Morgunblaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1972
14444 a? 25555
mim
jnLAmG^MVmSEOTlíJQ^
14444 S“ 25555
Fa
JJ HILALKIUW
ít ffr:
® 22-0-22-
RAUOARARSTIG 31
BfLALEIGA
STAKSTEINAR
Of seint
Sl iVlllC af æstiistu stuðmngs-
mönnum HannihaLs Vakli-
niarssonar hafa fengið þá
hugmynd, að liann eigi að
verða formaðnr í hinum nýja
fiokki Sameinaða sósíaldemó-
kratafélagsins. Telja þeir, að
hann hafi alla þá kosti, seni
hæfa bezt si-kuni formanni,
fjöiþætta reynslu af for-
mennsku í mörgum félögum,
sérstaka lagni í að sannfæra
kjósendur um að nú hafi
hann einmitt á boðstólum
fiokkinn, sem þá vanhagaði
um, oíí þess utan geðþekkt
útlit hins reyntJa stjórnroála-
roanns.
Fyrrgreind hiisrmynd hefur
feng;ið mjög misjafrsar nnd-
irtektir. Að sönnu viðtirkenna
allir hæfileika Hannihals. En
fleiri eru þó á þeirri skoðun,
að þetta geti hann ekki. Eða
eins og einn reyndur fram-
sóknarmaður sagði: Hannibal
getur ekki eftir öll þessi ár
komið til Alþýðuflokksins og
sagt: Jieja, — nú er ég kom-
inn aftur, — nú <vil ég verða
formaður. Það skiptir nefnl-
Iega ekki máli hvort það nii
liðin fimmtán ár eða fimmtán
misseri, — Iivort tveggja er
of langur tími.
Hvað eru
skattar?
Sú undarlega hugmynd hef
ttr nú skotið upp Uoainum,
að búa verði svo að fólkinu I
landinu, að það fái bætt þær
skattahækkami', sent sam-
þykktar eru af Alþingi. Sagt
er að ríkið eigi að bæta fólk-
inu skattaránið. Hér er á
ferðinni mjög einkennileg rök
villa, og furðulegt að nokk-
nr maður skitli fitja upp á
slíku í alvöru.
Skattar eru og hafa verið
áliigiir á alroenning og fyrir-
tæki í landi til þess að sjá
ríkissjóði fyrir nægu fé. Þeg-
ar Aiþingi samþykklr skatta-
hækkanir er verið að auka
þessar álogur, með öðmm
orðum: að taka nteira fé af
almenningi og fyrirtækjnn-
um. Og ef skattur er lagður
á einhverja er það vegna
þess, iið Alþingi telur rétt að
taka. fé af viðkomandi. Slíkt
verður harm að sjálfsögðu að
þoia bótalaust.
Með þessu er ekki verið að
verja skattpiningu. Hér er
einungis verið að benda á, að
það þýðir ekki að segja við
skattyftrvöld í landinu: Ég
skal samþykkja hærri skatta,
ef ég fæ það bætt.
En hins vegar leiðir þessi
liugsun að öðru skyldu. Hlut-
verk alþingis var lengi fram
eftir að standa í vegi fyrir of
þungum álögtmi á almenn-
img. Slíkt var hlutverk alh-a
þjöðþinga. En bessi forna
hefð er að hverfa, Nú er
það einungis stjórnarandstað-
an sem mótmælir skatta-
hækkun vegna þess að það
tillieyrir. í stað þess að verja
fóikið i landinu fvrir of mikl-
um álögum, ganga þingmenn
á tindan með tillögur nm stðr-
aukna eyðsln úr rikissjóði,
sem til lengdar getur aðí'ins
leitt til hærri skatta.
CAR REIMTAL
21190 21188
BILALEIGAN
AKB'JiAXJT
8-23-4.7
sendum
SKODA EYÐIR MINNA!
Shooh
UICAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
Bílaleiga
GAR RENTAL
LJ* 41660 - 42902
HÓPFERÐIR
Til leigu i lengri og skemmri
ferðii 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
sími 32716.
Hvíldarstólar
í úrvali.
Gamla Kompaníið
Siðumúla 33, simi 36500.
spurt og svarað
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringið i síma 10100 kl.
10—11 frá mánudegí til
föstudags og bið.jið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
Jóhannes Dagbjartsson
Brautarholti 22 spyr.
Hversu háar tekjur getur
5 marrna fjölskyida haft, án
þess að hún fái háskatta, mið
að við að börn séu öll innan
16 ára aldurs ?
Bergur Guðnason lögfræð-
ingur skattstjórans í Reykja-
vík svarar.
Miðað við þær reglur sem
giltu við síðustu álagningu
5 manna fjölskylda haft án
tekjuskatts má setja dæmið
upp á eftirfarandi hátt. Pers-
ónufrádráttur hjóna 220 þús-
und. 3 böm Qg 30 þús. kr.
frádráttur fyrir hvert sam-
tals 90 þúsund, eða frádrátt-
ur alls 31C þúsund. 44% skatt
ur kemur eftir fyrstu 75 þús-
und krónumar, sem eru skatt
skyldar. Þannig getur þessi
fjölskylda haft 385 þúsund
kr. í tekjur án þess að fá
hæstu áiagningu. Ef við
reiknum með að maðurinn
hafi einhvem annan frádrátt
gætu atvinnutekjur hans orð
ið allt að 500 þúsund án þess
að hanin lenti í hæsta álagn-
ingarstiga.
AFNOTAG.1ÖLD
Karl Lúðvíksson Vallar-
gerði 27 spyr.
Hvenær verða felid niður
útvarps- og sjónvarpsgjöld
öryrkja og ellilifeyrisþega?
Giuinar Vagnsson fjármála-
stjóri útvarpsins svarar.
1 nýju útvarpslögunum er
menntamáiaráðherra veitt
heimild til að ákveða x reglu-
gerð að þeir elli- og örorku-
lífeyrisþegar, sem njóta
uppbóta á elli og örorkulíf-
eyri, verði undanþegnir af-
notagjöldum af útvarpi og
sjónvarpi. Reglugerð um út-
varpsrekstur ríkisins, sem
kveður nánar um um þetta
efni mun taka gildi á næst-
unni.
JÓGURT
Erna Ragnarsdóttir Garða-
stræti 15 spyr.
Hvenær er von á hvítri
hreinni jógurt fyrir þá t.d.,
sem litið eru gefnir fyrir sæt
indi, fyTir nýfæddu börnim
og þá sem nákvæmt telja kal
oríur?
Stefán Björnsson forstjóri
Mjóikursamsöiunnar svarar:
Hvít og hrein jógurt er svo
nauðalik þynntu skyri að við
höfum ekki talið grundvöll
fyrir að setja hcina á markað-
inn vegna þess að við teljum
að salan yrði sáralítil.
LANDHELGISS.1ÓÐUR
Auður Guðmundsdóttir,
Hlíðarvegi 29 Kóp. spyr.
Hver hefur yfirumsjón með
landhelgissjóðnum, hver eða
hverjir taka ákvarðanir í
hvað fénu skuli varið?
Ólafur Stefánsson skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðu-
neytinu svarar:
Landhelgissjóður lýtur
stjórn dómsmálaráðherra og
skv. lögum yfir landhelgis-
gæzlu skal sjóðnum varið
fyrst og fremst til að koma
upp strandgæzluskipum eða
öðrum varaniegum tækjum
til þarfa landhelgisgsezlunn-
ar.
Landssöfnun til landhelgis
sjóðs er hins vegar undir yf-
irumsjón sérstakrar stjórnar,
sem hefur markað söfnunar-
fénu ákveðið verkefni, sem
er kaup á varðskipi fyrir
landhelgisgæzl una.
LEIKRITAVAL
Miirgrét Sigurðardóttir Sól
vallagötu 7 spyr.
Hver eða hverjir velja leik
ritin sem flutt eru á fimmtu-
dagskvöldum í útvarpið?
Hjörtur Pálsson dagskrár-
stjóri útvarpsins svarar:
Það eru þeir Þorsteinn Ö.
Stephensen og Stefán Bald-
ursson.
KRISTRtÍN í hamravík
Kristín .lónsdóttir, Nóatúni
32 spyr.
Myndi vera nokkur von til
þess, að Sjónvarpið vildi end
ursýna Kristrúnu i Hamravík
eftir Guðmund G. Hagalín?
.lón Þórarinsson dagskrár-
stjóri svarar:
Leikritið verður áreiðan-
lega endursýnt áður en langt
um líður, en þó ekki alveg
strax.
(35. leikvika — leikir 25. nóvember 1972).
Úrslitaröðin: 1X1 — 221 — 102 —211.
1. vinníngur: 11 réttir — 395.000,00 krónur.
Nr. 9253 (Hafnarfjörður).
2. vinningur: 10 réttir — 55.800,00 krónur.
Nr. 5218 Nr. 28327+ Mr. 49385 + nafnlaus.
Kærufrestur er til 18. des. Vinningsupphæðir geta lækkað,
ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 35. leikviku
verða pósilagðir eftir 19. desember.
Handhafar naflausra seðla verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK.
íslenzknr heimilisiðnnður
ÚTSKORNIR ASKAR OG BLÖNDUKÖNNUR.
HANDOFNAR VÆRÐARVOÐIR.
SILFURSKARTGRIPIR.
Nýjar vörur daglega.
ÍSLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR,
Laufásvegi 2, Hafnarstræti 3.
SÆNSKAR HANDUNNAR GiAFAVORUR
OG JOLASKRAUT.
ÍSLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR,
Hafnarstræti 3.