Morgunblaðið - 23.09.1971, Qupperneq 2
MORGU^LJVTMÐj i 'FIMMTUD AGUR WS SEPTEMBBR flQffl' >M
2 ^
Haust-
mót á
Austur-
landi
HAUSTMÓT Sjálfstæðisfélag-
anna á Austurlandi verður hald-
ið í Valaskjálf, Egilsstöðum, laug
ardaginn 25. september og hefst
með borðhaldi kl. 8 siðdegis.
Til skemmtunar eru ræða, upp
lestur og skemmtiefni.
Hljómsveit frá Reykjavík leik
ur fyrir dansi.
Þátttaka tilkynnist féiögunum.
Kjördæmisráð.
Kjartan Ólafsson
*
Kjartan Olafsson,
brunavörður
látinn
KJARTAN Óiafsson, fyrrum
brunavörður lézt í fyrrinótt 76
ára að aldri. Hann fæddist 6.
marz 1895 á Húsafelli í Borgar-
fiirði, sonur Ólafs Björns Hann-
essonar Irá Heynesi og Jórunnar
Jónsdóttur frá Breiðabólstað í
Reykholtsdal.
Kjartan Ólafsson var sikipaður
varðmaður í Slökkvistöð Reykja-
víkur 1922 og varð varðstjóri
1943. Hamn tók virkan bátt í fé-
lagsstarfi ýmsu, m. a. fyrir
stéttarfélag sitt. Eftir hann hafa
komið út nokkrar ljóðabækur.
Tryggvi Þorfinnsson
Tryggvi Þorfinns-
son, skólastjóri
látinn
TRYGGVI Þorfinnsson, skóla-
stjóri Matsvelna- og veitinga-
þjónaskólans í Reykjavík lézt í
fyrradag á sjnkrahúsi í Reykja-
vik 54ra ára að aldri. Að undan
förnu hafði Tryggvi átt við van-
heilsn að stríða.
Tryggvi Þorfinnsson fæddist 1
Tryggvaskála við Ölfusárbrú hinn
2. ágúst 1917, sonur Þorfinns Jóns
sonar, veitingamanns og síðari
konu hans Steinunnar Guðna-
dóttur. Tryggvi tók sveinspróf í
matreiðslu í Kaupmannahöfn
1941 og starfaði þar og í Stokk-
hólmi til 1945.
Eftir að Tryggvi kom heim
stundaði hann veitingasölu í
Reykjavík og víðar, unz hann
varð skólastjóri Matsvema- og
veitingaþjónaskólans við stofnun
hans 1955.
21. þing S.U.S.
á Akureyri
EINS og kunnugt er, verður sími 17103, nu þegar.
21. þing SUS sett á Akureyri Þingfulltrúar sunnaniands /
föstudaginn 24. sept. kl. 13,30. eru minntir á hópferðina, sem )
Ungir sjálfstæðismenn, sem farin verður með flugvél frá J
tilnefndir hafa verið fuiitrúar Flugfélagi íslands á föstu- 4
á þingið, og ekki hafa staðfest dagsmorgun kl. 10,00, og eru l
þátttöku ennþá, eru beðnir þeir beðnir um að mæta á )
um að hafa samband við skrif Reykjavíkurflugvelli í síðasta J
stofa SUS, Laufásvegi 46, lagi kl. 9,30. l
Kommúnistar
undirbúa
mikla sókn
Saigon, 22. sept. AP.
HARÐIR bardagar hafa farið
Helgi Sigurðsson
Helgi Sigurðsson,
fyrrum hitaveitu-
stjóri látinn
HELGI Sigurðsson, fyrrum hita-
veitustjóri í Reykjavík er látinn
68 ára að aldri, en hann fædlist
í Reykjavík 15. marz 1903 sonur
Sigurðar Jónssonar, bókbindara
og bóksala og siðari konu hans
Gróu Jónsdóttur.
Helgi Sigurðsson varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1923 og lauk prófi í bygginga-
verkfræði í Danmörku 1929.
Helgi var verkfræðiingur hjá
bæjarverkfræðingi Reykjavíkur
á árunum 1929—’34, er hann varð
deddarverkfræðingur hjá Vatns-
og hitaveitu Reykjavíkur eins og
fyrirtækið hét þá. Hitaveitustjóri
var hann á árunum 1943 til 1962.
Helgi Sigurðsson kenndi veitu-
verkfræði um skeið við Háskóla
íslands og um tíma átti hanm
sætti I stjóm Verkfræðingafélags
íslands. Eftirlifandi kona Helga
er Guðmundína Guttormsdóttir.
fram í Suður-Víetnam undan-
farna daga, m.a. hafa skæruliðar
kommúnista gert næturárásir á
tvær stórar herstöðvar Suður-
Víetnama. Fangar sem hafa ver
ið handteknir I þessum árásum,
segja að þetta sé byrjunin á stór
felldum árásum á herstöðvar og
önnur mannvirki.
Herstjórn S-Víetnams segir að
sveitir skæruliða og hermanna
frá N-Víetnam streymi yfir landa
mærin frá Kambódíu, þar sem
þeir hafa verið að undanförnu,
til hvíldar og endurþjálfunar.
Þá berast einnig fréttir af á-
tökum i Kambódíu, í grennd við
höfuðborgina Pnom Penh. Komm
únistar virðast beita þar svipuð-
um aðferðum, nema hvað þeir
hafa ráðizt á þorp, og fellt fjölda
óbreyttra borgara. Aðfararnótt
mánudags gerðu þeir leifturárás
á eina helztu olíubirgðastöð lands
ins og sprengdu mikinn hluta
hennar í loft upp. í þeirri árás
eyðilögðust um % þeirra olíu-
birgða sem til voru í landinu til
nota fyrir óbreytta borgara.
Jörg Demus með
Sinfóníunni
AUSTlRRfSKI píanóleikarinn
Jörgr Demus verður einleikari
með Sinfóníuhljómsvelt fslands
á fyrstu tónleikum hennar 7.
oktöber. Hann er fæddur 1928
og stundaði nám við tónlistar-
háskólann í Vínarborg, en kenn-
arar hans þar voru Waiter
Kerschbaumer, Karl Walter,
Joseph Krips og Johan Nepa-
muk David.
Framhaldsnám í píanóleik
stundaði Demus hjá heimsfræg
um píanóleikurum og kennur-
um: Edwin Fischer, Walter
Gieseking, Wilhelm Kempff,
Arturo Benedetti-Michelangeli
og Yves Nat. Demus lék í fyrsta
sinn opinberlega á tónleikum
Tónlistarvinaféiagsins í Vín 14
ára gamall. Siðar hlaut hann
heiðursverðlaun þeirrar stofn-
unar.
Síðan 1948 hefur Jörg Demus
haldið tónleika í flestum lönd-
um Evrópu, í Afríku, Suður-
Ameríku, Japan, Bandarikjun-
um og víðar. Hann hefur leikið
með hljómsveitum undir stjórn
heimsfrægra hljómsveitarstjóra,
svo sem Karajans, Rodzinskys,
Cluytens, Jorda, Samwallisch,
Argenta o. fl. Busoni-verðlaun-
in hlaut Demus árið 1956 og
Harriet Cohen-verðlaunin 1958.
Demus er mjög dáður píanó-
leikari og hefur hlotið afburða
góða dóma fyrir píanóleik sinn
alls staðar þar sem hann hefur
leikið. Pianóieikarinn frægi Wil-
helm Kempff, telur Demus I
fremstu röð yngri evrópskra
pianóleikara.
Á tónleikunum 7. október leik-
ur Demus píanókonsert nr. 21
í C-dúr K. 467 eftir Mozart.
Norsk prinsessa fædd
Osló, 22. sept. NTB.
SONJA krónprinsessa Noregs
ól dóttur kl. 17.07 í dag. Fæð-
ingin gekk að óskum og sagði
í opinberri tilkynningu, að
móður og barni heilsaðist
prýðilega. Barnig vóg rúmlega
3500 grömm og var 50 senti-
metrar að lengd. Á morgun,
fimmtudag verður fæðingu
litlu prinsessunnar fagnað
i með þvi að fánar blakta við
hún á öllum opinberum bygg-
ingum og kl. 12 á hádegi verð
ur hleypt af 21 fallbyssuskoti
frá Akerhuskastala, bamung-
anum til heiðurs. Fundur verð
ur hjá Ólafi konungi fyrir há
degi, þar sem hann skýrir rík
isstjórninni frá fjölguninni og
hvaða nöfnum bamið verður
skýrt.
Mikil eftirvænting var ríkj
andi um gervaHan Noreg í
dag, en Sonja prinsessa var
flutt á Ríkisspítalann í Osló i
morgun. Voru þá kvaddir á
vettvang tólf færustu kven-
sjúkdóma- og fæðingalæknar
landsins, sjúkrahúsið var
blómum skreytt í hólf og gólf
og áður hafði verið lögð síð-
asta hönd á að útbúa þau tvo
herbergi á sjúkrahúsinu, sem
prinsessan og barn hennar
munu hafa til umráða.
Haraldur ríkisarfi var hjá
eiginkonu sinni er barnið
fæddist. Nokkur vonbrigði
gerðu vart við sig hjá aimenn
ingi, er barnið var telpa, enda
hafa konur ekki rétt til rikis-
erfða i Noregi.
Almennur kjósenda-
fundur í Hnífsdal
4JÁLFSTÆÐISMENN á Isafirði
og Eyrarhrepiá gangast fyrir al-
mennum kjósenðafundi í félags-
heimilinu í Hnifsdal í kvöld kl.
20.36. Efstu menn á framboðs-
lista Sjálfstæðismanna flytja
ræður, en að þeim lokniim munu
beir svara fyrirspurnnm fnndar-
manna. Kjósendur á ísafirði og
■ Eyrarhreppi, eru hvattir til að
næta, þar sem þetta verður eini
'undiirinn, sem haldinn verður í
Uxakjöt og öl
í GÆRMORGUN hringdi til
Morgunblaðsins maður nokk-
ur, sem hafði áf því áhyggjur,
að Múnchenbúar væru farnir
að leggja meira upp úr uxa
kjötsáti en öldrykkju. Þótti
honum heldur nánasarlega á-
ætlaður ölskammturinn, að-
eins fimm milljónir lítra öls
miðað við að gert væri ráð fyr
ir að snæddir skyldu 3,5 millj
ónir uxa, eins og getið var i
frétt i Mbl. í gær af október-
hátíðinni.
Blaðamenn Mbl. voru mann
inum að sjálfsögðu innilega
sammála og könnuðu máiið.
Kom þá í Ijós, að misritazt
hafði uxafjöldinn. Átti sam-
kvæmt heimildinni að standa
þrjátíu og fimm uxar — en
ekki þrjár og háif milljón. —
Hins vegar þykir þeim Morg
unblaðsmönnum, sem sólgnir
eru í uxakjöt þessi tala heldur
Jág og halda þvi fram, að 35
þúsund uxar væri sennilegri
tala. Verðum við að vona, að
frekari fréttir berist af hátíð
inni og geri út um mál þetta.
Hnífsdal vegna þess, að vinstrl
flokkarnir fclldu tiHögu Sjátfstæð
ismanna um að halda þar sam-
eiginlegan framboðsfimd.
— Fréttaritari.
Úrslitin
í Noregi'
ISLÖ 22. september — NTB.
Cndanlegar niðurstðður í
bæja- og sveitastjórnarkosn-.
ingunum í Noregi um helgina
lágu enn ekki fyrir í gær-
kvöldi. Þó er ljóst að Mið-
flokkurinn fékk nú sem svar-
ar 11,6% og hefur aukið fylgi
sitt um rösk 2%. Sósíalíski
þjóðarflokkurinn fékk um
4,8% og hefur hann tapað lít-
iílega, eða um 0,4% sé miðað
við síðustu bæja- og sveita-
stjórnarkosningar. Aftur á
móti hefur fyigi hans aukizt
verulega ef miðað er við
síðustu þingkosningar. Kornm-
únistar fengu 1,3%, Kristilegi
þjóðarflokkiirinn um 8,7% og
jók han.n fylgi sitt um þvi sem
næst 1,5%. Verkamanrbaflokk-
urinn beið mestan ósigur, eina
og Mbl. sagði frá í gær, eða
um 1,9%, fékk nú tæplega
42% en hafði áður 44%.
Vinstriflokkuriinn fékk 8,5%
og tapaði 1,3% og Hægri flokk
urinn fékk 17,8% og er það
tap som svarar 1,5%. ! i
Allar þessar tölur geta
breytzt lítillega, en þó munu
úrslitin ljós í meginatriðum.