Morgunblaðið - 10.03.1972, Blaðsíða 10
10
MÓRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1972
í KVIKMYNDA
HÚSUNUM
nk góð,
k sæmileg,
Sig. Sverrir
Pálsson
*** mjög góð, ★★★★ Frábær,
léleg,
Björn Vignir Sæbjörn
Sigurpálsson Valdimarsson
Laugarásbíó:
FLUGSTOÐIN
Myndin gerist á þýðingarmikl-
um millilandaflugvelli, þar sem
hálfgert neyðarástand rikir. Snjó
hefur kyngt niður i miklum
mæli, og svo öhönduglega viii til
að stór vél festist á einni aðfiugs
brautinni, en á sama tíma hefur
önnur vél sig til flugs áleiðis til
Rómar með tvo heldur vafasama
farþega. Annar er gömui kona —
þrautþjálfaður laumufarþegi —
hinn sálsjúkur maður með
sprengju í handtösku sinni. Auð-
vitað sprengir hann gat á flug-
vélina, og hún verður að snúa
við og nauðlenda. Meðan þessu
fer fram eiga sér stað átök í
hjönabandsmálum, þannig að allt
ástand er fremur tvlsýnt.
★ Hvað er hægt að segja um
glansandi, gamaldags am-
eríska „stór-glansmynd-“,
sem ekki er annað hlutverk
ætlað, en að baða sig í ofbirtu
síns eigin dýrðarljóma, áhorf-
endum (vonandi) til skemmt-
unar? Akkúrat ekkert.
★★ í myndinni er eitt „knús-
aðasta plott“, sem sögur fara
af. Flugvallarstjórinn á við
að striða öll þau vandkvæði,
sem hugsazt geta í sambandi
við rekstur eins flugvallar, og
myndin þvi oftast fjarri raun
veruleikanum. Myndin er þó
harla spennandi þegar bezt
lætur og dágóður afþreyjari.
★★★ Kvikmyndalistin sit-
ur kannski ekki í fyrirrúmi í
þessari mynd, en hún er gott
dætni þess er Hollywood tekst
hvað bezt í gerð hreinna
skemmtimynda.
Stjörnubíó:
„OLIVER‘
„Oliver" er byggð á samnefnd-
um söngleik sem sýndur var við
mikla aðsókn fyrir nokkrum ár-
um. Var hann létt útfærsla á
hinni frægu bók Dickens. X stuttu
máli fjallar hún um munaðar-
lausan dreng, sem strýkur at
hæli og heldur til London. Lend-
ir hann þar I þjófaflokki, sem
stjórnað er af forhertum Gyð-
ingi, Fagin. —• Fljótlega er liann
gripinn af lögreglunni og þá er
farið að grennsiast fyrir um að-
standendur hans. Þá fyrst fer
að rofa til 1 lifi hins hrjáða
drengs.
★ ★★ Oliver er einkar faglega
og smekklega unnin mynd,
að mestu laus við þá væmni,
sem annars einkennir þessa
tegund mynda. Sviðsetntng
oft lifleg og stórbrotin. Ann-
ars er það dálítið broslegt, að
það sem Dickens skrifar upp-
haflega sem raunsæja ádeilu,
skuli nú vera snúið upp í sak-
lausan söngleik.
★★★ Dickens mundi senni
lega seint gangast við þessari
útgáfu á Oliver Twist. Sið-
ferðisleg tilfinningavæmni 19.
aldarinnar hefur verið máð
burtu að mestu, og jafnvel ó-
hræsið hann Fagin verður við
kunnanlegur karl í frábærri
túlkun Ron Moody. Vönduð
skemmtimynd, sem óhætt er
að mæla með.
★ ★★★ „Fagin“, væri réttlát-
tri nafngift á þessari mynd,
oar sem að frábær leikur Ron
VXoody yfirgnæfir allt annað,
jnda hlutverkið bitastæðast.
Samt sem áður er „Oliver'1
stórkostlegasta söngvamynd,
sem mig rekur minni til að
aafa séð. Frábær mynd fyrir
alla fj ölskyldumeðlimina.
Erlendur
Sveinsson
Hafnarbíó:
LEIKHUSBRASK-
ARARNIR
Max Bialystock er leikhúsmaO-
ur, sem má muna tvenna tímana.
Nú eru rukkararnir ætíO á hæl-
um hans, og dregur hann rétt
fram lífiO á „ævintýrum“ viO
gamlar kerlingar. En dag nokk-
urn kemur til hans endurskoO-
andi til aO kanna bókhaldið, sem
er ekki í sem beztu lagt. Þá fá
þeir þá stórkostlegu hugmynd
aO grafa upp svo lélegt leikrits-
handrit að öruggt sé aO þaO kol-
falli á frumsýningu. Og ttl aO
tryggja það enn betur, velja þeir
starfsliOið eftir þvi. Safna síðan
nógu mörgum hluthöfum og láta
þá leggja fram meira fé en þörf
er á. Síöan færi allt á hausinn,
engum þyrfti aO borga, en Max
og endurskoöandinn gætu horfiO
á brott með mismuninn.
★★ Hugmyndin, sem liggur
hér að baiki er í rauminni stór
snjöll fyrir gamanmynd. Dick
Shawn og Zero Mostel eru
góðir og í myndinni eru nokkr
ir mjög góðir kaflar En mjmd
in hefur líka einn stóran
galla, og það er tilhneiging
Brooks tll að teygja, ofkeyra
og láta ofleika alla brandara.
★★ Hugmyndin er i sjálfri
sér bráðsniðug en heildarupp-
bygging myndarinnar ójöfn,
þannig að hún fellur nokkuð í
lokin. Nokkur atriði eru af-
bragðs fyndin, þrátt fyrir
mjög ýktan stíl en hann er
vafasöm eftirlíking fyrri
tima. Kvikmjmdagerðin hins
vegar tilþrifalítil.
★★★ Hið bráðfyndna handrit
Brooks, ásamt stórkostlegum
lieik þeirra Mostel, Wilders og
Shawn, hefur myndina upp í
etnn dýrlegasta fársa sem hér
hefuir sézt lengi. Þama hefur
Brooks svo sannarlega tekizt
að gera mynd fyrir humorista,
en þeir sem lítið skopskyn
hafa ættu að halda sig í óra-
fjarlægð frá Hafnarbíói.
Gamla bíó:
FIMM MANNA
HERINN
1 Mexico árið 1914, þegar Hu-
erta hershöfOingi ríkir sem ein-
ræOisherra og bændur eru 1 bylt-
ingarhug, safnar „Hollendingur-
inn“ aO sér fjögurra manna liOi,
mönnum, sem höföu gerzt fræki-
lega brotlegir viö lög. Er ætlun-
in að ræna hálfrar milljónar doll
ara gulisendingu, sem flytja á
meö járnbrautarlest til Huerta.
I fyrstu bjarga þeir Manuel
Estebau, fyrirliöa bændanna írá
lífláti, lenda i útistöðum viO
menn Huerta, en hefjast siöan
handa við hiö eiginlega verkefni.
En áöur en yfir lýkur koma bænd
ur enn við sögu og þá öðruvisi
en ætlað var.
★ Spaghetti-vestri, hvers eina
gildi er tónlist Ennio Morri-
cone (þess, sem samið hefur
tónlist við mjmdir S. Leone),
Persónusköpun er engin og
efnið náttúrlega fáránlegt, en
fáránlegast verður það þó
undir lokim, þegar 4 harðsvír-
aðir bófar og svíðingar
gemast á einu vetfangi hug-
sjónamenn
★ Gerð nákvæmlega eftir for
skrift: Liðssöfnun, óleysan-
legt dollaraverkefni, plan,
óvæntur endir, o. s. frv. í aRa
staði óekta, en tekst þó að
halda nokkurri spenmu. Áber-
andi óvönduð kvikmynd og
hljóðvinnsla.
Nýja bíó:
LEYNILOGREGLU-
MAÐURINN
Joe Leland, heiövirður og dug-
andi lögreglumaöur í New York,
er aö fást viö vandasamt og viö-
kvæmt mál. Sonur eins þekkt-
asta fjármálamanns borgarinnar,
Leikman Jr. finnst myrtur 1 IbúÖ
sinni. ViÖ rannsóknina kemur 1
Ijós aö hann var kynvillingur, og
þykir llklegt aö um .ástrlðumorö*
hafi verið aö ræöa. Leland tekst
aö handsama dularfullan náunga,
Tesla, sem aö lokum viöurkenn-
ir aö hafa búið hjá Leikman Jr.
og drepið hann I afbrýðiskasti.
Rösk framganga Lelands I
þessu málir flýtir fyrir stööu-
hækkun hans. En ekki eru öll
kurl komin til grafar.
★★ Þrátt fyrir það, að mynd
in er gerð í litríkum glamor-
stíl, tekst henni þokkalega að
lýsa þeim óþverra og við-
bjóði, sem leynilögreglumað-
ur í stórborg þarf að fást við
daglega. Næstum því raunsæ
mynd (-f- Sinatra), en kópíu-
eintak hússins er ekki gestum
bjóðandi.
★★★ Mjög góð, harðsoðin
leynilögreglumynd. Frank
Siniatra er kjöriinn I hlutverk
sitt, og hefur sjaldan verið
betri. Handrit Abby Manna er
gott og myndin í alla staði
vel utram.
Tónabíó:
FYRSTA
FATAFELLAN
Æðsti draumur hinnar ungu,
einföldu og aó uppeldi til strang-
trúuðu Rachel Schpitendavel er
að verða dansmær á skemmti-
stað. Hún hefur flúið að heim-
an og kemur til „National Wint-
er Garden Varieté" I New York
árið 1925. Forstjórinn Minsky á
við fjárhagsörðugleika að stríða,
auk fulltrúa siðferðissamtaka,
sem hyggjast gangast fyrir lok-
un staðarins. Minsky fær þá
leifturhugmynd, að Rachel dansi
„bibliudans" staðnum til bjarg-
ar, en eftir að faðir Rachelar hef
ur haft upp á henni lelðir þrá-
kelkni þeirra feðgina til þess aö
fyrsta fatafellan verður ttl.
★ Annaðhvort er ég að tapa
mínu litla skopskyni, eða
þetta er léleg gamanmynd.
Robards og Wisdom eru að
vísu mjög góðir en allar brell
urnar, sem taka upp mestan
hluta myndarinnar og ætlað-
ar eru tii skemrntunar,
hrukku af mér eins og vatn af
gæs.
★★ Frjálsleg og hriessileg en
jafnframt gróflega gerð. í
stað þess að feta einstigi sögu
þráðarins er tíðarandinn sýnd
ur með frumlegum aðferðum,
sem jaðra þó við ofnotkun.
Skemmtamagildið er undir því
komið hversu mikið gaman
megi hafa af ærslaleikj um.
★★ William Friedkin (The
French Connection), gerir hér
marga skemmtilega hluti.
Honium tekst dável að sietja
mann inn í hinn fraimandi,
létta tíðarar.da „The Roa-
ring Twenties“, með ýmsum
snjöllium hjálparmeðulum. En
myndim er langdregin og
Britt Ekland rangvalin í hlut-
verk sveitapíunnair.
Austurbæjarbíó:
HVAÐ KOM FYRIR
ALICE FRÆNKU?
Frú Claire Marrable (Gerald-
ine Page) verður brjáluð, þegar
maður hennar deyr og skilur
hana eftir eignalausa, að þvl er
virðist. Hún finnur þó brátt
lausn á vandamálínu. Hún ræð-
ur tlt sin sæmilega fjáðar, ein-
mana konur, gerir þær að ráðs-
konum, kemst yfir peningana
þeirra og losar sig síðan við þær
á þægilegan hátt. Þetta gengur
vel 1 smátíma, unz hún ræður tíl
sín frú Dimmock (Ruth Gordon),
án þess að vita, að frú Dimmock
var vinkona einnar ráðskonunn-
ar, og að hún ræður Sig, vegna
þess að hún grunar frú Marrable
um græsku. Með lagni tekst
henni að veiða ýmislegt upp úr
frú Marrable, sem fyrir hendingu
síðar, kemst að hinum raunveru-
lega tilgangi hennar ....
★ ★ Það virðist eiga hér vel
við orðtakið „Eins dauði er
annars brauð“, — jafnvel
grenitrén lifa á likum, Þetta
er óneitanlega ein af betri
myndum í þesisum flokki.
Samleikur Gordons og Page
er frábær og kvikmyndun
Josephs Birocs er skemmtilega
hryllileg.
★ Óvenju braigðdamf af „æsi
spennamdi" mynd að vera. Þó
tekur heldur að lifna yfir a1
burðarásinni er Ruth gamls
Gordon kemur inn í spilið. Gei
aldine Page tekst vel að skaps
mjög svo ógeðfellda mannpei
sómu.