Morgunblaðið - 07.06.1972, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1972
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444^25555
miæifí
BILALEI6A-HVÍFISG0TU 103
14444 S* 25555
SENDUM
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
STAKSTEINAR
Ljótt er,
ef satt er
Alþýðubandalasíiblaöið á
Akureyri birtí íyrir skómmu
ritstjórnargreiu, sem bar yfir
skriftina: Hlutverk Þjóðvílj-
ans. Þar sagði ma.: „Morgun
blaðið er útbreidðast allra
blaða á íslandi og munu fá
dæmi í heiminum um þvilíka
útbreiðslu miðað við fjölda
landsmanna. Við liggur að
blaðið fari inn á hvert heimili
í landinu og það er í ljósi þess
arar útbreiðslu sem áhrif þess
birtast. En jafnframt þvi að
vera langútbreiddasta blaðið
þá mun jafn ílialdssamt blað
vart fyrirfinnast á vestur-
hveli jarðar. Undirlægjuhátt-
ur blaðsins gagnvart banda-
riskum stjórnvöldum er með
þeim endemum að samjöfnuð
mun hvergi að finna í blaða-
heimi Evrópu, ncma ef vera
skyldi eitthvað af hinum í-
haldssömustu blóðum Spring-
er-hringsins i Þýzkalandi og
málgögn fasisnians á Italíu,
Spáni og Portúgal. Þetta blaö
hefur alla tið beitt öHu afii
sínu gegn verkalýðshreyfing-
unni, ef átök hafa staðið yfir
miili hennar og atvinnurek-
enda. Það hefur barizt sem
Ijón gegn því að bandaríski
herinn yrði látinn hverfa frá
íslandi. Mega menn i því sam
bandi minnast sefasýkisskrifa
blaðsins eftir að I jóst’ varð, að
núverandi rikisstjórn stefndi
að brottflutningi herliðsins á
þessu kjörtímabili. í stuttu
máli er blaðið aðalbaráttutæki
heildsala- og lögfræðingaklik-
unitar í Sjálfstæðisflokknuni.
Mannanna, sem vilja viðhalda
og auka hvers konar forrétt-
indi borgarastéttarinnar í þjóð
félaginu." — Ljótt er, ef satt
er.
Stjórnin
hleypur undan
ábyrgðinni
Nýju skattalögiii og lögin
um tekjustofna sveitarfélaga,
er samþykkt vorti á síðasta
Alþingi, mörkuðu verulega
stefnubreytingu í skattamál-
um. Með stórhækkun fast-
eignagjalda hugðist ríkis-
stjórn ólafs Jóhannessonar
snúa við þeirri stefnu, að
auðvelda almenningi að
búa í eigin húsnæði. —
Stefnubreyting i þessum efn-
um er fyrst ag fremst ruimin
undan rifjum sósíalista. Rík-
isstjórnin gerði sér hins veg-
ar grein fyrir því, aö þessi
stefnubreyting myndi mæta
verulegri andsp’yrnu hjá fóik-
inu í landinu.
Til þess að reyna að skjóta
sér undan ábyrgð á eigin gerð
um greip ríkisstjórnin til þess
skollaleiks að ákveða gjsvlda
upphæðina 0,5% af fasteigna
mati ,en „heimild'* var veitt
til að hækka gjaldið í 0,75%.
Öllum var ljóst, að sveitarfé-
iögin yrðu yflrleitt að nota
þessa „heimild“. En Samb. ísl.
sveitarfélaga lagði sasot sem
áður til að heimildin yrði Iiáð
samþykki ráðherra. Ráðherra
vildi hius vegar ekki liafa það
vald að geta hindrað þessa
hækkun, enda var honura full
ljóst, að öll stærri sveitarfélög
in þyrftu á þessum tckjum að
halda. Hann strikaði því út
ákvæðið um það, að hækkun-
in skyldi háð samþykki ráð-
herra.
Það, sem-hér gerðist, er of
ureinfalt. Ráðherra vissi, að
sveitarfélögin þyrftu 0,75%
gjald, vegna þess að aðrir
tekjustofnar höfðu verið tekn
ir af þeim. Hann ætlaði hins
vegar að velta ábyrgðinni af
sér yfir á sveitarféiögin, eins
og raunar liafa verið gerðar
tilraunir til að uadanförnu.
Þess vegna kallaði hann hluta
gjaldsins aðeins heimildar-
ákvæði, en gætti þess ræki-
lega, að ekki þyrfti að sækja
um heimiidina til sín heldur
gætu sveitarfélögin lagt þetta
á, gagnstætt því, sem er utn
heimildarákvæði til 10'/«
hækkunar útsvars, þar þarf
ráðherrasamþykki.
Leiðrétting
í Staksteinum í gær var
fjallað um samstarf Kommún
istaflokks Rúmeniu og Al-
þýðubandalagsins; í niðurlagi
frásagnarinnar urðu þau mis
tök, að talað var um sameigin
legan boðskap „Alþýðublaðs-
ins og Kðmniunistaflokks
Rúmeniu". Eins og öllum má
vera Ijóst, var í þessu tilviki
átt við sameigtnlegau boð-
skap Afþýðubaudalagsins og
Kommúnistal'Iokks Rúmeníu,
enda veit enginn til þess, að
Alþýðublaðið iiafi nokkur sam
skipti við kommúnsstaflokka
austan járntjaldsins; það er
ekki einu sinn víst, að komm
únistar þar vifci, að Alþýðu-
blaðið er til.
Tf 21190 21188
Ódýrari
en adrir!
Snaon
LEIGAN
44-46.
SlMI 42600.
Til sölu
traktorgrafa Marsey Ferguson,
árgerð 1963 með hósi á góðum
ciekkjum, til sýnis og söki hjá
Dráttarvélum hf., sími 86500.
Bútur óshust
Óska eftir að kaupa bát, 24—
26 fet, má vera opinn og vél-
artaus. Sírrvi 25574 eftír kl.
9.30 á kvöldin.
Atli Heimir Sveinsson
Þriðju tónleikarnir eru alís-
lenzkir og verða sunnudaginn 11.
júni.
Síðustu kammertónleikamir
eru miðvikudaginn 14. júní og
leikur þá kvartett Tónlistarskól-
ans.
LISTAHÁTÍÐ
í REYKJAVÍK
ISLENZKIR tónlistarmenn
standa að fjölbreyttum kammer-
tónlistarflutningi í Austurbæjar-
bíói þriðjudaginn 6., miðvikudag-
inn 7., sunnudaginn 11. og mið-
vikudaginn 14. júni.
Auk þeirra koma þar fram
þrír sænskir hljóðfæraleikarar
Thore Janson klarinettleikari,
Rune Larsson fagottleikari og Ib
Lanzky-Otto homleikari, sem er
sonur Vilhelms Lanzky-Ottos, en
hann var hér starfandi tórdistar-
maður um nokkurra ára skeið.
Ib lék fyrir tveimur árum einleik
með Stnfóníuhljómsveit Islands
í hornkonsert eftir Richard
Strauss. Mikill áhugi er fyrir
auknum samskiptum við erlenda
listamenn og bar Félag ísl.
tónlistarmanna fram við fram-
kvæmdanefnd hátíðarinnar til-
lögu um þátttöku Svianna. Sex
islenzk verk verða frumflutt, öll
samin af yngri tónskáldum okk-
ar.
Fyrstu tónleikarnir í gær í
Austurbæjarbiói hófust með því
að Thore Janson, Rune Larsson
og Ib Lanzky-Otto léku verk
Atla Heimis Sveiinssonar „Side
by side“ (1972). — Þá lék
kvartett Tónlistarskólans
strengjakvartett op. 28 eftir Ant-
on Webern, en verk hans hafa
örsjaldan heyrzt hér á tónleik-
um. Að lokum kom svo Oktett
Schuberts fluttur af kvartett
Tónlistarskólans, Einari B.
Waage kontrabassaleikara, Thore
Janson, Rune Larsson og Ib
Lanzky-Otto.
Á næstu tónleikum i dag
leika Jórunn Viðar og Gisli
Magnússon Arudante og tilbrigði
op. 46 fyrir tvö píanó eftir
Robert Schumann. Því næst er
„Plus sonat, quarn valet“ (1971)
fyrir horn, fiðlu, lágfiðlu og
selló eftir Þorkel Sigurbjörnsson
leikið af Ib Lanzky-Otto, Einari
G. Svembjörnssyni, Ingvari Jón-
assyni og Hafliða Hallgrímssyni.
Þá syngur Sigríður E. Magnús-
dóttir Sjö sígenaljóð op. 55 eftir
Dvorák, en Jórunn Viðar leikur
þar með á píanó. Þessum tón-
leikum lýkur með Septett Strav-
inskys. Hann flytja GLsli Magn-
ússon píanó, Einar G. Svein-
björnsson fiðla, Ingvar Jónasson
lágfiðla, Hafliði Hallgri.msson
selló, 7*hore Jcmson klarinett,
Rune Larsson fagott og Ib
Lanzky-Otto horn.
Listahátíðin:
Fjölbreyttur kammer-
tónlistarflutningur
Hljóðfæíaleikararnir Einar Sveinbjörnsson, Ingvar Jónasson, Ib
Lanzky-Otto, Gísli Magnússon, Rnne Larsson og Thore Janson
æía Septett eftir Stravinsky fyrir kammertónleikana.
Glasgow
Stokkhólmur
mánudaga
|1 föstudaga f
Osló
mánudaga
miðvikudaga
föstudaga
Luxemborg
al!a daga
Kaupmannahöfn
^ þFiöjuðaga /
\\ mióvikudaga /J
I fimmtudaga I
1 sunnudaga j
1.maí-3l.okt
LOFTLEIDIR
Farpantanir
ísíma 25100