Morgunblaðið - 22.02.1973, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1973
Ólafur Jóhannesson:
Þakkaði forsætisráðherrunum
með handabandi
Forsætisráðherra ber af sér „ámæli“
ÓLAFUR Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, kvaddi sér hljóðs utan
ðagskrár í neðri deild i gær,
vegna fréttaskeyta frá frétta-
mönnum Morgnnblaðsins og Al-
þýðublaðsins á þingi Norður-
landaráðs. Rakti forsætisráð-
herra afskipti sín i sambandi
við ákvörðun Norðuriandaráðs
Um að veita íslendingum aðstoð
að upphæð 100 milljónir d. kr.
vegna atbiu-ðanna í Vestmanna-
eyjiun. Ólafur Jóhannesson gaf
Bkýringu á hvers vegna hann
hefði ekki verið við endanlega
afgreiðslu málsins og sagði m.a.
að hann hefði verið búinn að
gera ferðaáætlun áður en þingið
höfst, en þá hefði ekkert verið
vitað hvenær þetta umrædda
mál myndi koma á dagskrá
þingsins. Þá hefðu fréttir af
Síðustu atburðum í Vestmanna-
eyjum heldur ýtt undir heim-
ferð hans en hitt. Auk þess
hefði sér þótt fyllilega viðeig-
andi, að einn úr þingmanna-
sendinefnd íslands fiytti þinginu
þakkir, enda væri það fyrst og
fremst þingmannasamkoma.
Ingólfur Jónsson benti á, að
fréttaskeyti fréttamannanna
hefðu verið algjörlega áreitnis-
laus gagrnvart forsætisráðherra.
Þeir hefðu einungis sagt, að það
hefði vakið athygli að forsætis-
ráðherra hefði verið farinn af
þinginu, er tillagan var samþ. ein
róma, og að óviðurkvæmilegt
hefði þótt, að hann hefði ekki
verið til staðar til að þakka ráð-
inu.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra: — 1 fréttaskeyti frá
fréttaritara Margunblaðsins á
Norðurlandaráðsþingi, sem birt
er á forsíðu blaðsins í gær, seg-
ir m.a.: „Það hefur vakið mikla
atlhygli hér, að Óliafur Jóhannes-
son forsætásráðherra hélt heim-
ledðis en var ekki viðstaddur
fund ráðsins í dag, þar sem til-
liagan var afgreidd."
1 fréttaskeyti, sem birt var í
Alþýðublaðinu var á þessu hert:
„Sem fyrr segir fór Ólafur Jó-
hannesson forsætisráðherra frá
Osló á þriðjudagsnriorgun,
wokkrum klukkustundum áður
en tillagan kom til umræðu.
Vakti það athygli margra að
farsætisráðherrann skyldi ekki
bera fram þakkir fyrir hönd Is-
lendinga á fundinum.“ Ég tel
mig ekki geta setið undir þess-
um fréttum, þvi í þeim felst
Réttaráhrifum
enn frestað
ÓLAFUR Jóhannesson forsætis-
ráðherra mœlti fyrir frumvarpi
í efri deild, þess efnis, að viss-
um réttarathöfnum, sem frestað
hefði verið með lögum til 22.
febrúar vegna ástandsins í Vest-
mannaeyjum, yrði enn frestað.
Sagði ráðherrann, að ekki hefði
tekizt að kama högum manna i
það horf, sem þyrfti, og væri
því frestur enn nauðsynlegur.
Sagði hann að frumvarpið væri
fkiitt að beiðni stjórnar Viðlaga-
sjóðs. Frumvarp þetta varð að
lögum samdægurs.
99*
mikið ámæli í minn garð. Þess
vegna vil ég nota þetta tæki-
færi tii þess að gera Alþingi
grein fyrir störfum mínum og
gefa nokkra skýringu á, hvers
vegna ég var ekki viðsitaddur á
Norðurlandaráði, er tillagan var
endanlega afgreidd. Málið átti
sér nokkurn aðdraganda á þing-
inu, þar tdl Norðurlandaráð sam-
þykkti endanlega liðstyrkinn við
íslaod vegna jarðeldanna í Vest-
mannaeyjum. Ég tók þetta fyrst
fyrir á fundi með samsitarfs-
nefnd forseta þingsins og for-
sætisráðherra og síðan á fund-
um forsætisráðhemanma. T. d.
ræddi ég þetta á þremur fund-
um með forsætisráðherrunum.
Þessi mál bar mjög á góma við
alimenmar umræður, og þar létu
margir ráðherrar og eimistiakir
þin-gmemm vimsamnleg orð falla í
okkar garð, og voru með mikl-
ar áskoranir tál hinna Norður-
landanma, um að hlaupa dremgi-
lega undir bagga með okkur.
Of lam.gr yrði að nefna einstök
nöfn. Vissule a. höfðu þó for-
sætisráðherrarnir mest að segja,
og í raun og veru áttu þeir síð-
asta orðið. Því er ekki að leyna,
að ýmsir höfðu í huga ailveru-
lega minni upphæðir, en raun
varð á. En fyrir einröma afstöðu
sem kom fram hjá þimgfulltrú-
um og fyrir velvilja ýmissa emb-
ættismanna og viðræðna milli
forsætisráðhemainma, varð raum-
im sú, sem mömnum er kunn-
ug.
Mitt hlutverfc, eins og það
reyndist, var að gera grein
fyrir ástandi og horfutm og gefa
yfirlit eins og hægt var yfir
ástandið og taka eimnig skýrt
fram að enginn gæti sagt hvað
yrði.
Ég lagði fram fyrir forsætis-
ráðherrama þýðimgu á lögumum
um Viðlagasjóð og neyðarráð-
stafanirmar. Óhætt er að full-
yrða, að það hafði nokkur áhrif
á þá, er þeir sáu hvað íslend-
ingar voru þegar búnir að
leggja á sig til þeiss að mæta
vandanum, sérstaklega miðað
við heildarálögur á þjóðina að
jafnaði. Á mámudagimn kl. 3
héldu forsætisráðherrarndr fjórir
fund um málið. Ég óslkaði ek’ki
eftir þvi, að verða á þeim fundi,
og skyldu þeir það. Ekki var
hægt fyrir mig á slíkum fundi
að nefna einhverja ákveðna tölu
í þessu sambandi.
Þeir samþykktu á þessum
fundi að veita 100 milljónir
danska.r í aðstoð, og eru þá
taldar með þær 25 milljónir
danskar, serni áður höfðu verið
ákveðnár. Eftir þann fumd var
haldimm fundur með forsetum
þingsins ag forsætisráðherrun-
um. Ákveðið var að forystumenn
sendisveitanna færu með frum-
varpið hver í sína sendinefnd.
Gerðist það í gær á fundi kl. 9.
Kl. 10 var haldinn sameiginlegur
fundur með forsætisráðherrun-
um og forsetum ráðsins, og þar
gátu þeir skýrt frá þvi, að til-
laga forsætisráðherranna hefði
verið samþykkt umræðulaust og
einróma i öllum sendinefndun-
um. Þar með var raunveruleg
ákvörðun fengin. Á fundinum
þakkaði ég með nokkrum orðum
fyrir þesaa afgreiðslu.
Auk þess, þar seim ákveðið
var, að ég færi heim kl. 12, og
það varð ég að gera til að kom-
ast heim í gærdag, vil ég geta
þess, vegna þeirra sem alltaf eru
tortryggnir í minn garð, að ég
kvaddi hvern einasta forseta
ráðsins með handabandi og
þakkaði þeim fyrir. Sömuleiðis
kvaddi ég forsætisráðherrana
með handabarvdi og þakkaði
þeirn fyrir, nema Anker Jörgen-
sen, en harn hafði þurft að fara
fyrr, og hafði ég áður þakkað
honium, eins og sjálfsagt var.
Ákveðinn hafði verið fundur í
ráðinu kl. 2 og þar var tillagan
lögð fyrir og afgreidd. Vitaskuld
er hér aðeins um tilmæli til ríkis-
stjórna Norðurlandanna. En með
því að þetta var tillaga forsæt-
isráðherranna, sem samþykkt
var, er pólitísk trygging fyrir
því, að tállagan komisit í fram-
kvæmd. Endamlegur úrskurður
alls ráðsins var ekki kominn
áður en ég fór. Þannig stóð á,
að ég hafði í upphafi gert mér
ferðaáætlun og pantað miða og
þá reynt að hafa í huga að haga
ferðinni þannig að vera ekki
lengur frá, en mauðsyn krefði.
Og mér hefur nú skilizt, að
áherzla sé lögð á að menn eyddu
eklki of löngum tíma í ferðir er-
leradis. Seinasti dagur þingsins
fer 'nær eingönigu i atkvæða-
grei’ðslur og voru margir hinna
ráðherranina horfnir af þinginu,
enda hafa ráðherrar ekki at-
kvæðisrétt, og eru þeir því í
raun búnir að Ijúka erindi sínu
á þinginu og því ekfcert óvenju-
legt að þeir sitji ekki út þingtím-
ann, ég myndi segja að það væri
regla.
Auðvitað má segja, að ég
hefði getað breytt ferðaáætlun-
inni, en ég verð að segja hrein-
skilnisiega, að þær fregnir, sem
bárust til Osio um ástandið í
Vestimanraaeyjum, þær urðu til
þeas að ýta undir ferð mikia
heiim fremur en hitt.
Áður en ég fór bað ég for-
mann íslenzku sendinefndarinn-
ar, Jón Skaftason að þakka fyrir,
er tillagan hefði verið afgreidd.
Það tel ég hafa verirð mjög við-
eigandi. Það voru tveir ráðherr-
ar eftir á þiniginu, og kom til
mála að annar hvor þeirra þakk-
aði fyrir. En þar sem þarna fór
fraim þingfundur, þar sem ráð-
herrar komu hvergi nærri, og
það var forseti þingsins, sem bar
tillöguna fram, þá þótti okkur
eðlilegt, að rrnaður úr hópi þing-
manna flytti þakkarorðin, og þá
eði’ilega formaður sendiinefndar-
innar.
Það þykir ef til vil'l óþarfi að
vera að rekja þetta hér, en ég
varð að gera það, því mér þætti
leiðinlegt ef þau ummæli kæmust
á loft, og það yrði breitt út, að
ég hefði sýnt tómlæti i málinu.
Ég get ekki dæmt um, hvort fjar-
vera mín hefur vakið mikia eða
almenna athygli, en ég varð ekki
var við að þessi ágætu frétta-
ritarar virtust hafa samtöl eða
samiband við einstaka ráðherra
eða fulltrúa aðra en íslenzka.
Ég vil láta í Ijós sérstakt þakk-
læti mitt til hinna Norðurland-
anna vegna afgre'ð-slunnar og sér
staklega tii hinna forsætisráð-
herranna. Þetta var höfðinglegt
framlag. Þetta er á eragan hátt
endanlegt framlag. Meira verður
komið undir sameiginlegu mati
allra ríkisstjórnanna á Norður-
Iöndum. Ég heid að það gæti ver-
ið ástæða til að Alþingi léti siðar
í ljós þakklæti sitt yfir þessum
drengilegu viðbrögðum frænd-
þjóðanna. Ég varð var við að
víða á Norðurlömdum eru frjáds
samtök að safna framlögum og
sums staðar eru þau orðin mjög
mikii. Mér þótti rétt að taka
þetta skýrt fram. Ég vil ekki
liggja undir ámæli fyrir að hafa
sýnt þessu máli tómlæti. Þetta
eru mikil framlög, sem hafa stór
kostlega þýðingu.
Ég játa að ég var svo bama-
legur að halda að í sambandi við
þetta mál þyrfti ég ekki að bera
hönd fyrir höfuð mér.
Ingólfur Jónsson: Islenzku dag-
blöðin hafa held ég öll haft frétta
ritara á. þingi Norðurlandaráðs.
Það er þess vegna eðlilegt, að
fréttaritararnir sendi blöðunum
þær fréttir, sem forsætisráð-
herra vitnaði hér til áðan. Það
var algerlega áreitnislaust sagt
frá í Morgunblaðinu og ég held
Alþýðublaðinu Mka. Fréttaritar-
arnir sögðu aðeins, að það hefði
vakið athygli, að forsætisráð-
herra íslands var farinn af þing-
inu, þegar tillagan var afgreidd
og hefur þótt óviðurkvæmilegt,
að hann var ekki til staðar til
þess að þakka ráðinu, sem sam-
þykkti tiliögumar einróma. Þetta
er það, sem fréttaritaramir
segja, og ég kem ekki hér upp í
ræðustólinn núna með neina
áreitni í garð forsætisráðherra,
en ég get ekki að því gert, að
mér hefði fundizt eðlilegra, að
hann hefði verið þarna staddur
og þakkað ráðinu fyrir. Þetta
Norðurlandaráðsþing markar
tímamót. Nú efast enginn lengur
um það, að norræn samvinna er
annað heldur en orðin tóm. Norr
æn samvinna er staðreynd í
verki. Við fslendingar höfum að
vísu oft orðið varir við það, að
það er gott að vera Islendingur
á Norðurlöndum. En við höfum
ekki búizt við því, að bræðraþel-
ið væri þó eins mikið eins og kom
fram á Norðurlandaráðsfundin-
um í Osló. Og þess vegna var það
vitanlega vel viðeigandi, að for-
sætisráðherra hefði sjálfur verið
þarna og þakkað fyrir þessa sam
þykkt. Forsætisráðherra kvaddi
sér hér hljóðs utan dagskrár
vegna þess sem fréttaritaramir
sendu heim og birt var i blöðun-
um. Þetta var bein frásögn og
áreitnislaus. En ég gæti eigi að
síður trúað því, að mörgum finn-
ist, að forsætisráðherra hafi f§jr-
ið einum degi oí fljótt heim, af
því að svona stóð á. Ekki vegna
þess að hann hafi staðið sig illa
á fundinum, og ekki vegna þess
að hann hafi ekki ætlað að gera
sitt bezta á allan hátt, heldur að-
eins vegna þess að það voru fund
armennimir allir, sem tóku þátt
í þessari afgreiðslu og þeim hafði
ekki verið þakkað beimlinis og
það var eftir þvi tekið, að for-
sætisráðherra var farinn heitru
Ég hefði áreiðanlega ekki kvatt
mér hljóðs utan dagskrár til þess
að ræða við forsætisráðherra um
þetta mál, en að gefnu tilefrai
fannst mér ástæða til að segja
mína skoðun, persónulegu skoö-
un, eins og þar stemdur, á þessu
máli, og ég hygg, að það séu
fjöldamargir íslondingar, sexn
líta þannig á.
Blöðin hafa ekki skrifað um
það í ádeilutón, að ráðherrann
var farinn heim, aðeins sagt það,
sem fréttaritararnir símuðu. Við
íslendingar getum vissulega ver-
ið þakklátir Norðurlandabúum
fyrir þeirra stórkostlega fram-
lag. Og það er alveg rétt sem
forsætisráðherra sagði hér áðan,
að það hefur vitanlega verið eft
ir því tekið, hvað við sjálfir vor-
um búnir að gera með setningu
laga um Viðlagasjóð og fram’lag
okkar í hann. Og það er einmitt
þess vegna, sem við getum með
fullri sjálfsvirðingu tekið við
þessu framlagi, sem er framrétt
af bróðurhug til okkar.
Eysteinn Jónsson sagði að frétt
ir þær, sem forsætisráðherra
gerði að umtalsefni, virkuðu á
sig eins og fremur ósmekklegt
nart, sem ætti ekki við á stórum
stundum. Þakkaði hann forsætis
ráðherra fyrir frábært starf á
Norðurlandaþinginu, og sagðist
vilja segja það tæpitungulaust,
að í samtoandi við þetta mál,
hefði þar ætíð hvílt mest á for-
sætisráðherra. Þakkaði Eysteinn
forsætisráðherra þann árangur
sem náðst hefði, sem væri meirl
en menn hefðu búizt við.
Garðar Sigurðsson sagðist vera
hissa á forsætisráðherra að taka
„alvarlega skrif eins og Moggi
og Alþýðublað hafa uppi i mál-
inu“. Sagði þingmaðurinn að
þessi blöð byggju til tækifæri til
að þeyta upp pólitísku moldviðrl
og henda skít í menn.
38 ljúka prófum við
Háskóla íslands
38 STÚDENTAR luku prófum við
Háskóla íslands í lok haustmiss-
eris, þ.e. í janúar og febrúarbyrj-
un, og fer listi yfir nöfn þeirra
hér á eftir:
Embættispróf í guðfræði: (2)
Kari Sigurbjömsson
Sveinbjöm S. Bjamason
Embættisprófi í læknisfræði:
(9)
Ari Jón Jóhannesson
Gunnar Valtýsson
Hallgrknur Benediktsson
Jóhannes M. Gunnarsson
Odd Arnold Kildahl-Andersen
Ólafur Grímur Bjömsson
Tómas Zoega
Vilhjálnrvur Rafnsson
Þorsteinn Blöndal
Kandidatspróf i tannlækningum:
(2)
Rúnar Lund
Sigurjón Ámi Þórarinssoin
Embættispróf í lögfræði: (1)
Guðmundiur Kristjánsson
Kandídatspróf í viðskiptafræð-
um: (12)
Ásgeir E. Gunnarsson
Ásgeir S. Ingvason
Egigert Á. Sverrisson
Friðbjörn Berg
Guðmundur Níelsson
Guðmundur Jens Þorvarðssom
Gunnar H. Gislason
Hákon Bjömsson
Hilmar Þórisson
Ingvar A. Sigfússon
Reynir Ólafsson
Sigurður Guðmundsson
B.A.-próf í heimspekideild: (3)
Ágúst Guðmiundsson
Helgi Magnússon
Kristín Indriðadóttir
B.S.-próf i verkfræði- 0g
raunvísindadeild: (8)
Ásmundur Þorbergsson
Jón Baldur Sigurðsson
Jónbjöm Pálsson
Kristjám Jessen
ólafur M. Hákansson
Sigríður H. Þorbjarnardóttir.
Vigfús Ásgeirsson
Þjóðbjöng Þórðardóttir
B.A.-próf í almennum þjóðfé-
lagsfræðum: (1)
Bjöm Bjamason