Morgunblaðið - 22.02.1973, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22: FEBRÚAR 1973
31
]c~pcrp
]
] U L
Skipulagsleysi
— á framkvæmd Islandsmótsins
í 1. deild kvenna
FRAMKVÆMDINNI á 1. deildar
keppni kvenna í handknattleik
virðist vera í ýmsu ábótavant.
Morgnnblaðinu barst í gær bréf
sent til Handknattleikssambands
íslands og er þar deilt á það
skipulagsleysi, sem látið er við-
gangast af HSf á framkvæmd
mótsins. Bréfið er svoliljóðandi:
„Handknattleikssamband
íslands.
c/o Mótanefnd.
Vér undirrituð mótmælum
harðlega niðurröðun leikja í 1.
deild kvenna. Okkur finnst
kvennahandknattleiknum mis-
boðið með því að bjóða upp á
þann tíma, sem nú er búið að
skipuleggja í íslandsmótinu 1973.
Hafið þið háttvirtir nefndar-
menn verið eitt sunnudagseftir-
miðdegi i Laugardalshöllinni inn
an um barnagarg og læti. Þar
sem auk þess tímasetning er fyr
ir neðan allar heliur og tími
stenzt aldrei.
Endurskoða mætti einnig dóm-
aramálin, en oft hefur það kom-
ið fyrir að dómarar hafa verið
dregnir nauðugir viljugir ofan
úr áhorfendapöllunum, hafi þeir
þá verið þar.“
Undir þetta bréf rita 80 stúlkur
og einn karlmaður (Sigurbergur
Sigsteinsson, Fram), allar leika
stúlkurnar handknattleik og eru
í liðunum í 1. deild og FH, sem
leikur í 2. deild.
Vegna þessa bréfs ræddum við
stuttlega við tvær þeirra, sem
skrifa undir bréfið og eru meðal
leikmanna í 1. deildinni, Björgú
Guðmundsdóttur, fyrirliða Is-
landsmeistara Vals og Arnþrúði
Karlsdóttur, Fram, Þær voru
þungorðar í meira lagi og sagði
Björg m. a.:
— Þessi mál eru í megnasta
ólagi, svo að ekki sé meira sagt.
Tökum sem dæmi; eftir útreikn-
ingi á leiktima skv. mótsskránni
eigum við að leika Mukkan fjög-
ur, liðið mætir hálftíma fyrir
leik, en leikurinn hefst i fyrsta
lagi tveimur tímum síðar. Það
er tvennt sem aðallega orsakar
þetta, leikjum yngri flokkanna
seinkar oftast og dómararnir,
sem eiga að dæma leiki okkar
mæta yfirleitt of seint, ef þeir
þá á annað borð mæta nokkuð.
— 1 sambandi við niðurröðun-
ina á leikjum mótsins má nefna
það að Valur lék tvo leiki í upp-
hafi móts, en síðan kom frí í
mánuð. Nú er mótið að fara í
gang aftur og nú á að keyra það
í gegn á miklum hraða. Breiða-
blik er búið með þrjá leiki í mót
inu, þar af eru tveir þeirra við
KR — seinni umferðin er byrj-
uð, þó svo að sú fyrri sé ekki
einu sinni hálfnuð.
— Við erum búnar að vera
lengi óánægðar, en það hefur
vantað meiri samtök meðal okk-
ar. Það er ekkert undarlegt þó að
við mótmælum þessu skipulags-
leysi, þetta er búið að brjótast
lengi um í okkur og brýzt nú
loksins út. Stúlkurnar hafa mik-
inn áhuga, en það er ekki hægt
að segja það sama um handknatt
leiksforystuna. Vera má að
kvennahandknattleiknum hafi
farið aftur síðustu ár og kenni
ég öllu þessu skipulagsleysi ein-
göngu um það.
— Landsleikur kvenna í hand-
knattieik hér á landi — hvað er
nú það? Við höfum oft farið
fram á það við HSl að fá lands-
leik hér á landi, en þeim óskum
hefur í engu verið sinnt. Við fá-
um Norðurlandamót með nokk-
urra ára millibili og mætum þá
stúlkum sem ef til vill eru með
100 landsleiki að baki. Hver get-
ur heimtað árangur? Hvað hefur
HSI gert til að auka áhuga
stúlkna á handknattleik?
Arnþrúður tók í sama streng
og sagðist véra algjörlega sam-
mála ásökunum Bjargar í garð
handknattleiksforystunnar, auk
þess hafði Arnþrúður þetta að
segja:
— 1. deild kvenna er algjört
olnbogabarn hjá HSl. Þó ef til
vill sé lítið gert fyrir 2. deild
karla er það þó snöggtum meira
heldur en gert er fyrir okkur. Til
dæmis er 2. deild karla látin fara
fram á undan leikjum í 1. deild
að nokkru leyti. Það er mikill
munur að eiga leik á ákveðnum
tíma og hafa áhorfendur, eins og
tryggt er ef 1. deildin kemur á
eftir.
— Ég vil nefna eitt lítið dæmi
um fáránlega niðurröðun í mót-
inu. Ármann var álitið eitt af
sterkari liðum deildarinnar fyrir
fram og talið var að keppnin
kæmi helzt til með að standa á
milli Fram, Vals og Ármanns.
En tveir fyrstu leikir Ármanns í
mótinu voru við Val og Fram. Ár
mann tapaði báðum þessum leikj
um og það væri þvi nokkuð eðli-
legt ef Ármannsstúlkurnar
misstu áhugann, þar sem þær
hafa tæpast að nokkru að keppa
lengur. Það þekkist held ég
hvergi að byrja á úrslitaleikjun-
um.
— Dómaramálin eru algjör
skelfing. Ég vil ekki fara fram
á annað en að þeir dómarar, sem
settir hafa verið á leiki, hvort
sem er í 1. deild kvenna eða ann-
ars staðar, mæti heilir heilsu á
leikina — jafnvel þó að þeir séu
á sunnudögum.
Afstaða
ÍBV
STJÓRN Knattspymusamibands
íslands hefur sent frá sér svo-
hljóðandi fréttatiílkynningu:
„Á fundi stjómar KSÍ, mániu-
daginn 19. febrúar var lagt fram
eftirfarandi erindi fná Iþrótfca-
bandalagi Vestmannaeyja:
Stjóm iBV fer þesis á Mfc við
stjóm KSI að hún mælist til
þess við aðildarfélög sín að
knattspyrnumenn IBV fái að-
stöðu hjá þeim til æfinga fyrst
um sinn. — Með kveðju Stefán
Runólfsson, formaður íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja.
Stjóm KSl beinir hér með
þeim tilmiættum til allra aðildar-
félaga sinna, að þau veiti fé-
lágsmönnum iBV alla þá aðstöðu
til æfinga- og knattspyrnuiðk-
ana, sem þeim er unint, án þess
að þeir vierði á nokkurn háitt
félagsiliaga bundnir viðkomandi
félagi. Stjóm KSl.
Frjálsar íþróttir
• Á franska meistaramótinu í
frjálsum íþróttum innanhúss jafn
aði Sylvie Telliez lieimsmetið i 60
metra hlaupi kvenna með þvl að
hlaupa á 7,1 sek. Sú sem á metið
með henni er Chelkova frá Sovét
rílvjuiuim sem hljóp á þessum
tíma 1962 og Messner frá A-I»ýzka
•landi sem hljóp á 7,1 árið 1970. Á
sama móti jafnaði Guy Drut Evr-
ópumetið í 60 metra grindahlaupi,
hljóp á 7,5 sek. Methafi með hon
um er Nickel frá Vestur-I»ýzka-
landi sem hljóp á þessum tíma
árið 1970.
• Á innanhússmóti sem fram
fór í Deutschlandhalle í Vestur-
Berlín um sl. helgi setti Belgíu-
maðurinn Emile Futtemans þrjú
heimsmet í oinu hlaupi. Hann
hljóp tvær enskar mílur á 8:13,2
mín. — sjálfur átti hann eldra
metið sem var 8:17,8 mín. 1 200
metra hlaupi setti hann met með
því að hlaupa á 5:000,0 mín. —
Gamla metið átti Frakkinn Mich
el Jaszy og var það 5:04,4 mín.,
og í 3000 metra hlaupi bætti Putte
mans eiglð met í 7:39,2 mín.
• Á frjálsíþróttamóti sem fram
fór innanhúss í San Diegro i Banda
ríkjunum um síðustu helgi sigr
aði ungur og: óþekktur piltur: —
Willie Deckard í 60 metra hlaupi
á 6,0 sek. Annar I hlaupinu varð
Jim Kemp á sama tíma ogr i
þriðja sæti varð svo hinn þekkti
sovézki Olympíusigrurvegrari Val
erij Borzov. Á sama móti sigrraði
Randy Wiliiams I langrstökki,
stökk 7,82 metra og A1 Feuer-
bach sigrraði í kúluvarpi, kastaði
21,07 metra. í stangrarstökki sigrr
aði svo heimsmetahafinn Steve
Smith, sem stökk 5,33 metra.
• Á frjálsíþróttamóti sem fór
fram innanhúss í Aabo í Finn-
landi um helgrina setti Mona-L.isa
Strandvall nýtt finnskt met í 60
metra hlaupi, hljóp á 7,3 sek.
• Á frjálsíþróttamóti sem fram
fór innanhúss í Sofia um helgrina
setti htilgarska stúlkan Svetlazlat
eva nýtt heimsmet í 800 metra
hlaupi, sem hún hljóp á 2:03,02
mín. Landa hennar, Jordanka
Blagoyeva jafnaði heimsmetið í
hástökki kvenna á sama móti með
því að stökkva 1,91 metra.
• Francie T^arrieu — bandarísk
stúlka setti heimsmet i miiu-
hlaupi kvenna innanhúss á móti
sem fram fór í San Diego i Kali-v
forníu um helgina. Hún hljóp á
4:35,6 mín. Gamla metið átti
landa hennar Debbie Heald ög
var það 4:38,5 mín.
• Á frjálsiþróttamóti sem fram
fór innanhúss í Pocatelo i Banda-
ríkjunum um sl. helgi voru sett
tvö ný heimsmet. Sveit frá Stan
ford IJniversity hljóp 880 yarda
boðhlaup á 1:27,4 min. Gamla met
ið átti sveit frá Western Michigan
og vár það 1:28,1 mín., sett árið
1968. I»á setti 22 ára stúlka, Patt
ie Johnson met í 100 metra grinda
hlaupi, sem hún hljóp á 13,4 sek.
• Bandaríski grindahlauparinn
Rod Milhurn hefur gerzt tvöfald
ur atvinnumaður i íþróttum.. Er
hann kominn á samning bæði sem
atvinnumaður í frjálsum íþrótt-
um og í bandarískum fótbolta. —
Fær hann upphæð sem svarar tii
45 millj. ísl. kr. fyrir samninga
þessa.
• Heimsmeistarakeppnin i
skautahlaupi sem fram fór í Dev-
enter í Hollandi um sfðustu helgi
var hrein einvigi milli Svíans
Göran Claeson og Norðmannsins
Sten Stensen. Skiptust þeir á for
ystu í keppninni, en svo fór að
lokum að Claeson sigraði, hlaut
181.259 stig, en Stenson hlaut
181.869 stig.
• 36 ára hollenzkur arkitekt
setti um helgina nýtt heimsmet í
skautahlaupi. Á einni klukku-
stund liljóp hann 35 kflómetra
246 metra og 16 sentimetra. Þáð
var landi hans Tonu Fer;erdas
sem átti eldra metið og var það
34 km 205 metr. og 16 sentimetr-
ar.
GETRAUNTAFLA NR. 8
CARLISLE - ARSENAL X X 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 2 10
C0VENTRY - HULL 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
DERBY - Q.P.R. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 11 1 0
LEEDS - W.B.A. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
MAN. CITY - SUNDERLAND 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 11 1 0
W0LVES - MILLWALL 1 1 1 1 X 1 1 1 X 1 1 1 10 2 0
LEICESTER - SHEFFIELD UTD. 1 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 2 10 1 1
LIVERP00L - IPSWICH 1 X X X 1 1 1 2 1 X 1 1 7 4 1
ST0KE - WEST HAM 1 X 1 2 X X X X X 1 X X 3 8 1
T0TTENHAM - EVERT0N 1 X 1 1 1 X X X 1 1 1 X 7 5 0
N0TT. F0REST - FULHAM X X 1 2 1 1 2 2 X X X 2 3 5 4
0RIENT - AST0N VHJLA X 2 1 2 2 X 2 2 X 2 2 2 1 3 8
ALLS
1X2
MINWISBIM VISTMANNfltYIHEfl
Húsnæðismiðlun: Tollstövarhús
ið (næst höfninni), sími 12089.
Flutningur húsmuna og geymsla:
BÆJARSTJÓRN Vestmanna-
eyja rekur skrifstofur í Hafn-
arbúðum, þar sem Vestmanna
eyingrum er veitt ýmiss kon-
ar þjónusta og aðstoð.
Á FYRSTU hæð er sameigin-
le.g skrifstofa bæjarsjóðs, bæj
arfógela, afgreiðslu almanna-
tryg.giniga og sjúkrasamlags-
ins, og er hún opin kl. 10—12
og 13—15.
Símar í Hafnarbúðum:
Skiptiborð fyrir allar
deildir: 25788, 25795, 25880 og
25892.
Svarað I síma til lcl. 19.
Vinnumiðlun: Tollstöðvarhúsið
fn'æst hðíninni),! simi 25920.
!i' í)i' • ■: I
Sími 11691.
Aðseturstilkynningar: Hafnar-
búðir (1. hæð).
Heimildarkort: Hafnarbúðir (1.
hæð).
Mötuneyti: Hafnarbúðir.
Fjúrhagsaðstoð: Bæjarstjórn
Vestmannaeyja, Hafnarbúðum 3.
hæð).
Húsnæðismiðlun: Tollstöðvar-
Ráðieggingastöð Rauða kross-
iii8: Heilsuverndarstöðinnl við
Barónsstíg (gengið inn um
brúna), mánudaga til föstudaga
kl. 17—19, símar 22405, 22408,
22414.
húsið (næst höfninni), simi 12089.
Barnagæzla 2—6 ára barna:
1 Neskirkju mánudaga til föstu-
daga kl. 13—17. Á Silungapolli
er dagheimili kl. 09—17. Börnun-
úm er safnað saman á nokkrum
stöðum að morgni og skilað þang
aö aftur að kvöldi. Framkvæmda
stjóri er Sigurgeir Sigurjónsson,
símanúmer hans verður birt inn-
an tlðar. Síminn 1 Neskirkju er
16783 og á Silungapolli 86520.
Kirkjumál T.andakirkju: Sr.
Þorsteinn L. Jónsson er til viðtals
alla virka daga kl. 14—17, símar
12811 og 42083 (heimaslmi).
Séra Karl Sigurbjörnsson: Sími
10804.
Prestarnir hafa viðtalstíma 1
kirkju Óháða safnaðarins á þriðju
dögum kl. 18—19, simi 10999.
Læknisþjðnusta: Domus Med-
ica við Egilsgötu. Viðtalstímar:
Ingunn Sturlaugsdóttir kl. 9—
11.30 og 13—15, sími 26519. —
Einar Guttormsson mánudaga og
föstudaga kl. 14—16. AÖra daga
(nema laugardaga) kl, 10—12,
sími 11684. —• Kristján Eyjólfsson,
héraðslæknir, kl. 10—12, simi
15730. — Óli Kr. Guðmundsson,
tlmapantanir eftir samkomulagi,
slmi 15730. Læknarnir skiptast á
um þjónustu úti i Vestmannaeyj-
um.
Heilsugæzla: Ungharnaeftirlit t
Heilsuverndarstöðinni 1 Reykja-
vlk (hjúkrunárkona frá Vest-
mannaeyjum). — f Kópavogi,
Garðahreppi og Hafnarfirði:
Heilsuverndarstöðvar viðkomandl
staða. Timapantanir æskilegar. —
Mæðraeftirlit I Heilsuverndarstöð
innl 1 Reykjavik. Tímapantanir
æskilegar.
Tannlækningar: Börnum á skóla
aldri veittar bráðabirgðatannvið-
gerðir I tannlækningadeild Heilsu
verndarstöðvarinnar, slmi 22400.
Eyjapistill er á dagskrá hljóð-
varps daglega kl. 18. Umsjónar-
menn svara í síma 22260 daglega
kl. 13.30—15.30, nema sunnudaga,
þá er númerið 22268. Á kvöldin
svara þeir í síma 12943 og 34086.
TPPLV’SINGAR:
Barna- og gagnfræðaskólarnir:
Gagnfræðaskólinn (I Laugalækj
arskóla): 83380. — Barnaskóiinn:
33634 (Laugarnesskóli) og 83018
(Langholtsskóli).
Upplýsingamiðstöð skólanna: —
25000.
Ræjarfégetaemhættið: 26430
Iðnnemaaðstoð: 14410
Bátaábyrgðarfélag Vestmanna-
eyja: 81400
Iðnaðarmenn: 12380, 15095,
15363
Sjómenn: 16650
Verkafólk: 19348
Utibú Utvegsbankáns i Eyjum:
17060
Sparisjóður Vestmannaeyja:
20500
Vélsmiðjurnar 1 Eyjum: 17882,
25531
Afgreiðsla Eimskips í Eyjum:
21460, innanhúsnúmer 63.
Aimannavárnir: 26120
Póstur: 26000
Upplýsingasími iögreglunnar I
Reykjavfk: 11110
Vinnslustöðin hf. og Fiskiðjan
hf.: 10599
Tónlistarskólinn: 14885.
Stýrimannaskólinn: 20990.
Isfélag Vestmannaeyja h.f.:
22014.
Sameiginleg skrifstofa frystihús
anna í Eyjum: 21680.
Vestmannaeyingar utan Reykja
víkur geta fengið upplýsingar um
aðstoð í þessum símum:
Akureyrl: 21202 og 2160L
Selfoss; 1187 og 1450.
Keflavik: 1800.
Kópavogur: 41570.
Hafnarfjörður: 53444.