Morgunblaðið - 11.03.1973, Side 23

Morgunblaðið - 11.03.1973, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUN-NUDAGUR 11. MARZ 1973 23 EKKI SÖGU- ALDARBÆ SAGNFRÆÐIRÁÐSTEFNA MlMIS, félags stúdenta í íslenzk- um fræílum, haldún dagana 21., 25. og 28. febrúar 1973, skorar á ríkisstjómina að failla frá smíði sögualdarbæjar, þar sem fomleifaraTLnsökn ir ti>l þessa leiði inaumast í ljós næga undir- stöðu til slikrar Simíðar, en lands- menm megi láta sér Stöng í Þjórsárdal nægja, unz frekari rannsókmir hafi varpað auknu ljósi á fomar menniingarleifar. Ljagði ráðstefnan enmfremur til, að fé því, er varið skyldi til fyrmefndrar bygigimgar yxði var- ið til fornlieifa ran nsókn a. — Súperstar Framh. af bls. 11 fyrir mig og mína kynslóð. Mörg lögin eru mjög aðlað- andi, dramatískt rétt byg.gð og hrifandi sem slík. — Að vísu finnst mér skrítið að syngja í magnarakerfi, en ég syng bara með minni rödd og læt svo Jón Kristin Cortes (hljóðstjóra) um að jafna það. Sumt í minni ruliu er talsvert mikið neðar en ég á að venjast, og það myndi aldrei heyrast í mér, nema af því að ég er magnaður upp.“ Persónan Kaífas: „í>að er nú bezt að taka það strax fram, að ég er enginn Biblíuþekkj - andi, þótt ég hafi að visu lært kristinfræði í skóla. Og Kaífas sem persónu þekki ég ekki mik ið. En hann er alltént maður- inn, sem rekur á eftir því að Kristur er krossfestur, hann er höfuðaflið þar á bak við. Og þetta er síður en svo nokfcurt góðmenni." Að leika í Biblíuverki: „Þeg- ar ég fór að sitja og fylgjast með á aafingum, þá varð ég svo- lítið tekinn af sögunni af Kristi. Og þegar ég fór að hugsa um þetta upp á nýtt, þá gerði ég mér grein fyrir hvað lítið ég vissi í rauninni um þetta efni.“ Moðferðin á efninu: „Þetta er tekið nýjum og nýstárlegum tökum, þó ekki þannig að það ætti að styggja þá, sem eru heit trúaðir. Sýningin endar greini- lega á því, að menn skúli hugsa sinn gang — hún er fyrst og fremst umhugsunarefni. Það er farið nýstárlegum og frjálsleg- um höndum um margt, en margt er bara berar staðreyndir, eins og til dæmis meðferðin á Kristi. — En það er rétt, að það komi fram, að ég er maður, sem hversdags- lega hugsar lít'ð sem ekki neitt um þessi miál, nema þegar á bjátar. Og ég hef ekki kynnt mér þessi mál sérstaklega, nema svona út frá túlkunarlegu sjónarmiði, að ég hef svolítið kikt í Bibliuna, en það er ekk- ert sem skiptir máli. Kaifas er dreginn ákaflega hreinum Jínum af höfundanna hálfu, og Pétur (Einarsson, leikstjóri) hafði ákveðnar meinlngar um verkið, þannig að þetta lá ljóst fyrir.“ Verffur verkið þér minnis- stætt? „Fyrst og fremst fyrir það, hvað það er frábrugðið öllu því, sem ég hef áður gert.“ En efnið? „Nei, það hald ég ekki. Og þó hafa sum atriðin snert mig tilflnningalega æ síð- an form fór að komast á æfing arnar. Það er bara tónlistin, en ég fæ alltaf eitthvað í mig, þeg- ar Jesús syngur lagið, eftir að Símon oftrúaði og múgurinn hafa ákallað hann. Eins eftir að Kristur er látinn á krossinum og tónlistln hækkar upp. Það er mjög grípandi, eins og stemmningin sjálf á leiksvið- inu á þvi augnabliki." IESIÐ Wnbit, Hjúkiunarfélog íslands heldur fund í Hótel Esju, mánudaginn 12. marz klukkan 20.30. FUNDAREFNI: 1. Nýir félagar boðnir velkomnir. 2. Erindi: Ólafur Míxa, læknir. 3. Kosning fulltrúa Reykjavíkurdeildar. Stjórn H.F.Í. og Reykjavíkurdeildar. Orðsending til kvenna frá leitarstöð B Athygli skal vakin á því að konur á aldrinum 25—70 ára og fengið hafa bréf undanfarna mánuði um að koma í skoðun, geta komizt að fljótlega og sama gildir um þær, sem að einhverjum ástæðum hafa ekki fengið bréf. Dragið ekki að panta tíma í síma 21625 fyrir hádegi. KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS, Suðurgötu 22. Lockheed L-1011 minnkar hávaðasvæði kringum flugvelli um 92o/o 'ý Sameiginlegt flugráð Bandaríkjanna FAA, hefur lýst því yfir, að L-1011 TriStar með Rolls-Royce hreyflum sínum, sé hljóðlátasta stóra þota heims. Það eru góð tíðindi fyrir fólk, sem á heima í nánd við flugvelli. Flug- véladynur angrar fólk þegar hann verður hærri en þau hljóð sem venjulega heyrast í borgum og bæj- um. TriStar veldur slíku í flugtaki á u.þ.b. 13 ferkm. svæði. Eldri fjög- urra hreyfla þotur hins vegar á um 161 ferkni. Á skýringarmyndinni til hægri má sjá þennan mikla mis- mun á L-1011 og eldri þotum. Innan 13 ferkílómetra svæðis gerir L-1011 þotan ástandið líka mun betra, því hún sendir frá sér minna en helming þess hvimleiða hávaða sem fylgir eídri þotum. (Staðfest í skýrslu um hávaðarannsóknir, sem ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur gef- ið út). Það sem gerir L-1011 TriStar að svona góðum nágranna eru Rolls- Royce RB. 211 hreyflarnir. í þeim eru einfaldlega færri hlutir sem valcla hávaða. Og mikið af þeim hávaða, sem ekki er unnt að komast hjá, er lokaður inni í hreyflunum, og dregið úr há- vaða sem stafar af háþrýstingi með sérstakri lofthjúps einangrun. TriStar kom inn í flugsamgöngur sem hljóðlátasta risaþota heims. í dag er hún notuð af Eastern og TWA. Og senn kemur hún í notkun hjá Air Canada, All Nippon Airways, BEA, Delta og hjá brezka leiguflug- félaginu Court Line og hinu þýzka LTU leiguflugfélagi. Gætið að TriStar. Það er erfitt að heyra í henni. Hávaðasvið hjá eldri fjögurra hreyfla þotum við flugtak Hávaðasvið hjá L-1011 við flugtak Lockheed L-1011 Hljóðlátasta risaþotan Braut notuð fyrir flugtak

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.