Morgunblaðið - 05.04.1972, Qupperneq 10
/ 10
MORGUNtBLAÐEÐ, MtÐVIKEJDAGUR 5. APRÍL 1972
f>»ÉG HEFÐI ekki trúað þessu
! að óreyndu," sagði Hinrik
,3Bjarnason, framkvæmdastjóri
['Æskulýðsráðs, unu þann þátt
; páakasamkomu ungs fólks í
, Tónabæ að kvöldi páskadagrs, er
rimörgf hundruð ungrmenna sam-
| einuðust í fiutningi einnar bæn-
í ar. Faðir vorsins. „Ég var ekki
'þeirrar skoðunar áður en ég fór
& samkomuna, að ungt fölk
I myndi sækja hana vegna trú-
arbyltingar, heldur vegna þess,
[ að þarna átti að frumflytja
jpopptónverk eftir þekkta hljóm
listarmenn, aðgangur var ókeyp-
j ís og unga fóikið hafði fátt ann-
j að við að vera þessa kvöldstund.
ÍEn svo þegar séra Sigurður
fHaukur Guðjónsson hóf mál
jsitt, þá tókst honum ekkl aðeims
að fá gott hljóð, heldur fékk
í
Fjölsótt páskasamkoma
ungs fólks í Tónabæ
hann hvært einasta ungmenni í
troðfulium salnum til að fara
*með Faðirvorið, og voru þó
liljómlistarmennirnir farnir að
undirbúa flutning tónverksins,
sem var næst á dagskrá. Og
unga fólkið var ekki að látast,
heidur fór það með Faðirvorið
f fullri alvöru.“
Auglýst hafði verið, að dyr
Tónabæjar yrðu opnaðar kl.
20.30 um kvöldið og að samkom-
an myndi hefjast k. 21.00. Þeir,
sem komu að húsinu um kl.
20.30, héldu fyrst, að enn væri
ekki búið að opna dyr þess, þvi
að úti fyrir stóðu mörg hundr-
uð manns. En þá þegar var orð-
ið troðfullt innan dyra Tónabæj-
ar og hver smuga setin. „Starfs-
mennirnir voru ekki mjög marg-
ir í Tónabæ þetta kvöld, því að
búizt var við rólegu kvöldi,“
sagði Kolbeinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Tónabæjar. „En
þeir opnuðu dynnar i granda-
leysi sínu nokkru fyrir auglýst-
an tíma, enda var þá kominn
nokkur hópur fólks að dyrun-
um. En svo streymdi fólkið svo
ört að og inn, að þeir fengu
ékki við neitt ráðið og allt fyllt-
ist út úr dyrum. Og ásóknin var
áfram gríðarleg og menn reyndu
að komast inn um allar dyr á
húsinu.“
Talið er, að um tvö þúsund
mantis hafi komið að Tónabæ
þetta kvöld og varð því meiri-
hlutinn f-rá að hverfa, en tal-
ið er að innan dyra hafi verið,
þegar flest var, hátt í þúsund
manns. Gekk erfiðlega að koma
inn þvl fólki, sem tók þátt í
flutningi dagskrár samkomunn-
ar, en þar var stærsti hópurinn
Verzlunarskólakórinn, sem flutti
lög úr poppóperunni Jesús Krist
ur — Súperstjarnian. Var sá flutn-
ingur fyrstí liður dagskrárinn-
ar, en síðan las Pjetur Þ. Maack,
guðfræðinemi, páskaguðspjallið
og lagði síðan út af lagi Cat
Stevens, popptónlistarmanns,
„Morning has broken“, sem er
gamall enskur sálmur í nýrri
útsetningu. í>á sungu næst ung
hjón úr Hvítasunnusöfnuðinuim,
Anne Marie og Garðar Sigur-
geirsson, tvísöng, og síðan las
Magnús Þrándur Þórðarson,
verzlunarskóianemi, pistil, sem
hann nefndi „Rætur hamimgj-
unimanr“.
Þá talaði næstur séra Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson og fékk
unga fólkið til að fara með Fað-
irvorið. „Það er erfitt að meta
þann anda og þá stemningu,
siefn þarna var ríkjandi," sagði
sr. Sigurður Haukur, „en aug-
ljóslega voru unglingarnir mjög
ánægðir með tónlistina, sem
Etns og sjá má á myndunum, v var setin hver smuga í Tónabæ
þetta kvöid.
i
þarna var flutt, og verkið var
að minuim dómi mjög áheyri-
legt og vel þess virði að kynna
sér það. Hins vegar nýttist hið
talaða orð ekki eins vel á sam-
komunni, fyrst og fremst vegna
þess, að hátalarakerfi hússins er
ekki byggt með það í huga. En
unglingarnir voru mjög áhuga-
samir um allt, sem þarna var
sagt og gert, og ég hélt stutta
andakt með þeim að lokinni sam
komunni og þau tóku þátt í
henni af miklurn áhuga.“
Að lokum sagði sr. Sigurður
Haukur: „En mér þykir merki-
legust í sambandi við þessa sam-
komu sú hugarfarsbreyting, sem
Verzlnnarskólakórinn söng laga-
syrpu úr poppóperunni Jesús
Kristur — Súperstjarna og með
hlutverk Maríu Magdalenu fór
Jóhanna Sveindóttir, en hún hef
ur vakið mikla athygli fyrir song
sinn.
orðið hefur hjá fullorðnu fólki.
Þegar bryddað var upp á nýj-
ungum sem þessari fyrir 2—3
árum ætlaði allt að verða vit-
laust og fullorðna fólkið keppt-
ist við að gagnrýma þær og
taldi þær engan rétt eiga á sér.
Nú er það orðið Ijóst, að það
er ekki hægt að sporna við þess
urn breytingum, en sú spurning
hefur vaknað, hvert þetta muní
leiða? Ég get ekki svarað þvi,
en hitt finn ég, að unga fólkið
er mjög einiægt í þessari leit
sinni.“
Síðasta atriðið á dagskrá sam-
komunnar var frumflutningur
tónve.rksins „Hallgrímur hvað...“
fyrir rafmagnshljóðfæri, trumb-
ur og söngraddir. Verk þetta var
samið við Passíusálma Hall-
grims Péturssonar, og höfund-
ar og flytjendur voru Þórður
Árnason, Jón Kristinn Cortes,
Gylfi Kristinsson, Þorvaldur
Rafn Haraldsson og Karl Sig-
hvatsson. Ákveðið hefur verið,
að sögn Kolbeins Pálssonar, að
endurflytja þetta verk, ásamt
ýmsum öðrum atriðum, á hljóm
leikum í Tónabæ, en ekki hefur
verið tekin nein ákvörðun um
hvenær það verður, eða hvaða
önnur atriði verða þar flutt.
Þess má geta, að Gylfi Krist-
insson, sem var aðalsöngvari í
flutningi verksins, söng einnig
hlutverk Jesú Krists með Verzl-
unarskólakórnum, í forföllum
Pálma Gunnarssonar. Gat Gylfi
aðein.s æft einu sinini með kórn-
um, en þótti engu að síður
standa sig prýðilega í flutningi
lagasyrpunnar úr óperunni,
þetta kvöld.