Morgunblaðið - 14.12.1972, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1972
23
Minning;
Bjarni Erlendsson
frá Víðistöðum
í DAG verður Bjarni Erlendsson
tfrá Viðistöðum jarðsettur frá
Frikirkjunni í Hafnarfirði, en
hann andaðist á Sólvamgi 4. des-
ember sl. Hafði hann verið nærri
rúmfastur í fjögur ár en 1968
varð hann fyrir þvi áíalli, að
taka varð af honum annan fót-
inn ve>gna sjúkleika.
Bjami fæddist 30. marz 1881.
Foreldrar hans voru Erlendur
Bjarnason bóndi i Vogsósum Sel
vogi og kona hans, Sigriður Hans
dóttir.
Átta ára missti Bjarni móður
sína, brá þá faðir hans búi og
tfluttist að Króki í Ölíusi, þrem
árum síðar fór hann til Gtuðrúnar
Magnúsdóttur, Hrauni í ölfusi
og þaðan fór hann eftir fimm ára
dvöl til Reykjavíkur.
f Reykjavík hóf Bjarni nám í
skósmíði en áður en námstíma
l'aufe fékk hann sig lauisan frá
námi og fór til Skotlands, þar
dvaldi hann í hálft ár, kom síð-
an aftur til Reykjavíkur og lauk
áður byrjuðu námi.
sonurinn, Guðjón, lézt 13. októ-
ber 1965, en hann var kvæntur
Ólöfu Erlendsdóttur.
Þótt Bjarni væri hlédrægur
maður, fór ekki hjá þvi að hæfi-
leikar hams yrðu þess valdandi,
að homum væri falin trúnaðar-
störf í þeim. félögum, sem hann
starfaði í, en þau voru möng,
þar sem hann var félagslyndur
í meira lagi. Ekki verður sá þátt-
ur í ævi hans rakinn hér, að
öðru leyti en að minnast starfa
hams i Verkamannafélaginu
Hl'íf.
Á hinum erfiðu árum fyrir sið
ari heimsstyrjöldina og á fyrstu
árum styrjaldarinnar voru um-
brotatímar í isögu verkalýðshreytf
- ingarinnar eins og reyndar í þjóð
félaginu öllu.
Bjarni tók virkan þátt í þeim
átökum og hlaut fyrir trúnað
hafnfirzkra verkamanna og árið
1943 var hann kjörinn í stjórn
Hlífar og átti þar sæti síðan í 11
ár og 1946 til 1948 sat hann í
miðstjóm Alþýðusambands ís-
lands.
Mér er það minnisstætt hversu
mikill stuðningiur það var í öll-
um störfum að njóta reynslu og
þekkin.gar þessa manns, sem
hlotið hafði jafn alhliða þekk-
in-gu og var laus við að sjá mál-
efni aðeins frá einni hlið.
Eigi er hætgt svo sem vert
væri, að gera Skil í stuttri minn-
ingargrein hinni merku og Löngu
ævi Bjarna Erlendssonar og verð
ur því hér staðar numið með
einlægri ósk um að honum verði
að veruleika sú bjargfasta skoð-
un er hann lét otft í ljós, að þeg
ar þessari jarðvist lyki, tækju
við aðrir fegurri og betri heim-
ar.
Hermann Guðmundsson.
Sigríður
Ólafsdóttir
Vér skiljum ekki skaparáð,
þau skipta sælu’ og neyð,
þau flétta saman gleði’ og grát,
þa-u gefa’, en taka’ um l'eið.
Sig. Júl. Jóh.
í DAG fer fram útför vinkonu
minnar Sigríðar Ólafsdóttur,
öldugötu 47. Hún var fædd 27.
janúar 1937 og var þvi aðeins 35
ára að aldri. Hún giftist Jóhann-
esi Þ. Jónssyni og áttu þau tvö
eínileg böm, önnu 9 ára og Jón
Ólaf 7 ára. Hún átti í stríði við
erfið veikindi síðustu ár ævinn-
ar, en aldrei heyrðist hún kvarta.
Ég þekkti hana mjög vel, því að
við lékurn okkur saman þegar
við vorum börn, enda ólumst við
upp í nágrenni hvor við aðra.
Vandaðri og betri stúlku get ég
ekki hiugað mér. Alltaf var hún
kát og glöð og lagði hverju máli
>gott eitt til.
Sirrý mín, þetta áttu bara að
vera örfá kveðjuorð með þökk
fyrir ógleymanleg kynni. Ég er
þess fullviss að þú átt góða heim
von í betri heimi.
Ég sendi vinum og vandamönn
um mínar beztu kveðjur.
Kristín Guðmnndsdóttir.
Minning:
Rúnar Gunnarsson
hliómlistarmaður
RÚNAR Gunnarsson er látinn.
Útförin fer fram í dag. Góður
samstarfsmaður og vinur um
árabil er horfinn, og okkur set-
ur hljóða. Hann var einlægur
aðdáandi fagurra lista og virk-
ur þátttakandi og skapandi bæði
í heimi tóna og lita. Einkum
mun yngri kynslóðinni hann
kunnur fyrir tóna, samhljóma og
söng, en færri var kunnugt um
sérkennilegar myndir, er hann
málaði. Sjálfur hafði hann hins
vegar mikið dálæti á þeirri tóm-
stundaiðju sinni, þótt hann léti
lítið yfir árangri.
Fólk milli tvítugs og þritugs
minnist Rúnars fyrst og fremst
vegna sönglaga hans, sem hljóm
uðu hér um borg og byggð og
hljóma enn. Þau hafa öll sér-
kennilegan blæ og svipmót,
enda þótt hann væri barn síns
tíma og lögin bæru þess vott.
Mörg laga hans hafa verið gef-
in út á hljómplötum og munu
geyma minninguna um laga-
smiðinn og söngvarann. En að-
eins í huga þeirra, sem störf-
uðu með honum geymist hins
vegar minningin um starfsfúsan
félaga og góðan dreng.
Á skilnaðarstund verður okk-
ur tregt um tungutak. Atvik,
stór og smá, gægjast út úr hug-
arfylgsnum. Við geymum þau
með okkur nú, þegar við kveðj-
um í þessum heimi Rúnar Gunn
arsson og vottum aðstandendum
dýpstu hluttekningu.
Ólafur Gaukur,
Þráinn Kristjánsson.
T
Otför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
SIGMUIMDAR KR. ÁGÚSTSSOIMAR,
kaupmanns, Grettisgötu 30,
sem andaðist 9. des., fer fram frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 15. des. kl. 10,30 f.h.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Magnea Bjarnadóttir,
synir og tengdadætur.
Síðan fór hann á ný til
Sfeotlands en nú var dvölin þar
lengri en áður þvi í níiu ár sam-
fleytt dvaldi hann þar, fyrst sem
sjómaður, en siðar í 6 ár um-
sjónarmaður við fiskverkun hjá
samvinnufélagi í Aberdeen. Um
skeið starfaði hann við veðurat-
huiganir uindir handleiðslu
þekkts visindamanns á því sviði,
dr. Charles Williams.
Atvikin höguðu því svo að
Bjarni kom aftur til íslands og
igerðist verksitjóri hjá brezku út-
gerðarfyrirtæki, Bookles Brot-
hers, sem þá rák mikla útgerð
o.g fiskverkunarstöð í Hafnar-
firði. Við þau störf var hann >um
árabil en stundaði líka smáðar
og eru þau mörg húsin í Hafn-
arfirði, sem Bjarni teiknaði og
stóð fyrir smlðum á, á þeim ár-
um.
Brautryðjandi var Bjarni á
sviði lifrarbræðslu og kom upp
i Hafnarfirði í samvinnu við
fleiri, einni fullkomnustu lifrar-
bræðslu, sem þá var til í land-
imu. Af þessu leiddi, að Bjarni
var fenginn til þess að gera teikn
imgar af fyrirhuguðum lifrar-
bræðslum í Keflavik og Sand-
gerði, en kom við atvinmusögu
fleiri byggðarlaga, því hann var
verkstjóri við hafnargerðir á
nokkrum útgerðarstöðum.
Lengi mun Bjarna verða
minnzt fyrir ræktun og búskap
í landi því, er hann fékk til af-
nota árið 1914, en það eru Víði-
staðir fyrir vestan Hafnarfjörð,
sem nú eru komnir inn í byggð
bæjarins.
Árið 1919 kvæntist Bjarni
Margréti Magnúsdóttur, sem
hann missti eftir 41 árs sambúð,
en hún andaðist árið 1960, Þeim
hjónum varð þriggja barna auð-
ið, sem öll komust á legg og
igiftust. Það eru dætumar Krist-
björg, gift Guðmundi Sveins-
syni, og Sigríður Kristín, gitft
Garðari Guðmundssyni, en eini
Að sjálfsögðu geta allir svarað þessari spurningu,
án fyrirhafnar, því SUÐURVER er í miðri leið frá
borginni. til þéttbýlustu svæða í nágrenni hennar.
Við fjölförnustu krossgötur Reykjavíkur er SUÐ-
URVER hentugur viðkomustaður þúsunda, sem
leið eiga um á degi hverjum.
SUÐURVER býður upp á fjölbreytta þjónustu:
H. G. Guðjónsson. Rafeindatækni. Hamrakjör.
Rjötbúð SUÐURVERS. Hlíðargrill. Gjafabær.
Gjafa- og snyrtivörubúðin. Jens Guðjónsson, gutl-
smiður. Skóbúð SUÐURVERS. VAL.VA. Hilda.
Jassballettskóli Báru. Blómabúðin Míra. Austur-
bakki. Hárgreiðslustofan Gígja. Snögg s/f fata-
hreinsun. Fiskbúð. Mjólkurbúð. Tannlæknir.
SUÐURUGR
• * 1 n • »* • v
er sjalrkjorio