Morgunblaðið - 08.05.1973, Qupperneq 8
‘'vwiv ; í' .v* o ?»•■* • •;••<■» •« - ryujr rr. '.rx:-h ,!'.ri'4 w 7
MORGVTNEI.A ÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1973
Hörkukeppni í júdó-
meistaramótinu
Það var mikil keppni og bar-
átta i flestum flokkum júdó-
meistaramótsins sem fram fór i
Hafnarfirði síðastliðinn sunnu-
dag. Svavar Carlsen, silfur-
verðlaunahafinn frá Norður-
landamótinu, hafði þó talsverða
yfirburði islenzku keppendanna
en gat ekki tekið þátt i keppn-
inni i opna flokknum vegna
gamalla meiðsla sem tóku sig
upp. Edward C. Mullen frá
Skotlandi keppti sem gestur í
þessu móti og sigraði í sinum
flokki, léttmillivigt, og einnig i
opna flokknum, þó svo að hann
glímdi þar við mun þyngri
menn.
Góð þátttaka var í móti þessu
og keppendur úr ýmsum félög-
um. Júdófélag Reykjavíkur
hafði sterkustu einstaklingun-
iroi á að skipta, en einnig komu
fram margir efnilegir glímu-
menn frá Júdódeild Ármanns
og Ungmennafélagi Grindavík-
ur.
Úrslit í Islandsmeistaramót-
inu i júdó urðu sem hér segir:
Opinn flokkur:
1. Edward C. MuMen, Skotl.
2. Sigurður Kr. Jóhannson, JR
3. Sigurjón Kristjánsson, JR
4. Bjami Bjömsson, JR
Þungavigt (yfir 93 kg).
1. Svavar Carlsen, JR
2. Hannes Ragnarsson, JR
3. Óskar Guðmundsson UMFG
4. Þórhallur Sigurðsson, JR
Millivigt (71—80 kg)
1. Sigurjón Kristjánsson, JR
2. Össur Kristjánsson, JÁ
3. Sigurjón Ingvason, JÁ
4. Garðar Skaftason, JÁ
Léttmillivigt (64—70 kg).
1. Edward C. Mullen, Skotl.
2. Halidór Guðbjörnsson, JR
3. Viðar Guðjohnsen, JÁ
4. Jón Þorgrímsson, JÁ
I.éttvigt (keppendur undir 63
kg).
1. Hörður Harðarson, JR
2. Haukur Harðarson, JR
3. Leó Jónsson, UMFG
4. Jamal Swaiki, JÁ
Konur
1. Sigurveig Pétursdóttir, JÁ
2. Anna Hjaltadóttir, JÁ
3. Jóhanna Ragnarsdóttir, JÁ
3. Anna Lára Friðriksdóttir, JÁ
Drengir 16—18 ára
1. Sigurjón Ingvason, JÁ
2. Kristján Þ. Einarsson, JÁ
Drengir 14—15 ára
1. Viðar Guðjohnsen, JÁ
2. Hafsteinn Svavarsson, JÁ
3. Kjartan Svavarsson, JÁ
4. Leó Jónsson, UMFG
Drengir 12—13 ára
1. Pétur Pálsson, UMFG
2. Karl F. Amarson, JÁ
3. Magni Þ. Geirsson, JÁ
4. Halldór Birgisson, JÁ
Drengir 8—11 ára
1. Bergþór Haraldsson, JÁ
2. Jóhannes Guðjónsson, JÁ
3. Eiríkur Benediktz, JÁ
4. Arnar Daníelsson, UMFG
Það var ekkert gefið eftir i júdómeistaramótinu.
Sigrar ÍBK í litla
bikarnum
Liðið vann ÍA 3—0 á laugardagin
og Breiðablik vann Hauka 3—1
Sigrar ÍBK í litia bikarnum
— Liðið vann ÍA 3—0 á laug
ardaginn og breiðablik vann
hauka 3—1
Keflvikingar eru nú komn
ir með mjög þaegilega stöðu
á toppinum í litlu bikarkeppn
inni, liðið hefur hlotið sjö
stig og á aðeins eftir að leika
gegn ÍBH (Haukum).
Breiðablik og Hafnfirðingar
geta að vísu náð þeim að stig
um, en telja verður líklegt að
Keflvíkingar sigri Hafnfirð-
inga i leik liðanna sem fram
fer næsta laugardag og inn-
sigli þar með sigur sinn. Kefl
víkingar virðast vera komn-
ir i mjög góða æfingu og eru
líklegir til að gera stóra
hhiti í sumar.
Tveir leikir fóru fram í
iitla bikamum síðast liðirm
lausgardag, Keflvíkingar
fetigu Akumesinga í heim-
sókn. Heimamenn voru rausn
arlegir, þeir sendu knöttinn
þrívegis í net gestanna og
höfðu talsverða yfirburði.
Jón Ólafur skoraði fyrsta
mark leiksins og það eina í
fyrri hálfleik. Fljótlega
í seinni hálfleiknum skoraði
nýliði í Keflavíkurliðinu,
Stefán Jónsson, og
breytti stöðunni í 2:0. Sið-
asta mark leiksins skor-
aði svo Ástráður Gunnars-
son, var það sannkatlað
„draumamark bakvarðarins“
— skorað með þrumuskoti af
30 metra færri.
Vömin var eins og oft áð-
ur sterkasti hluti Keflavík-
urliðsins, með þá Guðna, Ein
ar og Ástráð sem sterkustu
menn. 1 liði Akumesinga,
sem aldrei náði að sýna veru
leg tiilþrif, átti Þröstur Stef-
ánsson einna beztan leik.
í Hafnarfirðinum léku á
sama tíma ÍBH (Haukar) og
Breiðablik, fyrri hálfleikur-
imn var nokkuð jafn og lauk
homun með jafntefli 1:1.
Mark Hauka skoraði Þráinn
Hauksson úr vítaspymu, en
Guðmundur Þórðarson svar-
aði fyrir Breíðablik.
í seirmi hálfleiknum tóku
Breiðabhksmenn við stjóm-
irmi og skoruðu þeir tvö
mörk, var Ólafur Frið-
riksson þar að verki. Hauk-
amir fengu aðra vítaspymu,
en Loftur Eyjólfsson
skaut framhjá.
Breiðablik hafði litið fram
yfir Haukana í fyrri hálf-
leiknum, en í þeim síðari náði
iiðið undirtökunum, hafði
meira úthald og leikmenn
liðsins voru sneggri og
ákveðnari. Haukaliðið er
skipað ungum og reynslulitl
um leikmönnum, sem ættu þó
að geta spjarað sig með meiri
reynslu og betra leikskipu-
lagi.
Staðan i litlu bikarkeppn-
mni er nú þessi:
IBK 5 3 11 11:4 7
UBK 5 2 2 1 11:9 6
ÍBH 4 112 5:9 3
IA 4 1 0 3 3:8 2
Svavar Carlsen og Edward C. Mullen ræðast við.
Tvíburarnir Haiikur og Hörður Harðarsynir háðu hörkukeppni
á meistaramótinu í júdó.
Nú var í lyrsta skipti keppt i kvennaflokki á júdómeistaramót-
inu og þessa mynd tók Sveinn Þormóðsson af átökum kvennanna
Rangers sigraði
í Skotlandi
Glasgow Rangers sigraði Ceit
ic 3:2 í úrsiitaleik skozku bik
arkeppninnar, en leikurinn íór
fram á laugardaginn að við-
stöddum 122.000 áhorfendum.
Leikurinn var mjög harður og
tvisýnn og voru fjórir leikmenn
bókaðir fyrir grófan leik, þeir
McLean og Parlane í liði Rang-
ers og Cohnelly og McNeill í
liði Ceitic.
Fyrsta mark leiksins var skor
að á 9. mínútu og var þar Celtic
leikmaðurinn Dalglish að verki.
Parlane jafnaði svo fljótlega
fyrir Rangers en þegar aðeins
20 sekúndur voru liðnar af sið-
ari hálfleik náði Rangers for-
ystu með skallamarki Conn eft-
ir hornspyrnu. Sex minútum
síðar var svo dæmd vítaspyma
á Rangers og úr henni skoraði
Grieg af öryggi. 2:2. Urslita-
mark leiksins var svo skorað af
Tom Forsyth og kom hann þann
ig í veg fyrir að Celtic sigraði
í skozku bikarkeppninni þriðja
árið í röð.