Morgunblaðið - 21.03.1973, Side 17

Morgunblaðið - 21.03.1973, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 21. MARZ 1973 17 : ■ Þormóður Runólfsson: Þankabrot UMSKIPTINGAR í 1. des. blaði stúdenta 1972 má m.a. lesa eftirfarandi klausur: „Þeir (þ.e. „borgaraflokkamir") ljúga því að verkalýðsstéttinni, að mögulegt sé að „bæta hag“ hennar án þess að skerða hag borgarastétt- arinnar. — Þeir tala um kaupmátt- araukningu uim leið og þeir fremja kjaraskerðingu á verkalýð til að hygia burgeisum og broddborgurum. — Slagorð þeirra var i gær „félags- legar umbætur", í dag „atvinnulýð- ræði“. — Hvaða atvinnu-lýðræði get- ur orðið innan ramma borgaralegs þjóðfélags? — Hvaða atvinnu-lýð- ræði getur orðið á meðan minnihlut- inn kúgar meirihlutann? — Á með- an vinna verklýðs er söluvara og gróðauppspretta borgarastéttarinn- ar? . . .“ Ætla mætti, að sá, er svo skrifar, væri kominn alla mjög tiil ára sinna. Að minnsta kosti virðist hann hafa staðnað í hugsun og hætt að fyl'gj- ast með framþróun atvinnu- og efna- hagsmála í heiminum um það leyti sem iðnbyltingin mikla var að skríða úr eggi í Evrópu, þ.e. á seinustu áratugu.m 18. aldar og í upphafi þeirr ar nítjándu. — Eða hvernig gæti þessum góða manni — eða réttara sagt konu — að öðrum kosti dulizt þau endask pti sem orðið hafa á kjör um verkalýðsstéttarinnar sem ann- arra stétta frá upphafi iðnbyltingar- innar fram á okkar tíma, í þeim rikj- um sem hún hefur kosið að kalla „auðvaldsríki"? — Hvernig gæti konu þessari að öðrum kosti dulizt að langsamlega mestur hluti af „gróða atvinnutækja borgarastéttar- innar“ hefur annars vegar verið not- aður til að hækka kaup og stytta vinnutima launþega og hins vegar til að efla almenna menntun, auka félagslegt öryggi, bæta samgöngur, efla atvinnuvegina og fjölga þeim, þannig að fólk hefur yfirleitt haft næga atvinnu þrátt fyrir gífurlega fólksfjölgun, o.s.frv.? — Hvernig gæti henni dulizt sú þróun í átt til atvinnulýðræðis sem átt hefur sér stað í „auðvaldsríkjunum“, þegar kjör verkamanna nú á tímum eru borin saman við ástand þeirra mála í upphafi iðnbyltingar, þegar iðn- verkamenn í Bretlandi og víðar voru í suirnum tUfellum jafnvel verr settir en ánauðugir þrælar? — Hvernig gæti henni dulizt sú staðreynd, að iangflestir atvinnurekendur, kaup- menn, alþingismenn og aðrir um- svifa- og stjórnunarmenn (les „borg- arastétt“) hins íslenzka þjóðfélags eru skilgetnir synir bænda og verka- manna? íslenzkir vinstri-stúdentar halda því fram í fúlustu alvöru, að í „auð- valdsþjóðfélagi" sé ekki unnt að bæta kjör verkalýðsstéttarinnar. „Borgara-stéttin" eigi framleiðslu- tækin, framleiðsluna og fjármagnið, og noti það vald, sem þessu fylgir, til að „arðræna og kúga öreigastétt- ina“. Á hinn bóginn er því svo hald- ið fram, að á íslandi ríki „borgara- legt auðvaldsþjóðfélag". — Ef taka ætti þessar fullyrðingar vinstri-stúd enta alvarlega, yrði rökrétt afleið- ing þess sú, að kjör íslenzkrar al- þýðu hefðu Mtið sem ekkert batnað, allt frá grárri fomeskju. Nú vill svo til, að ísland er það land Evrópu, þar sem áhrifa „iðn- byltingarinnar naikiu“ fór einna síð- ast að gæta að nokkru marki. Því er það, að ekki þarf gamalt fólk til að muna tímana tvenna á Islandi. Til er aidrað fólk, sem í eigin per- sónu hefur komizt i kynni við nær- ingarefnaskortssjúkdóma s.s. skyr- bjúg. Það þekkir af eigin reynd, hvernig það er að búa i húsum, sem „halda hvorki vatni né vindi“ og geta ekki kveikt upp eld til að ylja sér við í helköldu skammdegi.nu vegna skorts á eldsneyti. Það þekkir atvinnuleysi í sinni verstu mynd, og veit því hversu óendanlega mikils virði næg atvinnu handa ölium er. Þetta fólk hefur af eigin reynd kynnzt örbirgð íslenzkrar alþýðu á fyrri tímum, og hefir sjálft fylgzt með þeim ævintýralegu breytingum, sem hafa orð ð á lífskjörum íslenzku þjóðarinnar á aðeins örfáum ára- tuigum. Er nokkur furða þó þetta fól’k hristi höfuð sin i forundran, þegar „menntamennirnir okkar" halda því fram sem sjálfsögðum sannleika, að „hið íslenzka auðvaldsþjóðfélag sé ekki fært um að bæta kjör alþýðunn- ar?“ — Er nokkur furða, þótt aldrað fólk heyrist stundum tuldra gremju- lega í barm sinn vandlætingarorð vegna „vanþakklætis unga fól'ksins nú á dögum?" Nei, það þarf enginn að furða sig á slíku. Hitt hlýtur aftur á móti að vekja óttablandna undrun allra hugs- andi, góðgjarnra manina, hvernig það getur hent stóran hóp sona og dætra íslenzku þjóðarinnar að slitna þann- ig úr tengslum við raunveruleikann og ánetjast erlendum ofbeldisöflum, sem hafa hryðjuverk, manndráp og kúgun efst á blaði í stefnuskrá sinni. Rithöfundurnn Arthur Koestler var um tíma félagi í Kommúnista- flokki Þýzkalands. Hann hefur lýst á eftirfarandi hátt hugsanagangi menntamanna í slikum samtökum: „Við vörpuðum menntunarfargani okkar fyrir borð, eins og farþegar á skipi, þegar þeir eru gripnir ofsa- hræðslu, unz ekkert var eftir nema bráðnauðsynlegasti forði vigorða, rökfræðilegra orðasambanda og marxistiskra tilvitnana, sem er hlð alþjóðlega djugashvilska hrognamál. Það varð sifelld orsök til sjálfsávítun ar, að hafa not.ð hins vafasama hagn aðar af borgarlegri menntun, að geta séð ýmsar hliðar hvers máls en ekki aðeins eina. Við þráðum að verða eins hugar og einfaldir. And- leg sjálfsvönun var ekki hátt gjald fyrir að geta að einhverju leyti iikzt féla.ga Ivan Ivanovieh." (Lbr. mín Þ.R.). Hversu stórum hópi íslenzkra menntamanna skyldi þessi lýsing Koestlers hæfa? — Er kannski, þegar allt kemur til alls, eitthvert sann- leikskorn fóligið í gömlum islenzkum sögnum um álfa-umskiptinga? Kalman Stefánsson: A útmánuðum NÚ er nýlokið fundi Norður- landaráðs í Osló. Þar kom fram sem oftar sú m'kla vel- vild, sem ísland og ísiending- ar njóta á hinum Norðurlönd- unum. Viðbrögð bræðraþjóð- anna á Norðurlöndum við þeim áföllum sem okkur hafa borið að höndum vegna jarð- eldanna í Vestmannaeyjum, eru hvemig sem á er litið stór höfðinigleg, bæði að þvi er varðar stjórnir iandanna og ekki síður sú mikla samúð al- mennings í þessum löndum, sem fram kemur bæði í orð- um og verkum. Við slíkri vel- vild er sjálfsagt að taka með miklu þakklæti hvaðan sem kemur. Það getum við þeim mun betur bert sem einhuga þjóð hefur þegar ákveðið að taka sameiginlega á sig allan skaða er af þessu áfalli hlýzt og er þar með raunar staðfest sú stefna, er upp var tekin að forgöngu Ingólfs Jónssonar árið 1970, er Heklu gos olli bændum miklu tjóni er borið var samei.ginlega af þjóðinni allri. Nú hafa frænd- ur okkar ákveðið að bera byrðina með okkur og þar með er raunverulega tekin upp sú stefna að slík áföll, hvar sem er á Norðurlöndum skuli borin sameiginlega, er vafalaust að farsæid mun fylgja þessari stefnu, sem er bæði hyggileg og drengileg. Al'lt er þá þrennt er, sögðu menn er gengi íslenzku krón- unnar var fellt í þriðja sinn, nú á ekki tveimur árum. Hætt er þó við, að um sé að ræða hreystiyrði fremur en eiginleg gamanyrði, því fremur sem menn höfðu kannski búizt við öðru fremur- af núverandi valdhöfum en sífelldum geng- islækkunum. Því vissulega benti málflutningur þessara manna á undanförnum árum engan veginn til þess, sem nú er fram komið. Þvert á móti virtust þeir í einlægni telja að það væri hið versta verk gagnvart alme.nningi að lækka gengi krónunnar. Nú er tími áramótauppgjör- anna og þeir sem reka fyrir- tæki sjá nú raunar fyrst hvern afrakstur starf þeirra á liðnu ári hefur gefið. Ef- laust er það misjafnt sem oft- ast áður, þó er liklegt að vegna mikillar atvinnu og þar af leiðandi góðrar kaupgetu almennings sé um aukna um- setningu að ræða hjá flestum vel reknum fyrirtækjum, sem starfa við eðlitegar aðstæður. Kalntivn Stefánsson Sú hugmynd hefur komið fram, að eftir- og næturvinna við gjaldeyrisskapandi starf- semi eigi að vera skattfrjáls, og þá jafnframt hluti sjómanna. Það er ekki nema eðlilegt að fólk, sem leggur á sig eftir- og næturvinnu í m klum mæli, svíði sú stað- reynd, að i flestum tilvikum fær það ekki einu sinni dag- vin.nukaup fyrir erfiði sitt, þegar frá hafa verið dregin hin afar háu opinberu gjöld, sem alla jafna koma á slíkar aukatekjur og nema yfirleitt 55%—60% af þeim fjármun- um sem aflað er. Þetta hlut- fali er þó mun hærra, ef um er að ræða tekjur af einhverri eign, sem menn eiga, þar sem þá bætast við fasteignagjöld sem hafa verið hækkuð mjög mikið eins og kunnugt er og svo eft'r atvikum eignaskatt- ur og aðstöðugjöld ef um rekstur er að ræða. Aldir hljóta að sjá að opinber skatt lagning er komin út í hreinar öfgar eða hvernig halda menn að t.d. ungu fólki, sem af dugnaði hefir komið sér upp þaki yfir höfuðið gangi að greiða auk vaxta af íbúðar- verði og annarra opinberra gjalda bæð; hin háu fasteigna gjöld og eru svo jafnframt reiknaðar allháar tekjur fyrir að búa i eigin húsnæði. En auð vitað á skattpínlngin sínar or sakir, það ern ekki bara vond ir stjórnmáiamenn, sem endi- lega vilja kreista sem mest fé undan blóðugum nöglum al- mennings af einskærri illigirni eða fégræðgi. Hér er um að ræða stefnu, þá stefnu, að stöðugt beri að þenja út opin- bera starfsemi, láta ríkisvald ið taka meiri og meiri þátt í, að ráðstafa þeim fjármunum sem þjóðin aflar. Þegar þesisi stefna rekst hins vegar á ósk ir almennings um auknar tekj ur til eigin ráðstöfunar mynd ast á milli spenna, sem á mjög verulegan þátt i verðbólgu undanfarinna ára. Þetta er sérlega áberandi um þessar mundir, vegna þess að nú hefur miklu dýpra ver ið seilzt i vasa h ns almenna manns af hálfu opinberra að- ila, en áður hefur þekkzt. — Þessu til viðbótar til að ýta undir aukna verðþenslu, kem ur svo einnig sú ríkjandi skoð un meðal manna að æðstu stjórnendur landsins skammti sjálfum sér ósanngjarnan hlut úr sameiginlegum sjóði lands manna. Enginn vafi er á því, að rétt er hið forna máltæki að „eftir höfðinu dansa lim- irnir“ og, að til dæmis launa kjör ráðherra nú, eru veruleg ur verðbólguvaldur í þjóðfé- laginu. Til þess að geta raun- verulega tekið forystu um meiri hófsemi í kröfugerð i þjóðfélaginu þyrftu æðstu stjórnendur lands ns þvi ef- laust að byrja á sjálfum sér, það myndi hafa meiri áhrif á viðhorf almennings en menn gera sér almennt ljóst. Ef svo væri snúið við blað- inu hvað snertir opinberar á- lögur og þeim létt af í nokkr um mæii með raunverulegum sparnaði i rekstri ríkis.na bæði með því að lækka hæstu launaflokka ríkisins, sem brjóta í bága við réttlætistil- finningu almennings og jafn- framt með því að hverfa frá þeirri stefnu að rétt sé að ríkið yfirtaki stöðugt stærri hluta af efnahagslífinu og stöðugt sé hægt að hækka ölil möguieg og ómöguleg gjöld, þar sem ekki muni um einn pinkilinn enn. Þá væri mikil von til að linna myndi þeirri óðaverð- bóligu sem hér hefur ríkt um skeið og brýtur niður þegn- skap h;ns almenna manns, þar sem reglan verður að hver hrammsar til sín sem hægt er og hugsa þá margir, „það höfðingjarnir hafast að, hinir ætla að leyfist það“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.