Morgunblaðið - 22.02.1973, Page 15
I
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGÚR 22. FEBRÚAR 1973
15
Jóri Konráðsson, Selfossi:
Sauðfjárrækt
og sýningar
ALLIR, sem hlusta á raddir nátt
úrunnar, hafa augun opin og
taka eftir tilverunni, bæði lífinu
og hirrni líflausu náttúru, sjá
hvað breytileikinn er mikiU.
Það er óhætt að segja, að
vegina mikillar fjolbreytni í nátt
úrunni verður allt forvitnilegra
til-skoðunar og rannsókma. Ná-
skyld dýr eru oft svo ólík að
undrum sætir.
Það er með dýrin eins og mann
inn — sem er nú ekkert annað en
eitt dýrið — að þau eru fædd
undir þessu eða hinu stjömu-
merkinu; og það jafnvel þó um
tvíbura sé að ræða. Þetta hefur
áhrif á vöxt, útlit, skapferli og
afurðir manna og dýra; en af
ávöxtunum skal einstaklinginn
þekkja. Svona vill guð í alheims
geimi hafa það.
Náttúran hótar hefndum og
hefnir sín, ef menn fara að hafa
mikinn skyldleika í ræktun hús-
dýranna — sauðfjár, nautgripa
og hesta. Fyrst verða afurðir
minni — og það verður fljótt —
svo koma gallar i ljós, og að lok
um verða afkvæmin aumingjar.
Mikill skyldleiki í fjárstofni or-
sakar oft meiri ófrjósemi, meiri
lambadauða og að ám gengur
verr að bera.
Það á ekki að hafa verksmiðju
aðferð til ræktunar einstaklings
að þvi er búfé snertir, enda er
fjölbreytnin skemmtilegri.
Hjá manninum er skyldleika-
rækt bönnuð að vissu marki, og
er þó stundum ekki nóg. Það
hafa ranmsóknir sýnt, að bam-
eignir meðal náskyldra kalla
ifram gal'la, ef til eru í ættinni,
en óskyldleikinn gefur meiri
þroska andlegan og líkamJegan.
Maðurinm, sauðurinn, nautið
og hesturinn hafa svo til jafn-
heitt blóð. Þetta eru því náskyld
dýr. Gefur þetta þá bendingu,
að ekki skuli viðhafa meiri skyld
leika við ræktun búfjárins en við
ræktun mannsins.
Fjölbreytnin í vaxtarlagi hús-
dýranna er mikil, þó um náskyld
dýr sé að ræða. Sá maður, sem
eitthvað hefur fengizt við hesta-
kaup, sér fljótt þennan breyti-
leika. Hann sér t.d. að stórir hest
ar geta oft haft stuttar kjúkur
en'litiir hestar langar kjúkur.
Legglengd hesta er ekki nærri
alltaf í samræmi við aðra stærð.
Tveir jafmháir menn eru oft
mjög misháir til hnésins og ekki
nærri alltaf jafn kloflangir.
Handlegigir stutta mannsius eru
oft eins langir eða jafnvel lengri
en handleggir þess, sem er hærri
að vallarsým; svona mætti lengi
telja.
Nákvæmliega er það svona
með sauðkindina. Frávikin írá
því að lengd framfótarleggjar
segi til um vöxt eða kynbóta-
gildi hrúts eða ær eru svo mik-
M, að fráleitt er að hafa þetta mál
sem mælikvarða á sýningum.
Auk þess er þetta svo vandmælt
(millimetrinn er stuttur) að
„veldur hver á heldur". Svo er
það timinn, sem fer i þetta eiin-
skisverða mál eða verra en það.
Eins er þetta með brjóstum-
málið, það er óhæf tímasóun, og
þar af leiðandi kostnaður að vera
að mæla það. Ullin hefur það
mikil áhrif á brjóstummálið, að
ekki er sama hvort hrúturinn er
rúinn í marz eða ekki fyrr en í
september,'Svo er það lengd kind
arinnar, sem segir að hálfu leyti
til um brjóstrýmið á móti um-
málinu.
Þau mál, 'sem rétt er að hafa,
en nota þó með varúð, er þyngd
hrútsins og bréidd sþjaldhryggj-
ar. Það getur verið gaman og
gagnlegt að sjá hlutfallið þyngd;
spjalcfþMdd,' í kilóUni og senti-
metrum t.d. 90:25, 100:26, 110:27,
120:28. Án þess aó ég sé áð setja
reglur um þetta þá verða þetta
að teljast góð hlutföll, og prýði-
leg til fyrstu verðlauna, ef bakið
er vel holdfyllt og kúpt svo halli
út af kindinni og vatnið renni
ekki inn að skinni og geri hana
kalda og vansæla, og þar af leið-
andi þurftarfrekari og afurðar-
minni. Svo verður toglagðurinn
að vera langur og helzt gorm-
hrokkimn. Auðvitað grípur svo
margt inn í þetta, þegar skepn-
an fær sinn úrslitadóm.
Aðalatriðið á sauðfjársýning-
um er það að dómarinn — ráðu-
nauturinn sé fjármaður „af guðs
náð“, og hafi stundað fjár-
mennsku, sem hægt er að kalla
þvi nafni, á fjallajörðum bæði
sunnanlands og norðanlands.
Sauðfjárrækt og fjármennska
verður ekki lærð á skrifstofum
frekar en að stýra bát, undir
seglum, í ölduganigi og straum-
um.
Dómarinn verður að kumna að
sjá og þukla kindina. Hann verð-
ur að vita, hver eru helztu af-
urðareinkemni kindar. Hann verð
ur að vita, hvernig kind á að vera
vaxin og skapi farin svo hún geti
bjargað sér í misjafnri veðráttu
og þoli áfelli eða áhlaup veðurs
án þess stórir fjárskaðar verði,
sem er æði oft. Hann verður að
vita, hvernig ærin á að vera vax-
in, svo hún geti boriffl jafn ör-
ugglega og villikindin, því oft er
engin mannleg hjálp nærri, af
ýmsum ástæðum.
Ráðunauturinn og fjármaður-
inn verða að hafa hre.'nar hend-
ur mannúðar í ráðleggingum og
öllu starfi sem við kemur sauð-
fjáreign.
Framhald á bls. 23
Rufvirkjur — rafvélavirkjar
Stofnfundur framleiðslusamvinnufélags rafvirkja
verður haldinn í kvöld, fimmtudagskvöld 22. febr.j í
Lindarbæ, niðri, klukkan 20.30.
Nefndin.
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim, er sendu mér kveðjur
og gjafir á sjötugsafmæli mínu þann 11. febrúar sl.
Kærar kveður til ykkra allra.
Guðlaugur Rósinkranz.
Tilboð óskasf í
ms. Reykjanes CK 50
í því ástandi sem skipið er í eftir strand. Skipið er í
slipp á Neskaupstað.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu
Tryggingamiðstöðvarinnar hf., Aðalstræti 6, Reykja-
vík.
Tilboðum ber að skila í skrifstofu Tryggingamiðstöðv-
arinnar hf. fyrir hádegi 5. marz nk.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
D
A
T
S
U
N
VIÐSKIPTI í DAC ERU YDUR í HAC
VERIÐ k IINDAN
VERÐHÆKKUNUM
D
A
T
S
U
N
1ÍT Takið eftir yfirvofandi verðhœkkunum
DATSUN 100A
í DAG kr. 405.480-
1. MARZ kr. 412.000-
I VOR kr. 451.534-
DATSUN 1200
í DAG kr. 436.815-
l.MARZkr. 445.000-
I VOR 488.000-
DATSUN 180B
í DAG kr. 577.000-
1. MARZ kr. 590.000-
I VOR kr. 672.000-
180 HARDTOP
í DAG kr. 615.000-
1. MARZ kr. 623.700-
í VOR kr. 713.895-
☆ VIÐ EIGUM OFANTALDA BÍLA TIL í DAG
LEITIÐ UPPLÝSINGA
INGVAR HELGASON
VONARLANDI VIÐ SOGAVEG
SÍMAR 84510 OC 84511