Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 11
MOnGWaBLAÐJÐ, LAUGAH-DAtíUR-16. DESEMBEIR 1972 43 Athyg-lin beinist að fjórum tegundum gosefna, og eru þau einkum teUin til rannsóknar. alti má fá trefjar. Tékkar fram leiða til dæmis mikið af slík- um plötum og selja til Bret- lands. Þar eru þesssar plötur notaðar I staðinn fyrir asbest- plötur. En asbesttrefjar geta valdið sjúkdómum hjá þeim, sem vinna við sUka fram Jeiðslu. Til gamans má einnig geta þess, að Rússar framleiða gler- trefjar úr jierlusteini og eru siðan ofin úr þeim gluggatjöld. Ungverjar hafa hafið fram- Jeiðslu á eins konar frauðgleri úr perlusteini, og hefur það verið notað sem einangrunar- pJötur fyrir byggingar- iðnaðinn. • NÍR ÞENSLUOFN VÆNTANLEGUR — Þið eruð sem sagt að gera reglulega könnun á þessu öllu. Hvað eruð þið raunverulega að gera núna? — Verið er að flokka sýni, sem tekin hafa verið í Presta- hnúk, efnagreina þau og gera á þeim efna- og eðlisfræðileg ar athuganir. Það er búið að panta þensluofn til tilrauna með perlustein, og hann er væntanlegur mjög fljótlega. Áður var til iítitl tilraunaofn, en þessi er mtkhi fullkomnari og laetri. Hann verður hjá Rannsók-nastofnun iðnaðarins. Þá er væntanlegur bingað sér- íræðingur frá Ungverjalandi á vegum UNIDO, Iðnþróunar stofnunar Sameinuðu þjóð anna, til að vera með okkur i mánuð og hjálpa okkur við að koma þessum tækjum, sem við erum að fá, í gagnið. En í fyrra var hér Breti frá UNIDO, Todd að nafni í sama skyni. Þá hafa þrir menn úr hópnum, þeir Aðalsteinn Jónsson, Har- aJdur Ásgeirsson og Stefán Arnórsson farið til Rússlands, Ungverjalands, Tékkósló- vakíu, Sviss og Austurríkis til að kynna sér notkun perlu- steins. Hann er til i Rússlandi og Ungverjaiandi og nýtt- ur þar, og Svisslendingar og Austurrikismenn fá perlustein til vinnslu frá Grikklandi. Hafa þeir félagar skrifað gagn lega skýrslu um það, sem þeir kynntust í ferðinni. — Nú höfum við talað mikið um perlusteininn og möguleika hans. En hvað um hin gosefn- in, sem hugsanlega eru nýtileg, svo sem basalt, hraun og vik- ur? — Já, mögulaikarnir virðast mestir í perlusteini. ViB höfum takmarkaðan tima, fjármagn og getu. Hraunið heíur lítið verið athugað, og aðrir hafa farið af stað með vikurinn, sem er fluttur út. Eriendis hafa ver ið gerðar tiiraunir með gler- trefjar í steinsteypu, en gier- trefjar hafa þann ókost, að þær þarf að húða með plast efnum, svo að alkaliefni sem- entsins tæri ekki gierið. í Evr- ópu hafa einnig verið notaðar basalttrefjar I plötur, svipað- ar asbestplötum, og erum við að skoða okkar efni og athuga hvort það er heppilegt til slíkrar framleiðslu. Þess má geta að Bretar eru farnir að nota trefjastyrkt steinrör, en þau eru léttari og meðfærilegri en venjuleg rör. Markaður fyr ir trefjar í byggingariðnaði er mikill erlendis þó hann sé til- tölulega lítill hérlendis. — Er ekki margt sem þarf að athuga áður en hægt er að stofna fyrirtæki og fara að íramleiða slika hluti? — Jú, það vill oft brenna við á ísJandi þegar eitthvað nýtt er á döfinni, að byrjað sé á því að stofna fyrirtækið. En við teljum að fyrst verði að athuga ýmis atriði s.s. stað- setningu og magn þeirra, gera efnisrannsóknir, kanna nýting- armöguleika og athuga mark- að, svo nokkuð sé nefnt, og þá er Joks komið að fyrirtækinu sjálfu, fjármögnun þess og framkvæmd. — E. Pá. Auglýsing um loðnuveiftar í fiotvörpu. Þeir skipstjórar, sem hug hafa á því að stunda loðnuveiðar í flotvörpu á komandi loðnuvertíð, skulu senda umsóknir um leyfi til slíkra veiða til sjávarútvegsráðuneytisins eigi síðar en 22. desem- ber nk. Búast má við því að umsóknir, sem berast eftir þann tíma, verði ekki teknar til greina. í um- sóknunum skal greina nafn skipstjóra og nafn og númer báts. Sjávarútvegsráðuneytið. Erlendis greiðir fólk hátt verð fyrir tízkufatnað okkar úr íslenzkri ull. Þér getið notið þess að kaupa vöruna á lægra verði f heimatandinu. Komið og veljið úr útflutningsvörum i verzlun okkar á horni Bankastráetis og Þingholtsstraatis. f Þingholtsstræti 2 Sími 13404 SJÁLFVIRKAR KAFFIKÖNNUR EMIDE, sjálfvirka kaffikannan, er það nýjasta í kaffilögun og það tekur aðeins örfáar mínúttur að laga kaffið. Innbyggð hitaplata. — VERÐ KR. 4.473.00 — — TILVALIN JÓLACJÖF — HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.