Morgunblaðið - 01.04.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.04.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1973 3 Bragi Kristjónsson upp úr ^ pokahorninu J Frá útil'undl við Þðrshamar. fœðu og öðrum lífsnauðsynj- um. Kvaðst hann þess viss, að allir bæjarfulltrúar vildu bregðast vel og fljótt við vanda þessum. Snarpar og langar umræð- ur sputtu af þessari tillögu Stefáns Jóhanns Stefánssonar og fleira gerðist óvenjulegt í sambandi við fund þennan. Knútur Ziemsen borgarstjóri svaraði ræðu Stefáns Jóhanns. Sagði hann, að allir væru á einu máli um að úrbóta væri þörf vegna þeirra miklu þreng inga, sem mörg heimili ættu við að etja. En þegar ætti að taka ákvörðun um að hjálpa, þá yrði allt erfiðara viðfangs. Hann lýsti furðu sinni að Alþýðu- flokksfulltrúar skyldu orða til- lögur sínar eins og þeir gerðu, því þeim væri það fyllilega ljóst og vissu ofur vei, að fjár- hagsástæður bæjarins væru þannig, að ekki hefði verið hægt að framkvæma meira en gert hefur verið og að ekki væri sýnilegt að hægt væri að ráðast í neinar verulegar fram- kvæmdir að svo stöddu. Fyrstu liði tillögunnar væri því ekki hægt að samþykkja, því ekkert fé væri til í bæjar- sjóði. En bæjarfulltrúar Al- þýðuflokksins myndu hafa ætl að að bæta úr þessu með því að taka lán hér innanbæjar. Það hefði nú verið reynt oft áður, seinast i haust og hefði ekki gengið neitt og því ekki nú meiri líkur að slíkt tækist. Þá væri tillagan um að leita til ríkissjóðs. Um það mætti vel ræða en niðurstaðan yrði vafa- laust sú, að ríkissjóður væri ekki betur settur með hand- bært fé en bæjarsjóðurinn. 1 til lögunni væri um það fjallað að auka vinnu, sem ekki væri at- vinnubótavinna. Það um væri að segja að bærinn hefði alltaf haft eins marga menn i vinnu og hægt hefði verið — og langt umfram hagkvæmni og afleið- ingin orðið sú, að lausaskuld- ir bæjarsjóðs hefðu aukist á fjórða hundrað þúsund frá ný- ári i viðbót við skuldir frá fyrra ári, sem enn stæði ógreidd. Það væri því ekki glæsilegt að unnt yrði að veita fleiri mönnum atvinnu fyrr en tekjur bæjarsjóðs færu að inn- heimtast. Um það að koma á mötuneytum sagði hann, að sú leið væri fær og rétt væri að koma því máli í framkvæmd, enda þótt þessi fundur gæti ekki tekið fullnaðar ákvörðun um það. Margir aðrir bæjarfulltrúar tóku nú til máls og lýstu skoð- unum sinum: Jakob Möller sagði, að um það yrði ekki deilt, að bænum bæri skylda til að hjálpa mönn um, þegar þá ræki upp á sker, en um hitt yrði héldur ekki deilt, að það væri skylda hvers einstaklings að reyna að sjá sér farborða eins lengi og hann gæti. Þar sem menn hafa með sér skipulagsbundinn félags- skap, sagði Jakob Möller, ætti það að vera skylda félagsskap arins að gera allt sem í hans valdi stæði til þess að greiða fyrir félögum sinum. En það virtist svo sem starfsemi sumra þeirra félaga, sem þættust berj ast fyrir hagsmunum verka- manna, gengju í þá átt að koma í veg fyrir að þeir sættu þeirri atvinnu, sem kostur væri á. Hann sagði, að allmikill fjöldi manna gæti nú fengið atvinnu. en félagsskapurinn vildi ekki leyfa mönnum að taka vinn- una. Hann benti á, að atvinnuleys ingjar gætu reynt að gera til- raunir að fá vinnu, þótt hún væri ekki boðin fram af fyrra bragði. Hann deildi og á, að félög verkamanna gerðu sér meira far um að hafa atvinnu- leysið að áróðursefni á bæjar- stjórnina, en beita 'sér fyrir raunhæfum aðgerðum í þágu verkamanna. Sigurjón Á. Ólafsson réðist að Jakobi Möller fyrir ræðu hans og sagði, að nú væri það greinilegt að Jakob væri ekki að halda kosningaræðu. Komst Sigurjón síðar í ræðu sinni að þeirri niðurstöðu, að ef laun verkamanna yrðu lækkuð, hlyti íslenzk^ krónan að falla, en sagði þó, að með aukinni framleiðslu myndi fást aukinn gjaldeyrir. Hjalti Jónsson kvaðst ekki vilja leggja í aðrar atvinnubæt ur en þær að vinnan bæri ein- hvern arð, t.d. að stundaðar væru fiskveiðar á bátum hér í flóanum með það fyrir augum að láta menn hafa atvinnu við það og útvega bæjarbúum ódýr an fisk. Hann kvaðst fylgjandi stofnun mötuneyta, ef það væri gert með fyrirhyggju. Bæjarstjórnin yrði áður að tryggja sér ódýran fisk, kjöt og síld. Hér talaði góður íhalds maður af gamla skólanum. Ólafur Friðriksson sagði það algera skyldu bæjarstjórnar- innar að forða fólki frá at- vinnuleysisneyðinni og svo mörg störf biðu óunnin, sem bænum væri hagur að lokið yrði, að engin töf mætti verða á því. Bæjarstjórnin ætti einn- ig að gera sitt til að herða á því að aðrar atvinnufram- kvæmdir, sem fjöldi fólks get- ur haft vinnu við, séu ekki látnar niður falla. Bar hann fram tillögu um að skora á rík isstjórnina að setja nú þegar í gagn síldarmjölsverksmiðju ríkisins á Siglufirði. Jaköb Möller vildi ekki láta samþykkja þá tillögu og var henni vísað frá. Lok •atvinnuleysismálsins á fundinum urðu, að vísa tillögu Stefáns Jóh. Stefánssonar til fjárhagsnefndar og siðan yrði kvatt til auka bæjarstjórnar- fundar, þegar nefndin hefði lokið störfum, sem hún skyldi hraða sem mest. Meðan þessum umræðum fór fram tiltölulega friðsamlega i bæjarstjórninni, gerðist margt utan dyra, sem dró síðar mik inn dilk á eftir sér, m.a. yfir- heyrslur, handtökur og fangels Ásgeir Ásgeirsson, forsætisráð herra. anir viðkomandi manna og kvenna, sem öllum var þó sleppt fljótlega aftur. Til marks rnn það hve frá- sagnir af sama atburði geta ver ið ólíkar, eru birtar hér frá- sagnir tveggja dagblaða um at burðina. GRJÓTKAST OG KYLFUBARSMlÐI Alþýðublaðið 8.7. 1932. í gær, þegar bæjarstjórnar- fundur átti að byrja, voru á að gizka þúsund manns fyrir ut an húsið, sem ætluðu sér að hlusta á umræður á bæjar stjórnarfundinum. En lögreglan leyfði engum inn að ganga, fyrr en bæjarfulltrúarnir voru komnir inn. Siðan var áheyr- endum hleypt inn meðan rúm vannst, en eigi var það nema litill hluti af öllum þeim fjölda, sem þarna var saman kominn. Þegar leið á fundinn tók fjöldinn, sem var fyrir utan, að ókyrrast og höfðu sumir þar ýmsan stráksskap í frammi, svo sem að henda sandi í lög- regluna og að lemja húsið að utan. En þar sem hvorugt þetta gat haft nokkur minnstu áhrif í þá átt að knýja fram atvinnu bætur þá verða þetta eingöngu að skoðast heimskuleg ólæti, því þau gera heldur að auka andúð en samúð með kröfum verkalýðsins. Barsmíðin á húsveggnum varð um tima svo mikil, að lítt heyrðist til ræðumannanna inni í fundarsalnum og um líkt leyti voru tvær rúður brotnar inn að utan. En inni i salnum fór allt fram með kyrrð og spekt nema hvað áhorfendur stóðu upp þegar mest gekk á úti fyrir og reyndu að sjá út um gluggann, hvað um væri að vera. KALLI SVARTI MISSIR HtFUNA Þeir, sem úti voru vildu ryðj ast inn, en fullt var fyrir inni og stóð lögreglan á móti. En að lokum gerði lögreglan út rás og lamdi með trékylfum alla, sem fyrir urðu og komu högg á ýmsa, sem engar óspekt ir höfðu haft í frammi. En tilefnið til útrásar lög- reglunnar var, að húfan var tekin af Karli Guðmundssyni lögregluþjóni (sem í daglegu Þorsteinn Briem, ráð herra. tali er kallaður Kalli svarti af því hann er dökkhærður). Gerði Karl þá útrás með kylf- unni og allir lögregluþjónarnir á eftir. Um þetta leyti byrjaði grjót hriðin að dynja á gluggum fundarsalarins og þeyttust sum ir steinarnir alveg yfir að veggnum hinum megin í húsinu. Flestum steinunum var hent í þá tvo glugga, sem voru innst I salnum og voru þegar fund- inum lauk 9 göt á öðrum, en 4 á hinum. Kom allmikið grjöt inn í salinn, en flest voru það smásteinar. Eru þrír þeirra til sýnis í fréttakassa Alþýðublaðsins. TRÉKYLFUR LÖGREGLUNNAR Illa hlýtur að mælast fyrir, að lögreglan skuli vera farin að nota trékylfur. Hér er ekki neitt það i hættu fyrir yfir- ráðastéttina, að það sé réttlæti frá hennar sjónarmiði, að barið sé á mönnum með svo fanta- legu vopni. LJÓTUR LEIKUR (Morgunblaðið, sama dag) Klukkan fimm síðdegis í gær söfnuðust kommúnistar saman fyrir utan Goodtemplarahúsið á meðan bæjarstjórnarfundur fór fram. Létu þeir ófriðlega og varði öflugt lögreglulið dyr hússins fyrir þeim, til þess að tryggja að fundur gæti farið friðsamlega fram. Brátt dreif þarna að fjölda fólks til að for- vitnast um hvað á seyði væri. Tók nú Einar Olgeirsson til máls af tröppunum í Þórshamri og talaði um, hvers verkalýður inn krefðist í atvinnubætur, en minntist auðvitað ekki einu orði á hvað hægt væri að gera í þeim efnum. Var ræða hans tómar fullyrðingar og lýðæs- ingablaður. Kom hann hvergi nærri þeim raunverulegu örð- ugleikum, sem atvinnulífið á við að búa. Hvers vegna bar Einar Olgeirsson ekki upp til- lögu um, að útlendar þjóðir hækkuðu verð á afurðum okk- ar? Því næst bar Einar Olgeirs- son fram tillögu um það að heimta borgarstjórann út á göt una til þess að standa fyrir máli sínu — og lét yfirleitt eins og fífl og aumingi. Magnús Guðmundsson, ráðherra. Stefán Pétursson tók einnig til máls. Hans skýring á örðug leikunum var þessi: Atvinnu rekendur notuðu ríkisstjórnina til þess að kúga verkalýðinn til kauplækkunar, svo að þeir gætu safnað sem mestum gróða. Ekki minntist hann einu orði á það að afurðir landsmanna hefðu fallið neitt í verði. Er skemmst frá því að segja, að þessi maður gerði sér far um að æsa lýðinn með ósvífnum ósannindum og blekkingum. Ýmsir. fleiri höfðu sig þarna í frammi, þ.ám. Jens Figved, sem er nýkominn frá Rússlandi Haukur Björnsson o.fl. Þegar hér var komið sögu þjöppuðust kommúnistar sam- an við dyr Templarahússins, börðu húsið að utan og reyndu hvað eftir annað að brjótast til inngöngu, en lögreglan stóð fast fyrir. Grófu þeir upp möl og sand úr götunni og köstuðu hverri hnefafylli af annarri framan i lögregluþjónana, en þeir sýndu hina mestu stillingu og voru sýnilega staðráðnir í að komast hjá vandræðum. En þegar húfunni var kastað af einum þeirra og rifið í hár hans og jafnfrahit að nýju gerð árás á dyrnar, þá brá lögregl- an kylfunum á loft. Og nú hófst ljótur leikur. „Fínu“ kommúnistarnir með flibbana höfðu nú lokið sinu hlutverki að æsa upp lýðinn og stóðu fjarri með sígarettur í munninum. Þeir, sem kastað höfðu sandinum úr nokkurri fjarlægð, flýðu allt hvað af tók. En þeir sem næstir voru dyrunum urðu fyrir hrinding- um lögreglunnar og höggum hennar þeir, sem mótþróa sýndu. Gekk lögreglan rösklega fram og hafði á svipstundu rekið allan hópinn frá dyrum hússins og út í Templarasund. Tveir uppþotsmenn voru blóð ugir á höfði. Var nú um stund kastað grjóti utan af götunni og mölvaðar margar rúður í Templarahúsinu. Flugu stein- arnir yfir fundarsalinn. Þar með lauk óspektunum, meðan fundurinn sat. En Einar Olgeirsson kom nú aftur fram á tröppurnar í Þórs hamri og sýndi blóði drifinn annan þeirra manna, sem feng- ið hafði högg á höfuðið. Var svo að sjá, sem Einar Olgeirs- son væri hróðugur af þessari uppskeru af æsingaræðum þeirra félaga. Sjálfur var Ein- ar Olgeirsson auðvitað ómeidd- ur og „borgaralega" þrifinn og hreinn, þvi hann hafði látið sér nægja hlutverk íkveikjumanns ins, en aðrir orðið fyrir þeim höggum, sem hann og Stefán Pétursson voru valdir að. Skyldu nú kommúnistar vera þakklátir þessum tveimur „leið togum“ fyrip forystu þeirra þarna? Skyldi þeim finnast þetta vera hetjur? I»að skal skýrt tekið íram, að ail- ar heimildir um funð þennan og átökin, sem urðu, eru sótt í dag- blöð þess tfma, en onsrin efni eru hér gerð á að reyna að meta m&l- stað aðiijanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.