Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 24
56 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. DESEMBEIR 1972 BÆKUR HEIMUR DANIELS LeifPanduro Rithöfundur ársins Lelf Panduro er ekki aðeins einn mest lesni höfundur Danmerkur heidur einnig einn sá bezti. Fyr- ir bókina Heim Daníels sæmdu danskir bóksalar hann „gullnu lárviðarlaufunum" og útnefndu hann rithöfund ársins. Síðar sama ár fékk hann svo hin virtu bókmenntaverðlaun dönsku aka- demiunnar. „Bókin er skemmtileg ... Hún er aðgengileg og skrifuð í léttum tón. En hún er miklu meira. Pan- duro er ekki bara að hugsa um að skemmta okkur.“ Christian Kampmann, ' Information „... sérlega heillandi eru kafl- arnir um Lailu. Hún er blátt áfram töfrandi ... eitt það ynd- islegasta sem Panduro hefur skapað." Hakon Stangerup, B.T. ÁSI í BÆ SJÓR ÖL OG ÁSTIR ) IÐUNN' Sjómanna- bókin í ár Sjór, öl og ástir eftir Ása i Bæ er óumdeilanlega sjómannabókin f ár. Lifskvikan f bókum hans er iýsing sjávarins og sjómennsk- unnar og enginn hefur náð slík- um tökum á að skrifa um sjó og sjómenn og Ási i Bæ. . „Ási í Bæ er listilegur frásagn- armaður ... Lýsingar hans af sjó, bátum, veiðum og mönnum eru oft og einatt frábærlega góðar, sannar og sterkar." Andrés Kristjánsson, Tíminn. Bezta bók Tove Ditlevsen Gata bernskunnar er kunnasta skáldsaga dönsku skáldkonunn- ar Tove Ditlevsen. Hún byggir á minningum skáldkonunnar frá æskuárum hennar, en fyrst og fremst er hún sönn og nærfærin lýsing á uppvexti ungrar stúlku. Þetta er önnur bókin sem kemur út á íslenzku eftir Tove Ditlevsen. Fyrri bókin var end- urminningar hennar, Gift, sem hlaut frábærar móttökur ís- lenzkra lesenda og seldist nær alveg upp. Um hana sögðu gagnrýnendur m. a.: - ... frábær bók, heiðarleg, falleg og áhrifamikil ...“ Hakon Stangerup, B.T. „Einstæð lýsing á gleði og sorg, á lífi konu og raunveruleika samtimans." Ole Schröder, Extrabladet.. Shotu' SiQþU&OK FERÐIN FRX brekku Þjódkunnur merkismaður Síðasta bindi endurminninga Snorra Sigfússonar, eins merk- asta manns samtíðarinnar. Hér segir frá mikilvægustu þáttum ævistarfs hans: skólastjórn á Akureyri og námsstjórn norðan lands og austan. Andrés Krist- jánsson segir réttilega í aðfara- orðum bókarinnar: „Þeir sem þekkja Snorra Sigfússon per- sónulega, vita að hann er eng- um manni líkur að fjöri sínu, áhuga og starfsþreki, enda er ævistarfið eftir því.“ Ástir og átök Hann er ungur og gáfaður blaðamaður í París, fulltrúi lífs- leiðans og léttúðarinnar sem einkennir þann heim sem Fran- goise Sagan er svo tamt að lýsa. Hún er eiginkona vel met- ins efnamanns utan af landi, heilsteypt og ástríðufull kona, ólík hinum fyrri kvenhetjum Sagan. Henni leiðist ekki, hún óttast ekki alvöru lífsins, hún hefur áhugamál og leggur rækt við þau. Um ástir og átök þess- ara tveggja ólíku mannvera skrifar Frangoise Sagan af ó- venjulegu innsæi og djúpum skilningi. „Sól á svölu vatni er verk full- þroska höfundar, raunsæ, spennandi og áhrifamikil saga.“ Bent Holm, Politiken „Frangoise Sagan er næm á samskipti karls og konu ... Sól á svölu vatni er full af lífi ... og skrifuð af kunnáttu og innsýn." Jóhann Hjálmarsson, Mbl. ni- s íicimöraai íslenzkur J'róðleikur qamall o<j ny£> r Islenzkir frásagnaþættir Fjórða bindi Heimdraga flytur eins og fyrri bindin margháttað- an fróðleik, gamlan og nýjan, víðsvegar að af landinu. Af efni þessa nýja bindis má nefna ýt- arlegan frásöguþátt um fjölgáf- aðan hagleiksmann, Vestur- heimsfarann Eymund Jónsson í Dilksnesi, frásögn Hannesar Péturssonar um átakanlegt slys í Skagafirði, þátt Þorsteins frá Hamri um Jörvagleði, o. fl. Rómantísk og spennandi Alveg frá því að Glen Chandler fjarlægði kambana úr Ijósu hári Dinu f fyrsta sinn, virtist Dina lúta vilja hans’í einu og öllu. Hún giftist Glen án þess að hafa litið Háturna augum, hið afskekkta ættarsetur hans við Grásteina- vatn, þar sem móðir Glens drukknaði á voveiflegan hátt. En Dina sem sjálf er barn vorsins, veit ekki að Chandler fólkið er fólk vetrarins — jafn kalt og sjáifur ísinn umhverfis Há- turna ... Höfundur bókarinnar, Phyllis A. Whitney, er viðkunnur banda- rískur metsöluhöfundur. Áður hafa komið út eftír hana á ís- lenzku bækurnar: Undarleg var ieiðin, Kólumbella og Græni frakkinn. Kjörnar bækur handa öllum, sem vilja rómantískar og .spennandi ástarsögur. Jólagjöf skákmannsins Miðtaflið eftir Znosko-Borovsky fjallar ,,um almennar hug- myndir og meginreglur, sem ekki breytast að ráði, þótt tízka í taflbyrjunum sveiflist til og þekking manna á öllum þáttum skáktaflsins aukist. Þessar hug- myndir og reglur eru grundvöll- ur rökrænnar taflmennsku,'' eins og. Guðmundur Arnlaugsson kemst að orði í formála bókar- innar. IÐUNN, Skeggjagötu 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.