Morgunblaðið - 22.02.1973, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FUBRUAR 1973
21
EITTHVAÐ FYRIR
EINMANA FÓLK?
Við
gluggann
eftir sr. Árelius Níelsson
ÞAÐ hefur skapazt sú fagra
hefð að nokkur góðgerðar-
samtök hafa „opið hús“ á að-
fangadagskvöld fyrir úti-
gangsfólk og drykkjusjúka,
sem eiga fáa að.
Þarna hafa Fólagasamtök-
in Vermd ásamt bindindis-
samtökum í borginni haft
forgöngu og frúmar Þóra
Einarsdóttir framkvæmda-
stjóri Verndar ásamt frú Sig-
ríði Magnússon og fleiri góð-
um konum annazt undirbún-
ing og framkvæmd árum sam
an.
Þetta ber að þakka, meta
og styðja eftir föngum af
bæði borgarstjórn og þó ekki
síður opinberum góðgerðar-
stofnunum i borginni og sam
félaginu yfirleitt.
Til dæmis ætti Hjálpar-
stofnun kirkjunnar að hafa
einn lið útgjalda árvissan til
styrktar þessari starfsemi. Og
mætti Biindindisráð kristinna
safnaða bera gæfu tii að
njóta skilnings presta og
safnaðarstjóma yfirleitt, þá
ættu engin samtök fremur að
vera fær og hæf til þessara
framkvæmda. Eiginlega ætti
það að vera ákveðið árlegt
verkefni B. K. S. að sjá um
skipulagningu og framkvæmd
jólagJeði og glaðnings handa
umkomuJeysing j um.
En önnur samtök likt og
„Vernd“, sem annast fanga-
hjálp sem aðalstarf og Um-
dæmisstúkan eða Þingstúkan
ásamt Áfengisvamanefnd
Reykjavikur og Áfengis-
vamaráði ættu að styðja
framfcvæmd máisins bæði með
starfsliði og fjárframlögum.
Nú má enginn skilja orð
þessi svo að hér sé verlð að
vanþakka eða vanmeta það,
sem gert hefur' verið og gert
er á þessu sviði um jólin. Það
er ómetanlegt og mörgum
ógleymanJegt og fólkið, sem
hefur unnið við undirbúning,
matseld og framreiðslu hefur
blátt áfram unnið afrek af
sinni fómarlund fjarri sínum
heimilum á helgasta kvöldi
ársins til „að gleða þá, sem
enga gleði eiga“.
En hitt er jafnljóst, að hér
þarf allt að vaxa og stefna
hærra og iengra. Það er eng-
um ljósara en þvi fórnglaða
fólki, sem hér hefur að unn-
ið.
Það er fleira fólk einmana
á aðfangadagskvöld en
drykkjusjúkir og utangarðs-
menn. Væri kannski hægt að
ná til þess með giieðigeisla og
nýjar vonir?
Víða erlendis eru svokall-
aðir „Lonely Hearts-klúbbar"
starfandi.
Lonely Hearts þýðir eiin-
mana hjörtu, eins og líklega
flestir skilja, þótt íslenzkan
geti naumast tjáð hið sanna,
þá er mikið af einsemd hér til
og þeim mun me'ra, sem bæði
mál og siðir gera erfiðara um
vik að tjá sig.
Þessir kliúbbar, sem mætti
til bráðabirgða kal’la Samtök
einmana fólks á okkar máli
stofna til kynningarkvölda og
ýmiss konar leiðbeininga og
gleðistunda fyrir einstæðinga,
sem við sorgir eða af öðrum
innri eða ytri ástæðum hafa
orðið viðskila við framvindu
og fögnuð l'ifsins, misskilið
fóltk, stundum mæbt for-
dómum, fyrirlitningu og tóm
læti samborgarainna, dvelur
oftast I ískaldri þögn án þess
að draga frá gluggum.
Væri ekki unnt að auka
starfsemi þá, sem svo fagur-
lega hefur verið hafin á jóla-
kvöldi og láta hana ná til
fleiri, jafnvel þótt það yrði
að vera á fleiri stöðum og
öðruvísi uindirbúið?
Væri ekki hægt að hafa slík
kvöld eða slíkar kvöldmáltíð
ir með dagskrá til fagnaðar,
fræðslu og kynningar t.d.
einu sinni i mánuði að vetr-
inum til að byrja með?
Væri þetta ekki einmitt
verðugt verkefni fyrir líknar-
samtök borgarinnar. Og ætti
ekki einmitt vel við, að þama
gengju safnaðarsamtökin —
B. K. S. í broddi fylkingar?
Þetta ýrðu nokkurs konar
helgimáitíðir og samfumdir
án allrar fordildar líkt og i
frumsöfnuðinum forðum.
Fyrir nokkrum árum voru
stofnuð hér í borginni sam-
tök einmana fólks. Þátttakan
varð strax á fyrsta kvöldi og
við undirbúning geysimikil
og fór vel af stað, en úthald-
ið vantaði, forystumemn
fJuttust úr borginni og á stutt
um tima varð þar líkt og
hjörð án hirðis.
Kannski vantaði þarna
kjölfestu og yflrsýn? Kannski
voru samtökin, félagið of háð
einum eða fáum einstakling-
um? Kannski vantaði þoilr
gæði og þekkingu? Þetta eru
vissulega vandmeðfarin sam-
tök, erfið starfsemi.
Væru allir söfnuðir borgar-
innar, með B. K. S. í farar-
broddi sá grunnur, sem
byggt værL á, ætti ekki að
koma til þess að allt rynni út
í samdinn.
Vissulega mætti ekki óþarfa
hátíðleiki og þröngsýni kom-
ast að. Slikar samkomur,
svona kvöld verða að vera
fjölbreytt að efni og skemmti
legar,
Aðeins eitt stórt skilyrði
Áfengislausar. Án áfengis er
jafnan unnt að treysta fs-
lendingum tiJ góðs, en með
áfengi er engum að treysta.
Við eigum lýsandi for-
dæmi, þótt á öðru sviði sé.
Nokkrir söfnuðir i borginni
hófu samkomuhald fyrir
eldra fólk. Borgarstjórnin tók
eftir þessu, ákvað að ganga í
sporaslóð og bæta við.
Og undir forystu frú
Hildar Bernhöft og fleiri
ágætra kvenna og manna
eru samkomur fyrir
aldraða einstakJimga orðnar
líkt og blómstur í andlegu
félagsilifi borgarinnar.
Um þá starfsemi er of lítið
talað. Hún er fögur fyrir-
mynd.
Gætu nú ekki sötfnuðir
borgarinnar með litlum eða
árvissum og öruggum fram-
lögum til B. K. S. eflt það til
hliðstæðra átaka til hjálpar,
fræðslu og fagnaðar handa
umkomulauisu og einmana
fólki?
Ég hef þá trú, að svo geti
orðið. B. K. S. ætti með skiln
ingi presta og safnaðar-
stjóma að ekki sé einnig sagt
safnaðarfólks alls, orðið stór-
veldi i kirkjulegu lífi og sam-
starfi borgarinnar og þjóðar-
innar.
Reykjavík 12. janúcur 1973.
I I
ÞETTA GERÐIST í nóvember 1972.
ALÞLNGI
Eigum að ieggja mikiö á okkur til
þess aö ná samkomulagi í landhelgis
deilunni, segir forsætisráðherra (3).
Forsætisráðherra andvígur friðun
húsa á Bernhöftstorfunni í Reykja-
vík (15).
Umræöur um eignarráðstillögu Al-
Þýðuflokksins (24).
UmræÖur um lán til Sigölduvirkjun
ar (29).
VEÐIJR OG FÆRÐ
Stórbrim viö SuÖ-Vesturland (7).
ÁætlunarbíU 16 tíma frá Reykja-
vík til Skagastrandar (12).
Vernsandi færö um alit Noröurland
(12).
Leiðin tii Austuriands rudd, og
gert ráö fýrir að þá fari þar síöustu
bílar fyrir veturinn (17).
Mesta fanniergi í áratugi á Akur-
eyri (21).
Vegurinn til Akureyrar ruddur (23.
24).
Fannfergi á Noröurlandi hiö mesta
frá 1919 (23).
líTOERBIN
Erlendum íiskiksipum viO iandið
fækkar (2).
Tilraunir með loönumerkingar að
hefjast fyrir Norðurlandi (3).
9380 tunnur af grásleppuhrognum
framleiddar I ár (5).
Fiskifræðingar teija glfurlegt karfa
magn í Grænlandshafi (5).
Iceland Products seldi fyrir 1890
milij. kr. fyrstu 40 vikur ársins (7).
Spá um þorskaflann: Minnkar um
50 þús. lestir 1973 (8).
Heildarfiskaflinn 661,4 þús. lestir 1.
október (8).
Vestur-þýzkur togari reynir að
slita troliið altan úr íslenzkum báti
(11).
Varöskip klippir á vörpu bresks
togara (24).
Klippt á togvíra vestur-þýzks tog-
ara (26).
FRAMKVÆMOIB
Nýi malbikaði kaflinn i Kömbum
tekinn i notkun (3).
Einn stærsti frystiklefi landsins
tekinn i notkun 1 Hraðfrystihúsi Öl-
afsvikur (2).
Aðalvarðstofa lögreglunnar i
Reykjavik flytur i nýju lögreglustöð
lna (4).
Tungulax reisir flskeldisstöö að
Öxnalæk I ölfusi (4).
Framkvæmdir við lcirkju í Árbæjar
hverfi hefjast nk. vor (4).
Geödeildarbygging viö Landspital-
ann ákveðin (8).
30% framkvæmdanna við lengingu
þverbrautar á Keflavikurfllugvelli
lokiö (8).
77 fyrirtæki hafa fengið 604 millj.
kr. lán hjá IÖnþróunarsjóði (9).
Miöborgarstöð lögreglunnar i
Reykjavík flyzt i nýju Tollstöðina
(11).
Áætlanir liggja fyrir um 128 millj.
kr. þangverksmiðju við Breiðafjörð
(11).
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
komið á fót í Vestmannaeyjum (11).
Stáliðjan í Köpavogi opnar samsetn
ingarverksmiðju skirfstofustóla i
Skotlandi (14).
Nýtt stórgripasláturhús tekið i
notkun á Húsavík (15).
Félag einstæðra foreldra hyggst
reisa 50 íbúða fjölbýlishús (17).
Heyköggla- og þangmjölsverk-
smiðja reist i Dalasýslu (23).
Áformað að smíða knörr vegna þjóð
hátíðar 1974 (24).
Hraðbrautin til Selfoss opnuö (25)
Nýr radarbúnaöur 1 flugstjórnar-
miðstööinni í Reykjavík (25).
Jón Loftsson h.f. opnar nýtt vöru
hús (26).
Áburöarverksmiöjan stækkar (30).
MENN OG MÁXJBFNI
Geir Hallgrímsson lætur af starfi
borgarstjóra i Reykjavík frá 1. des.
— Birgir ísl. Gunnarsson kjörinn i
hans stað (1, 3).
Styrmir Gunnarsson ráðinn einn af
ritstjórum Morgunblaðsins (1).
Ólafur Sigurðsson ráðinn blaðafull
trúi Félags ísi. iðnrekenda (4).
Hörður H. Bjarnason ráðinn blaða
fulitrúi Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna á íslandi (4).
Fíkniefnamál 50—60 ungmenna til
dómstóla (4).
Baldur Skarphéðinsson fær einka-
leyfi á nýrri tækni við húsbyggingar
(8).
Maria Pétursdúttir ráðin skóla-
stjóri nýs hjúkrunarskóla í Fossvogi
(9).
Sigurgeir Jónsson, hagfræðingur
ráðinn aðstoöarbankastjóri Seöla-
bankans (10).
Fimm piltar dæmdir í Hæstarétti
vegna LSD-sölu (11).
Islenzkir sérfræðingar ráðnir til
þess að virkja jarðhita í Nicaragua
(12).
Dr. Ásgeir Ellertsson ráðinn yfir-
læknir Grensásdeildar Borgarsjúkra
hússins (16).
Sementsverksmiðjan dæmd í bæjar
þingi Akraness til að greiða Júni
Vestdal 1,7 millj. kr. i skaðabætur
(17).
Eldeyjafarar neita dómssátt (18).
Höggmynd Sigurjóns Ólafssonar af
Gunnari Gunnarssyni, skáldi, sett
upp í anddyri Árnagarðs (18).
Páll Líndal segir sig úr húsfriðun
arnefnd (18).
Ólafur Jónsson, tollgæzlustjóri, ráð
inn framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands Islands (25).
Dr. Alan Boucher skipaður prófess
or i ensku við Háskóla Islands (25).
Brynjólfur Bjarnason, viðskipta-
fræðingur, ráðinn deildarstjóri hag-
deildar Vinnuveitendasambands Is-
lands (25).
Námsmenn gagnrýna ákvörðunina
um úthlutun námslána (25).
Tweedsmuir, aðstoðarutanrikisráð-
herra Breta, ræðir við islenzka ráð-
herra um iandhelgismálið, en samn-
ingar tókust ekki (28—.30).
Ármann Jakobsson ráðinn banka-
stjóri við Útvegsbankann (29).
Islenzk tillaga á allsherjarþingi
SÞ: Réttindi strandrikja nái einnig
til auðlinda í sjó (30).
BÓKMENNTIR Ó<i LISTIR
Skozka öperan l'lytur Jónsmessu-
næturdraum Brittens i Þjóðleikhús-
inu (1).
Sinfóníuhljómsveitin frumflytur
Mistur, túnverk el'tir Þorkel Sigur-
björnsson (2).
Ragnar Björnsson, dómorganisti,
frumflytur fjögur ný orgelverk (2).
Gunnar Örn Gunnarsson heldur mál
verkasýningu i Reykjavik (4).
Yfirlitssýning á málverkum Jóns
Engilberts (10).
Þjóðleikhúsiö sýnir Lysistrata, eft
ir Aristófanes (14).
Róbert A. Ottósson stjórnar tón-
leikum Sinfóniuhljómsveitarinnar
(15).
Islenzk tónverk fá góða dóma á
norrænum músikdegi i Osló (15).
Listasafn Islands kaupir 44 mál
verk eftir Jón Stefánsson (22).
Jean-Pierre Jacquillat stjórnar Sin
fóniuhljómsveitinni (25).
NÝJAR BÆKUR
Veðrahjálmur, ljóðabók eftir Þor-
stein frá Hamri (2).
Getur lífið dáið, ljóðabók eftir
Birgi Björnsson (9).
Hlátur þinn er skýjaður, eftir Þur
iði Guðmundsdóttur (9).
Dægur og ár, ljóðabók eftir Ingólf
Kristjánsson (9).
Trúarleg ljóð ungra skálda (9).
Guðsgjafarþula, skáldsaga eftir
Halldór Laxness (11).
Þrettán rifur ofan i hvatt, eftir
Jón Helgason, ritstjóra (11).
Sögn og saga, eftir Oscar Clausen
(11).
Skrudda Ragnars Ásgeirssonar í
nýrri útgáfu (11),
Tvö fyrstu bindin í heildarútgáfu
verka Stefáns Jónssonar (12).
Heyrt en ekki séö, eftir Skúla Guð
jónsson, Ljótunnarstöðum (14).
Stóra blómabók Fjöiva (16).
42 sálmalög og 8 lög án orða, eftir
Maríu Brynjólfsdóttur (17).
Trúarleg ljóð ungra skáldá (19).
Með oddi og egg, minningar Rik
arðs Jónssonar, myndhöggvara (22).
The First Gramatical Treatise, 1.
bindi bókaflokks frá Rannsóknastofn
un i norrænum- málvísindum (22).
Sögur úr safni Hafsteins miOils
(23).
Dulspakt fólk, eftir Kormák Sig
urðsson (23).
Vippa-sögur Jóns H. Guðmundsson
ar i nýrri útgáfu (23).
Létta leiöin ljúfa, eftir Pétur Egg
erz (23).
Blöö og blaðamenn 1773—1944, eft
ir Vilhjálm Þ. Gísiason (24).
Séð og lifaö, endurminningar Indr
iða Einarssonar i nýrri útgáfu (24).
Svikahrappar og hrekkjalómar, eft
ir Svein Ásgeirsson (25).
Kristnihald undir jökli, eftir Hall-
dór Laxness, á ensku (25).
Ljóðasafn Tómasar Guömundssonar
i 5. útgáfu (25).
Skákeinvígi aidarinnar — í réttu
ijósi, eftir Guðmund Daníelsson (25).
Byggðasaga Austur-Skaftafells-
sýslu, 2. bindi (30).
félagsmAl
Bjarni Guðnason kosinn formaöur
Félags frjáislyndra og vinstri manna
i Reykjavík (2).
Hjörtur Torfason, hrl., kosinn for
maður Stúdentafélags Reykjavíkur
(2).
Kári Jónsson, Sauðárkróki, kosinn
formaður Kjördæmisráðs Sjálfstæðis
félaganna í Norðurlandskjördæmi
vestra (4).
Kjördæmissamtök ungra Sjálfstæð
ismanna á Austurlandi stofnuð. —
Theodór Blöndal íormaður (5).
Rúnar Bachmann kosinn formaöur
Iðnnemasambands Islands (9).
Hjörtur Hjartarson endurkjörinn
formaður Verzlunarráðs (11).
Skátafélag stofnað í Hveragerði. —
Ská-taforingi er Sonja Andrésdóttir
(11).
47 kandidatar. brautskráðir frá H4
skóla Islands (11).
Sigurjón' Ragnarsson formaður
Sambands veitinga- og gistihúsaeig-
enda (16).
32. þing ASl haldiö í Reykjavík
(21) . — Bjöm Jónsson kosinn forsetl
ASI (25).
Albert Guðmundsson endurkjörinn
lormaður KSI (21).
Elias Hannesson kjörinn formaður
Landeigendalétags Mosfellssveitar
(22) .
Magdalena Þórisdóttir kjörin for-
maður Samliands bindindisfélaga 1
skólum (23).
Skúli Sigurösson kosinn formaður
Heimdaliar, FUS i Reykjavík (25).
Skúli Pálmason kjörinn formaður
Vinnumáiasambands samvinnufélag-
anna (26).
örn Eiðsson endurkjörinn tormaö-
ur FRÍ (28).
Aðalíundur LlU settur í Reykja-
vík (30).
Magnús Jóhannesson endurkjörtn*
Cormaður Öðins (30).
SLYSFARIR Oíi SKAIIAR
Þúrarinn Sveinsson, kennari að Eid
um, biður bana í bílslysi, 65 ára (3).
F'é fennti í Hrunamannahreppi (4)
Mikil brögð að tannlosi í fé I Kjóa
(4, 7).
Eyþór Svendsás, 44 ára, drukknar
af vélbátnum Gullfinni frá Neskau*
stað (7).
Brezkur togari i neyö suður af la-
lundi eftir brotsjó (10).
Tvær kýr og kálfur kafna, er kvika
ar í útihúsum að Framnesi 1 Bjarnar
firði I Strandasýslu (14).
Fjárhús og hlaða brenna hjá Sel-
rossi (16).
Hesthús, hlaöa og 2500 hestar al
heyi brenná i Gufunesi (17).
Garnaveiki i fé breiðist nokkuð út
um landið (18).
í ÞRÖTTIR
Real Madrid vann IR i Evrópu-
keppni meistaraliða í körfuknattleik
með 117:65 stigum (10). — Og 1 siO
ari leiknum með 93:37 (17).
Eyleifur Hafsteinsson, Akranesl,
kjörinn „leikmaður Islandsmótsins 1
knattspyrnu 1972“ af iþróttablaða-
mönnum Mbl. — Tómas Púlsson, IBV
markakóngur mótsins (12).
ÍBV bikarmeistari I knattspyrnu
(14).
Finnbogi Guömundsson Isiands-
meistari í knattborðsleik (14).