Morgunblaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 10
/ 10 MORGUNtBLAÐEÐ, MtÐVIKEJDAGUR 5. APRÍL 1972 f>»ÉG HEFÐI ekki trúað þessu ! að óreyndu," sagði Hinrik ,3Bjarnason, framkvæmdastjóri ['Æskulýðsráðs, unu þann þátt ; páakasamkomu ungs fólks í , Tónabæ að kvöldi páskadagrs, er rimörgf hundruð ungrmenna sam- | einuðust í fiutningi einnar bæn- í ar. Faðir vorsins. „Ég var ekki 'þeirrar skoðunar áður en ég fór & samkomuna, að ungt fölk I myndi sækja hana vegna trú- arbyltingar, heldur vegna þess, [ að þarna átti að frumflytja jpopptónverk eftir þekkta hljóm listarmenn, aðgangur var ókeyp- j ís og unga fóikið hafði fátt ann- j að við að vera þessa kvöldstund. ÍEn svo þegar séra Sigurður fHaukur Guðjónsson hóf mál jsitt, þá tókst honum ekkl aðeims að fá gott hljóð, heldur fékk í Fjölsótt páskasamkoma ungs fólks í Tónabæ hann hvært einasta ungmenni í troðfulium salnum til að fara *með Faðirvorið, og voru þó liljómlistarmennirnir farnir að undirbúa flutning tónverksins, sem var næst á dagskrá. Og unga fólkið var ekki að látast, heidur fór það með Faðirvorið f fullri alvöru.“ Auglýst hafði verið, að dyr Tónabæjar yrðu opnaðar kl. 20.30 um kvöldið og að samkom- an myndi hefjast k. 21.00. Þeir, sem komu að húsinu um kl. 20.30, héldu fyrst, að enn væri ekki búið að opna dyr þess, þvi að úti fyrir stóðu mörg hundr- uð manns. En þá þegar var orð- ið troðfullt innan dyra Tónabæj- ar og hver smuga setin. „Starfs- mennirnir voru ekki mjög marg- ir í Tónabæ þetta kvöld, því að búizt var við rólegu kvöldi,“ sagði Kolbeinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Tónabæjar. „En þeir opnuðu dynnar i granda- leysi sínu nokkru fyrir auglýst- an tíma, enda var þá kominn nokkur hópur fólks að dyrun- um. En svo streymdi fólkið svo ört að og inn, að þeir fengu ékki við neitt ráðið og allt fyllt- ist út úr dyrum. Og ásóknin var áfram gríðarleg og menn reyndu að komast inn um allar dyr á húsinu.“ Talið er, að um tvö þúsund mantis hafi komið að Tónabæ þetta kvöld og varð því meiri- hlutinn f-rá að hverfa, en tal- ið er að innan dyra hafi verið, þegar flest var, hátt í þúsund manns. Gekk erfiðlega að koma inn þvl fólki, sem tók þátt í flutningi dagskrár samkomunn- ar, en þar var stærsti hópurinn Verzlunarskólakórinn, sem flutti lög úr poppóperunni Jesús Krist ur — Súperstjarnian. Var sá flutn- ingur fyrstí liður dagskrárinn- ar, en síðan las Pjetur Þ. Maack, guðfræðinemi, páskaguðspjallið og lagði síðan út af lagi Cat Stevens, popptónlistarmanns, „Morning has broken“, sem er gamall enskur sálmur í nýrri útsetningu. í>á sungu næst ung hjón úr Hvítasunnusöfnuðinuim, Anne Marie og Garðar Sigur- geirsson, tvísöng, og síðan las Magnús Þrándur Þórðarson, verzlunarskóianemi, pistil, sem hann nefndi „Rætur hamimgj- unimanr“. Þá talaði næstur séra Sigurð- ur Haukur Guðjónsson og fékk unga fólkið til að fara með Fað- irvorið. „Það er erfitt að meta þann anda og þá stemningu, siefn þarna var ríkjandi," sagði sr. Sigurður Haukur, „en aug- ljóslega voru unglingarnir mjög ánægðir með tónlistina, sem Etns og sjá má á myndunum, v var setin hver smuga í Tónabæ þetta kvöid. i þarna var flutt, og verkið var að minuim dómi mjög áheyri- legt og vel þess virði að kynna sér það. Hins vegar nýttist hið talaða orð ekki eins vel á sam- komunni, fyrst og fremst vegna þess, að hátalarakerfi hússins er ekki byggt með það í huga. En unglingarnir voru mjög áhuga- samir um allt, sem þarna var sagt og gert, og ég hélt stutta andakt með þeim að lokinni sam komunni og þau tóku þátt í henni af miklurn áhuga.“ Að lokum sagði sr. Sigurður Haukur: „En mér þykir merki- legust í sambandi við þessa sam- komu sú hugarfarsbreyting, sem Verzlnnarskólakórinn söng laga- syrpu úr poppóperunni Jesús Kristur — Súperstjarna og með hlutverk Maríu Magdalenu fór Jóhanna Sveindóttir, en hún hef ur vakið mikla athygli fyrir song sinn. orðið hefur hjá fullorðnu fólki. Þegar bryddað var upp á nýj- ungum sem þessari fyrir 2—3 árum ætlaði allt að verða vit- laust og fullorðna fólkið keppt- ist við að gagnrýma þær og taldi þær engan rétt eiga á sér. Nú er það orðið Ijóst, að það er ekki hægt að sporna við þess urn breytingum, en sú spurning hefur vaknað, hvert þetta muní leiða? Ég get ekki svarað þvi, en hitt finn ég, að unga fólkið er mjög einiægt í þessari leit sinni.“ Síðasta atriðið á dagskrá sam- komunnar var frumflutningur tónve.rksins „Hallgrímur hvað...“ fyrir rafmagnshljóðfæri, trumb- ur og söngraddir. Verk þetta var samið við Passíusálma Hall- grims Péturssonar, og höfund- ar og flytjendur voru Þórður Árnason, Jón Kristinn Cortes, Gylfi Kristinsson, Þorvaldur Rafn Haraldsson og Karl Sig- hvatsson. Ákveðið hefur verið, að sögn Kolbeins Pálssonar, að endurflytja þetta verk, ásamt ýmsum öðrum atriðum, á hljóm leikum í Tónabæ, en ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvenær það verður, eða hvaða önnur atriði verða þar flutt. Þess má geta, að Gylfi Krist- insson, sem var aðalsöngvari í flutningi verksins, söng einnig hlutverk Jesú Krists með Verzl- unarskólakórnum, í forföllum Pálma Gunnarssonar. Gat Gylfi aðein.s æft einu sinini með kórn- um, en þótti engu að síður standa sig prýðilega í flutningi lagasyrpunnar úr óperunni, þetta kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.