Morgunblaðið - 15.10.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1971
MIKIÐ HEFUR ÁUNNIZT
MORGUNBLAÐIÐ hitti Pál
Sveinsson, landgræðslustjóra ný-
lega að rháli og ræddi við hann
um landgræðslumál. Fórust hon-
um orð á þessa leið:
Að gefnu tilefni um upp-
græðslu, leyfi ég mér að geta
þessa:
Gróður landsins hefur stórauk
izt bæði í byggð og óbyggð fyrir
tilverknað Landgræðslu ríkisins.
Þegar rætt er um gróðureyð-
ingu iandsins í heild þá er nauð
synlegt að gera sér grein fyrir
ástandinu í byggðum landsins
annars vegar og afréttum hins
vegar.
Eins og alþjóð veit er Land-
græðsla ríkisins stórvirkasta afl
ið, sem hefur skipulega unnið að
heftingu uppblásturs hér á landi
og auk þess uppgræðslu lands,
einkum síðustu 15 árin.
Það var rétt stefna hjá Gunn
laugi Kristmundssyni, sand-
græðsiustjóra, að einbeita sér að
heftingu uppblásturs í byggðum
landsins, þar var þörfin mest.
Með komu Runólfs Sveinssonar,
sem tók við af Gunnlaugi 1947,
hófst uppgræðsla örfoka lands,
sem hefur stóraukizt hin seinni
ár og alveg sér í lagi fyrir 13
árum með tilkomu áburðarflug
vélarinnar.
Með þessum aðgerðum á vegum
Landgræðslu ríkisins hefur gróð
ur stóraukizt í byggðum lands-
ins. Þá hefur og Landgræðslan
aðstoðað einstaka bændur, ýmist
einn eða fleiri saman svo og
sveitarfélög, sbr. Skógasand, Sól-
heimasand og í öllum sveitum A-
Skaftafellssýslu, svo dæmi séu
nefnd. Landgræðslan hefur á
tveimur undanförnum árum stað
ið undir aðalkostnaðarliðum
Landverndar með framlagi á
áburði og sáðvöru.
Vegna þess að fjárveiting til
Landgræðslunnar hefur alla tíð
verið alltof lítil, var ekki unnt
að hefja viðnárn uppblásturs á
afréttum landsins fyrstu 50 árin,
en á þvi tímabili voru unnin stór
virki í byggðum landsins, eins og
áður getur.
Páll Sveinsson,
landgræðslust jóri
Fyrsta hálendissvæðSð, Hóls-
sandur, var girt 1955, og er hann
nú gersigraður, en síðan hafa 12
önnur uppblásturssvæði á hálend
inu verið girt, samtals allt að
100 ferkilómetrar að flatarmáli
og hefur uppblástur verið stöðv-
ur í elztu girðingunum eftir að-
eins 16 ára starf. Þetta hefur full
vissað okkur um, að hægt er að
stöðva allan uppblástur á hálend
inu á tiltölulega skömmum tíma,
ef nægilegt fjármagn er fyrir
hendi.
Þeir aðilar, sem halda því
fram, að ennþá vanti mikið á, að
jafnvægi hafi náðst í gróðurfari
landsins, þ.e. að meira eyðist af
gróðri en það sem uppgræðsl-
unni nemur ættu að kynna sér
betur árangur þann, sem náðst
hefur innan Landgræðslugiiðing
anna.
Dr. Sturla Friðriksson hélr því
fram fyrir nokkrum árum, að ár
lega töpuðust um 2000 hektarar
af grónu landi, en dr. Sturla hef-
ur ferðazt mikið um landið og
gert ýmsar athyglisverðar til-
raunir með uppgræðslu á hálend
inu. Ekki ætla ég að vefengja
þessar tölur, en mikið vantar á,
að nægilegar rannsóknir hafi
verið gerðar, svo unnt sé að full
yrða um stærð þess lands eða
gróðurs, sem tapast árlega.
Ef álit dr. Sturlu er hins vegar
raunverulegt, þá vil ég benda á,
að á vegum Landgræðslunnar
hefur verið grætt upp með áburð
arflugvélinni á árinu 1970 um
1200 ha. af ógrónu landi og ann-
að eins hefur áunnizt með sjálf-
græðslunni einni saman innan
Landgræðslusrvæðanna. Á þessu
sama ári aðstoðaði Landgræðsl-
an einstaklinga og sveitarfélög
með uppgræðslu á 300—400 ha.
lands. Þessu til viðbótar komu
svo 500 ha. á vegum Landvernd
ar að talið er. Samtals. eru þetta
á 4. þúsund ha. Á þessu ári
(1971) var aukningin á vegum
Landgræðslunnar í uppgræðslu
um 20% frá fyrra ári. Hér er
því um að ræða helmingi stærra
svæði, sem uppgrætt hefur verið,
heldur en það, sem tapast, að
dómi dr Sturlu. -
Þegar baft er í huga hversu
skammur sá +ími er, sem farið
hefur í upþgræðslu landsins,
hljóta allir sannsýnir menn að
sjá að Grettistaki hefúr verið
lyft í þessum. málum.
Það, sem næst liggur fyrir að
gera, er uppgræðsia afrétta Bisk
upstungnamanna og fjrímsnes-
inga og síðast en cíki sízt næsta
nágrenni Þingvalla, en á JÁú er
brýn nauðsyn og þolir enga bið,
og verður því gert á næstu árum.
Clausen hefur
selt 7 myndir
HENRIK Clausen opnaði á
þriðjudag mályerkasýningu í
NoiTæna húsinu, en hann er
danskur Ustmálari. 1 gær höfðu
7 myndir selzt, en sýningin er
opin frá kl. 14 til kl. 22 dag
hvern til 31. októb<T.
Gætið ykkar á
ávísununum
ÞBGMUB ávísanaheftum var
stolið í fyrradag. f einu voru 25
eyðublöð, öðru 22 og í hlaupa-
reikningshefti Krabbameins-
félagsins voru 40 eyðublöð, und-
irrituð og stinipiuð með stimpli
félagsins.
Númerin á eyðublöðunum í
hlaupareikningshefti Krabba-
meinsfélagsins, sem er frá Lands
bankanum, eru: 899—110 til
899 150. Annað ávísanaheftið er
frá Búnaðarbankanum og eru
eyðublöð þess númer H-24326 til
24350 og hitt er frá Austurbæj-
arútibúi Landsbankans með eyðu
blöðum númer C-347—379 til
400.
í töskunni, sem stolið var frá
starfsstúlku Krabbameinsfélags-
ins, var einnig ávísun frá
Krabbameirisfélaginu í Finnlandi
að upphæð 150 finnsk mörk.
Þessi mynd var tekin á Seyðisfirði og sýnir fjögur snotur hús, sem
hafa verið í byggingn.