Morgunblaðið - 30.03.1973, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1973
Þjóðleikhúsið:
Barbara var erfið viðureignar.
Svegás gæzlumaður tekur
duglega í Maju (Steinunn
J óhannesdóttir).
Sjö
stelpur
frum-
sýnt
Helga Þ. Stephensen í hiutverki Ásu.
Við matarborðið. Ljósm. Kr. Ben.
hann síðan sögur undir dul-
nefninu Erik Thorstensen,
sem leikritið Sjö stelpur er
síðan gert eftir. Leikritið ger-
ist á upptökuheimili upp i
sveit. Það fjallar um sjö svo-
nefndar vandræðastúlkur,
sem eiga við ýmiss konar
vandamál að stríða, bæði per-
sónuleg og þjóðfélagsleg, svo
sem fíknilyf, kynsjúkdóma og
andlegan vanþroska. En allar
eiga þær eitt sameiginlegt.
Þær þrá vini, börn, ást og fag
urt mannlíf
Að formi til er leikritið
raunsæisverk, gerist yfireina
helgi, á upptökuheimilinu. Öll
helztu atriði leiksins og jafn-
vel tilsvör eru sannsöguleg.
Lýsing höfundar á hinum
óhamingjusömu stúlkum er
gerð af mikilli nærfærni og
samúð, en þó ófegruð með
öllu. Hún bregður ijósi á hið
margumrædda unglingavanda
mál, eins og það birtist í vel-
ferðarþjóðfélagi nútímans.
Sjö stelpur var frumflutt á
litla leiksviðinu á Dramaten,
þjóðleikhúsi Svía, þann 7.
sept. 1971. Þar vakti leikur-
inn svo mikla hrifningu hjá
leikhúsgestum, að hann var
fluttur á aðalleiksvið leikhúss
ins og gengur þar enn.
1 leiknum eru 10 hlutverk,
öll veigamikil. Mest áberandi
hlutverkin i leiknum eru stúlk
urnar sex, (sú sjöunda sést
aldrei), en þau eru í höndum
ungra leikkvenna, sem útskrif
azt hafa úr leikskólum Þjóð-
leikhússins og Leikfélags
Reykjavikur á síðari árum.
Þær eru: Þórunn Magnúsdótt
ir, Steinunn Jóhannesdóttir,
Guðrún Alfreðsdóttir, Sólveig
Hauksdóttir, Helga Jónsdótt-
ir og Helga Stephensen. Nýja
gæzlumanninn leikur Guð-
mundur Magnússon, en ann-
að gæzlufólk á staðnum leika
þau Ævar Kvaran, Þóra Frið-
riksdóttir oé Baldvin Halldórs
son.
Þau Guðmundur, Sólveig
og Helga Stephensen koma
öll núna fram í fyrsta skipti
fram á sviði Þjóðleikhússins.
Þýðing leiksins er gerð af Sig
mundi Erni Arngrímssyni og
Björn Björnsson gerði leik-
myndir og er það fyrsta verk
efni hans hjá Þjóðleikhúsinu.
Leikstjóri er Bríet Héðinsdótt
ir, sem nú stjórnar i fyrsta
sinn leikriti hjá Þjóðleikhús-
inu. — ák
— REGLURNAR eru fáar,
þær lærirðti strax, en eitt
verður þú að muna: Þú hef-
ur með að gera nokkrar af
erfiðustu stúlkunum sem sett
ar hafa verið á upptökuheim-
ilið. Persónuleild þeirra hef-
ur skaðazt, þær eru við-
kvæmar, ósjálfstæðar, háv-
aðasantar og hafa óþrjótandi
þörf fyrir að komast í sam-
band við annað fólk. Sættl
maðtir sig við þetta og lætur
sér þykja vænt um þær, þá
virða þær mann sem félaga,
sagði yfirmaður upptökuheim
ilisins við nýja gæzlttmann-
inn. — Láttu þær um að byrja
samskiptin, það er bezt þann-
ig. Bráðum neyðist þú til að
verja hendur þínar. — Hvern
ig hagar maður sér þá,
spurði nýi gæzlumaðurinn.
En við þeirri spurningu fékk
hann ekkert svar. Hvorki
vandræðastúlkurnar sjö né
yfirmaðurinn gátu svarað
þeirri spurningu. Til þess
voru vandamálin of mörg og
erfið viðureignar.
Á meðan gæzlumaðurinn
dvaldist á upptökuheimilinu
kynntist hann náið erfiðleik-
um stúlknanna og þörfum. Á
heimilinu skrifaði hann dag-
bók og eftir henni skrifaði
Yfirmaðnr iipptökulieimilis-
ins og Barbara (Ævar Kvar-
an og Þórunn Magnúsdóttir).
Sven, nýi gæzliimaðurinn
dansar við Ásu.
Leik-
ritið
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 74., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1972
á íbúðarhúsinu nr. 10 við Aðalgötu á Sauðárkróki talinni eign
Ama Gunnarssonar, fer fram að kröfu Kjartans Reynis Ólafs-
sonar hrl. o. fl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. apríl 1973
kl. 15.
Bæjarfógetirm á Sauðárkrðki.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 12., 14. og 18. tbl. Lögbirtingablaðs 1972
á m/b Hrönn SK. 70, töldum eign Þórs Jóhannssonar, fer
fram að kröfu Vélbátatryggingar Eyjafjarðar o. fl. við bátinn
sjálfan á Sauöárkrókshöfn föstudaginn 6. apríl 1973 kl. 14.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
O) ▼ z
■QEOVERNDARFÉLAG ISLANDSB