Morgunblaðið - 01.04.1973, Page 10

Morgunblaðið - 01.04.1973, Page 10
10 'MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRlL 1973 „Og þá fór for- görðum brot af manneskju en skáld var varðveitt“ í»ýtt viðtal við dönsku skáldkonuna Tove Ditlevsen Tove Ditlevsen. Þessa dagana er að koma út bók eftir dönsku skáldkonuna Tove Ditlevsen í Danmörku, sem heitir þeim nýstárlega titli „Min nekrolog og andre skumle tanker". Með haustinu er væntanleg ljóðabókin „Par- entes“ eftir hana. 1 Kristeligt dagblad átti dönsk blaðakona, Lis Thorbjömsen viðtal við Tove og ræddi meðal annars bók hennar „Gift“ sem kom út á íslenzku í fyrra, svo og af- stöðu hennar til listarinnar al- mennt og tjáningarinnar. Er Tove var að því spurð, hvort hún liti svo á að listin væri flótti frá raunveruleikan um, sagði hún: — Raunveruleikinn og listin eru samtengd. Raunveruleik- inn er hráefnið, sem listamað- urinn nær efni úr. Ætli mað- ur að gera eitthvað sem hefur listrænt gildi, er ekki fært að leiða hjá sér raunveruleikann, við hljótum að nærast af hon- um, sækja efnivið í hann. Fáir geta skipulagt sig jafn ræki- lega og Proust gerði. Framan af ævi sinni var hann mann- blendinn og hafði sam- skipti við allt mögulegt fólk. Síðari hluta ævinnar dró hann sig í hlé og skrifaði um þessa reynslu. Fyrir flest okkar, sagði skáldkonan, er þetta stöðug vixlverkun. Margir rithöfund- ar hafa rekið sig á eitt: þeir stynja hástöfum yfir því, að þá skorti vinnufrið og argast út i stöðugar truflanir. Svo tekst þeim að koma sér fyrir á eyði- stað, þar sem þeir geta verið einir með sjálfum sér. Og sem þeir þá horfa á hvíta blaðið í ritvélinni og eiga að draga eitt hvað upp úr þessu svokallaða innra lífi og koma því á papp- írinn, þá sitja þeir þama og verða þess vísari, að allur inn blástur þeirra lá í truflunum og raskinu. Tove Ditlevsen var spurð að því hvort listin hefði forrétt- indi að geta notað raunveru- leikann sem hráefni eða efni- við. Hún sagðist hafa breytt afstöðu sinni til þess máls ótal sinnum og aldrei komizt til botns í því. Aftur á móti hefðu ýmsir kvenrithöf- undar hætt við að eiga börn, vegna þess að viðkomandi hefðu viljað lifa fyrir list sina. — Það held ég sé hin mesta skyssa, sagði hún. Líkama kon unnar á að nota, hvort sem hún er listakona eða ekki. Margt af því sem ég hef skrif- að hefði ég ekki getað gert, ef ég hefði ekki átt börn. Blaðakona benti siðan Tove á, að hún hefði sjálf lifað á ýmsan hátt venjubundnu, borg aralegu fjölskyldulífi lengst af, og spurði, hvort sá raun- veruleiki væri einnig nothæf- ur sem efniviður. Skáldkonan kvaðst hafa reynt að lifa sem eðlilegustu fjölskyldulífi. — 1 hverj- um listamanni býr einnig venjuleg manneskja, sem verð ur ástfangin, giftir sig og eign ast böm og hefur hvatir, rétt eins og allir aðrir. JÞað eina, sem skilur listamenn frá hin- um, er að þeir fyrmefndu eru gæddir hæfileikanum til tján- ingar. Ég hef skrifað til að lifa af. Lis Thorbjömsen spurði síð- an Tove, hvort hugsan- legt væri, að það hefði getað farið fram hjá henni, að hún væri gædd þessum hæfileikum, m.a. vegna þess að hún væri alin upp á verkamannaheimili. Því svaraði skáldkonan m.a. svo: Til er þýzkur málshátt- ur, sem segir, að það sem blundi í föðurnum, vakni í syninum. Ég hef iðulega hugs að með mér, að vegna þess hvernig aðstæður okkar á bernskuheimili mínu voru, hafi glatazt í föður mínum listamað ur. Ekki stórbrotinn kannski. En þar glötuðust einhvers kon a r hæfileikar. Ég hef alltaf vitað, að ég ætlaði mér að skrifa. Þau studdu mig ekki heima. Faðir minn var þeirrar skoðunar, að annað hvort giftist ég traust- um og duglegum manni, sem gæti unnið fyrir mér, ellegar ég leitaði mér að stöðu, sem tryggði mér eftirlaun sið- ar meir. Lis Thorbjörnsson minnti Tove á að hún hefði einu sinni skrifað bók, sem hét „Flóttinn frá uppþvottinum". Ef skáld- konan hefði nú verið ögn minna á móti uppþvotti, ef hún hefði getað saumað föt og bak að . . . þá hefði hún kannski fallið inn í góða munstrið með trausta manninn. Og deilt ör- lögum föðurins. Tove svaraði því til að fjöldamargar listakonur væru hinar myndarlegustu húsfreyj ur. Á hinn bóginn væri á það að lita að sköpunarþörf- in hefði verið miklu sterkari í sér en til dæmis í föður sín- um. Þessi þörf hefði verið svo sterk, að hún hefði brotið nið- ur allar tálmanir. Blaðamaður spurði þvi næst, hvort listin hefði ekki i upp- hafi verið flótti frá þeim raun- veruleika, sem hún bjó við þá. Tove sagðist hafa skrifað frá því hún var barn að aldri. Það hefði í rauninni verið hennar eina von til að lifa af. — Ég skrifaði í laumi, sagði hún. — Því að ég var ekki frábrugð- in öðrum, ég vildi vera eins og allir aðrir. Ég get ekki kast að tölu á alla þá tíma, sem ég eyddi til að leika mér með brúður og leyna mínum tak- markalausu leiðindum yfir því, en láta eins og ég hefði skemmt un af. Það var hæðzt að mér í skólanum, vegna þess að einu sinni varð mér á að lýsa aðdá- un minni á Sálmunum. Það þótti hinum krökkunum óhemju spaugilegt. Ætti ég að geta verið ham- ingjusöm, hlaut ég að skrifa. Víst átti ég aðra möguieika, en þeir skyggðu aldrei á þá gleði sem ég fann yfir því að skrifa eitthvað, sem var gott. LEYNIHÓLFIÐ Blaðakonan innir Tove þvi næst eftir því, hvort henni sé þá engin kvöl að skrifa, eins og margir rithöfundar láti mik ið af. Tove sagði við því: Fyrir mig er það ekki þjáning að skrifa. En fyrir suma. Mér finnst það vera orðagjálfur að sköpun útheimti þjáningu. En kannski mætti orða það svo að rithöfundur notaði sínar eigin þjáningar til að geta skrifað. Það kosti sem sé talsvert að vera manneskja. Fyrir lista menn eru náin mannleg sam- skipti dálítið flókin. Fólk, sem elskar mann, hefur geysilega þörf fyrir að eiga mann með húð og hári. Það á erfitt með að virða það leynihólf, sem við höfum innra með okkur — og enginn fær aðgang að. Við vilj um ekki láta rjúfa sjálfræði okkar, ekki heldur af þeim, sem næstir manni standa. Það er ekki endilega vegna þess að við viljum ekki hleypa öðr- um inn í leynihólfið — það er okkur heilagt vé. Þar skapar maður. Þangað fara hugmynd- irnar og fá að dafna í friði og ró. Leynihólfið verður fyrir truflunum af samskiptum við annað fólk. Því hefur það orð- ið svo, að eftir þvi sem tímar líða fram, hef ég ekki mikið samneyti við fólk. Listamaður af minni manngerð hefur eng- an vinnutíma og engar frí- stundir, þetta grípur hvort tveggja inn í annað. Það er meðal annars ástæðan fyrir því, að ég tek ekki þátt í sam- kvæmislífi. Varðandi þær þjáningar, sem það útheimtir að skrifa, sagði Tove, að margir listamenn þjáðust ekki meira en venju- legt mannlíf byði hverjum og einum upp á. — Mínar þján- ingar eru sálræns eðlis, sagði hún. — Móðir mín var veil, hún var óstyrk á taugum og átti vanda til að fá þung- lyndisköst, sem eru ekkert sér kenni fyrir listamenn. Ég hef einnig tekið að erfðum þungt skap föður míns. En ef ég hefði ekki verið listamað- ur hefði ég ekki afborið þess- ar þjáningar — að vera mann- eskja. En þær eru líka að sumu leyti mín- gæfa. Ef litið er á; að ég get þó altént tjáð mig. Ég tjái líka meira en þján ingu, því að ég hef líka kímni gáfu. Blaðamaðurinn og Tove ræddu síðan um hvort réttlæt anlegt væri að nota lifandi per sónur í sögur sínar og Tove benti á, að það væri ekkert nýtt. En menn sætti sig frekar við það nú. Hún kvaðst ekki nota persónur sem hún þekkti vísvitandi. En stundum myndi hún setningu, sem einhver sagði fyrir tíu árum og skyndi lega kemur að því, að hægt er áð nota þessa setningu í því samhengi, sem fyrir væri. Blaðamaðurinn sagði þá að þegar Ibsen hefði skrifað Brúðuheimilið, innblásinn af lifandi mannveru, hefði hann átt þátt í að eyðileggja lif hennar. Vandamálið yrði kannski aðeins raunveru- legt, þegar notaðar væru per- sónur sem allir þekktu. Tove sagði, að enginn hefði gert athugasemdir né held ur rekið upp ramakvein, þeg- ar fyrsta endurminningabók hennar kom út. Þar hefðu með al annars komið við sögu, látn ir foreldrar hennar, Rósalía frænka, bróðir hennar og fleiri og hún hefði látið alla fá sinn skammt. En eftir að „Gift“ kom út hefði verið ráðizt á hana. Muninn kvaðst hún ekki sjá. — Slíkt hlýtur að vera óhjá- kvæmilegt — þ.e. að hver fái sitt, svo fremi maður skrifi minningar sínar. Hætti maður sér út í það, verður líklega ekki hjá því komizt að móðga ótal manns, sem gæla við meira og minna brenglaðar minning- ar um sína látnu ættingja. Mér finnst ég hafa rétt til þess. Fyrir mig er það af knýjandi innri nauðsyn að ég skrifa þessar bækur. Og þar fyrir ut- an er ókyrrðin aðeins á yfir- borðinu. Eftir nokkur ár er hún hjöðnuð, en bókin stend- ur vonandi eftir. Þegar ég skrifaði x þessa bók var ég í sæluvímu í tvo mánuði. Eins og ég er alltaf, þegar ég skrifa. Og ég gerði mér ekki grein fyrir afleiðingunum, né heldur sá ég þær fyrir. Auk þess ljóstraði ég engu upp, af hjúpaði ekki neitt. Ekki nema eina ákveðna hlið af einni mannveru, þá hlið sem hefur snúið að manni sjálfum. öðru vísi getur maður ekki skrifað endurminningar svo fremi mað ur gerir það áður en maður nær áttræðisaldri. Enginn mót mælti skrifum Agnesar gömlu Henningsen. Hún lét allar stað reyndir lönd og leið. En allir, sem hún skrifaði um voru ræki lega dauðir og afkomendurnir sennilega líka, því að hún varð svo afskaplega gömul. Að lokum spurði blaðamað- ur um, hvort rithöfundur væri þar með tilneyddur að leiða hjá sér það siðfræðilega vanda mál, sem kvaldi til dæmis Ib- sen. Tove Ditlevsen sagði: Ég myndi aldrei vísvitandi eiga þátt í að eyðileggja aðra mann veru.......Og fór þar forgörð- um brot af skáldi, en mannssál var varðveitt." Stöku sinnum langar mig til að snúa þessari setningu við, þegar ég vil setja eitthvað á oddinn: „Og fór þar forgörðum brot af manneskju, en skáld var varðveitt." Þó að þetta séu hörð orð set ég þau samt á oddinn. 17.750 eintök á < ,22.1 eintök á mánudögum beint á mesta maikaðssvæði landsins- auk bess magns, sem við dreifum í aðra landsnluta. Eignist markadinn TTTC1 B auglýsió i VÍSI V XOXXv

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.