Morgunblaðið - 15.10.1971, Blaðsíða 31
Tæknif undir í Munchen
Nýrri tækni beitt við mælingu
afreka íþróttamanna
TÆKNIN hefur sannarlega hald-
Ið innreið sína í framkvæmd
íþróttamóta og sennilega kemur
hún aldrei eins vel fram og á
Olympíuleikuniim, sem haidnir
verða í Múnehen næsta sumar.
Munu þar koma fram margar
nýjungar, sem vafalaust eigra svo
eftir að ryðja sér til rúms á flest-
um meiriháttar íþróttavöilum.
Ein helzta nýjungin, sem fram
kemur I Miinchen, er við mæl-
ingu kasta. Hingað til hafa köst-
in verið mæld með málbandi, en
í Múnchen verða þau lögð til
Snúra er fest i byssu ræsisins og
um leið og hann hleypir af, fer
tímatökuvélin af stað. 1 henni
er einnig komið fyrir myndavél,
sem tekur ljósmynd um leið og
hlaupararnir koma í mark.
Einnig þessi vél er í sambandi
við ljösatöfluna og sendir upp-
lýsingar um tíma sigurvegarans
um leið og hann slítur snúruna.
Filman í markmyndavélinni
framkallast svo á svipstundu og
geta dómarar úrskurðað röð
hlauparanna i mark eftir henni
og ákvarðað tima þeirra.
á leikvanginum i gegnum sjón-
varp, kjósi þeir ekki að vera á
vellinum og fylgjast með þar.
Stærstu fréttastofnanirnar munu
koma upp miklum útibúum i
Múnohen meðan keppnin fer
þar fram, og rætt hefur verið
um möguleika þess, að setja
tæki þeirra að einhverju leyti i
samband við fyrmefnd tæki, sem
mæla köst, stökk og hlaup,
þannig að upplýsingar um afrek
iþróttamannanna geti borizt út
um ailan heim á öldum Ijósvak-
ans á sömu stundu og þau ger-
ast.
Þ>á hefur verið reistur griðar-
hár sjónvarpsturn á Olympíu-
svæðinu, - sem greiða mun fyrir
sjónvarpssendingum í gegnum
gervihnetti um víða veröld. Er
talið að flest þau lönd, sem á
annað borð hafa þróað sjónvarp,
muni sjónvarpa meira og minna
frá Olympiuleikvanginum.
Sjálfsmark skóp sigur
Flóðlýsingin á Olympíuleikvang iniim verður stórkostleg og gef-
ur engu minni b irtu en sólarljósið.
I»essu litla tæki er stungið niðurþar sem áhöldin koma niður í
kastgreinunum, og eftir örstuttastund birtist á ljósatöflunni hvert
afrekið hefur verið.
hliðar og elektrónisk tæki notuð
í staðinn. Tæki þessi eru fremur
fyrirferðarlitil og ákatflega fljót-
virk. Liður ekki nema örstutt
stund frá þvi íþróttamaðurinn
sleppir áhaldinu og þangað til
tilkynning um afrekið hefur
birzt á risastórri ljósatöflu.
Úti á vellinum verða aðeins
dómarar, sem úrskurða hvar
áhaldið kom niður. >eir hafa lít-
ið tæki, sem líkist mest lampa,
og er þvi stungið niður þar sem
áhaldið kom niður. Tæki þetta
sendir síðan frá sér merki til
annarra tækja, sem komið er
fyrir þannig að þau mynda þrí-
hyrning. Reikna þau út á svip-
stundu hvað kastið var langt.
Tæki þessi eru svo i sambandi við
ljósatöfluna og senda upplýsing-
ar beint þangað.
Tímataka í hlaupum og sundi
er einnig algjörlega sjálfvirk.
Mæling stökklengda í lang-
stökki og þristökki er einnig
framkvæmd með elektrónískum
tækjum. Þau voru einnig notuð
á Olympíuleikunum í Mexikó
1968, en þá bar það til tiðinda í
langstökkinu, að einn keppenda
Bob Beamon, stökk mun lengra
en tæki þessi gátu mælt, og varð
því að gripa til málbandsins.
Verður þess örugglega gætt 1
Múnchen að slíkt komi ekki
fyrir, enda nákvæmni slikrar
mælingar minni en elektrónisku
vélanna, sem mæla stökkið upp
á millimetra.
Geysilega mikil áherzla verður
lögð á það á Olympíuleikunum
í Múnchen að búa vel að frétta-
mönnum og sjá til þess að
þeir fái allar upplýsingar fljótt
og vel. Reist verður stór bygging
fyrir fréttamenn og þaðan geta
þeir fylgzt með öllu sem gerist
Hannes f ékk góða dóma
EINS og frá hefur verið skýrt
dæmdi Hannes Þ. Sigurðsson
leiik enSku meistaranna Arsenal
og norsíka meistaraliðsins Ström-
goset, sem fram fór í London
fyrir skömimu. Línuverðir voru
einnig íslenzkir, þeir Einar
Hjaxtarson og Valur Benedikts-
son. Fengu þeir þremenningamir
góða dóma fyrir frammistöðu
sína í leiknum, einkum þó hjá
Englendingum, en hins vegar
virðist sem Norðmennirnir hafi
ekki verið alveg eins ánægðir.
í leikskrá sem Arsenal gaf
út fyirir leikinn er stór mynd af
Hannesi Þ. Sigurðssymi, og rek-
inn ferill ham sem dómara og
eininig er f j allað um dómarastörf
línuvarðanna. Mun heldur óvana-
legt að dómurum séu gérð svo
góð skil í leikjaskrá, og verða
þessi skrif að teljast heiður fyrir
Hannes og félaga.
Haukar
sigruðu
HANDKNATTLEIKSLIÐ Hauka
fór um síðustu helgi norður til
Akureyrar og keppti þar við
heimamenn. Á laugardaginn
léku Haukar við KA og sigruðu í
þeim leik, 25:21. Var leikurinn
nokkuð jafn lengst af, og lofar
KA-liðið góðu fyrir veturinn. Á
sunnudaginn fór svo fram hrað
keppni og í henni sigruðu Hauk-
ar einnig. Lið Þórs varð í öðru
sæti, en KÁ í þriðja.
Englendinga
EINS og frá var skýrt í blaðinu
í gær léku öll brezku landsliðin
landsleiki í fyrrakvöld. Vöktu
þessir leikir niikla athygli, eins
og jafnan þegar brezkn liðin eru
í eldlínunni, en einkum beindist
þó athyglin að leik Englands
við Sviss, en sá leikur fór fram
Basel. Tefldi Sir Ramsey að
mestu fram óbreyttu liði, en
hann er nú farinn að sæta nokk-
nrri gagnrýni fyrir íhaldssemi
við val landsliðsmanna.
Englendingar sigruðu í leikn-
um með 3 mörkum gegn 2. Geoff
Hurst skoraði fyrsta mark leiks-
ins eftir 55 sekúndur, en Jewn
Dupeux jafnaði fyrir Sviss eftir
10 mínútur. Tveimur mínútum
síðar færði Martin Chivers Eng-
lendingum aftur forystu og var
staðan þannig 2:1 þangað til rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks, að Ku-
enzli jafnaði aftur fyrir Sviss-
iendinga. Var fyrri hálfleikurinn
mjög jafn og 2:2 í hálfleik sann-
gjarnt eftir gangi leiksins.
1 siðari hálfleik höfðu Englend-
ingar hins vegar frumkvæðið í
leiknum, en vörn Svisslendinga
var þétt fyrir og fá marka-
tækifæri þuðust. Á 77. mín-
útu leiksins varð einn af varnar-
leikmönnum Sviss, Weibel, svo
óheppinn að hann sendi knött-
inn í eigið mark og reyndist
þetta vera sigurmark Englend-
inga í leiknum. 60 þúsund áhorf-
endur fylgdust með leiknum.
Leikurinn var liður í 3. riðli
Evrópubikarkeppni landsliða og
er staðan í honum nú þessi:
England
Sviss
Grikkland
MaJta
4 4 0 0 12:2 8
5 4 0 1 11:4 8
5 113 3:6 3
6 0 1 5 2:16 1
í Swansea fór svo fram leikur
milli Wales og Finnlands og var
lítiil áhugi fyrir honum, þar sem
aðeins 10 þúsund áhorfendur
komu á völlinn. Wales sigraði
örugglega í leiknum með 3 mörk
um gegn engu og gerðu þeir
Durban, Toshack og Sjeece mörk
in. Leikurinn var liður i Evrópu-
bikarkeppni landsliða, 1. riðli, og
er staðan þar nú þessi:
Tékkóslóvakía 4 2 11 7:1 5
Rúmenía 4 2 11 7:1 5
Wales 4 2 11 5:3 5
Finnland 6 0 15 1:16 1
1 Glasgow leiddu saman hesta
sína lið Skotlands og Portúgals. .
Fór leikurinn fram á Hampden
Park og sigruðu Skotarnir með.
2 mörkum gegn 1, eftir að hafa
haft yfir, 1:0, í hálfleik. Mörk
Skotanna skoruðu þeir O'Hara
og Gemmill, en Rodriques skor-
aði fyrir Portúgal. .1 þessum leik
lék kappinn Esubio sinn 50.
landsleik fyrir Portúgal. Leikur-
inn var liður i Evrópubikar-
keppni landsliða, 5. riðli, og er
staðan þar nú þessi:
Belgía 4 4 0 0 10:1 8
Portúgal 5 3 0 2 9:5 6
Skotland 5 2 0 3 3:7 4
Danmörk 6 1 0 5 2:11 2
1 Belfast léku Norður-lrar og
Rússar og lauk þeim leik með
jafntefli, 1:1. Leikurinn fór fram
á Windsor Park og voru bæði
mörkin skoruð í fyrri hálfleik.
Jimmv Nicholson færði Irunum
forystu eftir 14 mínútna leik, en
Anatolij Bysjovets jafnaði fyrir
Rússa á 32. minútu. Leikur þessi
var liður í 4. riðli Evrópubikar-
keppninnar og eftir hann er stað-
an í riðlinum þessi:
Rússland 5 4 10 13:4 9
Norður-írland 5 2 1 2 9:5 5
Spánn 3 2 0 1 6:2 4
Kýpur 5 0 0 5 2:19 0
Þess má geta að leikurinn í
Belfast var færður fram um tvo
tíma af öryggisástæðum, en þar
þykir ekki fært að efna lengur
til knattspyrnukappleikja eftir
að dimmir.
Martin Chivers ritar nafn sitt fyrir ungan aðdáanda, er hann kom
liingað á dögunum með Tottenham. 1 fyrrakvöld skoraði hann
gott mark í landsleik Engiendinga og Svisslendinga í Basel.
Frjálsar íþróttir
hjá KR
í KVÖLD hefst vetrarstarfið hjá
frj álsiþróttadeild KR, en þá vei-ð-
ur æfing í salnum undir stúku
Laugardalsvallarins og hefst hún
kl. 18.20. Þeir, sem ætla sér að
æfa hjá deildinni, eru hvattir til
þess að mæta, en æfingatímar
verða svo nánar auglýstir síðar.