Morgunblaðið - 23.09.1971, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1971
Kennarastaða
Laus er stundakennarastaða við Kópavogs-
skóla. Kennsla: Teikning og leikfimi drengja.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 40475.
Fræðslustjóri.
Tilboð óskast
í Volvo station, árgerð 1962, í núverandi
ástandi eftir veltu. Til sýnis á verkstæði
Bræðranna Ormsson, fimmtudag og föstu-
dag klukkan 1—5.
Saab 99
mjög glæsilegur Saab 99, árgerð 1970, til sölu og sýnis í dag.
Saab-umboðið
Sveinn Bjömsson & Co.,
Skeifan 11, sími 81530.
Atvinna
Viljum ráða nokkra menn til starfa nú þegar.
AFURÐASALA SÍS,
Kirkjusandi.
Afgreiðslustarf
Viljum ráða karlmann og stúlku
til afgreiðslustarfa.
Upplýsingar í síma 84860.
Ljösmæðraiélog Reykjavíkur
heldur fund að Hótel Borg í kvöld, fimmtudagínn 23. september,
klukkan 8.30.
Áriðandi að félagskonur mæti.
F. h. stjórnarinnar,
Helga M. Níelsdóttir,
Ijósmóðir.
Viljum ráða
nú þegar einn vanan mann í kælitæki og einn vanan mann
í plötusmiði og einn aðstoðarmann.
Frostverk sl.
Reykjavíkurvegi 25, Hafnarfirði.
Upplýsingar ekki veittar i sima.
Laust starf
Starf yfirlögregluþjóns Rannsóknarlögreglunnar í Reykjavík
er laus til umsóknar.
Starfið veitist frá 1. nóvember næstkomandi.
Umsóknir sendist til Sakadóms Reykjavikur
að Borgartúni 7, fyrir 8. október næstkomandi.
Reykjavík, 21. september 1971.
Yfirsakadómari.
Carðyrkjumaður
getur fengið vinnu nú þegar eða seinna við garðyrkjustöðina
Neðra-Ás í Hveragerði. Húsnæði er fyrír hendi.
Upplýsingar gefur Reynir Pálsson, garðyrkjustjóri,
í sima 99-4185.
Elli- og hjúkrunarheimilið GRUND.
Óskum oð kuupa bandsög
H eimsóknartími
18 tommu eða stærri.
NORÐURVERK HF.,
sími 21822,
Akureyri.
fyrir hjúkrunar- og endurhæfingardeild Borgarspitalans í Heilsu-
verndarstöðinni við Barnósstíg verður framvegis frá klukkan
15—16 og 19—19.30 alla daga.
Reykjavik, 22. 9. 1971
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
HafnarfjÖrður
Viljum ráða menn til aðstoðar í verksmiðju
og til afgreiðslustarfa.
Upplýsingar í skrifstofunni.
Timburverzlunin DVERGUR HF.
Byggingafélag verkamanna,
Reykjavík
Til sölu
þriggja herbergja íbúð í 10. byggingarflokki við Stigahlíð.
Þeir félagsmenn, sem vilja neyta forkaupsréttar að ibúð þessari,
sendi umsóknir sínar til skrifstofu félagsins að Stórholti 16,
fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 28. september næstkomandi.
Félagsstjómin.
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Afgreiðslustúlka
óskast nú þegar í kjörbúð í Austurbænum.
Umsóknareyðublöð í skrifstofu Kaupmanna-
samtakanna, Marargötu 2.
— Eflum
Framhald af bls. 12.
dag fjölmennasta hreyfing barna
i landinu og barnablað Stórstúk-
unnar, Æskan, nýtur ótrúlegra
vinsælda, enda ritstýrt af sérlega
hæfum manni, Grimi Engilberts.
Þessa starfsemi Unglingaregl-
unnar og Stórstúkunnar þarf að
styðja betur en verið hefur. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson sagði
nýlega í sjónvarpsþætti, að bind-
indisfræðsla í skólunum væri í
algeru lágmarki. Það er lauk-
rétt. Þá miklu herferð, sem hafin
hefur verið gegn tóbaki í fjöl-
miðlum, þarf að taka upp gegn
áfengi. Er ekki einkennilegt að
ekki einn einasti íslenzkur rit-
höfundur telur sér samboðið að
glíma við áfengisvandamálið —
mesta vandamál mannkyns svo
notuð séu orð Alberts Schweitz-
ers? Bæði Einar H. Kvaran og
Jón Trausti töldu það vissulega
ekki fyrir neðan sína virðingu.
Niðurstaða þessara hugleiðinga
er: 1. Að gæzluvistarsjóði verði
tryggðar meiri tekjur, t.d. 2—3%
af áfengissölunni. 2. Áfengis-
varnaráði og Stórstúkunni verði
veitt mun meira fé en verið hef-
ur (í dag fær Stórstúkan einung-
is 650 þús. kr. til sinna starfa).
3. Skipulögð bindindisfræðsla I
skólum verði tekin upp undir
eftirliti og umsjá sérstaks náms-
stjóra.
Flest allir viðurkenna nú orð-
ið þörf mikils áróðurs gegn si-
vaxandi áfengis- og eiturlyfja-
neyzlu landsmanna. Því hlýtur
það að vera eðlileg krafa að lög-
gjafarsamkunda Islendinga taki
málið til alvarlegrar umræðu og
veiti á þvi viðunandi lausn.
Hilmar Jónsson,
stórgæzlumaður
Unglingareglunnar.
— Smrkovský
Framhald af bls. 16.
við afleit skilyrði segir
Smrkovsky og ekki bætir úr
skák, að stöðugt er fylgzt
með þeim og reynt að fá þá
til að hverfa frá fyrri sann-
færimgu sinni.
Josef Sonrkovsky segir að
pólitískar skoðanir hains nú
séu þær hinar sömu og þær
voru 1968, en „byggðair á
traustari grunni og skýrari
en þær voru þá.“ Smrkovsky
lýsir þeim mönnum, sem nú
fara með völdin í Prag, sem
harðisoðnum og kaldrifjuðum
flokksþýj'uim, en segir þó að
hamn óttist ekki beimlDímis að
horfið muni algerfega aftur
til Stalíns'tímans.
Smrkovsky minmir á að
undanfarin tvö ár hatfi hamn
sætt stöðugum árásum fjöl-
miðla í Tékkóslóvakíu og
hann segist hafa orðið að lesa
það í Rude Pravo, málgagni
kommúnistaflokksins, að búið
væri að reka hann úr flokkn-
um. Sjálfur kveðst hann aldr-
ei hafa fengið í hendur skritf-
lega né mumnlega yfirlýsingu
um það.
Eins og í upphafi segir
birtist þetta viðtal í ítöisku
blaði, sem hallast mjög að
kommúnistum, en telur sig þó
óháð. Ritstjóri blaðsims er
Davide Lájolo, sem er þing-
maður kommúnista. Lájoio
skriifar í klausu, sem er birt
við hliðina á viðtalinu, að
hann sé reiðubúimn að birta
einnig viðtöl við þá menn,
sem nú ráða lögurn og lofum
í landinu.
Hjartans þakkir færi ég öll-
um þeim mörgu vinum mín-
um og ættingjum, sem sýndu
mér vinsemd og hlýhug á
áttatíu ára afmæli mínu 20.
september með gjöfum, blóm-
um og skeytum.
Sérstaklega þakka ég fóstur-
dóttur minni, tengdasyni,
barnabörnum og barnabarna-
bömum.
Guð blessi ykkur öll.
Þórunn Sturludóttir,
Hafnargötu 101,
Bolungarvík.