Morgunblaðið - 26.05.1973, Síða 14

Morgunblaðið - 26.05.1973, Síða 14
14 MORGUNHLAÐIÐ, LAUGARDAGUR. 36. MAl 1973 1. „A“ hluti snigilsins lokar fyrir inntaks- og útblásturs- rásirnar. Hólf „B“ er fullt af ferskri blöndu og er um það bil að þjappast. Útþensla verð ur við „C“. 2. Inntaksrásin er opin og: blandan dregst inn. I hólfi „B“ er þjöppunin að fullkomn ast. Snigilshluti „C“ hefur opn að útblástursrásina og þrýstir út lofttegundum. 3. Innsog fer enn fram við hluta „A“. 1 hólfi „B“ er full- þjappað og þá tendrað. Hlið „C“ er enn að ýta útblásturs- loftinu út. 4. Nú verður hin raunveru- lega kraftmyndun (drive) við hluta „B“ með því Iofti sem er að þenjast út. Hólf „A“ er uni það bil að loka inntaksrás- inni og „C“ lýkur útblásturs- slaginu. einn þriðja rúmsins. Wankel vinmur mjög mj úMega og bet ur eftir því sem snúnimgshrað inn eykst. Hönnun vélarinnar gerir kleift að nota hana með góðum árangri á ekki mjög sterku bensíni. Þó er spar- neytni ekki ein af sterkari hliðum vélarinnar. Erfiðlega befur gengið að setja góða sjálfskiptingu við Wankel vél ina. Það som Mklegast er til að selja Wankel eru strangar reglur um útblástur og lág- marksmengun, sem eru u. þ. b. að gamga í gildi í Banda- rikjunum og verður hugsan- lega fylgt eftdr að einhverju leyti i Evrópu og annars stað ar í heiminum i fyrirsjáam- leigri framtíð. General Motors í Bandarikj unum hafa nýlega fjárfest háa upphæð i tilraunir með Wank el og b'ugsanilega framílaiöslu hennar. Citroen GS bíllinn er með tilrauna-Wankel í Frakk- lamdi. Tvær gerðir Wankel bíla eru til hér í dag. Mazda RX-3 og Mazda RX-2. Til nánari skýrimgar á því hvernig Wankel vélin vinnur fyigja hér fjórar skýringar- myndir. Wankel — snúningsvélar Wankel, sem er ein gerð snúningsvéla (rotary) hefur sömu einkenni og venjuleg brennsluvél þar sem hinar NSU RO 80 vegar auðveldara að eyða. Af áðumefndum vélum þyk ir Wanfcel vélin líklegust til að verða tekin í almenna notk un. Diesel vélin er að visu talsvert notuð, þó að notkun hennar sé langt frá því að vera almenn. Fyrsti fjöldaframleiddi bill inn með Wankel vél var NSU RO 80 í Þýzkalandi. Ýmis vandamál komu þar fram við framleiðslu vélarinnar, en þau hafa siðar verið löguð að mestu. Athyglisvert er að hjá Toyo Kogyo (Mazda) verk smiðjunum japönsku virðast þessi vamdamál ékki hafa kom ið fram. fjórar venjuilegu hringferðir gerast, — immsog, þjöppun, brennsla og útblástur. Wankel vélin hefur miniWen helming þeirra hluta, sem eru í venju- legri vél og samanborið við Slíka vél jafnkraftmikla er Wanfcel vélin um helmingi léttari og tekur um það bil Framtíðarvélarnar? NÚ ER unnið að tilraunum með nýjar gerðir bílvéla víða um heim og eru þessar til- raunir sennilega víðtækari en nokkru sinni fyrr. Aðalástæð- an er mengun, mengun frá hinni venjulegu 4ra, 6 eða 8 strokka bensínvél, sem við könnumst svo vel við og er í flestum gerðum fólksbifreiða. — Það sem erfiðast er að eyða úr útblæstri vélanna eru köfnunarefnisoxíð, NOx, en þau eru alvarlegasta vanda- málið í útblæstri úr venju- legri vél. Ýmsar aðrar vélar, svo sem Wankel, Diesel, Stirl ing cycle, tiirbínuvélar, gufu- vélar o. fl. brenna eldsneyt- inu þannig, að minna mynd- ast af NOx. Kolsýrunni, CO, og öðrum eiturefnum er hins SIIAK’.V Geller sigraði í Búdapest Á ÞESSU ári er öld liðin frá þvi höíuðborg Ungverjalands, Búdapest var formlega stofn- uð með þvi að borgunum Búda og Pest, sem stamda sín hvor um megin Dónár, var feng'n sameiiginleg yfirstjóm. í til- efini af afmælinu héldu Ung- verjar mikið skákmót, sem fram fór dagaina 13. febrúar — 4. marz sl. Úrslit mótsins urðu þau, að sovézki skákmieistarinn Gell- er, sem dvaldist hér á landi sl. sumar, sigraði örugglega, hlaiut 10% v. af fimmtán mögulegum, tapaði engri skák. Geller þótti tefla mjög vel í móti þessu og einkum er það athyglisvert, að hann vann sjö af átta skákum, þar sem hann hafð: hvítt. 1 öðru sæti varð Sovétmaðurinn Karpov, hlaut 9% v. og var einniig taplaus. Ýmsir munu hafa spáð Karpov sigri, en hann virðist hafa teflt full ró- lega og af fjórum skákum, sem hann vann, voru þrjár gegn þremur af sex efstu mönnum. í 3.—6. sæti urðu þeir Waganjan (Sovétríkin), Szabó og Adorjan (Ung- verjaiandi og Hort (Tékkó- slóvakiu). Waganjam er yngsti stórmeistari í heimi og er honum spáð mikl- um frama. f upphafi móts- ins í Búdapest virtust þessiar spár ætla að rætast, því Waganjan vann fyrstu þrjár skákirnar og tók þar með örugga forystu. En siðan hljóp alit í baklás og stór- meistarinn ungi vann engia skák það sem eftir var móts- imis, ellefu urðu jafntefli og ein tapaðist, gegn Karpov. Af öðrum þátttakendum verður að minnast sérstaklega á þá Ungverjana Szabó og Adorj- an. Szabó kom inn á síðustu stundu í stað Portisch, sem taldi mótið ekki falla inn í æfingaáætlun sína fyrir milHi svæðamótið. Meðan á mót- inu stóð þjáðist Szabó hirus vegar af einhverri vírusveiki og varð að tefla hvorki meira né minna en sex skákir rúm- liggjandi. Þeim skákum lauk öllum með jafntefli og verð- ur árangur gamla mannsins því að teljast mjög góður. Af Adorjan er hins vegar það að sagja, að hann hafnaði jafntefli gegn Geller og tapaði og missti þar með háltfan vinniiing, sem harrn e'mmitt vantaðd til þess að hljóta stór meistaratitil. Hér skulu ekki taldir upp fleiri þátttakendur, en þess má ge-ta, að eini vest- ur-evrópski þátttakandinn, Þjóðverjinn Hecht hafnaði í 12.—14. sæti með 6 vimninga. Það eitt, að aðeins einin þátt- takandi var handan járn- tjaids, hlýtur að vekja nokkra athygli og vist má slikt valda skákunnendium nokkrum áhyggjuim. Sann- leikurinn er sá, að vestræn- ir skákmie'starar eru tregir til þátttöku í skákmótum, sem fram fara austantjalds og veldur þar mestu um, að verðlaun eru þar greidd í mynt viðkomandi landa, sem menn mega svo ekki flytja með sér út úr löndumum. Júgóslavía er þó undantekn- ing að þessu leyti. Við skulum nú Mta á eiara skemmtilega skák frá mót- inu. Hvítt: E. Geller (Sovétr.) Svart: Csom (Ungver.I.). Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 dfi 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 (Önnur mjög algeng leið er hér Najdorf afbrigðið 5. — a6, eðia Schevenimgen aifbrigð :ð 5. — e6). 6. Bg5 — (Rausar afbrigðið svonefnda, en einnig er gjaman leikið hér. 6. Bc4). 6. — e6 7. Dd2 afi 00 O 1 o 1 o h6 9. Be3 Bd7 (Auðv’tað ekki 9. — Rg4?, vegna 10. Rxc6, bxc6, 11. Bc5). 10. f4 Dc7 11. Bd3 Rxd4 12. Bxd4 Bc6 (Helzti hægfara. Sennilega var betra að leika hér e5 ásamt Be6 og reyna þamnig að ná mótspiM á drottnimgar- væng). 13. Hhel 0—0—0 (Nú kom hins vegar ekki til mála að leika e5 vegna 14. Rd5). 14. DÍ2 Rd7 15. Kbl Kb8(?) (Svartur reynir ekkert til þess að ná gagnsókn. Hér var enn möguliegt að'leika 15. — e5 og ©f t.d. 16. fxe5, dxe5 17. Be3, f6, og svartur hefur varia lakari möguleika en í skákinni). 16. a3! Hc8 17. e5 Be7 (Eftir 17. — dxe5, 18. fxe5, f6, 19. exf6, gxf6, 20. Hxe6, Dxh2, 21. Be4! liti svarta stað an heldur ömurlega út). 18. Be4! d5? (Hvítur hagnast á lokun mið- borðsins. Hér var sjálfsagt að reynia 18. — f6 eða f5- Jafn- vel 18. — Hhg8 kom til greina). 19. Bf3 g6 20. g4! — (Nú blæs hvítur til atlögu gegn svarta kámgsvænignuim, þar siem fátt verður um vam- ir). 20. — Hhg8 21. f5 gxf5 22. gxf5 Hg5 23. f6 Bf8 24. De3 Ka8 25. h4 Hg3 26. Bf2 Hg8 27. Bh5! — (Mjag skemimtilega leikið, nú getur svartur varla hreyft nokkurn mann, — hvorki á kóngs- né drottningarvæng). 27. — Rb8 28. Bb6 Dd7 29. Hgl Hh8 (Hér kom mjög til 1 álita að lieika 29. — Hxgl, 30. Hxgl, Bb5). 30. Hg7! — (Lagleg skiptamunsfórn, sem svartur er neyddur til að þiggja). 30. — Bxg7 31. fxg7 Hh7 32. Df6 Hg8 33. Bxf7 Hgxg7 34. Bxe6 De8 35. Bxd5 — (Nú hetfur hvítur uninið tvö peð fyrir skiptamundnn og hefur auk þess i frammá al- varlegar hótanir gegn svarta kómgnuim). 35. — He7 36. Df5 Hhg7 37. e6 Hg6 38. Bh3 Hexe6 39. Bxe6 Hxe6? (Tapar strax, en eftir t.d. 39. — Dxe6, 40. Dxe6, Hxe6. 41. Hd8, He8, 42. Hxe8, Bxe8. 43. Be3, h5, 44. Rd5 væri svarta staðan töpuð). 40. Hd8 Hel+ 41. Ka2 og svartur gafst upp. Jón Þ. Þór.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.