Morgunblaðið - 28.05.1971, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MAl 1971
23
Jóhann Þorláksson
vélsmidur
Fæddur 5. janúar 1898.
Dáinn 20. maí 1971.
JÓHANN Þorláksson, vélsmiður
Framnesvegi 52, Reykj avik,
fæddist að Laugalandi í Reyk-
hólasveit 5. janúar 1898. Foreldr
ar hans voru Þorlákur Guð-
mundsson og Guðlaug Dagsdótt
ir sem bjuggu að Laugalandi.
Ungur fór Jóhann að vinna
við sveitastörf og éinnig til sjós.
Reri hann fyrst á opnum bátum
og seinast á báti sem Hörry hét,
sem stundaði bæði fiskveiðar og
vöruflutninga. Á þeim árum
kynntist hann Ólafi Jónssyni, vél
smið, sem þá hafði smiðju á Mýr
argötu 3. Þangað leitaði Jóhann
eins og margir aðrir sem þurftu
að fá eitthvað lagfært í sam-
bandi við vélar. Ólafur var fljót
ur að sjó hvað í Jóhanni bjó
svo hann réð hann til sín í
smiðjuna og var hann þar í
nokkur ár, þaðan fór hann i vél
smiðju Kristjáns Gíslasonar, Ný
lendugötu 15. Þar var meiri véla
kostur sem Jóhann vildi kynnaat
og starfaði hann þar um ára-
skeið.
Á árunum í kringum 1928 var
mikill hugur í mönnum að kynn
ast flugi, var Jóhann einn af
þremur sem sendir voru til
Þýzkalands til þess að læra með
ferð flugvéla. Þegar heim kom
voru tvær flugvélar teknar á
leigu til reynslu og var Jóhann
fenginn til að vera vélamaður á
annarri þeirra, hét hún Veiði-
bjalla og var notuð við síldar-
leit um sumarið.
Jóhann kvæntist eftirlifandi
konu sinni Kristínu Elíasdóttur
1. júní 1935 og eignuðust þau
tvo syni, Trausta kvæntan Jestr
id Andersen og Þorlák kvæntan
Sigríði Guðmundsdóttur, báðir
synir þeirra eru lærðir járniðn
aðarmenn. Áður en Jóhann
kvæntist eignaðist hann eina
dóttur, Huldu gifta Baldri Guð-
mundssyni. Systkini Jóhanns eru
þrjú á lífi, öll búsett í Reykhóla
sveit, eru það þau Theodór Þor-
Ingibjörg
INGIBJÓRG EHíisdóttir andaðist
26. þ. m. í sjúkralhúisi í Tononto
í Kanada efitir enfiða sj úkdóms-
liegiu.
Hún var fædd 21. júnií 1924.
Foreldrar hennar voru Helga
Jöhannsdóttir og Elís Ó. Guð-
mundsson, fyrrverandi skömmt-
unairsitjóri, sem liátinn er fyrir
nokfkrum árum.
Inigibjörg var búsett í Toironto
ásamt manni siinium Þórði Teits-
symi, og varð þeim sex baima
auðið.
Inigibjörg var glæsileg kona og
ö®um huigljúifi, etr henni kynet-
ust. Er að henni mikill söknuður,
og mikiiM harmiur kveðinn að
eiginmanni hennar, bömum,
rnóður og öðrum ættmenmum.
Vinir hennar votta þeim
dýpstu samúð.
V.
-Minning
láksson, smiður og bóndi að
Laugalandi og tvö hálfsystkin,
Elísabet Guðmundsdóttir, hús-
freyja að Árbæ og Jón Guð-
mundsson smiður á Reykhólum.
Á sínum yngri árum stundaði
Jóhann íþróttir með góðum
árangri, fimleika, glímu og sund,
var einn þeirra sem fóru til Nor
egs til að sýna glímu og fim-
leika.
Á árunum í kringum 1930 fór
Jóhann að vinna sjálfstætt við
vélaviðgerðir og vann hann við
þær í nokkur ár. En þegar vél-
smiðjan Jötunn var stofnuð gekk
hann í þann félagsskap og var
þar verkstjóri, þar til hann fór
að vinna í vélsmiðjunni Héðni
órið 1945, starfaði hann þar sem
verkstjóri til dauðadags.
Jóhann gegndi mörgum trún-
aðarstörfum um dagana, var t.d
kennari og seinna prófdómari
við Vélskólann í Reykjavík,
skoðunarmaður hjá Skipaskoðun
ríkisins og prófdómari í jám-
iðnaði o.fl.
Jóhann var tryggur vinur
vina sinna, ég sem þessar línur
rita var búinn að þekkja hann
milli 50 og 60 ár og bar aldrei
neinn skugga á okkar vináttu.
Áttum við mörg sameiginleg á-
hugamál, t.d. ferðuðumst við
mikið saman bæði á mótorhjól
um og bílum víða um landið og
betri ferðafélaga hefði ég ekki
getað hugsað mér.
Að endingu vil ég fyrir mína
hönd og fjölskyldu minnar
þakka vini mínum fyrir hans
tfiyggu vináttu og votta fjöl-
skyldu hans okkar dýpstu sam
úð á skilnaðarstund.
Blessuð sé minning míns góða
vinar. K. O.
Samstarf okkar Jóhanns Þor-
lákssoniar varaði 1 meir en aildair-
fjórðung. Kunnátta hans og
manngerð var slík, aðH návist
hans var gott að vera.
Við vinnufélagar söknum nú
góðs vinar.
Elísdóttir
SIGURÐUR ÞÓR
PÁLSSON - KVEÐJA
Fæddur 3. ágúst 1953
Dáinn 23. maí 1971
BROSTINN er strengur. Ver-
öldin vakir og bíður framttðar
innar. Straumrás lífsins líður
fram með þungum nið. Hún hlif
ir hvorki mannlegum tilfinning-
um né skyggir yfir atburði lið-
inis tíma. Tilvera einstaklingsins
í þjóðfélagi okkar verður aldrei
ofmetin. Unnin afrek meðan á
jarðvist stendur eru geymd en
ekki gleymd.
Við þökkum þér, Sigurður
Þór, fyrir stutt en gott samistarf.
Þú varst að verðleikum til for
ystu valinn, en máttur þinn
þvarr áður en dagsverki þínu
lauk. Ljóð þín munu tala tungu
þinni og verk þín sýna hvað
í þér bjó. Megi ljós heimsins
lýsa þér á nýjum vegum og láta
leiðir okkar mætast, þegar kall
ið keraur.
Ættfólki þínu vottum við okk
ar dýpstu hluttekningu.
Minning þín mun lifa og hvetja
okkur til dáða.
Með félagskveðju,
Félag bókagerðarnema.
Jóhann var dæmigerður per-
sónuleiki, hagleiksmaður svo af
bar og gæddur slíkum eigin-
leikum á sviði véltækni, að eng-
inn stóð honum á sporði.
Fyrstu kynni af vélum fékk
Jóhann heitinn hjá Ólafi Jóns-
syni vélsmíðameistara hér í
Reykjavík, er nefndur var
manna á meðal „Óli galdra“. Sið
ar heillaði flugið, og var hann
einn þeirra þriggja íslendinga,
sem fyrstir voru valdir til náms
í flugvélavirkjun. Fór hann til
Þýzkalands til náms í þeirri iðn-
grein 1928, og var eftir heim-
komu við þau störf. Þegar Gísli
Halldórsson stofnaði Vélsmiðj-
una Jötun h.f., skömmu eftir
1940, gerðist Jóhann meðeigandi
í fyrirtækinu, en þegar sá rekst
ur hætti, réðst hann árið 1945
sem verkstjóri til Vélsmiðjunnar
Héðins h.f. Hjá því fyrirtæki
starfaði hann til dauðadags. Jó
hann varð strax leiðandi fyrir
véladeild fyrirtækisins og tókst
honum þráfaldlega með þekk-
ingu sinni að leysa vanda, sem
ekki var á hvers manns færi.
Yfir aldafjórðungs verkstjóra
starf í vélsmiðju, sem starfrækir
þjónustustörf m.a. við sjávarút-
veginn, er mjög erilsamt, enda
var ekki ætíð áhyggjulaus frí-
tími Jóhanns. Leitað var til
hans sem nokkurs konar „lækn
is“ þar sem hann gat ætið gefið
góð ráð, svo að vélin færi að
snúast á ný eða togvindan drægi
betur.
Góðar gáfur Jóhanns, sam-
vizkusemi, samfara mikilli kunn
áttu og lífsreynslu á sviði vél-
tækni, komu sér vel í daglegu
starfi. Teljandi eru dagarnir í
25 ára samstarfi okkar, þar sem
ég leitaði ekki til hans með
vandamál, sem úrlausnar þurfti
við. Jóhann var ráðhollur og
skjótur að finna kjarna hvers
máls.
Það er margs að minnast eft
ir svo langt samstarf. Fyrsta og
eina íslenzka dieselvélin, er
„Héðinn" sýndi á Iðnsýningunni
1952, sem tákn iðntækni hér á
landi, var fyrst og fremst handa
verk Jóhanns. Þau urðu mörg
handtök hans við alla þá ný-
smíði véla, sem smíðaðar hafa
verið í Héðni á þessum aldar-
fjórðungi, og alltaf var Jóhann
jafn nauðsynlegur og ráðhollur,
með brennandi áhuga fyrir nýj
ungum og endurbótum.
Það var uppörvandi að vera
undir sama þaki og þessi sóma-
maður. Við í Héðni söknum nú
vinar og fræðara. Minning um
mikinn hæfileikamann lifir, og
hún er til uppörvunar fyrir þá,
sem hann þekktu. fslenzkur járn
iðnaður hefur misst einn af sín-
um beztu frumherjum.
Stjórn og starfsfólk Héðins
færa fjölskyldu hins látna sam-
úðarkveðjur.
Sveinn Guðmundsson.
Stúlka vön matreiBslu
óskast til starfa á sumarvalarheimili í 3 mánuði.
Upplýsingar gefnar í síma 14658.
Reykjavíkurdeild Rauða kross islands.
Húsvörður -
Mýrorhúsaskóli
Starf húsvarðar í Mýrarhúsaskóla Seltjarnarnesi er laust til
umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi trésmíðamenntun
og geti unnið sjálfsætt að viðhaldsstörfum. Umsækjandi þarf
að hafa gott lag á börnum.
Umsóknir ásamt meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist
sveitarstjóra Seltjarnarneshrepps fyrir 15. júní n.k.
Sveitarstjóri Seltjarnarneshrepps.
HEKLU-
á drengi og sfúlkur,
úfsniðnar, sferkar og þægilegar,
Buxur í sérflokki.
DOMUS
Laugavegi 91
L0KAÐ milli klukkon 1 og 4
í dag vegna jarðarfarar Jóhanns Þorláks-
sonar vélsmiðs, Framnesvegi 52.
Lœrð fóstra óskast
til starfa á sumardvalarheimili í 3 mánuði.
Upplýsingar gefnar í síma 14658.
Reykjavíkurdeild Rauða kross islands.
Hjartanlega þakka ég ykkur,
sem glödduð mig með heim-
sóknum, blómum og gjöfum
á áttræðisafmæli mínu og
gjörðu mér daginn ógleym-
anlegan.
Guð blessi ykkur ÖU.
Rannveig Jónsdóttir,
Gröf, Reyðarfirði.
Sigtúni 3.
W*bílasqloi
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Simar: 19032 — 20070