Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. DESEMBBR 1972 45 túrgarður og loks er hring- myndað útileikhús fyrir aftan bygginguna. 1 sambandi við kaffiteríuna, sem telst mjög mikilvægt þjónustuatriði varð- andi söfn og stórar sýningar- hallir, ber að geta þess, að hún hefur ekki komið af stað neinni mótmælaöldu svo sem gerðist er Lousiana I Humle- bæk opnaði fyrir fjórtán árum. Kreddufullir listunnendur héldu því þá blákalt fram á op inberum vettvangi, að ekki væri mögulegt að samrýma list og kaffidrykkju hvað þá enn afleitari samsetningu svo sem væri list og öl! Fólk virðist nú, sem betur fer, hafa etið og drukkið sig burt frá þessum fordómum, alla vega hefur sézt til aðalmótmælenda kaffiterí- unnar á Lousiana með vinar- brauð eða snittu í hendi þar, án þess að séð væri að liðu af samvizkubiti. Væri gengið á þá, viðurkenndu þeir umyrðalaust, að þeir væru einfaldlega svang ir! Loks hefur umburðarlynd- ið gengið svo langt, að fólk sem hrífst af list, getur leyft sér að verða matarþurfi, jafn- vel einnig þyrst. Því hefur Listasafn Norður-Jótlands feng ið sína kaffiteríu án mótmæla, og það er einnig í sjálfu sér mikil framför. Listasafn Norður-Jótlands á nærri hundrað ára sögu að baki sér, og bjó að opnun nýju byggingarinnar í Sögu- safni Álaborgar við svipuð skil- yrði og t.d. Listasafn Islands. Það var ekki fyrr en árið 1967 að listasafnið fékk faglegan forstöðumann, sem var listfræð ingurinn Lars Rostrup Böye- sen, og átti safnið þá 350 mál- verk og 275 höggmyndir. En það varð fljótt ljóst að gæði þessara mynda einna réttlættu ekki safnbyggingu, sem stæði undir æskilegum og áætluðum kröfum. Var því tekið til i a n k'puleggja f'". ’ "t fr ' ■ ■’+um, ’ 'inntg að safnið gæti verið í samræmi við hinn glæsilega ytri ramma þess. I því skyni festi safnið sér hið mikla og einstaka safn listhöfð ingjanna Önnu og Kresten Krestensen, en það varð ekki gert án mikillar baráttu varð- andi fjárhagslega hlið málsins, en ‘msir sjóðir urðu til að létta þá byrði auk borgarsjóðs Ála- bo-v'n-ar. Safn þetta telur Líkan af Listasafni Silkiborgar framtíðarinnar. 400 verk nútíma danskrar og erlendrar listar frá tímabilinu 1915—‘60, og er stór hluti þess úrvalsverk Cobra-istanna svo- nefndu, og verk þeirra uppi- staða safnsins I dag. Anna og Kresten Krestenssen voru tannlæknar að mennt, sem starf ræktu stórar og umsvifamikl- ar tannlæknastofur, og ráku auk þess verksmiðjur sem önn- uðust tanntækni, og er því óhætt að slá þvi föstu, að skemmdar tennur hafi fjármagn að þetta einstæða safn þeirra, og r ■ raunabót að vita, að jafn vel tannskemmdir geta komið góðu til leiðar! . . . Meðal höfunda mynda úr safni þeirra, sem þar áttu verk er mig bar að garði, má nefna As- ger Jorn, Richard Mortensen, Carl Henning Pedersen, Eijler Bille, Egil Jacobsen og Svavar Guðnason (6 myndir). Þá eru þar einnig myndir eftir Corn- eille og Carel Appel, ennfrem- ur alþjóðleg nöfn meistara svo sem Picasso, Magnelli, Dey- rolle, Dewasne, Poliakoff, Veggur við Listasafn Silkihor gar, stækkuð mynd eftir Jean Dubuffet. Vasarely, Herbin og Max Ernst. Af eldri danskri list má nefna Lundström, Giersing og Jens Söndergaard og eru þeir vel kynntir þar. Svo er töluvert um höggmyndir bæði úti og inni og þar ber mikið á Eng lendingnum Lynn Chadwick og Dananum Robert Jacobsen, einnig er þar innan dyra stór tréskúlptúr eftir Sigurjón Ólafs son. En annars er auðséð að nokkurt handahóf hafi einkennt innkaup safnsins fyrir tíma nú- Verandi forstöðumanns, og má segja að allt safnið sé enn í mótun og eigi eftir að fá sinn sterka og samræmda heild arsvip. Áætlaður kostnaður við bygginguna var 14.6 millj- ónir d.kr., en varð 21 milljón, og þykir svo dýrt að til um- ræðu hefur dregið. Sagt hefur verið að Alvar Aalto hafi öðl- azt hugmyndina að safn- byggingunni í siglingu á ánni Níl, og sannast hér að snjöil hugmynd sigrar jafnt fjarlægð ir sem andstreymi, því furðu gegnir að Danir fengu reist þetta mikla safn á tímum mestu sparnaðaröldu og öngþveit- is, sem gengið hefur yfir þjóð- ina á síðari tímum. — Safnbyggingin í Árósum er hvorki rismikil né fjölskrúð ug hið ytra, hér er nánast um einföldun að ræða þannig að byggingin getur leitt hugann að nokkurs konar safnþró (sbr. kolaþró). En þvi meir undrast maður er inn kemur, hve öllu er þar haglega fyrir komið, og hve lýsing er þar traust og jöfn, án alls íburðar. Sem bvggingarlist er safnið fullkom in andstæða norður-józka safns ins, og hefur vissulega kostað stórum minna. Þá er það einn- ig þróaðra sem safn, og þar hafa smekkvísir fagmenn sýni- lega annazt innkaup. Safnið er nokkuð stórt og geymir viða- mikið úrval af danskri list innan veggja, hvort tveggja eldri sem yngri. Hinu nýjasta í nútínialistinni er þar ekki út- hýst, því að alþjóðlegt popp get ur þar einnig að líta (Andy Warho! o.cl.) svo og hina yn.gstu dön-'ku. fram.úrstefnulista- menn. Þetta safn kom mér mjög á óvart, einkum fyrir hug- þekkt og rólegt andrúm i öll- um sölum. En þarna vantar þó kaffiteríuna, svo gestir geti hvílt hugann við kaffibolla eða ölkollu og hugleitt áhrif alls þess, sem fyrir augu ber. Með al verka frá fyrri helm- ingi þessarar aldar mátti m.a. sjá málverk eftir Jón Stefáns- son, og var áberandi hve form hugsun í verki hans var skýr- ari og órómantískari en í öðr- um nálægum myndum. Var þetta því miður eina islenzka verkið sem ég varð vár við á safninu. Myndlistarsafn Silkiborg- ar, sem kennt er við velgjörð armann þess Asger Jorn, er um margt áhugavert, en það er þó framtíðaráætlun Jorns um bygg ingarframkvæmdir yfir safnið sém er áhugaverðust. Eftir lík ani af safninu að dæma yrði hér um eitt viðamesta safn nú- tímalistar í Evrópu að ræða, og um leið frábært afrek. Jorn, sem er heimsfrægur, mun hafa ævintýralegar tekjur af listsköpun sinni, enda er mað- urinn víkingur að starfi og stefnir að því að láta safn- bygginguna njóta þess. Til bráðabirgða, á meðan draum urinn þróast til veruleika er safn hans til húsa i mennta- skólabyggingu. Safnið er lítið en þó mjög áhugavert, og auð- sætt er að það hefur geysilega þróunarmöguleika jafnvel þótt einungis hálfur draumur Jorns rætist. Þar mun einnig eiga að vera til húsa mesta safn norður Evrópu af nútíma grafík, en sú deild var lokuð er mig bar að garði. Að síðustu vil ég aðeins víkja að heimsókn minni í forn minjasafn Silkiborgar, en þar gat að líta frægasta framlið- inn fornsögulegan þegn Dana- veldis, hinn svonefnda „Tollund mand“. Maður þessi er talinn hafa verið líflátinn með heng- ingu fyrir tvö þúsund árum og líki hans síðan varpað í mýrar- fen. Svo hagar til, að í þessum mýrum er mikið af sútunarsýr- um, en slíkar sýrur finnast ein- ungis i mýrarfenjum Norðvest- ur-Evrópu. Maðurinn hefur þannig sútazt í mýrinni, og svo vel hefur lík hans geymzt ?ð líkast er sem hann hvíli í djúp- um svefni, og jafnvel fundust ieifar síðustu máltíðar hans í meltingarfærum hans. Þannig reyndist einnig unnt að ákvarða að hann hafi neytt hinnar síð- ustu máltíðar 12 -24 klukku- stundum fyrir dauða sinn, og jafnframt að sú máltíð hans hafi verið grautur, sem einkum var saman settur af byggi, ávexti af blöðkujurt, ásamt hör fræi og krossblómafræi. Við framræslu mýranna og mógröft hafa nokkur slík lik fundizt, en ekkert þeirra hefur varðveitzt jafn vel og Tollundmaðurinn. Að öllu samanlögðu er fyrirbær ið talið einstætt að sögulegu gildi. Meðal margs annars mjög áhueaverðs sem sjá mátti á þessu safni, vöktu sérstaka athygli mína listfléttingar úr mannshárum í alls kon- ar mynstri gerðir af mikl- um hagleik Lengra verður ekki haldið i þessum þætt: og lýkur því að segja frá myndrænu sviði Jóía. Lislahöfðinginn Kresten Krest- enssen, brjóstmynd eftir Helge Holmskov. Listasafnið í Árósum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.