Morgunblaðið - 02.11.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.11.1971, Blaðsíða 1
4 síður 2. nóvember 1971 Þessi mynd gcfur nokkuð til kynna hvernig aðstæður voru á Melavellinum á sunnudaginn. í ausandi vatnsveðrinu urðu leikmennirnir að fara út í stóra polla til þess að sækja bolt- ann, en pollarnir réðu oft miklu um gang leiksins. Fram náði hraðaupphlaupi, og Ingólfur Óskarsson skoraði. Hann var reyndar kominn vel inn fyrir línu, er hann gerði markið, en dómararnir gerðu ekki athugasemd. Pétur Jóakimsson, sem stóð sig mjög vel í Haukamarkinu, átti ekki möguleika á að verja skot Ingólfs. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.) Framliðið á uppleið — sigradi Hauka 20:15 í fyrsta leik íslandsmótsins FBAMAKABNIR fara sannar- lega vel af stað í íslandsmótinu í handknattleik. Á sunnudags- kvöldið sigruðu þeir Hauka með 20 mörkum gegn 15, en þetta var í senn fyrsti leikur Islandsmóts- ins í ár og fyrsti leikurinn sem fram fer í íslandsmóti í íþrótta- húsinu nýja í Hafnarfirði. Þessi sigur Fram var fyllilega verð- skuldaður. Liðið lék oft á tíð- um skínandi góðan handknatt- leik, einkum þó góðan varnar- leik, og meðan skot Axels Axels- sonar voru stillt á mark Hauk- anna, fengu þeir lltlum vörnum við komið, enda hjálpuðu félag- ar Axels honum óspart að kom- ast í skotfæri, með „blokkering- um.“ —Við erum búnir að æfa vörnina í heilan mánuð, og þetta er árangurintn, sagði einn Framarinn að leik loknum. Karl Benediktsson, þjálfari liðsins, kvaðst vera ánægður með útkom una í þessum leik, og sagði hana benda til þess að liðið væri á Blikarnir í úrslit réttri leið. Að vonum var Jó- hannes Sæmundsson, þjálfari Haukanna, ekki ánægður eftir leikinn. — En þetta er ekki búið, sagði hann, — við eigum eftir að ná okkur á strik. Sannleikurinn virðist sá, að skörðin sem þeir Þórarinn og Viðar sikildu eftir i Haukahðinu eru enn ekki fyllt. Að vísu eru þeir Þórður og Ólafur í betra formi nú, en oft áður, en samt skortir liðið a.m.k. einn leik- mann enn, sem getur ógnað og skotið fyrir utan. Vamaraðgerð- ir gegn liði, sem ekki hefur fleiri stórskyttum á að skipa en Hauk- amir, eru þess vegna fremur auðveldar. En Mnuspilið er hins vegar hin sterka hlið Haukanna, og falleg ustu mörk leiksins á sunnudag- inn skoruðu þeir þannig, t. d., er Sigurður Jóakimsson skoraði annað mark Haukanna. Þá virð- ist Stefán Jónsson í mjög góðu formi og þegar hann fókk smá smugu i hægra horninu, var ekki um nema tvennt að ræða — mark eða vítakast. Hins vegar voru Haukar ákaflega óheppnir með vítaköst sín. Guðjón Er- lendsson varði þrjú þeirra, án mikillar fyrirhafnar. Flestir hafa spáð því að bar- áttan um Islandsmeistaratitilinn í ár standi milli FH og Vals, en hins vegar þyrfti engum að koma á óvart þótt Fram bland- Framhald á bls. 2. Björgvin Björgvinsson lék sinn 100. leik með meistaraflokki Fram í handknattleik. Var hann fyrirliði liðsins í leikmim, og fékk fallegan blómvönd frá fé- laginu, áður en leikur hófst. - sigruðu Fram 1:0 í undanúrslitum - vallarskilyrði og veður þannig, að útilokað var að leika knattspyrnu ÞÁ eru Breiðabliksmenn komn- ir í úrslit í bikarkeppni KSÍ og munu leika þar til úrslita gegn Víkingi. Breiðablik mætti Fram í undanúrslitaleik á sunnudaginn, og lauk þeim leik með 1:0 sigri Breiðabliks. Leikurinn á sunnudag var leik- inn við afar slæm skilyrði, rok var mikið og ausandi rigning all- an þann tíma, sem leikurinn stóð yfir. Völlurinn var mjög lélegur og liðin voru alls ekki fær um að sýna neina knattspyrnu, sem kaldazt getur því nafni, við þessi erfiðu skilyrði. Þessi sigur Breiðabliks var í hæsta máta ósanngjarn. Breiða- blik átti varla marktækifæri all- an leikinn, en Framarar voru mun betri í þessum leik og hefðu átt skilið að sigra. En knötturinn vildi ekki I mark Breiðabliks. Mark Breiðabliks skoraði Guð- mundur Þórðarson á 36. min. í seinni hálflei'k. Hann renndi knettinum frá vítateigshorni framhjá Þorbergi, sem kom út á móti, og knötturinn skoppaði löt- urhægt í mark, án þess að Fram- arar fengju neinum vörnum við komið. Að vísu var Ómar Arason ekki langt frá því að ná til knatt- arins, en tókst ekki. Framarar höfðu fram að þessu átt a.m.k. þrjú mjög hættuleg marktækifæri. Fyrst á 8. mín. fyrri hálfleiks, en þá skaut Jón Pétursson framhjá af markteig, og þeir Kristinn Jörundsson og Amar Guðlaugsson áttu báðir skot í stöng. — En eftir að Breiðablik var búið að ná þessu forskoti, lögðu þeir áherzlu á varnarleikinn og tókst að haida hreinu og ganga sem sig- urvegarar af velli. Það er varla hægt að tala um það, að nokkur leikmaður hafi staðið sig öðrum betur að þessu sinni. Ytri aðstæður voru eins og getið hefur verið, afar slæmar og mótaðist leikurinn mjög af þeim. — gk. • V • ■ Nái Axel Axelsson a*5 lyfta sér og skjóta, er venjulega tæpast hægrt að koma auga á boltann fyrr en hann liggur í netinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.