Morgunblaðið - 02.06.1971, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.06.1971, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNl 1971 Útgafandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráó Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Augiýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. VIÐHORFIN í HAUST Róleg kosninga barátta NÚ ERU aðeins tæpar tvær vikur þar til alþingiskosningar fara fram hinn 13. júní n.k. Það sem af er, hefur kosninga baráttan verið óvenjulega róleg og eru það vissulega mikil umskipti frá því, sem tíðkast hefur undanfarna áratugi. Ýmsir kunna þessari friðsemd illa og spyrja hverju sæti. Til þess liggja ýmsar ástæður, að kosningabaráttan hefur verið svo ró- leg fram til þessa, sem raun ber vitni um. í fyrsta lagi er óhætt að fullyrða, að tiðarandinn er á þann veg, að það gerir aðeins illt verra, ef stjórnmála- flokkar og stuðningsblöð þeirra fara fram með miklum æsingi og hamagangi. Kjósendurnir sjálfir vilja stutta kosn- ingabaráttu, hófsama og málefnalega og sanngjarnan málflutning. Dagblöðin hafa í mismunandi ríkum mæli að vísu, — gert sér grein fyrir þessum breyttu viðhorfum, enda hafa skrif þeirra verið mun rólegri en áður hefur tíðkazt, þótt gera megi ráð fyrir, að nokkur hiti fær ist í leikinn nú síðustu úagana fyrir kosningarnar. f öðru lagi er ljóst, að sjónvarpið og aðild þess að kosningabaráttunni hefur breytt mjög viðhorfum manna til þess, hvernig haga skuli kosningabaráttu og kosningaáróðri. Fylgi flokkanna í dreif- býlinu úti um land er að visu mjög fast og á því verða yfirleitt litlar breyt ingar frá einum kosningum til annarra. Hins vegar er sífellt stærri hópur á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi, sem er óráðinn og sveiflast milli flokka, eftir aðstæð- um hverju sinni. Enginn vafi leikur á því, að framkoma frambjóðenda í sjón- varpi hefur mikil áhrif á afstöðu þessa hóps kjósenda til kosninganna. Þetta er reynslan annars staðar og þessi verður reynslan einnig hjá okkur. í þriðja lagi má nefna þá ástæðu fyrir rólegri kosningabaráttu, að mikil velmegun ríkir nú i landinu. — Vegna þessarar miklu velmegunar, sem er a.m.k. jafnmikil, ef ekki meiri, en á toppárunum 1965 og 1966, er ekki jafn- mikið rætt um stjórnmál og kosningarn ar og verið hefði, ef þessar alþingis- kosningar hefðu til dæmis farið fram á erfiðleikaárunum 1967—1968. Góð af- koma fólks gerir það einnig að verkum, að stjórnarandstæðingar eiga mun erf- iðar með að finna gagnrýnisefni á stjórnarvöldin, og það dregur að sjálf sögðu úr baráttumóði þeirra í þessari kosningabaráttu. Landhelgismálið og verðstöðvunin En hvað er það sem sett hefur svip sinn á kosningabaráttuna til þessa utan það, hversu róleg hún hefur verið? Umræður um landhelgismálið og hvað gerast muni í háust, þegar verðstöðv- unartímabilinu lýkur, hafa á undanförn um vikum mótað mjög allar umræður í blöðum og á stjórnmálafundum víðs- vegar um landið. Stjórnarandstæðingar ætluðu sér bersýnilega að gera land- helgismálið að aðalkosningamáli gínu og var það í sjálfu sér til vitnis um, að þeir treystu sér ekki til að heyja kosn ingabaráttuna á verkum núverandi rík isstjórnar og stjórnarflokka. En nú tæp um tveimur vikum fyrir kjördag, er komið í ljós, að landhelgismálið er að fjara út sem kosningamál á höfuðborg arsvæðinu a.m.k. þótt það sé enn ofar lega í hugum manna við sjávarsíðuna út um land, eins og fram kemur í frétta samtali við Sverri Hermannsson í Morg unblaðinu í dag. Ábyrgðarlaus afstaða stjórnarandstöðunnar í þessu máli hef- ur ekki orðið þeim flokkum til framdrátt ar í kosningunum, eins og þeir höfðu gert sér vonir um. Jafnframt þvi sem landhelgismálið er að hverfa í skuggann, hafa aukizt umræður um horfur í efna hagsmálum i haust. f þeim efnum má einnig búast við, að stjórnarandStöðu- flokkarnir finni fljótt, að þeir vinna ekki kosningarnar á þeim vettvangi. Af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur verið sýnt fram á með augljósum rökum, að ef rétt er á haldið, er ekki ástæða til að ætla, að undur og stórmerki verði 1. september n.k., eins og forsætisráð- herra, Jóhann Hafstein, komst að orði í samtali við Morgunblaðið sl. laugar- dag. Og í herbúðum stjórnarandstæð- inga hafa menn verulegar áhyggjur af því, að því meira sem þeir reyna að magna upp ótta fólks við 1. september í haust, þeim mun stærri hóp kjósenda muni stjórnarandstæðing ar reka í faðm stjórnarsinna vegna þess, að fólk vilji heldur treysta þeim fyrir vandanum, sem kjósendur hafa góða reynslu af, en hinum, sem hafa sýnt það i verki, að þeir eru ekki færir um að takast á við vandamálin. Deilur vinstri flokkanna Síðustu dagana hafa deilur milli vinstri flokkanna sett æ sterkari svip á málgögn þeirra. Þannig hefur Þjóð- viljinn lagt á það vaxandi áherzlu, að beina spjótum sínum að Framaóknar- flokknum og Tíminn hefur svarað í sömu mynt. Til dæmis sagði Tíminn í forystugrein sl. laugardag: „Það fór eins og vænta mátti, að Alþýðubandalagið hætti að beina geiri sínum aðallega gegn ríkisstjórninni og srtjórnarflokkunum, þegar drægi að loka þætti kosningabaráttunnar, heldur gengi í lið með þeim gegn FramsóknarflokkiT um.“ Og síðar í forystugrein Tímans segir, að þessi vinnubrögð beri þess aug ljósan vott „að þeir stjómast nú meira af taumlausri afbrýðisemi í garð Fram sóknarmanna en áhuga á því, að vinna gegn undanhaldsstefnu stjórnarflokk- anna í landhelgismálinu." í forsíðugrein í Tímanum sama dag sagði ennfremur: „Tiltrúin, sem Framsóknarflokkurinn nýtur, veldur skiljanlegri afbrýðisemi hjá Alþýðubandalaginu, en ekki batnar heldur hlutur þess við það að láta þessa afbrýðisemi snúast upp í róg um Fram sóknarflokkinn, en gleyma að berjast gegn undanhaldsstefnu stjórnarflokk- anna, eins og gert var í forystugrein Þjóðviljans í gær." Ástæðuna fyrir þessari reiði Tíroans í garð Alþýðubandalagsins er að finna í forustugrein Þjóðviljans sl. föstudag, en þar sagði m.a.: „Þegar fjórir fram- sóknarlegir Framsóknarmenn ræddu um flokk sinn í sjónvarpi í fyrrakvöld, vörðu þeir miklum tíma til þess að fjalla um landhelgismálið og létust vera Framh. á bls. 23 ITerðstöðvunin og það sem * við tekur að verðstöðv- unartímabilinu loknu er mjög til umræðu meðal al- mennings um þessar mundir. í viðtali sem Morgunblaðið birti við Jóhamn Hafstein, forsætisráðherra sl. laugar- da gerði hann þessi mál að umtalsefni og sagði m.a.: „Hefði sú þróun, sem við blasti, haldið óhindrað á- fram, var sú hætta yfirvof- andi, að of mikill þungi hefði lagzt á atvinnuvegina, sem kynni að hafa leitt til sam- dráttar á ýmsum sviðum og minnkandi atvinnu. Það gagn stæða hefur gerzt, að at- vinnu- og viðskiptah'f hefur þróazt áfram í örum vexti. Samtímis er svo hin stað- reyndin, að kaupmáttur laun anna er meiri en ella og það skiptir meginmáli í þessu sambandi. Atvinnuvegirnir og efnahagskerfið er því bet- ur undir það búið að kljást við vandann 1. september n.k. en síðastliðið haust. Þau 2% í vísitöluhækkun kaup- gjalds, sem frestað var í 6 mánuði að greiða, koma þá óhindrað fram án þess að valda muni tilfinnanlegum vandkvæðum. Ég teldi óráð- legt að hætta verðstöðvun í einu vetfangi og réttast væri að feta sig út úr henni í áföngum. Ef verðstöðvun er haldið alveg óbreyttri áfram, er talið, að það kosti til ára- móta um 130 til 150 milljónir króna. Fyrir þeirri fjáröflun var ekki séð á sl. hausti, en ég tel, að staða ríkissjóðs sé svo sterk, að hann ætti að geta tekið á sig þá eða meiri byrði. Á tvennt er einnig að lita í þessu sambandi. í októ- bermánuði kemur saman ný- kjörið Alþingi, sem eðlilegt er að taki framhaldið til með- ferðar, en þá liggur væntan- lega einnig fyrir niðurstaða kjarasamninga sem eru laus- ir frá 1. september n.k.“ I framhaldi af þessum um- mælum gefur Jóhann Haf- stein, forsætisráðherra, þá yfirlýsingu í viðtalinu við Morgunblaðið, að verði Sjálf- stæðisflokkurinn áfram í stjómarforustu að kosning- um loknum, muni hann beita sér fyrir viðræðum við verka lýðssamtökin og samtök vinnuveitenda um viðhorfin í haust, en það gefur auga leið að til þess að hægt verði að halda stöðugu verðlagi í landinu, þarf þróun kaup- gjaldsmála að vera í sam- ræmi við þá stefnu. Jóhann Hafstein ræddi í þessu samtali um þann stóra hóp ungra kjósenda, sem gengur nú í fyrsta skipti að kjörborðinu í þingkosning- unum, sem fram fara 13. júní n.k. Hann sagði um þetta unga fólk: „Ég veit að það man ekki vinstri stjórnina og getur heldur ekki byggt af- stöðu sína á þekkingu á þró- un mála á hinurn pólitíska vettvangi sl. 12 ár. En ég veit að í því býr sama íslendings- eðlið og okkur hinum, sem einu sinni vorum á þeirra reki. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf átt því láni að fagna að njóta fylgis ungs fólks í ríkum mæli, vegna þess, að því geðjast hugsjón- ir sj álfstæðisstefnunnar, sem leggja áherzlu á einstaklings- þroskann, manngildið og mannhelgina. Það gerir sér grein fyrir því, að eitt meg- inatriðið í mennta- og skóla- málastefnu Sjálfstæðisflokks- ins er að efla þroska hvers og eins, en ekki að útskrifa hópsálir úr skólunum. Við vitum, að það gerir auknar kröfur til meiri menntunar og þannig á það að vera. Það kostar peninga, en ég tel, að bezta fjárfesting ríkisins sé í því að auka menntun og manngildi emstaklingsins. Það hefur mikið verið gert og mikið fé lagt í skólamál og menntamál, en það er mik- ið ógert og þannig verður það ætíð. Þessi þáttur þjóð- lífsins verður að vera líf- rænn í stöðugum breytingum í samræmi við kröfur tím- anna. Það er mikilvægt að bæta aðstöðu unglinga, hvar sem þeir eru búsettir til að njóta menntunar, þannig að einn standi ekki öðrum fram- ar vegna búsetu eða fjár- muna. Sennilega verður þetta eitt veigamesta við- fangsefnið á sviði uppeldis- og skólamála á næstu ár- um.“ Nú er skammur tími til stefnu, þar til þingkosningar fara fram. Þæsar kosningar eru hinar örlagaríkustu og jafnframt hinar tvísýnustu um langt skeið. Fleiri stjórn- málaflokkar bjóða fram til Alþingis, en í þingkosningum að undanförnu og sú stað- reynd getur haft óvænt á- hrif á úrslit kosninganna. Það sem máli skiptir er, að kjósendur geri sér grein fyr- ir því, að Sjálfstæðisflokkn- um er betur treystandi til þess að hafa með höndum for ustu í landsmálum, en öðr- um flokkum. í þeim efnum nægir að vísa til samfelldrar 12 ára stjórnarforustu Sjálf- stæðisflokksins, hvort sem er á uppgangs- eða erfiðleika- tímum. Ef menn hafa nú á- hyggjur af því, hvað gerast muni í haust, þegar verð- stöðvunartímabilinu lýkur, er þeim mun meiri ástæða til að efla Sjálfstæðisflokkinn og fela honum að fást við þau viðfamgsefni, sem þá steðja að. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það, að hann er fær um að leysa hinn alvarlegasta vanda. Það er rétt, sem Jó- hann Hafstein, forsætisráð- herra, segir í viðtalinu við Morgunblaðið, að fólk veit, hvað það kýs, þegar það kýs Sjálfstæðisflokkinn, en það hetfur enga hugmynd um, hvað það ballar yfir sig, ef það veitir sundruðum vinsfcri flokkum atfylgi sitt. Þessa staðreynd hljóta kjósendur að hafa í huga, þegar þeir ganga í kjörklefann hinn 13. júní.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.