Morgunblaðið - 15.03.1973, Page 17

Morgunblaðið - 15.03.1973, Page 17
MORGUN’BL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1973 17 Ellert B. Schram, alþm.; „Þjóðnýta skal lyfja- söluna 1 landinu“ í SÍÐUSTU viku var til umræöu á Alþingi eitt af eftirlætis hugarfóstr- um Allþýðubandaliaigsins, frumvarp til laga um Lyfjastofnun ríkisins. En annaóhvort erþetta þjóðnýtingarfrum varp svo sakleysislegt í útliti, ellegar að menn eru almenmt svo sinnulaus- ir um ráðsiag ríkisstjómarinnar, að flutndnigur frumvarpsins hefur ekki þótt frásiagnarverður í málgögnum stjórnaramdstöðumnar. Hvað þá, að þar haifi verið tíunduð rök gegn þessu frumvarpi. Því hefur verið tekið með þegjandi þögninmi, rétit eins og stofmun einok- umarfyrirtækiis sé hafin yfir ágrein- ing. Þjóðvi’ljinn skidur þó fyrr en skellur i tönnum, etnda sjál'fur höf- uðpostuldnn, Magmús Kjartansson, sem fiytur málið í nafni ríkisstjórn- arinnar. í því blaði er þessu frumvarpi lýst sem merku framfaraspori og mótbár- ur, sem settar eru fnaan á þirngi, túlk- aðar sem sjónarmið heildsala, og þarf þá ekki frekar vitnaruna við. Heild- sal'a er á ÞjóðviljaimáJi ímynd spiil- ingair og gróðabralls. —-O------- En skyldi nú þetta frumvarp ein- asta snúast um hagsmuni örfárra heildsala? Eða skyldi nú eiga að leggja niður heildsöluna, þennan óþarfa millilið? Þvi fer f jarri. Heiidsalan skal rek- in áfram, nú aðeins í höndum ríkisims. Miliiliðinn óþarfa er ekki hægt að leggja niður og er það í sjálfu sér athygliisverð viðurkenn- ing. En til þess að hrinda af stokkun- um þessari ríkisiheildsölu, skai leggja fram kr. 25 millj. úr rikisisjóði og hann skail jafnframt ábyrgjast lán- töku allt að kr. 100 miltj. Minna má það ekki vera, og mætti ætla að ríkis- sjóður sé nú vel aflögufær. Lyfjastofnunin verður einkasala, einokunarfyrirtæki ríkisins og um leið skiigetið afkvæmi þess kosninga- boðorðs Alþýðubamdalagsins að ,,þjóð nýta skulii lyfsöiuna í landinu". Þetta kosningaloforð var eins og annað, sem frá AI þýðuhandalaginu kom, tekið nær orðrétt í Ólafskver, mál- efnaisamniwg rikisstjórnarinnar. ----O----- Hendur voru látnar standa fram úr errnurn. Nefnd var skipuð og sérfræð- ingur settur á laun í marga mánuði tái að semja skýrslur, sem renna skyldi stoðum undir kosti þjóðnýting- arinnar. Nú lá reyndar fyr ir, að ýmissa úr- bóta var þörf í lyfsölunni, enda eng- in nýlunda að bæta megi hagkvæmni í rekstri og sjálfsaigt mál er að tryggja öryggi í lyfjamálum og bæta þjón- ustu eftir því sem kostur ér. Þar þarf ekki einkasölu til, og vitaskuld er einokun ekki lausnarorð sMkra fram- kvæmdaratriða. Þetta hefur Lyfja- fræðingafélag íslainds reymdar tjáð sig um, og félaigið hefur eindregið lagzt gegn þessu frumvarpi. Það hef- ur hafnað því, en bent á aðrar leiðir, EHert B. Schram sem tryggja framgang þeirra mark- miða, sem keppt sikal að. Lyfjafræðimgar hafa m. a. bent á eimkaumboðsmannakerfi, sem að þeirra áliti tryggði úrbætui- og yrði ríkissjóði að kostnaðarlausu. Sömu- leiðis hefur verið vakin athygli á þvi, að nú þegar eru fyrir hendi lyfja- verðskrárnefnd, eitu.refnanefnd, sér- stakur eftiriitsmaður með lyfjabúð- um og reyndar fleiri aðilar hafa með höndum þani verkefni, sem úrbóta þarfnast. Það hefur m. ö. o. ekki skort aðila eða reglugerðár á þessvim vettvangi, heldur raunáiæft starf og rétta fraimkvæmd. Þessu til viðbótar er það almennt viðurkennt, að með tilkomu einkasölu mun lyf javerð að ölium líkindum hækka verulega og er það reyndar játað af þeirri nefnd, sem undirbjó írumvarpið til flutnings. ----O---- En á þetta má ekki hlýða. Það skiptir þjóðnýtingarpostulana engu, enda þótt bent sé á, að einfaldast sé að framkvæma þær reglur og þær hugmyndár, sem til eru og fram eru settar, af þeim, sem á þessum vett- vangi starfa. Það breytir emgu i aug- um þessara „lýðræðissinna", enda þótt iyfjafræðingar sjálfir séu á mótá svo róttækum breytingum, og það virðist liggja þjóðnýtingar- mönnum í léttu rúmi enda þótt verð kunni að stórhækka á lyfj- um í útsölu. Ákvörðunin heíur vérið tekin, þjóðnýtimgunná skal hrint í íramkvæmd, hvað sem hver segir, Tilgangurinn er ekki sá að leggja niður „hina óþörfu heildsölu"; ekki sá, að fara að ráðum þeárra, sem þessa atvinnu stunda; ekki sá, að lækka verð til neytenda. Tiigangur- inn er sá einn, að knýja fram póli- tískt trúaratriði Alþýðubandalagsins — „þjóðnýta skal lyfsöluna í land- in'u“. — -O----- Nú þarf enginn að halda, að þjóð- nýting lyfsöiunnar sé endanlegt tak- mark þjóðinýtingairáforma. Hún er aðeins litilvægur áfangi; liður í þei.rri pólitíisku stefnu að þjóðnýtá atvinnurekstur, þjóðnýta fólikið í landinu, umsvif þess og framtak. Frumvarpið um Lyfjastofnun rikis- ins er hins vegar gott dæmi urn það sem koma skal. Nú á ríkisvaldið að taika váð. Skriffimnskan á að leysa samkeppnina af hólrni, valdahrokinn á að vera leiðarijós þjónustunnar, einokúnin tekur við af frjálsræðinu. Það er aðeins einni spumingu ósvarað; Skyldi þjóðin sækjast eftir slíiku fyrirkomulaigi? A-I>ýzkaland: FLOKKSAGI Á MÓTI FERÐAMÖNNUM EFTIR MAGNÚS SIGURÐSSON Á SlÐASTA ári streymdu nálægt 7 millj. Vestur-Þjóðverja yfir landa- mærin til Austur-Þýzkalands í því skyni m.a. að hitta að nýju ættingja og vini eftir margra ára aðskilnað. Þessu olli þiða sú, sem orðin var í samskiptum Austur- og Vestur- Þýzkalands. En straumurinn lá bara aðra leiðina, þ.e.a.s. til austurs. Frá Austur-Þýzkalandi fengu engir að fara vestur á bóginn nema helzt gam- alt fólk, sem komið var á eftirlaun og gat ekki framar komið hinu austur- þýzka ríki að gagni. En þessi mikli fjöldi Vestur-Þjóðverja hefur valdið austur-þýzku stjórninni þungum áhyggjum. Hvernág á að vera unnt að koma í veg fyrir, að þegnar hennar verði fyrir „óæskilegum áhrifum frá vestanmönnum" ? Þetta vandamál er nýtt af nálánni fyrir austur-þýzk stjórnvöld. Berlín- armúrinn og mannskæðar gaddavirs- girðingar austanmegin meðfram endiiöngum 1350 km löngium landa- mærunum milli þýzku ríkjanna hafa í reynd komið í veg fyrir öll sam- skipti Austur-Þjóðverja við Vestur- landabúa í meira en áratug. Með þess um mannvirkjum tókst líka að koma nær alveg i veg fyrir fólksflóttann frá Austur-Þýzkalandi, sem var geysi legur áður fyrr. Með fjórveldasaLmn- ingnwn um Berlín og samningnum miili þýzku rikjanna innbyrðis í fyrra var gert ráð fyrir heimild til handa Vestur-Þjóðverjum til þess að fara til Austur-Þýzkaíands án verulegra hamla. Austur-þýzk stjórnvöld hafa jafnframt byrjað mikla auglýsinga- herferð í Vestur-Berlín og Vestur- Þýzkalandi svo og i fleiri löndum í þvi skyni að efla ferðamannastraum- inn til Austur-Þýzklands sem mest. Tilgangurinn þar að baki er tvenns konar. 1 fyrsta lagi skortir Austur- Þýzkaland sem önnur Austur-Evrópu- EVR Erich Honecker, leiötogi kommúnista- flokks Austur-Þýzkalands. í kommún- istalönduniini er flokksforinginn áhrifameiri en nokkur annar maður og allt gert til þess að efla virðingn hans. I sendiráði Aiistnr-Þýzkalands í Reykjavik blasir við manni mynd af Honecker, þegar komiö er inn, í stað myndar af þjóðhöfðingja lands- ins eins og venja er í sendiráðnm annarra ríkja. rík'. mjög „harðan“ gjaldeyri, þ.e.a.s. gjaldeyri, sem unnt er að verziia fyrir hvar sém er. Austur-þýzka markið er rétt eins og rússneska rúblan hvergi selt á skráðu gengi, heldur á miklu lægra verði. Utanríkisverzlun lands- ins fer fram með vöruskiptum, fyrst og fremst við kommúnistaríkin í Austur-Evrópu en einnig við s«m Vesturlönd e ns og t.d. ísland. Sífel’ld- ur skortur á „hörðum“ gjaldeyri veld- ur samt margvíslegu óhagræði og úr þessu á nú að reyna að bæta að ein- hverju leyti með mikili „ferða- mannasókn“. Annað kemur einnig til. Að undan- förnu hafa orðið miklar breytingar á stöðu Anstur-Þýzkalands út á við. Það hefur verið viðurkennt sem fuál valda ríki af Vestur-Þýzkalandi og mörgum öðrum rikjum svo sem ís- landi, og hyggst senn sækja um upp- töku í Sameinuðu þjóðirnar. Nú hafa um 75 ríki tekið upp stjómmáJasam- band við Austur-Þýzkaland. Þessari miklu „sókn“ á vettvangi utanrikis- mála á að fylgja eftir með því að reyna að skapa betri mynd af landinu út á v ð en verið hefur. Berlínarmúr- inn og dauðagirðingamar á lamda- mærunum í vestri hafa ekki að ástæðulausu skapað þá mynd af Austur-Þýzkalandi í vitund fóiks víða um heim að þar sé við lýði stærsta þjóðarfangelsi 20. aldarinnar. Þarna búi um 17 millj. manna hneppt- ir i þræildómsfjötra. Þessari neikvæðu mynd á að reyna að eyða og benda á þess i staðinn, að Austur-Þýzkaland er í tíunda sæti á meðal iðnaðarianda heims og efna- hagslega öflugasta land Austur-Evr- ópu að Sovétríkjunum einum undan- skildum. Verðlag i landinu er stöð- ugt, uppbygging mikíl og lífskjör hafa batnað verulega á nndanfömum áratug. Þrátt fyrir þetta myndi stjórn landsins ekki standast neinar kosn- imgar með lýðræðislegum hætti, því að fulivíst er, að hún nýtur ekki stuðnings meirihluta fólks. Það, sem gerzt hefur, er einungis það, að þegn- arnir hafa lært að sætta sig við hana. Harðúðug einræðisstjórn í aldarfjórð ung hefur ekki héldur megnað að kæfa vonir fólks um „sósialisma með mannúðlegu yfirbragði“, sams konar og ríkti stutt snmarskeið i Tékkósló- vakíu 1968. En vaxandi ferðamannastraumi til Austur-Þýzkalands fylgja margvís- leg vandkvæði, eins og getið var um hér i upphafi. Stjómin óttast einkum, að samskipti við fólk að vestan eigi eftir að hafa óæskileg áhrif á þegna hennar. Á iiiðmu ári var þegar skorin upp herör til þess að stemma stigu við þessu. Almenningur var hvattur til þess að hafa sem allra minnst sam- skipti við fólk að vestan og lagt var fyrir flokksfélaga að hafa eftirlit með því, að þessu væri stramglega fyigt eftir. Þetta hefur haft í sér bæði alvar- legar og spaug legar hliðar. Þannig skýrði Vestur-Berlínarbúi frá þvi í síðasta mánuði nýkominn heim úr ferða’agi um Austur-Þýzkaland, að á einum stað hefði hann stöðvað bíl til þess að hjálpa manni, sem ekið hafði út í skurð við vegarbrúnina. Það kom í ljós, að sá óheppni var flokksfélagi. Síðan sagði sá síðarnefndi og kimdi: — Ég má víst ekki iáta hjálpa mér. Eg má víst ekki einu sinni tala við þig- Enn er engin reynsla komin á það, hvort austur-þýzkum stjórnvöldum tekst að leysa þennan nýja vanda, sem þau standa frammi fyrir. Bætt lífskjör og einhliða uppeldi austur- þýzkra þegna í marxistískum anda kann að vera einhvers megnugt, en alls ekki einhlítt. Þarna kann einmitt að vera á ferðinni erfitt, kannski háskasamlegt vandamál fyrir stjórn- arvöld landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.