Morgunblaðið - 27.10.1972, Blaðsíða 4
4
MORGUMBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1972
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
14444S25555
miwifí
BILALEIGA- HVEFISGOTU 103,
14444 ** 25555
BÍLALEIGAN
8-23-47
sendum
AKBJRA UT
SKODA EYÐIR MINNA.
Snaaa
LEIGAR
AUÐBREKKU 44- 46.
SÍMI 42600.
BÍLAR
Arg.
’70 Cortina 1300, bíll í sérflokki
'71 Volvo 145 Deluxe st.
'72 Volvo 144 Deluxe
’72 Chn>sler G T 160, skipti
möguleg
'71 Peugeot 404 st.
'68 Falcon Futura 2ja dyra
'66 Mustang 8 strokka, sjálfsk.
'66 Ford Bronco.
Kappkostum vandaðan og ör-
uggan frágang allra lánsvið-
skipta við sölu og skipti, sem
við önnumst. — Höfum mikið
úrval notaðra bifreiða. — Það
borgar sig að líta við hjá okkur.
BfLASALAN
_ _ SiMÁfí
'ÐS/OÐ S
Borgartúni t.
STAKSTEINAR
„YfirlýsingÉ<
forsætisráðherra
Það þykir alltaf tíðindum
sæta, þegar forsætisráðherra
gefur út yfirlýsingar um
mikilsverð mái. Eðlilega hafa
skoðanir forsætisráðherrans
mikið að segja og því er eðli-
legt að eftir sé tekið þegar
hann talar.
Ólafur Jóhannesson hefur
nú gefið út yfirlýsingu um,
hvernig hann vilji ieysa þann
efnahagsvanda, er hann hef-
ur komið þjóð sinni i. Hann
vill hækka óbeina skatta, en
sjá jafnframt til þess, að sú
hækkun verðlags, er af því
leiðir, komi ekki fram i kaup-
gjaldsvísitölunni. Er þetta
fyrsta yfirlýsing ráðherra nni
hvemig bregðast eigi við
vandanum.
En forsætisráðherrann tók
fram, að hér væri hann ekki
að tala sem forsætisráðherra,
heldur væri hér eingöngu um
að ræða persónulega skoðun
sina. Verður þá að draga af
því þá ályktun, að hann
standi einn með þessa skoð-
un? Þótt Ólafur sé frægur fyr
ir ýmsar gagnmerkar hug-
dettur, er erfitt að trúa því,
að honum hafi flogið þetta í
hug í ræðustólnum og talið
rétt að láta það bara flakka,
— það gerði ekkert til.
Ólafur hlýtur því að hafa
komið fram með þessa skoð-
un sína í ríkisstjórninni, þeg-
ar efnahagsmálin voru á dag-
skrá. Hann hlýtur ennfrem-
ur að hafa komið þessari
skoðun sinni á framfæri i
þingflokki Framsóknarflokks
ins, þegar efnahagsmálin
voru þar til umræðu.
Hafa undirtektirnar þar orð
ið slíkar, að sjálfur forsætis-
ráðherrann hafi ekki getað
talað Iengur sem forsætisráð-
herra, — ekki einu sinni sem
formaður Framsóknarflokks-
ins? Það er vissulega illa
komið fyrir Ólafi Jóhannes-
syni, ef hann nú verður að
tala sem fyrsti þingmað-
ur Norðurlandskjördæmis
vestra, — óbreyttur þingmað-
ur með sérstæðar skoðanir á
efnahagsmálum eins og Björn
Pálsson á Löngumýri.
Hvað verður
um Ólaf?
En hvernig sem litið verð-
ur á yfirlýsingu forsætisráð-
herrans, er ljóst, að nú fara
í hönd strangir dagar hjá
honum. Hann hefur lýst rnjög
ákveðnum skoðunum á lausn
efnahagsvandans. Og hann
hlýtur að reyna að vinna
þeim skoðunum fylgi innan
Framsóknarflokksins og rík-
isstjórnarinnar. Hér er uni
piilUískt líf Ólafs Jóhannes-
sonar að tefla.
Ef ríkisstjórnin ákveður að
taka aðra stefnu í efnahags-
málum en Ólafur vill að far-
in sé, er stjórnin fallin. Það
tjáir ekki fyrir forsætisráð-
herrann að láta bóka and-
stöðu sína i fundargerðarbók
ríkisstjórnarinnar og láta þar
við sit.ja. Slíkt er einungis á
færi Magrnúsar Kjartansson-
ar og Lúðvíks Jósepssonar.
Láti forsætisráðherrann i
minni pokann i ríkisstjóm-
inni er honum ekki nema ein
leið fær. Hún er sú að biðj-
ast lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt.
Og fallist Framsóknar-
flokkurinn ekki á skoðanir
formanns flokksins, er held-
ur ekki nema ein leið fær.
Fiokkurinn verður að fela
öðrum manni forystu sina.
En þótt Ólafur Jóhannes-
son eigi nú í harðri baráttu
fyrir pólitiskri framtíð sinni,
verður ekki sagt, að fall hans
verði þjóðinni til tjóns. Fátt
getur stuðlað meira að lausn
efnahagsvandans en fall þess-
arar ríkisstjórnar.
CfSBP spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringið í sima 10100 kl.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biðjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
HEILARITTJN
Sigurþór Sigurðsson, Skriðu
stekk 17, spyr: „Hvers vegna
kostar heilaritun 175 krónur
á Landspítalanuim, en 2000 kr.
í Domus Medica?"
Ingibjörg Magnúsdóttir,
deildarstjóri i heilbrigðismála
ráðuneytinu, svarar: „Heilarit
un kostar á Landspítalanum
692 krónur, en sjúkrasamlagið
greiðir 517 krónur þar af. —
Sjúkrasamlagið greiðir sömiu
upphæð, 517 krónur, til heila-
ritunar í Domus Medica, en
þar þarf sjúklingurinn að
greiða 1483 krónur sjálfur.
Heilaritunarstöðin í Domius
Medica er einkarekstur nokk
urra lækna og sérfræðinga og
taka þeir fyrir sína þjónustu
samkvæmt sinni gjaldskrá.
Hins vegar er Landspítalinn
rekinn af ríkinu, sem greiðir
með honuim. Einkarekstur
læknanna i Dornus Medica nýt
ur ekki slíkrar fyrirgreiðslu."
HVAö KOSTAR ALÞINGI?
Margrét Kjartansdóttir,
Gautlandi 1, spyr: „Hver eru
iaunakjör þingmanna og hvað
kostar Alþingi?"
Friðjón Sigurðsson, skrif-
stofustjóri Alþingis, svarar:
„Mánaðarlaun þingmanna eru
nú 65.520 krónur. Alþingi greið
ir þeim og ferðastyrk; ferðir
til og frá þingi og ferðir inn-
an kjördæma þeirra, allt að
24 ferðir á ári.
Þá fá utanborgarþingmenn
húsaleigustyrk, sem nemur
allt að 12 000 krónum á mán-
uði og i dvalarkostnað fá þeir
þingmenn, sem búa utan
Reykjavíkur, 540 kr. á dag.
Auk þessa greiðir Alþingi af-
notagjöld af einurn heima-
síma hvers þingmanns og
þann símakostnað, sem þing-
menn verða fyrir í sambandi
við starf sitt.
Af launum sínum greiða
þingmenn skatta sem aðrir og
regiur eru uim, að laun þeirra
þingmanna, sem jafnframt
eru í föstu starfi hjá ríkinu,
skuli skert þar.
Kostnaður við þinghald ár
ið 1971 var 93 milljónir kr.
Á fjárlögum þessa árs eru 109
milijónir króna ætlaðar til
þinghaldsins og á fjárlögum
næsta árs er reiknað með uim
130 milljónium króna til Al-
þingis.“
NÁTTÚRUFRÆÐINÁM
Vigdís Stefánsdóttir, Klepps
vegi 76, spyr: „Hvernig er
hagað náttúru.fræðinámi við
Háskóla íslands?"
Sigurður Friðþjófsson, deild
arfulltrúi í Háskóla íslands
svarar: „Náttúrufræðinám
fellur undir verkfræði- og
rauinvísindadeild. Þar eru
tvær skorir; líffræðiskor ag
jarðfræðiskor, sem veita B.S.
gráðu. Reiknað er með, að
nám þar taki þrjú ár, en þó
mega menn vera fjogur.
f liffræðinámi geta menn
haft sem aðalgreinar til dæm-
is dýrafræði, grasafræði eða
lífefnafræði, en i jarðfræði-
skorinni eru' kenndar jarð-
fræði, landafræði og í vetur
er byrjað með jarðeðlisfræði."
Rússar og „heimurinn“
— keppa öðru sinni í skák
ÁKVEÐIÐ er, að Sovétríkin og
„heimnrinn" keppi öðru sinni í
skák i Hoilandi næsta snmar.
Talað er um, að teflt verði á
tóif borðum og er Skáksamband
Hollands gestgjafi í tilefni lOi)
ára afmælis síns. I)r. Enwe, for-
seti FIDE, mun velja heimsliðið.
Fyrri keppni Rússa og „heims-
ins“ fór fram í Belgrad 1970. Þar
var tefld fjórföld umferð á 10
borðum. Rússar sigruðu naum-
lega með 20'/2 vinnin/gi gegn
19%. Friðrik Ólafsson, stórmieist-
ari, var varaimaður í heirnsliðiniu
og tefldi hann eiina sikák í keppn-
inmi. Heimsmeistarinn nýbakaði,
Bobby Fischer, tefldi á öðru
borði „heimsins" í keppni þess-
ari, en danski stórmeistarinn
Larsem á því fyrsta.
Þrír fórust er
brú hrundi
Reading, 24. okt. AP
Þrír menn biðu bana og
æxtán aðrir hlutn meiðsl er
brú, sem var í byggingu í ná-
grenoi Reading í Englandi,
hrundi saman. 20 nienn fest-
ust í brakinu, en flestum var
bjargað lítt meiddum.
Beinn simi í farskrárdeild 25100
\L0FTWDIRj
Einnig farpantanirog upplýsingar hjá ferðaskrifstofunum
Landsýn simi 22890 - Feröaskrifstofa rikisins simi 11540 - Sunna simi 25060 - FeröesKrífstofa
Lftfars Jacobsen sími 13499 - Úrval simi 26900 - Útsýn simi 20100 - Zoéga simi 25544
Feröaskrifstofa Akureyrar simi 11475
Auk þess fýá umboösmönnum
umallt land
LOFnciam