Morgunblaðið - 15.10.1971, Page 1
32 SIÐUR
Kússneskir kafbátar úr Norðurflotanum.
Time varar við ógnun
Rússa á N-Atlantshafi
írland:
Brezkur her
áfram þar
Brightan og Belfast,
14. okt. — NTB, AP.
Á ÁRSÞINGI brezka Ihalds-
flokksins var í dag samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða sú stefna brezku stjóm-
arinnar að kalia ekki brezka her-
liðið á Norður-írlandi heim fyrr
en brotin hefur verið niður ÖU
andspyma ofstækismanna þar.
Enn kom til átaka á Norður-
írlandi í dag mUIi brezkra her-
manna og skæruliða, sem talið
er að séu ur írska Iýðveldishem-
um svonefnda, eða IRA. — Var
Framhald á bls. 21
Prinsessu-
skírn 1 Ósló
fsland er „korktappinn í flöskunni“
□-
□-
Sjá forystugrein
Maðsins í dag.
-□
-□
BANDARÍSKA Iréttaritið
„Time“ varar við því í síð-
asta tölublaii, að Rússar séu
í þann veginn að ná algerum
yfirburðum á norðurvæng
NATO. „Time“ gerir ítarlega
grein fyrir hernaðarstöð-
wnni á Norður-Atlantshafi og
segir: „Rússar eru í þann
tnund að ná áþreifanlegasta
ávinningi sínum til þessa á
Islandi, sem er kallað „kork-
tappinn í f!Öskunni“.“
„Time“ vitnar í fréttaritara
sinn og segir: „Rússar eru önn-
um kafnir við að sýna hernaðar-
mátt sinn á norðurvængnum.
Þetta er mikilvægt dæmi um
hvernig Rússar ætla að nota
þrýsting með herafla sínum til
þess að ná fram pólitiskum
stefnumiðum sínum á áttunda
og níunda áratugnum."
SM
SOVIET POWER'JMH
IN THE ATLANTIC >'
■■■ ■
' "W
Krfí.ts ík
i ’ • 1-JATG baii
0 I. r <1 II::
/
-
;m:f /
m
Wjfl KATO ! %
é'ih-fn COL!KJT^i£S 1 ^ii /
œumákmmm O r^'ia' '■’
mÍSin:^^1Sii0Si?ntS: w
Þetta kort fylgir greininni í Tinie og sýnir flotamátt Rússa á svo-
kölluðum norðurvæng NATO.
t *
Irskar
jvalkyrjur
Belfast, 14. okt. — NTB.
BREZK hernaðaryfirvöld
| Belfast hafa opinberlega þakk |
að tveimur miðaidra konuin í.
Londonderry fyrir aðstoð við :
brezka hermenn nú fyrirl
skömmu. Brezku hermennirn-|
ir óku í opinni bifreið, er hóp- j
ur unglinga réðst að þeiml
með grjótkasti. I
Konurnar tvær, sem voru íj
verzlumarferð komu þarna að j
og tók on.nur þeinra upp)
stein, en hin imindaði regnhlíf j
sína og síðan létu þær til síkar-
air ekríða gegn unglingunum j
með svo miklum krafti, að]
þeir sáu sér þanin kostinn I
vænistan að taka til fótanna.
UGGVÆNEEGAR TÖI.TR
Uggvænlegar tölur um „yf-
irgnæfandi hernaðaryfirburði
Rússa á norðurvængnum" eru
birtar í greininni. Yfirburðir í
hermönnum eru fjórir á móti
einum, i flugvélum sjö á móti
einum og í skipum sex á móti
einum á norðurvængnum. 1 Norð
urflota Rússa, sem heíur bæki-
stöð sína í Murmansk, eru að
sögn „Time“ 560 skip, þar á með-
al 160 kafbátar og þar af rúm-
lega 65 knúnir kjarnorku. Aftur
á móti er allur Atlantshafsfloti
Bandaríkjanna skipaður 358 skip
um, en þar af hefur Sjötti flot-
inn á Miðjarðarhafi fengið til
umráða 40—50.
Sé Islandi eða Noregi ógnað
segir „Time“ að liðsauki frá
Bandaríkjunum væri 10—14
daga á leiðinni, frá Bretlandi
10—20 daga og frá Kanada 30
daga. „Time“ vitnar í eftirfar-
andi ummæli norska kontraaðm-
írálsins Magne Braadland: „Ógn-
unin við Bandarikin kemur ekki
frá Vietnam og ekki heldur frá
Framhald á bls. 21
Ósló, 14. okt. — NTB.
FJÖLBI tiginna gesta er væntan-
legur til Ósló nú um helgina til
að vera viðstaddur þegar Mártha
Louise prinsessa, dóttir Sonju
krónprinsessu og Haralds ríkis-
arfa verður skírð í kapellu kon-
ungs-hallarinnar þar í borg. —
Ákveðið hefur verið að Margar-
etha, prinsessa af Banmörku,
Italdi litiu prinsessunni undir
skírn.
Marthe Louise verður skírð á
þriðjudag að viðstöddum 189 gest
um og verður þetta fyrsta skirn-
arathöfnin í hallarkapellunni eft-
ir gagngerar breytingar á hentni.
Nokkrar skírnargj afir hafa
þegar borizt, meðal anm.ars flétt-
uð hálslkeðja úr hvítagulli með
perlum og demöntum frá norsku
rilkisstjórminini og skartgripa-
skrín úr silfri og skreytt dýrum
steinum frá
um í Ósiló.
erlendum sendiheirr-
Fischer:
Petrosjan
Jafntefli
Buenos Aires, 14. okt.
AP.
FISCHER og Petrosjan
I sömdu um jafntefli í 5. ein-
\ vígisskákinni í kvöld eftir
136 leiki og eru þeir því enn
ijafnir að vinningum ZVz'
12Ví — Fischer vann fyrstu
1 skákina, Petrosjan þá
^næstu, en hinar hafa orð
jafntefli.
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði fyrir
Uppgötvanir á sviði
hor mónastar f semi
Stokkhólmi, 14. október
— AP-NTB
KAROLÍNSKA stofnunin í
Stokkhólmi veitti í dag
Bandaríkjamanninum Earl
Wilbur Sutherland Nóbels-
verðlaunin í læknisfræði fyr-
ir uppgötvanir hans á sviði
hormónastarfsemi. Suther-
land er 56 ára að aldri og
prófessor við Vanderbilt-há-
skólann í Nashville, Tenn-
essee.
í tilkynningu Karolínsku stofn-
unarinnar sagði m.a. um störf
Sutherlands: „Þar til nýlega hef-
ur starfsemi kerfisins, sem hin-
ir fjölmörgu og mikilvægu hor-
mónar mannslíkamans stjórnast
af, verið alger ráðgáta, en starf
Sutherlands hefur nú leitt til
þess, að við í dag skiljum í stór-
um dráttum eðli og eiginleika
ýmissa hormóna og hvernig þeir
starfa í líkamanum.“
Sutherland byrjaði hormóna-
rannsóknir sínar íyrir u.þ.b. 20
árum og starfaði þá með Nóbels-
verðlaunahafanum Carl Cori.
Þeir rannsökuðu þá hvernig
adrenalin stjórnar breytingu á
glycogen í glucosa (sykur) í lifr-
inni. Adrenalinið siast inn í
blóðrásina, þegar maðurinn
verður fyrir miklu andlegu áiagi
og auðveldar honum þannig að
þola þetta álag, t.d. þegar um
ofsahræðslu er að ræða eða mað-
ur þarf skyndilega að halda á
öilu sínu, þvi adrenalínið setur
i gang kerfið, sem eykur bióð-
sykur og það gefur manninum
þá auknu orku, sem hann þarfn-
ast.
Iram:
Afmælishátíð
Persepoiis, 14. okt. — NTB.
HÁTÍÐAHÖLÐUNUM í tilefni
2.500 ára afmælis keisaradæmis í
íran var haidið áfram í dag í
Persepolis. Var efnt þar til mik-
illar matarveizlu í dag, þar sem
60 þjóðhöfðingjar, forsetar og
ríkissljórnarfnlltrúar sátn saman
við 60 metra langt borð í gríðar-
stóru fjaidi, en um 400 gestir aðr-
ir sátu við 46 smærri borð.
Muhaimimaid Reza Pahlavi írans
keisairi og Farah keisairaynja
sátu í hásætum við borðsenda há-
borðsins, og bauð keisarinin gesti
velkomna. Meðai gestanna við há-
borðið var einn keiisari, átta kon-
ungar, fimim drottningar, tveir
ríkisarfar, tvær prinsessur, ein-n
stórhertogi, Nikolai Podgorny,
forseti Sovétríkjanna, og 12 aðxir
forsetar, Spiiro Agnew, varafor-
seti Bandarí'kjanna, og Maxkniili-
an von Furstenlburg kardináli,
sem er fulltrúi Páfagarðs.
Próf. Sutherland ásamt konu sin ni á fundi með fréttamönnum í
Nashville í gær.