Morgunblaðið - 23.05.1971, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 23.05.1971, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1971 21 — Myndlist Framhald af bls. 14. unni til hamingju með árang- urinn og hvet Reykvikinga til að fjödmenna á sýningu hennar, sem eins og fyrr var sagt, lýkur nú um hélgina. SÝNINGAR ERLENDIS Mikii gróska hefur undan- tfarið verið í sýningahaldi 5s- lenzkra listamanna á erlendri 'grund og er rétt að Vikja nokkrum orðum að þeim. Far- andsýningin, „Fjórar kynslóð ir“, er nú komin til Stokk- hólms, var opnuð sl. sunnu- dag í húsakynnum Thielska Galleríisins og mun dvelja þar til 6. júní. Sýningin hef- ur gengið alivel og þá bezt í Gautaborg, og verður fróð- legt að vita, hvernig Stokk- hólmsbúar taka sýningunni. Ég mun annars vikja nánar að Thieska Galleriinu í ann- arri grein alveg á næstunni. Þá mun SÚM-sýningunni í Amsterdam lokið, en engar fréttir hafa borizt af henni, hvað sem það merkir. Félag- ið „.íslenzk grafík", sýndi á norrænni sýningu í Lundi fyrir nokkru og gekk bæri- lega. Einnig tók það þátt í grafík-sýningu í Buenos Aires í október sl. ár og hef- ur ekkert frétzt af þeirri sýningu fyrr en nú fyrir nokkrum dögum að fregn barst um, að Einar Hákonar- son hafi verið einn 10 lista- manna, sem heiðraðir voru með gullmedalíu fyrir fram- lag sitt. Hægfara frétta- mennska það (!), en allavega ánægjulegur heiður og hvatn ing fyrir hinn unga lista- mann, sem ástæða er til að óska honum til hamingju með. Er þetta i þriðja skipti sem Einar hlýtur viðurkenningu á alþjóðlegum sýningum. Þá er komið að hinni mjög umtöluðu Chartottenborgar- sýningu. Frá henni höfum við fengið greinargóðar fregnir, og þannig á það að vera með allar sýningar, á hvern veg sem dómar ganga, því að slæmir dómar geta haft mikla þýðingu, ekki síður en lotf- samlegir. Þeim leiðu háttum íslenzkra listamanna að stinga harðri gagnrýni und- ir stól ber að segja stríð á hendur. Umrædd sýning fékk þá hörðustu dóma, sem ég hefi lesið um íslenzka sýn ingu erlendis og mjög sam- hljóða. Ljóst virðist, að sýn- ingin hafi ekki megnað að fylla upp hina stóru og þungu saJli Charlottenborgar, enda enginn hægðarleik- ur, og ber þeim, sem hlut eiga að máli, að taka þvi með reisn. Að kenna heimflutn- ingi handritanna um orsök þessara dóma er ofvaxið mínum skilningi, og margt hafa þau rit orðið að þola um dagana, en þetta er of mikið á þau lagt, þvi að hér er skot ið framhjá marki. Ég minnist þess að við gagnrýnendur höfum orðið fyrir hörðum skeytum fyrir gagnrýni okk- ar á verkum sumra þeirra, sem nú urðu harðast úti á Charlottenborg, og höfum jafnvel hlotið broslegan, póli tis'kan stimpii fyrir. En list- pólitík og landsmálapólitik eru I kjarna sinum ólík hug- tök, þótt öll mikil list taki afstöðu til einhverra vanda- mála síns tima, fagurfræði- legra, andfagurfræðilegra eða þjóðfélagsiegra, og geti þannig vitanlega á margan hátt skoðazt sögu'lega póli- tísk, en hreppapólitík á hér ekki að koma nærri, þótt margir sætti sig ekki við það, hvorki vinstri menn né hægri. Það kom ekki á óvart, að list dómar dönsku blaðanna teldu sýninguna lítt frambæri lega, því að svo vel þekktu þeir til íslenzkrar listar, að þeim voru gloppurnar aug- ljósar. Skylt og Ijúft er að geta þess, að nokkrir ein staklingar hlutu mjög svo þokkalega dóma, en það voru einmitt þeir listamenn, sem naumast áttu heima á þessari sýningu, og efa ég, að verk þeirra hafi notið sin til fulls. Fávísleg er deilan um fyrirsögn Morgunblaðsins ,um listdóma dönsku blað- anna, því að ef þar hefði ver ið vottur af „illkvittni“ á bakvið, var úr nógu sterkara að velja. — En nóg um það. Fyrir utan framantaldar sýningax vil ég geta þess að Valtýr Pétursson sýnir i Texas, og ný íslenzk samsýn- ing ytra er í samsetningu. A-f þessari upptalningu, sem vafalítið væri hægt að bæta við, má sjá að landinn kem- ur víða við í myndlistinni um þessar mundir og ber það mikinn vott um ánægjuleg umsvif, sem ég er fullviss um, að ekki verður lát á í náinni framtíð. Bragi Ásgeirsson. — Operan Framhald af bls. 14. sónu, sem stendur fyrir sínu þó að nýstárleg sé. Jónatan Peachum „vin betlar- ans“ leikur Sigmundur Örn Arn- grímsson. Jónatan er eldri mað- ur, harður og kaldrif jaður, slung inn og hatursfullur. Sigmundur skilar mjög miklu af þessari per- sónu en ekki öllu, sem heldur er ekki við áð búast af svo ungum manni. Ef ég man allt rétt, þá kom þarna fram alger nýliði, ungling- ur í gagnfræðaskóla og lék Charles Filch með slikum ágæt- um, að vér undruðumst. Hann heitir Viðar Eggertsson. Vonandi getur hann meira en leikið þessa einu manngerð. Leikstjórn Magnúsar Jónsson- ar var mjög ánægjuleg, enginn klaufaskapur, engin stílbrot eða kjánaleg fiff, heiðarleg verkleg leikstjórn í góðum Brecht-anda. Ég sé ekki betur en að hann sé kominn með orðu á brjóstið, sem ekki er hægt að líta framhjá næst, þegar farið er að svipast um eftir frægumC! ?) erlendum leikstjóra. Leiktjöld Magnúsar Pálssonar voru einföld og hagleg nema hvað það var kannski eitthvað of mikið umstang að skipta um borðana. Grái grunnliturinn var eins og fenginn beint frá Schiff- bauerdamm. Það er mjög leitt að L.A. slculi ekki hafa haft efni á að láta nokkurra manna hljómsveit með ásláttarhljóðfærum o.fl. leika með. En við það sem var mátti una. Þessi þýðing ásamt öllu, sem henni viðkemur, mun vænlegt efni í doktorsritgerð og skulu því engin orð um hana höfð hér. Leikfélag Akureyrar er á réttri leið og það væri mjög ánægjulegt ef það kæmist yfir næsta hjalla. Með beztu óskum. Þorvarður Helgason. AKIÐ A UTSOLUSTAÐIR : í REYKJAVÍK: MÚLI við Suðurlandsbraut DEKK hf. við Borgartún í VESTMANNAEYJUM: H. SIGURMUNDSSON, heildverzlun Á AKUREYRI: HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN, Glerárgötu. nm i u Ul„ IF Sími 20 000 iufi saltvík 71 HVAÐ? Hátíð fyrir ungt fólk, sem Æskulýðsráð og Trúbrot gangast fyrir. HVENÆR? Frá kl. 20.00, 28 maí til kl. 16.00 31. maí. HVAÐ? Hljómleikar, dansleikir, diskótek, þjóðlagahátíð, helgistund, varðeldar, leikir, íþróttir = 48 stunda dagskrá. HVERJIR SKEMMTA? Trúbrot, Náttúra, Ævintýri, Mánar, Þrjú á palli, Júbó, Ábót, Rooftops, Tilvera, Helgi og Kristín, Haukar, Ingi Steinn, Siggi Garðars, Árni Johnsen, Torrek, Dýpt, Einar Vilberg, Arkimedes, Tiktúra, Akrópólis, Jeremías, Trix, Plantan, Ríó tríó. — Sr. Bern- harður Guðmundsson sér um helgistund með aðstoð Trúbrots og fleiri. Freyr Þórarinsson er kynnir á hátlðinni. FERÐIR? Umferðarmiðstöðin, frá kl. 16.00 á föstudag. KOSTAR? Aðgöngumiði 350 kr. fyrir alla hátíðina, ferðir 60 kr. hvora leið. FORSALA? Við Útvegsbankann frá fimmtudagsmorgni 27. maí. HVAÐ ÞARF AÐ HAFA MEÐ? Tjald, viðleguútbúnað, hlý föt, regngalla, nesti og gott skap. VEITINGAR? Fjölbreyttar veitingar verða á boðstólum, svo sem pylsur, samlokur, öl, kaffi, súkkulaðikex og margt fleira. BÍLASTÆÐI? Já, fyrir 2000 blla. SJÚKRAÞJÓNUSTA? Fullkomin sjúkraþjónusta Hjálparsveit skáta. ALDURSTAKMÖRK? Við miðum við 14 ára og eldri. NOKKUÐ FLEIRA? Já, „í Saltvík um hvítasunnuna skemmtum við okkur í friði, ást og eindrægni og við drekkum ekki!“. hvítasunnuhelgin *eí« *. .v .<*****? y>.v

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.