Morgunblaðið - 15.10.1971, Síða 15
MORGU'NKLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1971
15
— Persía
Framliald af bls. 10
stærra í sniðum en hinna
eldri stórvelda Austurlanda.
Persakonungar voru ekki
harðstjórar í svipuðum mæli
og einvaldar Assýríu og
Baibýlóníu. Þeir virtu hið
mikla hlutverk sitt og voru
þess vissir, að hinn mikli guð
ljóssins hafði gefið þeim,
„konungum konunganna",
vaid yfir hinni viðlendu jörð,
yfir möírgum þjóðum og tung-
um og þess vegna bæri þeim
að fara að vilja hans og virða
lög og rétt.
Daríus skipti ríkinu í tutt-
ugu stórfylki, sem „satrap“
eða landvörður stýrði hverju
um sig í umboði konungs.
Landstjórar þessir voru mjög
vaidamiiklir og nutu ærins
sjáifræðis, en „augu og eyru
konungs", sérstakir trúnaðar-
menn hans, litu eftir gerðum
þeirra með mestu nákvæmni.
Persar fylgdu þeirri stefnu
í flestu, sem Kýrus hafði
markað og sýndu öðrum
þjóðum umburðarlyndi og
mildi, sem óvanalegt var með
austrænum þjóðum og
reyndu ekki að þröngva trú
sinni eða tungu yfir á aðra —
hver þjóð fékk að halda
átrúnaði feðra sinna og þjóð-
legum einkennum. Undir
stjórn þeirra eignuðust Gyð-
ingar glæsilégar bókmenntir,
ein borgir Fönikumanna juk-
ust að auðlegð og frægð.
Þrátt fyrir uppreisnir ein-
’ stakra landshluta, verður
ekki séð annað en að meiri
liluti hinna sigruðu þjóða
hafi unað vel hag sínum á
öld hins persneska heims-
veldis.
Þegar Persar tóku völd,
voru þeir allfrumstæð þjóð
en þróttmikil og framgjörn,
næm fyrir áhrifum æðri
menningar. Framar öðru mót
uðust þeir af babýlónískri
menningu, enda stóð hún
■ þeim næst. Listaverk þeixra
bera því að vonum svip
babýlónískrar listar, þótt
egypzk áhrif og grisk verði
eigi heldur dulin. Myndlist
Persa á lítið skylt við hið
harðneskjulega, eirðarlausa
■ raunsæi assýrskra lágmynda.
, ,Hún er umfram allt skraut-
list, vegleg og hátíðleg, vel
fallin til þess að prýða hinar
, . iburðarmiklu súlnahallir í
Persepólis, sem grafnar hafa
- . verið úr rústum.
HÁLEIT TRÚARBRÖGÐ
Trúarbrögð Persa hinna
íornu voru sérstæðastur og
afdrifaríkastur þáttur menn-
ingar þeirra. Því miður er
ekki lengur tii nema brot hins
fornpersneska trúarrits —
Avesta — það er jafnvel með
, , öliu óvíst, hvei: Zaraþústra
var og hvenær hann lifði, en
, svo hlutstæð og samræmd er
hin forna trú, að hún hlýtur
að vera verk eins djúpviturs
hugsuðar. Trú hans er mót-
uð aí náttúru og veðráttu
Persíu, þar sem svo skammt
er milli kæfandi hita og níst-
andi kulda, landi akra og
eyðimarka, landi strangrar
lífsbaráttu, stórfeildra and-
, stæðna. Tvihyggja, barátta
góðs og iHs, er grundvailar-
hugsun þessarar trúar. Það
' er trúarleg skylda hvers
manns að vera striðandi liðs-
, maður hins góða, en það verð-
úr hver sá, er eykur hið
ræktaða land, upprætir ill-
gresi, útrýmir vililidýrum, el-
ur upp börn — en hann verð-
ur líka að vera réttlátur, orð-
heidinn og sannorður.
' '1 Trú Zaraþústra stirðnaði
siðan undir fargi margbrot-
inna, oft fáránlegra helgisiða
óg kenning hans blandaðist
""'hindurvitnum og dýrkun ann-
1 'i ariégra guða. Þó eru enn eft-
" 'ir leifar af ljóstrú hans, það
1 er trú Parsa, eldsdýrkend-
1 anna, sem flestir búa i Ind-
landi, en örfáir í PersSu
1 * • -sjélfri. En trú hirus merid-
Jiega spámanns hafði mikil
áhrif og víðtæk, ekki sízt á
átrúnað Gyðinga.
Veldi Persa hnignaði er
stundir liðu og hrundi til
grunna, þegar rúmlega tvær
aldir voru liðnar frá valda-
töku Kýrusar. Þeir náðu
fyrstir því marki, sem öil hin
fyrri stórveldi höfðu keppt
að, urðu einráðir fyrir botni
Miðjarðarhafsins. En ríki í
nútímaskilningi varð Persía
ekki, til þess var samheldni
einstakra landshluta of veik,
en raunveruleg einingarkennd
ekki til. 1 innsta eðli sínu var
Persaveldi aðeins samband
borga eða konungsríkja, sem
eitt sinn höfðu notið sjálf-
stæðis, en voru nú skattskyld
erlendu valdi. Hinn persneski
kjami ríkishersins varð æ
minni, þjóðir skattfylkjanna
eða erient málalið kom í stað-
inn. Þar við bættist, að kon-
ungsættin og hin ráðandi
stétt þoldi ekki til lengdar
sætleika valdana, konungur-
inn fjariægðist þjóð sína æ
meir og lokaði sig inni í
þröngum hring fjölskyldu
sinnar og hirðmanna. En
þrátt fyrir ailt hafði hin
pensneska stjórnskipun mikla
sögulega þýðingu. Lögmál
hennar gengu að erfðum til
Alexandens mikla, er taldi sig
beinan arftaka hins síðasta
Persakonungs og siðan frá
honum til hellenskra kon-
unga og þaðan tái rómverskra
keisara.
★
Miklar breytingar hafa orð-
ið í Persíu í tímans rás frá
því í fornöid, sem ekki er
unnt að rekja hér. Persar nú-
tímans telja sig hins vegar
beina afkomendur hinna
fornu Per.sa og að Kýrus hafi
upphaflega lagt hornsteininn
að því ríki, sem Persía er nú.
Það er því ekkl að ástæðu-
lausu, að hátáðahöld fara nú
fram um gjörvallt ‘ rikið í til-
efni þess, að 2500 ár eru lið-
in frá stofnun þess og til
minningar um hinn merka
og mikilhæfa stofnanda þess,
Kýrus konung.
(Heimildir: Ólafur Ólafs-
son, Lönd og lýðir; Ásgeir
Hjartarson, Mannkynssaga og
fleiri heimildir).
1 x 2 — 1 x 2
Leiðrétting
I auglýsingu í þriðjudagsbiaðinu misrituðust 2. vinningsnúmer
úr 29. leikviku:
1. vinningur — 11 réttir — nr. 38103 (en ekki 38130).
2. vinningur — 10 réttir — nr. 26625 (en ekki 26675).
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — Reykjavík.
Lektorsstuða í íslenzku
við háskólann í Gautaborg.
Staða lektors í íslenzku við háskólann í Gautaborg er laus
frá 1. janúar 1972. Kennsluskylda er 396 stundir á ári, og
helming hennar ber lektomum að inna af hendi við háskólann
i Lundi.
Laun eru sæ. kr. 4.525.— á mánuði. Ráðningartími er 3 ár, en
iektorinn á kost á að fá hann framlengdan um önnur 3 ár.
Umsóknir á sænsku skulu stílaðar á Göteborgs universitet, en
sendar Heimspekideild Háskóla íslands fyrir 15. nóv. n.k.
SKRIFSTOFA HÁSKÓLA ISLANDS.
GARÐYRKJUMENN
Stór og góð eign, hentug undir garðyrkju-
stöð, stórt einbýlishús, mjög fallegur trjá-
garður.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN. AUSTURSTRÆTI 12
SÍMAR 20424—14120 — heima 85798—30008.
TIL SÖLU - TIL SÖLU 3ja herb. jarðhæð við Rauðarárstíg til sölu, ársgömul eldhúsinnrétting. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN, AUSTURSTRÆTI 12 SÍMAR 20424—14120 — heima 85798—30008.
ATVINNA
FÖNN óskar að ráða strax konur í þrifalega
vinnu. Heils- eða hálfsdags vinna.
Upplýsingar á staðnum.
FÖNN, Langholtsvegi 113.
adLJOMA
gerír allati mat góðan og
góðait mat betrí
LJÖMA
VITAMÍN SMIÖRLÍKl
SDsmjörliki hf.