Morgunblaðið - 23.05.1971, Side 23

Morgunblaðið - 23.05.1971, Side 23
MORGUNBLAÐEÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1971 23 otkkur 511 leggur að vélli fyrr eða siðar. Á slífcum ðr- lagastunduim finnum við sárast til þess, hversu ógnar lítit og vanmáttug við erum í raun og veru. Björn var Norðlendingur I báðar ætitir, sonur hjónanna Bergvins Jóhannssonar og Sumarrósar Magnúsdóttur. Hann var sannur íslendingur í húð og hár og drengur hinn bezti og reyndist landi sínu og þjóð traustur fulltrúi hvar sem siwr hans lágu. Ég kynntist Birni skömmu eftir að hann fluttist til Seattle. Mér varð hlýtt til Björns strax við fyrstu kynni — það var engu líkara en að ég hefði allt i einu fundið glataðan bróður. Vinátta okkar varð hlýrri og innilegri með ári hverj-u. Hann kallaði mig jafnan bróður, þegar fundum okkar bar saman, og er mér ekki kunnugt um, að hann hafi sýnt vinum öðrum slíkan heiður. Björn var félagslyndur að eðlisfari. Hann var einn af stofnendum Islendingafélags- ins hér (The Icelandie Club of Greater Seattle). Þar sem ann- ars staðar reyndist hann traust- ur og einlægur félagsmaður. Björn hafði yndi af söng og hljóðfæraslætti, enda hafði hann mjúka og þýða tenór- rödd, sem hann að jafnaði beitti af smekkvísi í góðra vina hópi. Heiimili þeirra Bjössa og Gullu, en svo voru þau jafnan kölluð meðal vina og kunningja, stóð ávallt opið Islendingum, enda var þar jafnan gestkvæmt mjög. Björn lætur eftir sig eigin- konu sína, frú Guðriði, ásamt fimm börnum: Bjarna Þór, Rögnu (Mrs. Ron Kennedy), Bergrósu, Birni og Lindu. Eimnig lifa hann móðir, fimm bræður og ein systir, öll búsett á Islandi. Virðuleg og fjölmenn minning arathöfn um Björn fór fram í Calvary Lutheran Churoh hér í borg, laugardaginn 13. marz. Séra John T. Greeny stjórnaði athöfninni. Tani Björnsson söng af sinni alkunnu snilld hinn fagra íslenzka sálm: Kailið er komið — og að endingu söng hann á ensku Faðirvorið. Ung- frú Ingrid Strom lék á fiðlu, Ave Maria eftir Schubert. Björn var brenndur og verð- ur aska hans flutt til Islands og jarðsett í fjölskylduigrafreit. Að lokum vil ég þakka vini mínum Birni samfylgdina, sem við öll óskum að hefði mátt verða miklu lemgrL Ekkju hans og börnunum, ásamt öðru skylduliði, votta ég innilegustu samúð mína og hluttekningu og bið algóðan guð að blessa þau og styrkja í þeim þunga harmi, sem að þeim hefur verið kveð- inn. Þessum fátæklegu minningar- orðum lýk ég svo með þessu gullfagra erindi: Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr et sama, en orðstírr deyr aldrigi hveims sér góðan getr. Hávamál. Vertu sæll, góði vinur. Guð blessi minningu þína. Seattle, 6. apríl, 1971. Árni Þór Vikingur. Iðnnemar óánægðir með f jölmiðla I ORÐSENDINGU sem Morgim- blaðinu barst fyrir nokkru frá Iðnnemasambandi íslands lýsir sambandið fm-ðu sinni á við- brögðum fjölmiðia vegna 1. maí. Telur sambandið, að dagsins hafi ekki verið nógsamlega getið í flestum fjölmiðlum. Gagnrýn- ir það einkum útvarp og sjön- varp fyrir að hafa ekkd gert sér staka dagskrá, sem fjaMi um verkalýðshreyfinguna, baráttu hennar og markmið, en stofnun- in hafi oft gert sérstaka dagskrá ai minna tilefni. Málverkasýningu lýkur í DAG er síðasti dagurinm, sem málvertoasýning Sigríðar Bjöms- dóttur er opiin í Bogasal Þjóð- miinj aisafnisinis. Hefur aðsókn ver ið góð og 23 mynidir selzt. Opið er til klukkan 10 í kvöld. Bandaríkin og Sovétríkin: Árekstrar hjá fiskiskipum Bandarísk sendinefnd um borð í rússneska móðurskipið Boston, Massachusetts, stjórnar 120 skipa veiðiflota 21. maí — AP Rússa á þessum slóðum. ÍMELASKÓLINN er 25 áraí um þessar mundir og eru það 7 að sjálfsögðu merk tímamót í 1 sögu skólans. Af því tilefni hafa nemendur gert sér daga- mun og um síðustu helgi var hljómlistarskemmtun í skól- anum og skemmtu þar nem- endur með hljóðfæraslætti og söng. Foreldrum var boðið til skemmtunarinnar. Á myndinni er Magnús Péturs- son að stjórna kór og hljóm- sveit. Um næstu helgi, laug- ardag og sunnudag verður opin handavinnusýning nem- enda, þar sem foreldrar og aðrir geta skoðað það sem börnin hafa gert i vetur. Þá verður skólinn eða stofur hans til sýnis. (Ljósm.: Sv. Þorm.) Miklar deilur hafa að undan- förnu verið milli bandarískra humarveiðibáta og rússneskra togara undan strönd Massachu- setts í Bandaríkjunum, Banda- rísku sjómennirnir hafa kvartað sáran undan því að rússnesku togararnir sigli þvers og kruss yfir veiðarfæri þeirra, og hafi þegar valdið milljónatjóni. Voru kvatanirnar orðnar »vo háværar að Bandaríkjastjórn sendi sérstaka fulltrúa um borð í rússneska móðurskipið, sem Talsmaður sendinefndarinnar sagði að viðræðunum loknum að rússneski yfirmaðurinn hefði sýnt fullan skilning á afistöðu humarveiðibátanma og lofað að gera allt sem í hans valdi stæði til að hindra frekari árekstra. — Sagði hann að næstu þrjár vik urnar myndu skera úr um hvort viðræðurnar hefðu borið raun- verulegan árangur, eða hvort grípa yrði til annarra ráðstaf- ana. LESIÐ ■**sss*KSSssis^r DnCIECR ÞETTA GERÐIST í MARZ ALÞINGI Frumvarp um mikilvægar stefnu- breytingar í landbúnaði (3). Stjórnarfrumvarp uim að Iönþróun arstofnun íslands taitoi við starfi Iðn aðarmálastofnunarinníir (3). Umræður um brúa- og veigagerð á Skeiðarársandi (4). Umræður um framtíðar^kipan flug vallarmála höfuðborgarsvæðisins (10). Stjórnarfrumvarp um réttindi og skyldur opinberra embættismanna <11). Stjórnarfrumvarp um þrjá nýja gjaldeyrisbanka (II. 12). Tekjur vegasjóðs áætlaðar 883 xnillj kr. á þessu ári (12). Frumvarp til heimildar töku nýs spariskírteinaláns að upphæð 76 millj. kr. (17). Útvarpsumræður um mengunar- mál (17). Stjórnarfrumvarp um Sementsverk smiðjuna (13). Stjórnarfrumvarp um almanna- tryggingar (10). Samgönguráðherra upplýsir, að yfirstandandi hraðbrautaiframkvæmd- ir muni kosta 800 millj. króna (20). Umræður um Kennaraháskólafrum varpið (23). Upplýst að aukning í flugmálafram kvæmdum sé 100% (24). Rætt um stöðu prestsins í Kaup- mannahöfn (24). Alþingi áikveður laun þingmanna (»4). Fjármálaráðherra upplýsir að bygg ingaframlkvæmdiir þess opinbera nemi 1016 millj kr. 1071 (20). Ríkisstjórnin leggur fraim tillögu um, að landgrunnsmnörkin verði 50 sjómílur eða meira (26). StjórnarfrumvELrp um Svartárvirkj un í Skagafirða (26). Stjórnarfrumvarp um gjörbreytingu á núverandi skipan mála 1 ÞJóðleik- húsinu (»i. Viðamiklar breytingatillögur viö skiattafrumvarp ríkisstjómarinnar <a». VEDUR OG FÆRB Fárviöri á HoltavörðuheiSi (*). Útlit fyrir minni hafís en undanfar in hafísár (11). Alhvítt af snjó í Vestmannaeyjum (20). Meðalsnjór á landinu fyrir ofan 900 metra hæð 24), ÚTGERÐIN SÍF semur um saltfisksölu fyrir á annan milljarð króna (2). Loðna berst til Eyja og Austfjarða (3). Fiskimjölsframleiðslan 67 þús. lest ir 1070 (4). Gífurleg loðnuveiði vestan Eyja (6. —12.) Rækjuaflinn á Vestfjörðum orðinn 1100 lestir (?). Mokafli af ýsu í loönunót (10). Ný loðnuganga, góð veiði (II, 12). Afli togaranna 1070 var tæplega 80 þúsund lestir á móti 84,1 þús. lestum 1969 (14). Verðmæti vlku loðnuaflans um 73 millj. kr. (16). Alvarleg mannekla á bátaflotanum (17) Heildarsöltun Suðurlandssíldar 75 þús. tunnur (21). Góður afli í net í Eyjum (21). Loðnuaflinn orðinn 180,8 þús. lestir (23). Heildarbolfiskaflinn frá áramótum 44 þús. lestir (23). Skreið framleidd fyrir 240 millj. kr. sl. ár (25). Heildarloðnuaflinn 182 þús lestir (30). FRAMKVÆMDIR Ráðgert að lýsisherzluverksmiðja verði reist í Gufunesi (4). Alþýðubankinn opnar að Lauga- vegi 31. Bankastjórar ráðnir Jón Hallsson og Óskar Hallgrimsson (5). Nútíð, nýtt táningablað hefur göngu sína (13). Heyrnleysingjaskólinn flytur í nýja skólabyggingu (13). Miklar byggingaframikvæmdir í kaupstööum landsins (14). 26 lesta bátur sjósettur hjá Tré- smiðju Austurlands á Fáskrúðsfirði (17). Geðdeild Barnaspítala Hringsins opnuð (20). Nýja tollhúsið við Tryggvagötu tek ur til starfa (20) . 12 íbúða sambýlishús reist á Akra nesi (21). Flugstöðin fær tvær nýjar eins hreyfilsvélar af Piper-gerð 21). Nýtt félagsheimili tekið í notkun á Seltjarnarnesi (23). Unnið að vatnsveitu fyrir allan Vestur-Landeyjarhrepp (26). Stúdentamötuneyti tekur til starfa í nýju Stúdentaheimili við Hringbraut (31). MENN OG MÁLEFNI Sérfræðingar frá Sviss komnir til landsins til viðræðna um flúormeng un (11. 12). Hæstiréttur sýknar Sveinbjörn Gíslason af morðákæru (12). Sveinn Jakobsson, magister, hlýtur verðlaun úr Sáttmélasjóði (16). Dr. Gunnar Thoroddsen skipaður prófessor við lagadeild Háskóla ís- lands (19). Jónas Þorvaldsson skákmeistari Kópavogs 1971 (19). Guðríður Loftsdóttir 11 ára, hlýtur verðlaun í ritgerðarsamkeppni Sinfón íuhljómsveitarinnar (24). 181 útlendingur hefur fengið at- vinnuleyfi hér það sem af er árinu (24). Þrír listamenn hljóta starfslaun, Guðmunda Andrésdóttir, Oddur Björnsson og Leifur Þórarinseon (25) Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, flytur fyrirlestra um íslenzkar bók menntir við háskóla í Kanada og Bandaríkjunum (28) Spænski píanóleikarinn Rafael Oro zca leikur einleik með Sinfóníuhljóm sveitinni (9) Leikfélag Akureyrar sýnir Topaz eftir Marcel Pagnol (16). Listasafn ísafjarðar kaupir tvær höggmyndir eftir Einar Jónsson (17). Þjóðleikhúsið sýnir Svartfugl, leik rit, sem örnólfur Árnason hefur gert eftir skáldsögu Gunnars Gunnarsson ar (18). ,.Hvað er í blýhólknum?“ sjónleik ur eftir Svövu Jakobsdóttur sýndur í Sjónvarpinu (20). Kópavogsvaka, kynning á list, hald in 20.—28. marz (21). Carmel Kaine, fiðluleikari frá Ástralíu, og Philip Penkins halda tónleika á Akureyri 26). Baltasair heldur málverkasýningu í Reykjavík (27). Nord Deutsche Rundfunk gerir sjónvarpsleikrit eftir Brekkukotsann ál Laxness (27). Þrjú málverk eftir Finn Jónsson á alþjóðlegri sýningu í Gallerie Mo uffe í París <31). FÉLAGSMÁL Togaraverkfall leystst með samning um (2). Meginhluti félagsmanna í Héraðs- dómarafélaginu segja upp frá og með 1. júni (3). Námskeið fyrir slökkviliðismenn ut an af landi haldið í Reykjavík (4). Óli Valur Hansson kosinn formað ur Félags frímerkjasafnara (4). Byggingasamþykkt Reykjavíkur um réttindi til húsateikninga breytt (5 6)., Árangurslaus sáttafundur á Akur eyri í Laxárdeilunni (6.—12). 43 nemendur brautskráðir frá Hjúkrunarskólanum (10). Kristján Haraldsson kosinn for- maður Múrarafélags Reykjavíkur (11) 19 heildsölufyrirtæki stofna hluta- félagið Heild h.f (14). SUF og SFV senda frá sér sam- eiginlega ályktun (16. 17). Árni Gestsson kosinn form>aöur Fé lags ísl. stórkaupmanna (16). Þorsteinn Sigurðlsson lætur af for mennsku Búnaðarfélags Íslands (16). Ásgeir Bjarnason kjörinn formaður (17). Jónatan Þórmundsson kosinn for- maður Sakfræðingafélags íslands 17) Jónína Guðjónsdóttir endurkjörin 1971 formaður Verkakvennfélagsins Fram sóknar (18). Ályktanir aðalfundar Félags ísl. stórkaupmanna (18). Miklar umræður um velferðarmái aldraðra í borgarstjórn Reykjavíkur (34). Árni Gunnarsson kosinn flormaður Blaðamannafélags íslands (30) Veiðifélag stofnað í Homafirði. — Formaður sr. Skarphéðinn Pétursson <3D. Stjórn Tollvörugeymslunnar h.f. endurkjörin (31). slysfarir og skaðar Húsið að Grettisgötu 52 skemmist mi'kið í eldi 6). Ketilsprenging í Barnaskóla Kefla»- víkur (9). Þriggja ára telpa hrapar í klettum við Þingeyri og bíður bana (11). íbúðarhúsið að Dölum í Hjaltastaða þinghá brennur (16). íbúðarhúsið að Vatnshlíð í Húna- vatnssýslu brennur (16) Víkingur ST 12 frá Hólmavík ferst með tveimur mönnum (18.—21). Karl Kristófersson. Keflavík, 30 ára ferst í bílslysi (19). íbúðarhúsið á Krossanesi í Trékyll isvík brennur (18). Tjón af umferðarslysum 1969 áætl að 330 millj. kr. (23). Bjarni Halldórsson, sjómaðtir frá Bolungarvík, 32 ára, drukknar í Reykjavíkurhöfn (23). Sigurður Þórðarson, bóndi, Auð- kúlu, Arnarfirði og 15 ára piltur, Jón Elfar Valdimarsson frá Blönduósi bíða bana í snjóflóði i Skipadal und ir Hrafnseyrarheiði (23.—24). Kolbrún Ásgeirsdóttir, Seyðisfirði, stungin til bana af eiginmanni sínum (25.—26). Kristinn E. Þorbergsson, 19 ára, bíð ur bana um borð í vélbátnum Sjð- stjörnunni í Vestmannaeyjum (26) Haukur Hansen, flugvélstjóri, ferst af slysförum á Reykjanesi (26). 6 ára drengur drukknar við bryggju í Njarðvíkum (26).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.