Morgunblaðið - 11.03.1973, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.03.1973, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR II. MARZ 1973 Texti: Stefán Halldórsson. Ljósmyndir: Leikfélag eRykjavíkur — OÓ. maðurinn, sem situr úti í sal og horfir á.“ Hvað heldurðu að verði þér minnisstæðast? Þetita er al- gjörlega ný reynsla fyrir mig og það skilur mest eftir sig i minningunni. Þótt þetta hefði verið allt annar söngleikur, t.d. eftir Rodgers og Hammerstein, þá hefði sú nýja reynsla skilið mest eftir.“ En hefur efnið ekki verið þér hugleikið? „Nei, það hafa ver- ið svo mikil læti í kringum síð- ustu æfingarnar, frumsýning una og þessar síðustu vikur, að ég hef forðazt það, hvenær sem mér hefur gefizt frístund, að hugsa um verkið og efni þess. Ég er fyrst núna að jafna mig hana. — Kannski lít ég ekki nógu Maríulega út, er kannski of saklaus í útliti fyrir konu með þessa fortið. Áhorfendur skynja ekki þessa fortíð, nema þá kannski í lag'nu Hvernig á ég þá að eiska hann?“ Hveiáiig er að leika? „Mér finnst þetta ekki svo mikill leik ur, ég hef aldrei leikið áður. En þó er þetta ekki bara söngur: ég reyni að koma tilfinningum á framfæri með hreyf ngum, þótt þær séu ekki miklar. — Ég var fyrst taugaóstyrk, en ekki mikið upp á síðkastið, þetta er nú orðinn vani. Fyrst var ég of.saiega stíf — það var svo skrítið að fara inn í hlut- SÝNING Leikfélags Reykja víkurá rokkóperunni „Súp- erstar — Jesús Guð Dýrðl- ingur“ hefur vakið mikla athygli. Blaðamaður Morg- unblaðsins átti eftir sýning- una sl. miðvikudagskvöld stutt viðtöl við helztu Ieik arana í verkinu og fara þau hér á eftir. Guðmundur Benediktsson er nánast öllum ókunnur, nema fylgismönnum hljómsveitarinn- ar Mána frá Seifossi, sem hann hefur leikið með meira og minna frá upphafi. Mörgum kom það því á óvart að hann skyldi fenginn til að fara með hlutverk Jesú Krists, ekki sizt honum sjálfum: „Ég hef ekki fyllilega gert mér grein fyrir því ennþá, hvað það er að leika Jesú — það er svo margt annað, sem hefur ver ið mér nýtt, því að þetta er í fyrsta skipti sem ég kem fram á leiksviði.“ Tilfinningin að vera Jesús; er hún ekki dálítið óþægileg? „Nei, ég hef ekki fundið neitt fyrir þvi hið innra með mér. Verkið sjálft hefur líka sann- fært mig um að það sé ekkert syndsamlegt að leika Jesú.“ Undirbúningurinn fyrir hlut- verkið: „Ég las handritið og ræddi þetta við leikstjórann, en ég leit ekkert í Biblíuna. Ég er ekkert viss um að það hefði verið betra.“ Persónan Jesús: „Mér finnst þetta trúverðug persóna af höf undanna hálfu. Ég held að hann hafi fyrst og fremst verið mað ur og ég er sáttur við það, hvað hann er gerður mannlegur, enda þótt ég sé ekki endilega fullkomlega ánægður með öll atriði hans í verkinu." Er erfitt að leika Jesús? „Ég leik hann bara eins og hann sé maður. Sem viðvaningur á sviði verð ég að byrja að framkvæma skipanir leikstjórans. Annars finnst mér þetta vera meira söngur en leikur — það að leika er svo algjörlega ný reynsla fyrir mér.“ Hefurðu orðið fyrir einhverju aðkusti fyrir að vera að leika Jesús? „Nei, ég hef ekki orð ið fyrir neinu aðkasti persónu- lega og sýningin í heild hefur ekki fengið neitt slíkt á sig, svo að talizt geti.“ Efni sýningarinnar: „Þetta þarf ekki endilega að hafa gerzt nákvæmlega svona, en þetta verk höfðar meira til okkar eins og það er, það er raunveru legra, og réttari uppsetning mið að við það að það er nútima- Shady Owens í hlutverki Mariu Magdalenu. SÚPERSTAR eftir öll lætin, og get farið að hugleiða það.“ SIIADY Owens hefur um margra ára skeið verið ein fremsta poppsöngkonan hér á landi, með hljómsveitunum Óð- mönntim, Hljómtim, Trúbrotl og nú síðast sem liðskona hljóm sveitarinnar Náttúm, sem reyndar annast undirleikinn á sýningum á Súperstar. Shady fer rræð eina stóra kvenhlut- verkið í verkinu, hlutverk Maríu Magdalenu. „Ég kynnti mér ekki Biblíuna sérstaklega við undirbúning hlútverksins, ég reyndi bara að taka það eins og höfundarnir sjálfir segja til um, eins og það kemur fram i handrit nu. — Ég hafði séð sýningu á Súperstar í London og varð eiginlega ekki vör við Maríu þar, hún kom bara fram og söng lögin sín, söng að vísu vel, en sýndi eng- ar tilfinningar og það var ekk- ert hjá henni, sem snerti mann. Pétur (E'narsson, leikstjóri) gaf mér me'ri hreyfingar, meira svigrúm en bara að ganga íram og syngja." María Magdalena: „Hún hef- ur verið með svo mörgum karl- mönnum áður, kannski verið vændiskona, og það er alltaf þetta „þema“ á bakvið. En á sviðinu er hún ekkert slíkt, bara kona, sem ber hlýjar og blíðar tilfinningar til Jesú. Fyrst er hún aðeins að reyna að róa Jesú og láta honum líða vel. Síðan kemur í ljós, hvað hún er hrædd við sjálfa Sig, hún finnur þessa sterku tilfinn- ingu í fyrsta sinn, að Jesú tek- ur hana sem manneskju, en ekki sem vændlskonu. Hún veit ekki hvað hún á að gera, hana langar til að vera honum svo biíð og góð, en Júdas truflar verkið, að vera ekki lengur ég sjálf.“ Er þetta likt liljónilekiim? „Nei, þar er allt öðru vísí stemmning, meiri læti í táning- unum og æsingur. Hér er mik- ið af fullorðnu fólki, sem gefur þessum áhorfendahópi alvar- leikablæ. Hér er horft meira á manm og fóllk er gagrurýna. Á hljómleikum get ég verið ég sjálf og gert það sem ég vil, get verið frjáls og hreyft mig eins og ég vil, en hér má ég ekki gera meitt slíkt, sem ekki passar við hlutverkið. Ég má ökki brosa þegar ég Vil, ég má ekki vera Shady. Og ég finn einhvern veginn meira að aug- un stari á mig utan úr sal.“ Pálmi Gnnnarsson hefur um nokkurra ára skeið verið söng- vari og hljóðfæraleikari í vin- sælum hljómsveitum, eins og t. d. hijómsveitum Magnúsar Ingi marssonar og Ólafs Gauks. Einnig hefur hann verið með eigin hljómsveit, Musicamaxima en hætti í henni fyrir hálfum öðrum mánuði, þar sem hann kaus fremur að láta Súperstar ganga fyrir. Hann fer með eitt erfiðasta hlutverk sýningarinn- ar, hlutverk Júdasar: „Það er mjög margt mann- legt í Júdasi, hann er í okkur öllum að meira eða minna leyti, hann er breyzkur maður eins og við. Hann hafði visst í huga í gegnum þetta allt, hann vildi ekki þessa guðsdýrkun á Jesú. — Ég held að þetta hafi verið svona í raun og veru og mér finnst ég skilja skólakristin- fræðina mína miklu betur núna.“ Hefurðu lesið Biblíuna vegna þessarar sýningar? „Já, ég hef gert það, en ég hafði lesið hana mér til gamans áður fyrr í skóla, ég hafði alltaf svo gam- an af mannkynssögu. Mér finnst, að Biblian hafi verið að reyna að færa sönnur á yfir- heilagleika Jesú Krists, og hann var i mínum huga efst uppi, á meðan Júads var í skítnum. En nú eru þeir báðir á sama stigi, báðir hugsandi menn. En þeim verður sundurorða, þvi að Júd- asi finnst Jesús vera að upp- hefja sjálfan sig, og það er ekki sársaukalaust fyrir Júdas, þvi að hann lítur ákaflega stórum augum á Jesú og þykir vænt um hann. Honum finnst Jesús hafa fylgt góðri stefnu, en sé núna að eyðileggja hana með því að upphefja sjálfan sig. Þetta verður til þess, að Júdas verður mjög ruglaður og villt- ur, hann elskar Jesú og hatar Jón Sigurbjömsson í hlutverki Kaífasar og Gylfi Gunnarsson í hlutverki Annasar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.