Morgunblaðið - 08.06.1971, Síða 13

Morgunblaðið - 08.06.1971, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1971 13 Hver einstaklingur verði hlut- gengur á vinnumarkaðinum Eftir Tómas Jónsson, skólastjóra á í*ingeyri Xúmas Jónsson, skólastjóri. Hér fer á eftir ræða, sem Tómas Jónsson, skólastjóri á Þingeyri, fiutti við uppsögn skóia sins. Fjallar hann þar al- mennt uim uppelidis- og fræðslu- mál, en minntist þess í upphaíi, að skólanum væri nú i fyrsta sinm siitið í kirkju staðarins. t>að táknaði þó ekki að um nein þáttaskil væri að ræða milli þessara tveggja stofnana. Frá öndverðu hefði kirkja og skóli verið nátenigd, stutt hvort ann- að og staríað saman, „og þykir mér af þeim sökum vænt um að hér hjá okkur megi með þess- ari nýbreytni enn sjá sönnun þess," sagði skólastjóri, og hélt síðan áfram: Má vel minnast hinna fyrstu skóla á okkar landi í sambandi við biskupssetrin á Skáiholti og á Hólum, sem fyigdu í kjölíar kristninnar og hvarvetna i heim inum, þar sem kristin trú nem- ur lönd, risa skólar af grunni. Allt fágæti er eftirsóknarvert, en ofhlaðinn markaður minna ▼irði. Meðan skólavist var ekki al- menningseign hér á landi var tal að um að brjótast til mennta. Nú er það orðasamband ekki lengur notað, en þess í stað upp hugsuð ráð til að brjótast und- an menntun þeirri, er nú stend- ur öllum opin, og kem ég að því síðar. Uppeldis- og kennsiumál eru alltaf ofariega á baugi og er það mjög svo eðlilegt, þvi þau eru engum manni óviðkomandi. Þau varða líf og starf hvers einstaklings og samfélagsins i heild. Þau eru því eðlilega mik- ið rædd og sitt sýnist hverjum. Nýjar hugmyndir skjóta upp kollinum. Tilraunir eru gerðar um breytt form fræðsiumála, þró unin virðist sú að sameiginleg- ar uppeldisstofnanir taki við af heimilum að stórum hluta. Skólinn i núverandi mynd, hinn almenni skóli, er þvi ekki í samhljóðan við óskir og kröf- ur f.iöldans. Því er þess vegna oft fleygt að hann sé hinn brostni hlekk- ur i keðju uppeldisins og til hans gjarnan rakið hvert það vandamál einstaklingsins, sem ekki finnur sjálfan sig í um- hverfi sínu og samfélagi. Það er talað um mislukkaða menn, og er þá oftast átt við af- brigðiiega einstaklinga, sem ekki semja sig að siðum og venj um fjöldans, þá, sem af einhverj um ástæðum hefur ekki tekizt að móta til samræmis við heild- armynd þess tíma, sem þeir lifa 4. Vissulega á skólinn hér hlut- verki að gegna. Honum er ætlað- ur stærri hlutur í uppeldi ein- staklingsins. Hann heíur vaxið frá því að vera milliliður, sem eingöngu miðlar vissum þekkingaratriðum og túlkar reynslu liðinna kyn- sJóða. Honum hefur bætzt það verk- efni að eiga stærri og stærri þátt i að móta þegna sína til samraam is við kröfur tímans, sem þó eru síbreytilegar. Þessi er ósk fjöld ans. Þvi til sönnunar má benda á þaú ákvæði i hinu nýja grunn- skólaírumvarpi okkar, sem er að visu í veigamiklum atriðum sam- íð eftir erlendum fyrirmyndum, að hvert ungmenni frá 7—16 ára aldurs skuli vera níu mánuði árs ins í skóia, stefnt skuli að þvi að heimanám leggist niður og nefndum aldursflokkum verði ekki leyft að taka nokkurn þátt í atvinnulífi lands sins á þessu mótunarskeiði. Það kemiur víðar fram en í þessu frumvarpi, að okkur finnst þægilegt að vera þi-ggjendur og þykir gott að þurfa sem minnsta ábyrgð að bíra sjálf, hvað snertir liðandi stund og framtíðarskipan máia. Ég segi okkur finnst, því að i iýðræðisriki hlýtur löggjafinn að vera spegilmynd þjóðarvilj- ans. Þótt hópur manna vilji i orði kveðnu hvorki vera bendl aðir við kommúnur né rauða sokka, virðast allir sammála því, að hieimilin varpi fyrir borð ábyrgð og ahyggjum af uppeldi nýrra þegna, en skólarnir taki við. Það mun ekki skipta máii, hvort við byggjum eitt hinna svokölluðu þróunarlanda eða við teljumst til velferðarríkis, takmark hins almenna uppeld- is, hvar sem við annars stönd- um, er að hver einstaklingur verði hlutgengur á þeim vinnu- markaði, sem veitir lífvænleg laun og hafi þvi skilyrði til þess mannlífs, sem við bezt þekkjum hverju sinni. Fyrrnefndar breytingar á okkar skólakerfi eru e.t.v. bæði nauðsynlegar og æskiiegar, en ennþá verðum við að horfast í augu við þá staðreynd, að þær eru ekki komnar trl fram- kvæmda, og haga okkur sam- kvæmt þvi. Við verðum enn um sinn að viðurkenna skerið, sem okkar öskafley hefur brotnað á. Við getum ekki leyft okkur sömu bjartsýni og kemur fram i þessari stöku Páls lögmanns Jónssonar: „Ýtar sigla austur um sjó öldujónum káta Skipið er nýtt en skerið hró skal því undan láta.“ Og það er grunur minn, að ekki verði kennslustarfið eftir- sóknarverðara fyrir tilkomu nýrra laga en nú er, og er þó ekki úr háum sessi að detta. Dæmi þess gerðust hér um slóð ir síðast liðið sumar. Skólastjóra staða á Flateyri var auglýst laus til umsóknar. Um hana sótti einn, eflaust sökum tengsla hans við staðinn og stofnunina. Vél- stjórastaða í Mjólkárvirkjun var einnig auglýst. Um hana sóttu 14. En hvernig standa þá skóla- málin í dag, og hvers vegna er- um við ekki ánægð? Til þess liggja margar ástæður og þótt hún væri ekki nema ein væri hún ærið tilefni. 1 dag verða Iiggja margar ástæður og þótt margir útundan hvað snertir skólagöngu við sitt hæfi. Hinn margvíslega hugarheim og mis- jafna þrosika barna hafa kenn- arar fyrir löngu séð og viður- kennt. Þeir hafa þess vegna átt frum-kvæði að sérskóla, þar sem nokkur hluti hinna afbrigðilegu bama fær samastað til náms. Þessir sérskólar eru að vísu allt of fáir og stór hluti landsbyggð- arinnar hefur ekkert af þeim að segja. Það er ástæðulaust að hælast um þótt hugmyndir að þessum sérstofnunum séu frá kennurum komnar, þvi í gegnum starí sitt hafa þeir mun betri aðstöðu til samanburðar á þroska og hæfi- leikum nemenda sinna en for- eldrar þeirra hafa. Allir hljóta að viðurkenna, að sama meðferð gildir ekki við mótun allra ein staklinga. Efnisviðurinn verður að ráða aðferð þeirri, sem beita þarf við mótun hans. En hug- myndir kennaranna i þesisu efni eru til einskis nýtar séu þær ekki viðurkenndar af forráða- mönnum viðkomandi barna, að minnsta kosti ekki á meðan þess ir aðilar eiga um málið að f jalla. Það gefur auga leið, að for- eldrar hafa ekki sömu saman- burðaraðstöðu í þessum efnum og kennarinn og þess vegna er það kannski, sem foreldrar meta sin eigin börn oft ranglega (Of eða van), ætla þeim stunduen þyngra hlass en þau geta dreg- ið, vænta stærri hlutar þeim til handa en þau hafa möguleika tii að afla sér við þær aðstæður sem þau búa_ Oft situr óskhyggjan við stýr- ið, og flytur þá ósanngjörnu kröfu að hvarvetna fari föður- betrunigur. Þegar svo raunveruleikinn, sem oft er lýst með orðunum kaldur og grár, blasir við í stað glæstra hugmynda óskhyggjunn ar, og mannshugsjónin, sem ekki fær lengur staðizt, steypist aí staili, verða viðbrögð manna oft álíka og Adams og Evu, þegar þau höfðu etið forboðna epl- ið og héldu að þau gætu falið sig bak við tré. „Hefur þú etið af trénu, sem ég bannaði þér að eta af?“ Adam svaraði: „Konan, sem þú gafst mér, gaf mér aí ávextinum og ég át“ Með öðrum orðum: „Vertu ekki að skamma mig góði, þvi að þetta er allt saman þér sjálfum að kenna, þér hefði verið nser að gefa mér betri konu.“ Ætli okkur fari ekki mörgum likt og Adam gamla, að við finnum einhvern til að varpa ábyrgðinni 4, enda miklu auð- veldara fyrir okkur en hann, þar sem mun íleiri geta komið til greina. Hér á Þingeyri er starfrækt- ur skóli í svipuðu formi og í ná- grannabyggðarlögum okkar. Hann hefur svipaða aðstöðu og þeir og svipuð vandamál skjóta upp kollinum. Hefi ég nú sér í lagi i huga eldri deildir þessara skóla. Enginn þeirra er sérstaklega i hávegum hafður í sinni heimabyggð. Fyrir tæpu ári mátti lesa þessa frétt i blaði, útgefnu 4 Isafirði: „Full ástæða virðist til þess, að athuga um stjórn og kennslu í Gagnfræðaskóla Isafjarðar. Það er ekki eðlilegt, að fjórtán nemendur af tuttugu falli á landsprófi þ.e. nái ekki tiiskil- inni framhaidseinkunn. Ekki er sízt ástæða til að athuga þessi mál vegna þess, að menntaskóla málið er nú hvað mest á döf- inni og ekki er það glæsilegt til ábendingar, að útkoman úr landsprófinu hér skuli vera svo óvenjulega slæm. Það gæti virzt benda til litils áhuga nemenda á framhaklsnámi, sem þó skal fullyrt að er ekki. Hitt er lík- legra, að einhvers staðar sé pott ur brotinn í stjórn og aga inn- an veggja skólans og aðhald neménda sé ekki sem skyldi.“ Svo mörg voru þau orð. Álíka ummæli gætu eflaust kom ið frá hvaða þorpi sem er hér vestra, eftir þvi sem ég bezt veit. En mi'klum mun væri það skemmtilegra að ekki vantaði í fréttina rökin fyrir þvi að ungl- ingar á viðkomandi stað hefðu áhuga fyrir framhaidsnámi og hvar og hvernig sá áhugi birt- ist Ekki finnst mér fráleitt að likja þessum skólum við gestris- ið heknili, þar sem kennarinn verður þá að vera gestgjafinn og bera fram veitingarnar en nemandinn gesturinn. Við getum áreiðanlega vitnað um kennara, sem hafa veitt nemendum sinum rikulega og þeir notið sem svang ir ferðamenn matar sins. En stundum segir bara gesturinn: „Nei, takk, ómögulega," eða „Nei, blessaður vertu það er nú alveg óþarfi" og vili engar góðgerðir þiggja til mikiila von- brigða hinum gestrisna veit- anda sem þó ekkert fær að gert. Hinn kunni skólamaður, Einar Magnússon, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Rvik, kom fram í þættinum „Maður er nefndur" í sjónvarpinu nú í vetur. Ýmis- legt bar þar á góma, eins og að ldkum lætur, flest að visu per- sónu- og einstakUngsbundið. Einu hjó ég eftir og þykist muna orðrétt hiuta aí svari hans við einni af nærgöngulum spurningum viðmæLenda hans. Einar var spurður um hver væri honum minnisstæðastur af kennurum hans frá því hann var sjálfur nemandi í menntaskóla. Einar nafngreíndi einn kennara sinna og taldi upp ýmsa kosti hans. „Var hann góður kenn- ari?" var þá spurt „Nei, hann var ekkert sérlega laginn við að troða í okkur efni námsbók anna, en það gerði bara ekkert til, þvi það lásum við í bókun- um." Þessi og álika vifBiorf eru nú áreiðanlega orðim of fátlð. Þau hafa áreiðanlega horfið með orðasambandinu „að brjótast til mennta." Þess í stað hefur kennaran- um verið ætlað stóra hlutverk- ið, hann skal vera aðalpersóna leiksins, sem ber sýninguma uppi. Hann má nýta, sem hinn stóra stofn, sem hægt sé að íel- ast bak við. 1 þessu sambandi finnst rrtér rétt að benda á þá staðreynd að ekki fer það alltaí saman að kennarinn kenni og nemandinn læri. Nemendurnir læra, þeir taka próf, þeir ná sinum einkunnum, en kennararnir gefa þeim þær ekki. Sumir læra af bókum, en aðr- ir aðeins af reynslunni, sem í þessu máli sannar að í hinum al- menna skóla hefur nemandinn aðalhlutverkið. Emginn getur þjónað tveim herrum, og eru þá oftast nefnd ir sem andstæður guð og mamm- on. Engan hefi ég heyrt lesa upp úr gaesalöppum „Enginn get- ur þjónað tveim herrum, fiskin um og fræðalestri i senn;" þó hiýtur það að vera augljóet mál, en sumt af því, sem ekki er hægt að læra af bókum verður ekki komizt hjá að læra aí reynslunni. Til að forðast mi«- skilning, vil ég taka fram að hvorugan nefndra herra tek ég íram yfir hinn, en vil aðeins benda á, að dýrkun þeirra beggja samtímis getur ekki stað- izt. Við Islendingar gortuna gjarnan af uppruna okkar. Við dýrkum hugtök eins og feðurn- ir frægu án þess að spyrja eða hugsa svo mikið um, hvað írægð inni oUi. Sömuleiðis frjáisræðis- hetjurnar góðu. En hugtök eine og löghlýðni og skylda eiga ekki sérlega mikinn hljómgrunn. Hver dáir Kolskegg hinn lög- Framhald á bls. 21 Stórbrotin saga sem kvikmynduð hefur verið og hlaut verðlaun sem bezta kvik- mynd 1969, er sýnd um þessar mundir í Gamla Bíói. Bókin fæst nú í bókaverzlunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.