list-
pólitík og landsmálapólitik
eru I kjarna sinum ólík hug-
tök, þótt öll mikil list taki
afstöðu til einhverra vanda-
mála síns tima, fagurfræði-
legra, andfagurfræðilegra
eða þjóðfélagsiegra, og geti
þannig vitanlega á margan
hátt skoðazt sögu'lega póli-
tísk, en hreppapólitík á hér
ekki að koma nærri, þótt
margir sætti sig ekki við það,
hvorki vinstri menn né hægri.
Það kom ekki á óvart, að list
dómar dönsku blaðanna
teldu sýninguna lítt frambæri
lega, því að svo vel þekktu
þeir til íslenzkrar listar, að
þeim voru gloppurnar aug-
ljósar. Skylt og Ijúft er að
geta þess, að nokkrir ein
staklingar hlutu mjög svo
þokkalega dóma, en það
voru einmitt þeir listamenn,
sem naumast áttu heima á
þessari sýningu, og efa ég, að
verk þeirra hafi notið sin til
fulls. Fávísleg er deilan um
fyrirsögn Morgunblaðsins
,um listdóma dönsku blað-
anna, því að ef þar hefði ver
ið vottur af „illkvittni“ á
bakvið, var úr nógu sterkara
að velja. — En nóg um það.
Fyrir utan framantaldar
sýningax vil ég geta þess að
Valtýr Pétursson sýnir i
Texas, og ný íslenzk samsýn-
ing ytra er í samsetningu. A-f
þessari upptalningu, sem
vafalítið væri hægt að bæta
við, má sjá að landinn kem-
ur víða við í myndlistinni um
þessar mundir og ber það
mikinn vott um ánægjuleg
umsvif, sem ég er fullviss um,
að ekki verður lát á í náinni
framtíð.
Bragi Ásgeirsson.
— Operan
Framhald af bls. 14.
sónu, sem stendur fyrir sínu þó
að nýstárleg sé.
Jónatan Peachum „vin betlar-
ans“ leikur Sigmundur Örn Arn-
grímsson. Jónatan er eldri mað-
ur, harður og kaldrif jaður, slung
inn og hatursfullur. Sigmundur
skilar mjög miklu af þessari per-
sónu en ekki öllu, sem heldur er
ekki við áð búast af svo ungum
manni.
Ef ég man allt rétt, þá kom
þarna fram alger nýliði, ungling-
ur í gagnfræðaskóla og lék
Charles Filch með slikum ágæt-
um, að vér undruðumst. Hann
heitir Viðar Eggertsson. Vonandi
getur hann meira en leikið þessa
einu manngerð.
Leikstjórn Magnúsar Jónsson-
ar var mjög ánægjuleg, enginn
klaufaskapur, engin stílbrot eða
kjánaleg fiff, heiðarleg verkleg
leikstjórn í góðum Brecht-anda.
Ég sé ekki betur en að hann sé
kominn með orðu á brjóstið, sem
ekki er hægt að líta framhjá
næst, þegar farið er að svipast
um eftir frægumC! ?) erlendum
leikstjóra.
Leiktjöld Magnúsar Pálssonar
voru einföld og hagleg nema
hvað það var kannski eitthvað
of mikið umstang að skipta um
borðana. Grái grunnliturinn var
eins og fenginn beint frá Schiff-
bauerdamm.
Það er mjög leitt að L.A. slculi
ekki hafa haft efni á að láta
nokkurra manna hljómsveit með
ásláttarhljóðfærum o.fl. leika
með. En við það sem var mátti
una.
Þessi þýðing ásamt öllu, sem
henni viðkemur, mun vænlegt
efni í doktorsritgerð og skulu
því engin orð um hana höfð hér.
Leikfélag Akureyrar er á
réttri leið og það væri mjög
ánægjulegt ef það kæmist yfir
næsta hjalla.
Með beztu óskum.
Þorvarður Helgason.
AKIÐ A
UTSOLUSTAÐIR :
í REYKJAVÍK:
MÚLI við Suðurlandsbraut
DEKK hf. við Borgartún
í VESTMANNAEYJUM:
H. SIGURMUNDSSON, heildverzlun
Á AKUREYRI:
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN, Glerárgötu.
nm i u
Ul„ IF Sími 20 000
iufi
saltvík
71
HVAÐ? Hátíð fyrir ungt fólk, sem Æskulýðsráð og Trúbrot gangast fyrir.
HVENÆR? Frá kl. 20.00, 28 maí til kl. 16.00 31. maí.
HVAÐ? Hljómleikar, dansleikir, diskótek, þjóðlagahátíð, helgistund, varðeldar, leikir, íþróttir
= 48 stunda dagskrá.
HVERJIR SKEMMTA? Trúbrot, Náttúra, Ævintýri, Mánar, Þrjú á palli, Júbó, Ábót, Rooftops,
Tilvera, Helgi og Kristín, Haukar, Ingi Steinn, Siggi Garðars, Árni Johnsen, Torrek, Dýpt,
Einar Vilberg, Arkimedes, Tiktúra, Akrópólis, Jeremías, Trix, Plantan, Ríó tríó. — Sr. Bern-
harður Guðmundsson sér um helgistund með aðstoð Trúbrots og fleiri. Freyr Þórarinsson
er kynnir á hátlðinni.
FERÐIR? Umferðarmiðstöðin, frá kl. 16.00 á föstudag.
KOSTAR? Aðgöngumiði 350 kr. fyrir alla hátíðina, ferðir 60 kr. hvora leið.
FORSALA? Við Útvegsbankann frá fimmtudagsmorgni 27. maí.
HVAÐ ÞARF AÐ HAFA MEÐ? Tjald, viðleguútbúnað, hlý föt, regngalla, nesti og gott skap.
VEITINGAR? Fjölbreyttar veitingar verða á boðstólum, svo sem pylsur, samlokur, öl, kaffi,
súkkulaðikex og margt fleira.
BÍLASTÆÐI? Já, fyrir 2000 blla.
SJÚKRAÞJÓNUSTA? Fullkomin sjúkraþjónusta Hjálparsveit skáta.
ALDURSTAKMÖRK? Við miðum við 14 ára og eldri.
NOKKUÐ FLEIRA? Já,
„í Saltvík um hvítasunnuna skemmtum við okkur
í friði, ást og eindrægni og við drekkum ekki!“.
hvítasunnuhelgin
*eí« *. .v .<*****? y>.v