Morgunblaðið - 23.09.1971, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1971
19
NIXON OKURTEIS
Kansas City: Dr. Edwin O.
Reiischaiuer, sem var sendi-
henra Bandaríkjanna í Japan
á áirunum 1961—1966, gagn
rýndi í dag Nixon forseta
harðlega, fyrir að hafa ekki
haft samráð við ríkisstjórn
Japana, áður en hann ákvað
för sína til Peking. Sagði
Reischauer, að þetta væri í
senn mjög ókurteiat og ákaf-
lega klaufalegt og hefði mælzt
illa fyrir í Japan.
Reischauer er nú prófessor
við Harvardhásfcóla í Banda-
ríkj unum.
JAPANSKIR ÞING-
MENN í PEKING
Peking — NTB.
• FULLTRÚAR fjögurra
stærstu stjómmálaflokka í
Japan komu til Peking á
laugardag til viðræðna við
kínverska ráðamenn. Eru
þetta allt þingmenn, 22 tals-
ins, sem teljast til samtaka
þingmanna er stofnuð voru sl.
vor með það fyrir augum að
vinna að því að aftur yrði
komið á diplomatísku sam-
bandi við Peking. Fyrir hópn-
um fer fýrrverandi utanríkis-
ráðherra Japans, Aiichira
Rujiyama.
Þingmennirnir verða við há-
tíðahöld 1. október í tilefni
þjóðhátíðardags Kínverja og
þeir munu væntaniega ræða
við Chou En lai forsætisráð-
herra.
Er litið svo á, að Chou Bn
lai rnuni reyna að færa sér
í niyt ósamkomulag Banda-
ríkjamanna og Japana í við-
skiptamálunum.
PALME TIL AFRIKU
Stokkhólmi: Olof Palme, for-
sætisráðheira Svíþjóðar fór í(
dag flugleiðis til Zambiu ogj
Tanzaníu í opinbera heim-
sókn. Með honium í förinni '
voru fimm fulltrúar sænsfcu(
rlkisstjórnarinnar svo og rit-i
höfundurinn Per Wástberg, .
sem er þekktur fyrir andúð I
sína á kynþáttamisréttis- (
stefnu. Sænskur forsætisráð- /
herra hefur ekki fyrr heim-'
sótt Zambiu, en Tage Erland-
er í Tanzaníu fyrir þremur(
árum.
Palme dvelur þrjá daga í(
hvoru landi. Meðan hann verð-J
ur í Zambiu mun hann leggjal
blómsveig við borgina Ndola, (
þar sem Dag Hammarskjöld,
fyrrverandi framtkvæmdastjóri]
S.þ. fórst i flugslysi fyrir'
réttum tíu á-rum.
RÁÐHERRAFUNDUR
LEYSIR VANDANN
Briissel, 21. sept. NTB.
SÍÐUSTU vandamálin sem.
við er að glíma þegar'
aðild Breta að EBE er an nars (
vegar, verða væntanlega leyst (
á ráðherrafundi í Brússel þann!
9. nóvember n.k. Kom þetta;
fram í yfirlýsingu frá Geoff-
rey Rippon, aðalsamninga- (
manni Breta í viðræðum við)
EBE, og sagði hann, að þar'
væri að sjálfsögðu eintkum átt(
við fiskiveiðimálin.
Ráðherraráðið viðurkenndi i
jafnframt á fundi sínum nauð-'
synina á því að ákveðinn að-!
lögunartími fengist varðandi (
f iskveiðimál í sambandi við,
væntanlega aðild Bretlands,'
DanmePkur, Noregs og frlands (
og fram kom að ráðherrarnir (
líta þar sérstaklega á sér-]
stöðu Norðmianna.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
sósíaliista í Sömu aðstöðu. Við
endurtalningu bættu Vinstri sósí-
alistar við sig svo mörgum at-
kvæðum, að flokfcurinn náði því
að fá fjóra fulltrúa á þingið.
Baunsgaard, forsætisráðherra,
telur etoki óhugsancLi, að við
endurtalningu komi á daginn
þau atkvæði sem KristUegi þjóð-
arflokkurinn þarf til að koma 4
fulltrúum sínum á þing. Endur-
talningu lýkur væntanlega á
föstudag, og verði sú raunin
munu Jafnaðarmenn misaa tvo
fulltrúa og stjórnarflofckarnir
tvo.
Ekki er ljóst, hvaða afstöðu
Kristilegi þjóðarflokkurinn tæki
á þingi, og eykur það enn óviss-
una um stjórnarmyndun í Dan-
mörku. AUt bendir þó til þess
að hvorki Vinstr iflokkuriinn né
heldur fhaldssami þjóðarflokkur-
inn óski eftir að starfa áfram í
ríkisstjórn, sem hefði sivo naum-
an meirihluta.
Flokkarnir tveir, íhaldssami
þjóðarflokkurinn og Vinstriflokk
urinn hafa tvímælalaust beðið
mest afhroð í kosningunum. Eft
ir að fyrri talningu var lokið
höfðu Jafnaðarmenn 70 þingsæti
og höfðu bætt við sig 8 þing-
mönnum. Róttæki vinstriflokkur
inn —- flokkur forsætisráðherra
— stóð í stað og náði sömu þing
mannatölu eða 27. íhaldssami
þjóðarflokkurinn fékk 31 fuU-
trúa og missti 6. Sósíalíski þjóð-
arflokkurinn fékk 17 kjörna,
bætti við sig 6. Vinstriflokkur-
inn fékk 30 fulltrúa og tapaði
f jórum. Óljóst er hvort Kristilegi
þjóðarflokkurinn fær 4 af þess-
um fulltrúum.
Af þingi hverfa nú Vinstri
sósíalistar, sem fengu ekki nægi
legt atkvæðamagn, eða 2% til
að koma manni að og sömu sögu
er að segja um Réttarsambandið
og kommúnista.
Fylgisaukning Sósíalíska þjóð-
arflokksins er talin eiga rætur
að rekja til afdráttarlausrar and
stöðu flokksins við aðild Dan-
merkur að Efnahagsbandalagi
Evrópu. Vinstriflokkurinn hefur
tapað miklu atkvæðamagni til
Kristilega þjóðarflokksins, sér-
staklega víða á Jótlandi. Kristi-
legi þjóðarflokkurinn hefur gagn
rýnt harðlega Vinstriflokkinn og
íhaldssama þjóðarflokkinn fyrir
að hafa lagt blessun yfir að
klámmyndir væru óháðar eftir-
liti og fyrir að lina á fóstureyð-
ingarlögunum. Bæði Vinstriflokk
urinn og Ihaldssami þjóðarflokk-
urinn, hafa misst fylgi vegna
þess að margir kjósendur voru
vonsviknir með þá stefnu, sem
stjórnin hefur fylgt i efnahags-
málum.
Þrátt fyrir loforð sem voru gef
in fyrir kosningarnar 1968 um
lægri skatta og umbætur í dönsk
um efnahagsmálum hefur
greiðsluhalli Danmerkur gagn-
vart útlöndum aukizt gífurlega
og skattabyrði hefur þyngzt á
síðasta kjörtímabiLi.
íhaldssami þjóðarflokkurinn
missti meðal annars mikið fylgi,
þar sem staða hans var hvað
styrkust áður, þ.e. á Stór-Kaup-
mannahafnarsvæðinu.
Það var ljóst að kvöldi kjör-
dags að ríkisstjórnin stóð mjög
tæpt. f sjónvarpsviðtölum henda
forsvarsmenn stjórnarflokkana á
að Krag hafi ekki meirihluta,
þótt hann hefði 87 þingmenn með
sér. Krag svaraði með því að
vísa til hugsanlegs stuðnings frá
„Norður Atlantshafsfulltrúum."
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar við-
urkenna það sjónarmið og búizt
er við að Baunsgaard muni af-
henda Friðriki konungi, lausnar-
beiðni sína á föstudag.
Kosningasérfræðingurinn Tage
Kaarsted, prófessor, hefur látið
hafa eftir sér að það sé varhuga
vert að forsætisráðherrann á-
kveði það, þar sem ekkert ör-
uggt sé vitað um hvort Krag
muni fá meirihluta. Enn hefur
ekki verið kjörinn færeyskur
jafnaðarmaður og um afstöðu
grænlenzku þingmannanna verð-
ur þá fyrst vitað er þeir koma
til þingsetningar fyrsta þriðju-
dag i október.
Fyrstu
nætur-
frost
FYRSTA næturfrost í Reykja
vík, sem mældist á mælum
Veðm-stofunniar var í fyrri-
nótt. Þá sýndu mælarnir tæp
lega eins stigs frost. Svipaða
sögu var að segja frá Akur-
eyri, en á hálendinu var víða
kaldara, svo sem á Hveravöll
um, þar komst frost niður
í 6 stig, Þá voru 5 stig á Gríms
stöðum og í Kvígindisdal voru
3 stig, sem var mesta frost á
láglendi.
I Reykjavík mældist á eln-
um stað 10 stiga frost við
grasrót. Var það á Sellandi,
sem er gamall bær sunnan und
ir Öskjuhlíð og oftast er kall
aður Leynimýri. Búizt var við
að frost yrði í nótt. Það er
því vissara fyrir bíleigendur
að aðgæta frostmark vökvans
á kælikerfi bíla þeirra — ell
egar geta menn átt á hættu að
vatnskassarnir springi. —
Myndina tók Sveinn Þor-
móðsson í gær af Esjunni, sem
þá var orðin grá í miðjar hlíð
ar.
- MAO
Framhald af bis. 1
sagði að það væri einfaldlega
vegna þess að leiðtogarnir
hefðu komið sér saman um
að breyta út af fyrri venjum.
I stað hersýninga verður
stiginn dans í lystigörðum
og haldnar glæsilegar íþrótta
sýningar og keppnir hvers
konar.
Fréttastofnanir um allan heim
hsifa velt vöngum yfir þvi síð-
asta sólarhring, hvemig stæði á
því að undirbúningi fyrir her-
sýninguna hafi skyndilega verið
hætt, innanlandsflug hefur legið
niðri í Kína og ókleift hefur
reynzt að ná sambandi við Chou
En-lai, forsætisráðherra. Sér-
fræðingar staðhæfa að enda þótt
fregnir um veikindi Mao kunni
að vera úr lausu lofti gripnar
bendi margt til þess að einhvers
konar pólitisk kreppa sé að
skella á í Kína.
FERÐ DR. DUDLEY’S
LÖNGU ÁKVEÐIN
Eitt af því sem hefur orðið til
að gefa veikindafréttinni byr
undir báða vængi, var að hinn
frægi bandariski hjartasérfræð-
ingur dr. Paul Dudley er stadd-
ur í Kína. f dag var gefin út orð-
sending frá skrifstofu dr. Dud-
ley’s í Boston, þar sem sagði að
ferð dr. Dudleys og fleiri banda-
rískra sérfræðinga til Kina hefði
verið ákveðin um miðjan ágúst-
mánuð. Ekki hafi verið ráð fyrir
því gert að hann hitti Mao for-
mann, er ferð hans var undir-
búin.
— Brezhnev
Framh. af bis. I
BLÖÐ LÖGÐU ÁHERZLU Á
SJÁLFSTÆÐI JÚGÓSLAVÍU
Öll helztu blöð landsins víkja
að heimsókn Brezhnevs í forystu
greinum í dag og fagna komu
hans. Ekkert þeirra lætur hjá
líða að minna á að Júgóslavia sé
sjálfstætt og óháð ríki, sem sætti
sig aldrei við að Sovétrikin
eða nokkurt annað land, hlutist
til um innanríkismál Júgóslavíu.
1 forystugreinunum kemur það
fram að það er talið mjög nauð
sýnlegt, að samskiptin við Sovét-
ríkin einkennist af vinsemd, en
þau verði einnig að einkennast
af virðingu fyrir meginreglum
sjálfstæðs ríkis.
HLÝJAR MÓTTÖKUR
Brezhnev og Tito óku í opnum
bíl frá flugvellinum. Skólabörn-
um hafði verið gefið frí i tilefni
dagsins og var allmikill mann-
fjöldi við þær götur, sem bílalest
in ók um. AP fréttastofan segir
að börnin hafi yfirleitt ekki bor-
ið fána og hrifning viðstaddra
ekki virzt jafn mikil og þegar
Nixon forseti Bandaríkjanna
kom í opinbera heimsókn til
Júgóslavíu í fyrra.
Mengunin ekki
eins alvarleg
og haldið var
FYRIR skömmu kom upp meng-
un í vatnsbóli Hvergerðinga.
Hefur rannsókn farið fram á
sýnum vatnsbólsins. Sigurður
Pétursson gerlafræðingur sagði
i viðtali við Mbl. í gær að sem
betur fer hefði mengunin ekki
reynzt eins alvarleg og virtist í
fyrstu. Þó mun vatnið ekki ai-
veg í lagi, — sagði Sigurður, en
það er ekki verra en gerist viða
um land, þar sem ekki fæst vatn
úr borholum.
PLASTEINANGRUN
GLERULL
BYGGINGARVÖRUR
KÓPAVOGI
Simi: 40990
Nemar og aðstoðarmenn
i prmonaoi
Óskum eftir að ráða nema og aðstoðar-
menn í járniðnaði.
Vélaverkst. Sig Sveinbjörnsson hf.,
Arnarvogi. Garðahreppi.
Bifreiðastjóri
Staða bifreiðarstjóra við Kleppsspítalann er laus til umsóknar.
Alger reglusemi áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist skrifstofu ríkisspítalanna, Eiríksgötu 5, fyrir 30 sept-
ember næstkomandi.
Reykjavík, 21. sept. 1971
Skrifstofa ríkisspítalanna.
— Rytgaard.