Morgunblaðið - 06.08.1971, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1971
Gísli Tryggvason frá
Hrísey — Minning
Fæddur 25. janúar 1909.
Dáúin 30. mai 1971.
Gott mannorð er dýrmætara en
mikill auður, vinsæld er betri en
siQfur og guil.
(Orðskv. 22).
Gísli var fæddur að Arnameái
við Eyjaf jörð, sonur þeirra
mætu hjóna Margrétar Gí.sla-
■ öttur og Tryggva Jóhannsson-
ar, fiskimatsmanns, sem lengi
bjuggu í Hrísey.
Gísli var næstelztur sex
systkina, sem öll lifa hann
ásamt móðurinni, en hún er há-
öldruð og nú til heimilis að elli-
heimilinu Skjaldarvík við Eyja-
íjörð.
Árið 1926 fluttist hann til
Hríseyjar ásamt foreldrum sín-
um og systkinum. Þar átti 'nann
heima til æviloka.
Gísli var greindur og athuguil
maður. Hann hlaut að vísu
skamma barnaskólagöngu, en
kunni þó góð skil á mörgu, sem
aðrir vissu eigi deili á, hann
skaut því oft mörgum ref fyrir
rass í léttum samræðum. Hann
var lágvaxinn maður, snöggur í
snúningum, kýttur mjög í herð-
um og hallaði nökkuð á í hægri
hiið. Auigun voru snarleg og sér-
kennilega tindrandi og kvik,
þegar hann bjó yfir einhverju
fyndnu og skemmtilegu. —
Svipurinn var hreinn, en þó á
stundum nokkuð dulur. Hann
var skapmaður, en beitti því
með yfirvegaðri gætni. Hann
mátti aldrei vamm sitt vita, var
traustur og trúr og ávann sér
vinsemdir ailra, sem hann átti
samleið með.
Gísli eignaðist snemma bát.
Hann nefndi þessa trillu sína
„Kóp". Hann var að vísu endur-
nýjaður,- þegar þeir eldri heitu.st
úr lestinni.
Gisli var sérstakt þrifa- oig
snyrtimenni, bæði hvað hann
t f
1 Hjartkær sonur okkur, 1 Móðir okkar,
Björn Markússon, Kristín Guðmundsdóttir,
Baugsnesi 1A, Skerjafirði, andaðist 4. ágúst í Heilsu-
andaðist 3. ágúst. verndarstöðinni.
Fyrir hönd aðstandenda, Sveinn Gíslason
Jóhanna Jónsdóttir og Markús Jónsson. og bræðtir.
t
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
AXEL GUÐMUNDSSON,
fulltrúi,
andaðist að heimili sínu, Drápuhlíð 33, aðfaranótt 5. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Ruth Guðmundsson,
börn, tengdabörn
og bamabörn.
T
SIGURÐUR ARI SVEINSSON,
skósmiður,
frá Sunnuhvoli, Eyrarbakka.
sem andaðist i Landakotsspítala 29. júlí, verður jarðsunginn frá
Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 7. ágúst klukkan 1400.
Valgerður Pálsdóttir,
Páll Pálsson,
Sveinbjörg Sveinsdóttir,
Jónina Sveinsdóttir.
t
Jarðarför sonar okkar,
KRISTJÁNS GÚSTAFS KRISTJÁNSSONAR,
er lézt af slysförum föstudaginn 30. júlí síðastliðinn, fer fram
að Kálfatjarnarkirkju klukkan 2 laugardaginn 7. ágúst.
Súsanne Guðmundsson,
Kristján R. Guðmundsson.
t
Útför eiginmanns míns,
EYJÓLFS V. SIGURÐSSONAR,
bónda á Fiskilæk,
fer fram laugardaginn 7. ágúst.
Athöfnin hefst frá Leirárkirkju klukkan 2 00.
Jarðsett verður í heimagrafreit að Fiskilæk.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeir sem vildu minpast hins
látna, láti Sjúkrahús Akraness eða aðrar líknarstofnanir njóta
þess,
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Sigríður Böðvarsdóttir.
sjálfan snerti og báta hans. —
„Kópar" hans voru ávallt sem
sandþvegin stofugólf I hvaða
aflahrotu sem var, og hirðing
véla fór eftir því.
Hann var sjómaður góður,
hlekktist aldrei á. Lúsfiskinn
var hann, en handfæraveiðar
stundaði hann aðallega s'ði’Stu
árin. — Ef aðrir kornu með mik-
inn afla, kom Gisli oft með
meiri.
Minning mín uom þennan látna
vin er umvafin sólskini og sum-
arblíðu. Gísli vakti gleði og
gáska svo margra með sínum
hnyttnu svörum og látbragði
öllu.
Ef vel stóð í seglin, þá reitti
hann af sér brandarana, hló á
sinn sérstæða hátt og lék við
hvern sinn fingur.
Eftir ýmsum sóJarmerkjum að
dærna hefði hann átt að vera inn-
hverfur óg þögulil, því hann átti
innri harm. — Hann var bækl-
aður frá barnæsku. Bam að
aldri féll hann í sjóinn við svo-
nefndar Haga-klappir, var neerri
drukknaður, en móðir hans
bjargaði honum á siíðustu
stundu, fyrir tilviljun eina.
Lengi var hann að ná sér eftir
volk þetta. — Hann þjáðist og
af heiftarlegri beinkröm, sem
hnýtti hann og skekkti svo bagi
var að.
Gísli var, þrátt fyrir allt, glað-
ur alvörumaður og kurteis.
t
Jarðarför systur minnar,
Guðrúnar
Guðmundsdóttur,
Svarðbæli,
fer fram að Melstað laugar-
daginn 7. þ. m. kl. 2.
Björn G. Bergmann.
t
Hjartkær eiginkona mín, móð-
ir okkar, systir og dóttir,
Sigríður Stefánsdóttir,
Stóragerði 14,
sem andaðist 1. ágúst, verður
jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju iaugardaginn 7. ágúst
kl. 10.30 fyrir hádegi. Blóm
vinsamlega afbeðin. Þeir sem
vildu minnast hennar er bent
á líknarstofnanir.
Jónas Jónsson,
Gunnar Stefán .Jónasson,
Jón Ingvar Jónasson,
Ingibjörg Jónasdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir,
Stefán Þórarinsson,
Sjöfn Stefánsdóttir,
Ágúst Stefánsson,
Andrés Stefánsson,
Ingibjörg Jónasdóttir,
Jón I-orsteinsson.
Hann var ail.s staðar aufúsu-
gesitiur, vakti gáska og kátinu á
öllum vimnustöðum.
Gleði og fyndni stóðu svo djúp-
um rótum í hugartúnum hans,
að heill hreppur gat hlégið með
honum. — Hann var „humoris'ti"
af guðs náð.
Sigurður Guðmundsson, skóla-
meisitari, sagði einu sinni: ,,Ég
hefi hvergi fundið í íslenzku
orð, er teljast megi viðunandi
þýðing á þessu orði eða eigi við
um þetta merkilega hugtak.
Einhver hefur sagt, að „liumor"
væri „bros i tárum" eða J>ar
færi saman bros oig tár."
Skýring þessi getur vel minnt
á „humor" Gísla. Hann duldi
svo vel sín hugarmein, að ein-
ungis hans nánustu gáitu merkt
þær sáru kenndir, sem með hon-
um bærðust.
Til hvers hlaut hann þessa
náðargjöf glaðværðar og gáska?
Ég get ekki svarað því, en þann-
ig var hann. — Kannski er for-
sjónin svona miskunnsöm, að
veita þeim nokkra umbun, sem
bera þyngstu byrðar hér í jarð-
vist?
„Verið ávallt glaðir," sagði
postulinn.
Margir eru þeir, sem aldrei
eru hjartanlega glaðir, þótt lífið
virðist við þeim hlæja. Þá er
kannski nauðsynlegt að senda
mann líkan Gísla, til þess að
opna augu fýlupokanna, ef auðið
væri að gera þeim Ijóst þeirra
vanþakklæti, sem eru likamlega
heiibrigðir og grillur einar þjá.
Hann var oft einn á sjó síð-
ustu árin. Faðir hans var þá
kominn á elliheimili, en þeir
feðgar sóttu lengi sjóinn saman
á meðan kostur var.
Eftir að Gísli var orðinn einr,
á sjónum, þá hafði hann orð á
því við mig, að nú gæíist næði
nóg til nýrra hugdettna. „Hugs-
anir þurfa þögn til að gróa,"
stendur einhvers staðar.
Á hugann leita nokk rr heii-
ræði spakVitrings, er sagði: „1
sjálfs sin brjósti verður hver
maður og hver kona að gróður-
setja heilsujurtir, sem bezt
græða hugarmein og sár. Slík
blómrækt er fólgin í glæðingu á
starfandi áhuga, sem festir á sér
hugann, seiðir hann að sér allan
og óskipían, svo að annað kemst
ekki að. Þá gleymist allt, annað
en viðfangsefnið sjálft, bæði
harmar og móllæti, áhyggjur og
kviði."
1 brjósti Gisla greru vi.ssuiega
þær hieiJsujurtir, sem giæddu
hjá honum starfandi áhuga, er
beniti til hafs, — á veiðar. Sá
áhugi var miikiM og entist ævi-
'iangt.
Þeir feðgar, GisM og Tryggvi,
urðu nær samferða yfir landa-
mærin miklu. Með fárra daga
milHbiIi kvöddu þeir þennan
heim.
Þann 4. júní 1971, S’íóla dags,
voru þeir báðir lagðir í sömu
gröf í Hríseyjarkirkjugarði. Það
var mildur dagur, sölfar til
kvölds. Hlýr blær strau'k vanga
ætitingja og vina, sem fylgdu
þeim siðustu skrefin, en „Kópur"
hvildi í nausti í kveðjuskyni.
Gísli dó á hvítasunnunni. Það
er eflaust gott að deyja inn á
lendur hinnar eilifu hvíitu sólar.
Hann fór oft til veiða sáðla
nætur eða árla morguns og sá
þvi oft sólarupprás daganna,
ljósblik morgunsins, Það leiftur
hreif Gislia..
Éig vona, að enn dásamllegra
ljósbliik hafi birzt honum, er
hann lauk upp augum í nýrri
veröld.
Friður guðs umveíji þá báða
á ókunnum ódáinslöndum.
Kinar M. Þorvaldsson,
— frá Hrísey. —
Land-Rover
Til sölu Land-Rover 1965 með bensínvél,
og Land-Rover 1964 með dieselvél.
Bílarnir eru báðir í úrvalsástandi.
Upplýsingar í síma 36882.
Endurskoðun
Ungur reglusamur maður, með Verzlunarskóla eða hliðstaeða
menntun, óskast í endurskoðunarskrifstofu.
Umsóknir sendist á afgreiðslu Morgunblaðsins, merktar: —
4135".
PLÖTURNAR FÁST HJA OKKUR.
Goboon dvallt fyrirliggjondi
PLÖTURNAR FÁST HJÁ OKKUR.
TIMBURVERZLUN
ÁRNA JÓNSSONAR & CO. HF.
Aukavinna
Góð stúlka óskast til vélritunar og einfaldrar afgreiðslu 2—3
tíma á dag.
Þarf að vera góður vélritari og geta starfað sjálfstætt.
Vinnutími samkomulagsatriði.
Tilboð ásamt meðmælum, ef til eru, merkt: „Aukavinna —
565", sendist Morgunblaðinu fyrir þriðjudag.