Morgunblaðið - 30.03.1973, Síða 17

Morgunblaðið - 30.03.1973, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1973 17 Hr eppsst j ór inn í Grindavík gengur í pilsi HREPPSTJÓRINN í Grindavík gengur í pilsi. Það er raunar elcki undar- legt, því það er Sigrún Guð mundsdóttir, fyrsti kven- hreppstjórinn á landinu. Sigrún er kennari og ekkja Guðsteins Einarssonar, sem rak Hraðfrystihús Grinda- víkur, vann við Fiskimjöl og lýsi og var með mörgu öðru hreppstjóri þar í 30 ár, en dó í vetur. Sigrún hafði því löngum aðstoð- að við þau störf, sem hreppstjóri hefur með höndum og var þeim þaul- kunnug, og sýslumaður lagði að hcnni að taka starfið að sér. Hún lét til leiðast og var skipuð hreppstjóri í Grindavík. — Komdu á morgun eftir kl. 2, þá er ég komin í frí, sagði Sigrún í símann, þegar við fórum þess á leit að fá að líta til hennar. Hún kennir fulla kennslu í barnaskólan- um samfellt kl. 8 til 2 fimm daga vikunnar, og því finnst henni hún vera komin i frí klukkan 2 á föstudögum. Ekki situr hún þó auðum höndum. Taka þarf til hendi til að hafa svo snyrtilegt og hreint í húsinu. Og á föstu- dögum kemur dóttir hennar, 17 ára gömul heim í helgar- frí úr Kennaraskólanum. Þá fara líka heim aðkomnir kennarar, sem hún hýsir skóladagana, því kennara vantaði í skólann. Og á kvöldin kveðst hún reyna að vera að mestu heima, þvi þá korna hreppsbúar til að greiða gjöld sín, skatta og skyldur til hr^rpstjórans, sem lögum samkvæmt er um- boðsmaður sýslumanns. Og Sigrún er líka, eins og mað- ur hennar var, umboðsmaður skattstjóra. — Það eru svo marglr skattarnir, sem innheimta þarf, söluskattur, launaskatt- ur, þungaskattur o.s.frv. og svo eru það sparimerkjabæk urnar o.fl. Það er heilmikil vinna og uppgjör að koma þessu af sér, segir Sigrún. 1 svona sjávarplássum eru all ir í vinnu, á sjó og við út- gerð og eiga þvi hægast með að koma á kvöldin og reka slík erindi. — Ertu ekki yfirmaður lög reglunnar iika? — Það er nú víst í orði. En hér eru þrír ágætir menn í lögreglunni og ég þarf ekki að hafa afskipti af því. Hér áður fyrr þurfti Guðsteinn oft að fara upp og um borð til að skakka leikinn, ef slags mál urðu um borð í bátum eða annars staðar og mér var illa við það. En nú sér lög- reglan um allt slikt. Ég held raunar, að ekki sé mikið um slagsmál eða drykkjuskap hér. Hér vinna allir svo mik- ið. Það var annað, sem ég sagð ist kvíða fyrir, þegar ég tók þetta starf að mér. Það er að gefa út byssuleyfin, hélt Sig- rún áfram. Þá eru það upp- boðin, sem hreppstjórinn sér um, en þau eru nú að hverfa úr sögunni. Áður tilheyrði það lika hreppstjóranum að koma fyrir ómögum, en það er nú horfið sém betur fer. Ég er þó í barnaverndar- nefnd og var fyrir og þar koma svipuð mál fyrir. Ýmis- legt tínist til í þessu starfi. Ég er t.d. nýlega búin að fá beiðrii frá landbúnaðarráðu- eftir að Guðsteinn er horfinn. Það dreifir huganum. — Er þetta sæmilega laun- að starf? — Nei, það er það vissu- lega ekki. Launin fara eftir fólksfjölda. Hér eru hrepp- stjóralaunin 100 þúsund kr. á ári. Grindavík er mjög vaxandi staður, orðin stærsta verstöð- in. Þar eru nú um 1300 íbú- ar og fólkinu fjölgar yfir ver tiðartímann. Nú hefur eitt- hvað af Vestmannaeyingum setzt þar að. 20 börn frá Eyj- um eru komin í barnaskól- ann. Og talað er um að setja eigi niður 25 hús í Grinda- vík fyrir Vestmannaeyinga. Við spyrjum Sigrúnu hvort hún þekki ekki flesta. Bæði hefur hún kennt börnum á staðnum síðan hún var ung stúlka og svo á hún þarna uppruna sinn, er ættuð frá al kunnu rausnarheimili, ísólfs- skála, um tveggja klukku- tíma gang frá Grindavík. Þar komu margir og þáðu að- hlynningu og beina áður fyrr. ....Hil Sigrún Guðniundsdóttir, sjálfsagt án þess að heilsa eða kveðja, borðaði þar, svaf teiknaði og málaði. Heimsókn ir hans og dvöl þar í fæði, húsnæði og þjónustu voru sjálfsagðar og eðlilegar. Að öllum líkindum hefur hann verið félítill á þessum árum, vegna þess að hann notaði eingöngu vatnsliti og blý- ant.“ Þetta er alveg rétt. Guðbergur talar líka í grein- inni um að Gunnlaugur hafi einu sinni málað Isólfsskála- Sigrún í stofu sinni við stórt niálverk, sem hún á eftir Gunn laug Scheving. neytinu um að kanna hvernig sé með jarðirnar hér í hreppnum, hverjar séu í byggð og hvernig þar sé bú- ið, og þarf að ganga í það. Eins er nýkomin hækkun á bensíngjaldi og það færir mér vinnu vegna bensínbirgð anna. Fleira þess háttar mætti til telja. En mér finnst ágætt að hafa mikið að gera núna þvi tómlegt er í húsinu Bierii'ii á ísólfsstöðum, eins og Gunnlaugur Scheving teikn- aði hann. Sigrún bjargaði myndinni. — Það er alveg rétt, marg- ir komu i Isólfsskála til for- eldra minna, Agnesar Jóns- dóttur og Guðmundar Guð- mundssonar segir Sigrún þeg ar það berst í tal. Það áttu svo margir leið um á ferðum sínum til og frá Krisuvík. All ir komu, eins og títt var áð- ur, og enginn spurði hvað það kostaði. Ömmu fannst sjálfsagt að taka á móti fólki og gefa því að borða. Systur- sonur minn Guðbergur Bergs son, rithöfundur lýsti þessu mjög vel í minningargrein um Gunnlaug Scheving. Þar segir Guðbergur. „Á þessum tíma bjó amma mín ásamt manni sínum, Guðmundi, á ís ólfsskála og það var gest- kvæmt heimili. Á sumrin höfðu þau ævinlega „opið hús“. Þangað komu oft Kalda lóns, Eggert Stefánsson og Scheving aftan á kassabíl. Þeir sátu á pallinum ofan á kartöflupokum á haustin en áburðarpokum á vorin. Af Kaldalóns var læknislykt og vansæla, af Scheving mál- verkalykt og leynd, en af Eggert einhver lykt sífelldr- ar þreytu og ergelsis eftir erfið söngferðalög. . . En í Is ólfsskála var Scheving aldrei boðflenna. Hann kom og fór, húsið, séð ofan af Bjalla, á brúnan umbúðapappir og gef ið mömmu, en myndinni hafi síðan verið bjargað fyrir snarræði kennaramenntaðrar frænku hans eins og hann orðar það. Sú frænka var raunar ég og þarna sérðu myndina á veggnum. Ég fann myndina, þar sem búið var að vefja henni utan um snið eða eitthvað þess háttar og vinda upp á hana. Ég tók hana og bjargaði henni. Hún er mjög skemmtileg og vafalaust nokkurs virði núna. Þá hafði fólk ekki tilfinningu fyrir slíku. Gunnlaugur efndi hér einu sinni til listsýningar. Fólk kom og skoðaði myndir, en engum datt í hug að fara að kaupa slíkt. Okkur þótti fjarska vænt um þegar Gunn laugur kom í Isólfsskála. Ég man að hann las fyrir okkur smásögur eftir sjálfan sig, sem ég hefi aldrei séð eða heyrt um á prenti. Á veggjum í stofunni hjá Sigrúnu eru fleiri fallegar myndir en gamla myndin af Isólfsskála. Yfir skáp er ann að stórt rríalverk af mönnum á sjó eftir Gunnlaug, sem mál aði mikið í Grindavík, Þar eru líka myndir eftir frænda hennar Vilhjálm Bergsson, hre ppstjóri í Grindavík. bróður Guðbergs. Og sjávar- myndir eru þar eftir Svein Björnsson, listmálara. * Og fleira mætti telja. — Ég hafði aldi’ei mikinn áhuga á sjónum, þó ég hafi eytt ævinni við sjávarströnd- ina segir Sigrún. — Annars vorum við systkinin mörg og stelpurnar voru elztar. Því vöndumst við á að vinna hvers konar störf, úti sem inni. Ég var raunar ekki nema einn vetur í barnaskóla þegar ég var 14 ára. Það var langt að fara hingað inn eft- ir. Annan daginn var kennt 10—12 ára börnum og hinn daginn 14 ára börnum. Ég fór þetta annað hvort ríðandi eða gangandi. En með ekki meira námi komst ég inn í Kennaraskólann 17 ára göm- ul. Flestir féllu raunar á inn tökuprófinu, en við fengum annað tækifæri fram eftir vetri. Og mér líkaði vel að kenna, eftir að ég byrjaði á því. Ég var fyrst heimilis- kennari hjá Birni Birnir i Grafarholti, en hefi siðan kennt hér. — Og þú hefur verið ánægð með það starf, og allt- af kennt þótt þú værir me8 heimili og gestagang? — Já, mér hefur líkað það vel, ekki sízt eftir að ég fór að eldast. Maður fer að skilja og umbera börnin betur. Ég hefi lengst af kennt yngri börnunum, og hefi nú svo- kallaðan hjálparbekk fyrst á morgnana. Já, ég hefi alltaf kennt, enda áttum við ekki nema eitt barn og skólahús- ið hér er beint á móti. En mér finnst almennt að konan eigi að vera heima meðan börnin eru ung. Ekki má van rækja þau fyrir starfið. Þó ég aðhyllist skoðanir Rauð- sokkanna að mörgu ieyti, þá finnst mér að konan eigi að láta það ganga fyrir að vera heima hjá börnunum meðan þau eru ung. — Vinna konur ekki yfir- leitt mikið úti hér? — Jú, margar vinna í frystihúsunum og aðrar vinna við að skera utan af netum. Það geta þær gert heima, í kjöllurum og bílskúr um, og hafa gott upp úr því. Þannig geta þær samræmt það að vera heima og vinna. Aðrar sameinast um að gæta barnanna, gera það á víxl, og geta þá farið í vinnu á milli. — Nú hefur engin kona gerzt hreppstjóri fyrr. Er það ekki alveg eins starf fyrir konu sem karl? — Jú, ekki get ég séð ann- að en að kona geti leyst það af hendi rétt eins og karlmað ur, eins og því er nú háttað sagði Sigrún, fyrsti kven- hreppstjórinn á landinu, a9 lokum. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.